Fréttablaðið - 02.06.2006, Qupperneq 54
2. júní 2006 FÖSTUDAGUR14
■ ÞJÁLFARI:
Luis Aragones (f. 28. júlí 1938)
Aragones býr yfir gríðarlegri reynslu
sem þjálfari á Spáni og hefur hann þjálf-
að öll stærstu félög landsins, að undan-
skildu Real Madrid. Gera má
ráð fyrir að þjálfarastarfið hjá Spáni verði
hans síðasta á ferlinum, enda að verða 68
ára gamall. Vill enda með sigri á HM.
■ KOMST Á HM – með því að vinna
Slóvaka örugglega í tveimur umspils-
leikjum.
H - RIÐILL
Leikmannahópurinn
1. Iker Casillas, 25 ára, Real Madrid
2. Michel Salgado, 31 árs, Real Madrid
3. Asier Del Horno, 25 ára, Chelsea
4. Carlos Marchena, 27 ára, Valencia
5. Carlos Puyol, 28 ára, Barcelona
6. David Albelda, 29 ára, Valencia
7. Raul, 29 ára, Real Madrid
8. Xavi, 26 ára, Barcelona
9. Fernando Torres, 22 ára, Atletico Madrid
10. Jose Antonio Reyes, 23 ára, Arsenal
11. Luis Garcia, 28 ára, Liverpool
12. Antonio Lopez, 25 ára, Atletico M.
13. Andrés Iniesta, 22 ára, Barcelona
14. Xabi Alonso, 25 ára, Liverpool
15. Sergio Ramos, 20 ára, Real Madrid
16. Senna Marcos, 30 ára, Villarreal
17. Joaquin, 25 ára, Real Betis
18. Cesc Fabregas, 19 ára, Arsenal
19. Santiago Canizares, 37 ára, Valencia
20. Juanito, 30 ára, Real Betis
21. David Villa, 25 ára, Valencia
22. Pablo, 25 ára, Atletico Madrid
23. Jose Manuel Reina, 24 ára, Liverpool
Leikmannahópurinn
1. Ali Boumnijel, 40 ára, Africain
2. Karim Essediri, 27 ára, Rosenborg
3. Karim Haggui, 22 ára, Strasbourg
4. Alaeddine Yahia, 25 ára, Saint-Etienne
5. Zied Jaziri, 28 ára, Troyes
6. Hatem Trabelsi, 29 ára, Ajax
7. Mehdi Meriah, 27 ára, ES du Sahel
8. Mehdi Nafti, 28 ára, Birmingham City
9. Yassine Chikhaoui, 20 ára, ES du Sahel
10. Kaies Ghodhbane, 30 ára, Konyaspor
11. Dos Santos, 27 ára, Toulouse
12. Jaouhar Mnari, 30 ára, Nürnberg
13. Riadh Bouazizi, 33 ára, Erciyesspor
14. Adel Chedli, 30 ára, Nürnberg
15. Radhi Jaidi, 31 árs, Bolton
16. Adel Nefzi, 32 ára, US Monastir
17. Issam Jomaa, 22 ára, Lens
18. David Jemmali, 32 ára, Bordeaux
19. Anis Ayari, 24 ára, Samsunspor
20. Hamed Namouchi, 22 ára, Rangers
21. Karim Saidi 23 ára, Lecce
22. Hamdi Kasraoui 23 ára, Esperance
23. Sofiane Melliti 28 ára, Gaziantepspor
Leikmannahópurinn
1. O. Shovkovskiy, 31 árs, Dinamo Kiev
2. Andriy Nesmachniy, 27 ára, Dinamo Kiev
3. Serhiy Fedorov, 31 árs, Dinamo Kiev
4. A. Tymoschuk, 27 ára, Shakhtar Donetsk
5. V. Yezerskiy, 30 ára, Dnipro Dnipropetrovsk
6. A. Rusol, 23 ára, Dnipro Dnipropetrovsk
7. Andriy Shevchenko, 30 ára, AC Milan
8. O. Shelayev, 30 ára, Dnipro Dnipropetrovsk
9. Oleg Gusev, 23 ára, Dinamo Kiev
10. Andriy Voronin, 27 ára, Bayer Leverkusen
11. Serhiy Rebrov, 32 ára, Dinamo Kiev
12. Andriy Pyatov, 22 ára, Vorskla Poltava
13. D. Chigrynskiy, 20 ára, Shakhtar Donetsk
14. Andriy Gusin, 34 ára, CSK VVS Samara
15. Artem Milevskiy, 21 árs, Dinamo Kiev
16. Andriy Vorobey, 28 ára, Shakhtar Donetsk
17. Vladislav Vashchuk, 31 árs, Dinamo Kiev
18. S. Nazarenko, 26 ára, Dnipro Dnipropetrovsk
19. M. Kalinichenko, 27 ára, Spartak Moskva
20. Oleksiy Byelik, 25 ára, Shakhtar Donetsk
21. Ruslan Rotan, 25 ára, Dinamo Kiev
22. Vyacheslav Sviderskiy, 27 ára, Dinamo Kiev
23. Bogdan Shust, 20 ára , Shakhtar Donetsk
Leikmannahópurinn
1. Mohammed Al Deayea, 34 ára, Al Hilal
2. Ahmed Dokhi, 30 ára, Al Ittihad
3. Redha Tukar, 31 árs, Al Ittihad
4. Hamad Al Montashari, 24 ára, Al Ittihad
5. Naif Al Qadi, 27 ára, Al Ahli
6. Omar Al Ghamdi, 27 ára, Al Hilal
7. Mohammed Ameen, 26 ára, Al Ittihad
8. Mohammed Noor, 26 ára, Al Ittihad
9. Sami Al Jaber, 34 ára, Al Hilal
10. Mohammad Al Shlhoub, 26 ára, Al Hilal
11. Saad Al Harthi, 22 ára, Al Nasr
12. Abdulaziz Khathran, 33 ára, Al Hilal
13. Hussein Sulimani, 29 ára, Al Ahli
14. Saud Khariri, 26 ára, Al Ittihad
15. Ahmed Al Bahri, 26 ára, Al Ittihad
16. Khaled Aziz, 25 ára, Al Hilal
17. Mohammed Al Anbar, 21 árs, Al Hilal
18. Nawaf Al Temyat, 30 ára, Al Hilal
19. Mohammed Massad, 23 ára, Al Ahli
20. Yaser Al Kahtani, 24 ára, Al Hilal
21. Mabrouk Zaid, 27 ára, Al Ittihad
22. Mohammad Khojah, 24 ára, Al Shabab
23. Malek Mouath, 25 ára, Al Ahli
© GRAPHIC NEWSIker Casillas
Carles Puyol Sergio RamosMichel Salgado
Xavi
Pablo
Jose Antonio ReyesXabi AlonsoLuis Garcia
David Villa Raúl
LÍKLEGT BYRJUNARLIÐ 4-4-2
SPÁNN
HEIMSÁLFA: Evrópa
ÍBÚAFJÖLDI: 40,2 milljónir
SÆTI Á HEIMSLISTA: 5.
ÁÐUR TEKIÐ ÞÁTT Á HM:
1934, 1950, 1962, 1966,
1978, 1982, 1986, 1990,
1994, 1998, 2002.
■ LYKILMAÐUR: Xavi
Leikstjórnandi Barcelona
hefur náð sér af kross-
bandsslitum sem hann
hlaut um mitt síðasta
tímabil og verður klár í
slaginn þegar HM
hefst, Aragones til
mikillar léttis. Xavi
er og hefur verið
hálfgerður hryggur í
leik Spánar á síðustu árum, það er
hann sem dreifir spilinu kantana á
milli og leggur þannig grunninn
að skemmtilegum sóknarleik liðs-
ins.
■ FYLGSTU MEÐ:
David Villa
Sóknarmaður Valencia sem sló í gegn í
úrvalsdeildinni á Spáni í vetur og hefur fest
sig í sessi sem einn af lykilmönnum Aragones.
Býr yfir öllum þeim kostum sem góður fram-
herji þarf að hafa og hefur einstakt lag á að
þefa uppi marktækifærin.
■ VISSIR ÞÚ....
Að spænska liðið hefur sjaldan
eða aldrei litið eins sannfærandi
út? Sést það best á þeirri stað-
reynd að liðið hefur ekki tapað
leik í næstum tvö ár. Of mörg jafn-
tefli í undankeppninni urðu þó til
þess að Spánn þurfti að fara í
umspil.
■ STÓRA SPURNINGIN: Er bjartsýnin að bera
Spánverja, sem hafa aldrei náð langt á HM, ofur-
liði? Daginn eftir að hafa sigrað Slóvaka í umspilinu
var fyrirsögnin í Marca, útbreiddasta dagblaði Spán-
ar, á þennan veg: „Heimsmeistarakeppnin er okkar!“
ÚKRAÍNA
HEIMSÁLFA: Evrópa
ÍBÚAFJÖLDI: 48 milljónir
SÆTI Á HEIMSLISTA: 45.
ÁÐUR TEKIÐ ÞÁTT Á HM: Aldrei
ÞJÁLFARI: Oleh Blokhin (f. 5. nóv. 1952)
KOMST Á HM – með því að hafna í fyrsta
sæti í undanriðli 2 í Evrópu.
■ LYKILMAÐUR: ANDRIY SHEVCHENKO Rætt hefur verið
um að Úkraína sé eins manns lið sem standi og falli með
frammistöðu Shevchenko hverju sinni. Hann er fyrirliði
liðsins og allt í öllu í sókninni. Allir leikmenn liðsins
leitast eftir því að gefa á Shevchenko í hvert einasta sinn
sem þeir fá boltann.
■ VISSIR ÞÚ... að öllum að óvörum varð Úkraína fyrsta liðið
í Evrópu til að tryggja þátttökuréttinn í lokakeppni HM. Liðið
var í einum sterkasta undanriðlinum en náði frábærum úrslit-
um gegn ekki ómerkari þjóðum en Danmörku, Tyrklandi og
Evrópumeisturum Grikkja.
■ STÓRA SPURNINGIN: Geta Úkraínumenn brotist úr
þeirri táknmynd að vera eins manns lið? Í undankeppninni
vakti liðið athygli fyrir að vera vel skipulagt, erfitt að
finna glufur í vörninni og skorar ekki mikið fleiri mörk en
þörf er á. Minnir um margt á leik Evrópumeistara Grikkja
árið 2004?
TÚNIS
HEIMSÁLFA: Afríka
ÍBÚAFJÖLDI: 9,9 milljónir
SÆTI Á HEIMSLISTA: 21.
ÁÐUR TEKIÐ ÞÁTT Á HM: 1978, 1998, 2002
ÞJÁLFARI: Roger Lemerre (f. 18. júní
1941)
KOMST Á HM – með því að hafna í fyrsta sæti í
undanriðli 5 í Afríku.
■ LYKILMAÐUR: DOS SANTOS Hinn 27 ára gamli
framherji, sem ættaður er frá Brasilíu, skaust upp á
stjörnuhimininn þegar Túnis sigraði í Afríkukeppninni
árið 2004. Mikill markaskorari og þykir búa yfir
ótrúlegri skothörku.
■ VISSIR ÞÚ... að þjálfarinn Lemerre hefur gengið í
endurnýjun lífdaga eftir að hann tók við sem þjálfari
hjá Túnis árið 2002? Hann var, og er ennþá af sumum,
hataður í heimalandinu Frakklandi fyrir að hafa náð
mjög slökum árangri með franska landsliðið, en hann er
dýrkaður og dáður í Túnis fyrir að ná frábærum
árangri, m.a. sigri í Afríkukeppninni árið 2004.
■ STÓRA SPURNINGIN: Mun Lemerre þjást af eftirköst-
um frá síðustu heimsmeistarakeppni, þar sem franska
landsliðið undir hans stjórn beið afhroð? Frakkar voru
ríkjandi meistarar en komust ekki upp úr sínum riðli
eftir að hafa mistekist að vinna leik, hvað þá að skora
eitt einasta mark.
SÁDI-ARABÍA
HEIMSÁLFA: Asía
ÍBÚAFJÖLDI: 24,3 milljónir
SÆTI Á HEIMSLISTA: 34.
ÁÐUR TEKIÐ ÞÁTT Á HM: 1994, 1998, 2002
ÞJÁLFARI: Paqueta (f. 27. ágúst 1958)
KOMST Á HM – með því að hafna í fyrsta sæti í
lokariðli sínum í undankeppni Asíu.
■ LYKILMAÐUR: SAMI AL-JABER Lifandi goðsögn í
heimalandi sínu. Hinn 33 ára gamli framherji mun nú
taka þátt í sinni fjórðu heimsmeistarakeppni í röð og er
staðráðinn í að leiða liðið til betri árangurs en í síðustu
HM, en þá tapaði liðið öllum leikjum sínum í riðla-
keppninni, meðal annars 8-0 fyrir Þýskalandi.
■ VISSIR ÞÚ... að brasilíski þjálfarinn Paqueta er sá
fyrsti og eini í sögu fótboltans sem hefur orðið tvöfaldur
heimsmeistari á sama árinu. Þetta afrekaði hann árið
2003 þegar hann stýrði bæði u-17 og u-20 ára liði Brasil-
íu til heimsmeistaratitils.
STÓRA SPURNINGIN: Í annað sinn á ekki löngum tíma
ákveður knattspyrnusamband Sádi-Arabíu að reka þjálf-
arann sem kom liðinu á HM og ráða stærra nafn til að
stjórna liðinu í sjálfri lokakeppninni. Mun Paqueta ná að
slípa saman liðið eins og hann vill hafa það í tæka tíð eða
enda þjálfaraskiptin með hörmungum eins og fyrir fjór-
um árum?
© GRAPHIC NEWS© GRAPHIC NEWS© GRAPHIC NEWS
Spánverjar hafa alltaf verið
nefndir sem líklegir afreksmenn
á HM og EM. Samt sem áður
hefur þeim aldrei vegnað vel á
stórmóti en verður langþráð bið
þeirra ekki einhvern tímann endi
að taka?
„Það er það sem gerist inni á
vellinum sem skiptir máli. Það
sem blaðamenn skrifa og segja á
ekki að hafa nein áhrif á okkur og
við erum satt best að segja orðnir
þreyttir á þessu tali. Það sem
skiptir máli er að við munum koma
vel undirbúnir til leiks á HM og
við ætlum okkur að gera okkar
besta,“ segir Luis Aragones, lands-
liðsþjálfari Spánverja, en spænska
pressan er með stór orð um fram-
tíð hans ef Spánverjum vegnar
ekki vel í sumar.
Úkraínumenn taka í fyrsta
skipti þátt á HM og eru óskrifað
blað. Þeir þurfa að sanna að þeir
séu meira en eins manna lið, en
vissulega mun Andriy Shevchenko
koma til með að ráða úrslitum
fyrir þá. Túnis og Sádi-Arabía
gætu komið á óvart að því leyti að
þau lið hafa fáa þekkta menn innan
sinna raða og erfitt að afla sér
upplýsinga um þau. Ólíklegt verð-
ur þó að teljast að þau velgi Spán-
verjum og Úkraínu undir uggum.
Komast Spánverjar
loksins alla leið?