Fréttablaðið - 02.06.2006, Síða 64
2. júní 2006 FÖSTUDAGUR16
VISSIR ÞÚ...
...að hraðskreiðasta húsgagn veraldar
er breskur sófi? Hann kallast Casual
Lofa og er smíðaður af Bretunum
Edd China og David Davenport.
Sófinn nær 140 km/klst og er hann
fullkomlega löglegur sem farartæki á
breskum vegum. Hann er með 1.300
cc vél úr Mini sem nú þegar á að
baki 10.008 km í sófanum.
...að lengsta ferð á sláttuvél sem
farin hefur verið fór Kaninn Gary
Hatter á sláttutraktor sínum árið
2000? Ferðin var 23.487,5 km. Á
leiðinni heimsótti Gary öll fylki
Bandaríkjanna (nema Alaska og
Hawaii) auk Kanada og Mexíkó.
...að árið 2000 stökk Japaninn Yasu-
hiro Kubo úr flugvél í 3.000 m hæð?
Þetta væri ekki í frásögur færandi ef
hann hefði haft fallhlíf. 50 sekúnd-
um síðar greip hann fallhlíf sem hent
hafði verið úr flugvélinni skömmu
áður en hann stökk.
...að síðan 1989 hefur Bretinn
Edward Peter Hannaford prjónað
18,7 km langan prjónabút? Ætli það
sé ekki lengsti trefill í heimi?
...að það er ótúlegt hvað fólk gerir til
að setja met? Marco Hort frá Sviss
tróð 249 sogrörum upp í sig og hélt
þeim þar í 10 sekúndur.
...að annar ruglukollur, Ashrita Fuhr-
man frá Bandaríkjunum, staflaði 75
hálfslítra bjórglösum á hökuna á sér
þar sem þau stóðu í 10,6 sekúndur?
...að árið 2005 festi Garry Turnar
frá Bretlandi 159 hefðbundnar
þvottaklemmur í andlit sitt? Ekki
spyrja af hverju.
...að Paum van der Merwe tókst að
kasta tappa af bjórflösku 69,9 m á
flugvelli í Suður-Afríku? Það fylgir
ekki sögunni hversu lengi hann hafði
æft sig.
...að Paun Hunn getur ropað svo hátt
að flestir bjórþambandi karlmenn
skammast sín í víðurvist hans? Rop-
inn mælist 104,9 dB að styrk. Hvort
sem það er vegna eða þrátt fyrir
þennan hæfileika er Paul giftur.
...að Japaninn Kunihiko Terada getur
raðað vel stokkuðum spilastokki í
rétta röð í höndunum á innan við
41 sekúndu? Rétt röð er frá ás upp í
kóng; lauf, tígull, hjarta og spaði.
...að Hans Van Dan Helzel frá Banda-
ríkjunum gerði 51 jójóbragð á einni
mínútu í sjónvarpsþætti í Bretlandi?
Þetta gerði hann 2004, löngu eftir
að jójó-æðið kom og fór.
...að Indverjinn S. Namasivayam
getur státað sig af því að hafa í
júlímánuði árið 2004 sippað 234
sinnum á einni mínútu? Lítill áhugi
virðist vera á því að slá metið.
...að Alesya Goulevich tókst að láta
99 húllahringi snúast um líkama
sinn í Big Apple sirkustjaldinu í
Boston í Bandaríkjunum? Alesya
er frá Hvíta-Rússlandi þar sem fólk
hefur greinilega lítið annað merkilegt
við tíma sinn að gera en að húlla.
...að á 53 árum kláruðu Suður-Afr-
íkumennirnir dr. Reinhart Straszacker
og dr. Hendrik Roelof van Huyssteen
112 bréfskákir. Þegar þeir hættu
bréfaskiptunum höfðu þeir unnið
jafn margar skákir. Það má þó segja
að Straszacker hafi tapað því ástæða
þess að þeir hættu var að hann dó.
Sálumessur fylgja flestar ákveðnu
kaþólsku formi sem hefur viðgengist
allt frá miðöldum og byggjast á því að
söfnuðurinn biður guð almáttugan að
losa hinn látna undan píslum helvítis
og taka hann til sín og veita honum
miskunn og frið. Mörg tónskáld hafa
spreytt sig á því að skrifa sálumessur
en nokkrar þeirra eru þó frægari en
aðrar.
1. Wolfgang Amadeus Mozart samdi
Requiem í d-moll stuttu fyrir dauða
sinn 1791. Hann náði ekki að klára
verkið en við það lauk nemandi hans
Sussmayr.
2. Hector Berlioz. Grande Messe des
Morts er eitt af best þekktu verkum
tónskáldsins. Það er skrifað fyrir stóra
hljómsveit með mikla áherslu á blást-
urs- og ásláttarhljóðfæri. Verkið tekur
um 90 mínútur í flutningi.
3. Giuseppe Verdi. Requiem Verdis
byrjar á orðunum, Requiem aeternam
dona eis, Domine. Verdi samdi verkið
til flutnings þegar ár var liðið frá
dauða ítalska skáldsins Alessandro
Manzoni, en hann var í miklum
metum hjá Verdi.
3. Johannes Brahms. Þýsk sálu-
messa, Ein deutsches Requiem, er
eitt glæsilegasta verk Brahms og
jafnframt það sem notið hefur hvað
mestra vinsælda. Það kom mörgum á
óvart að Johannes Brahms skyldi taka
upp á því að semja sálumessu. Hann
var ekki ýkja trúrækinn og gerði lítið
af því um dagana að semja kirkjuleg
verk. Þýska sálumessan er heldur
engin venjuleg sálumessa. Brahms
lætur hinn hefðbundna texta lönd og
leið en safnar saman textum héðan
og þaðan úr heilagri ritningu og það
á þýsku en ekki latínu.
4. Gabriel Fauré. Requiem í d-moll
samdi Fauré á árunum 1877-1890.
Sálumessan er þekktust af stærri
verkum tónskáldsins en frægasti kafli
hennar er án efa sópranarían Pie
Jesu, sem oft er sungin af drengja-
rödd.
5. Andrew Lloyd Webber er þekkur
fyrir margt annað en að skrifa klass-
íska tónlist. Hann skrifaði Requiem
í minningu föður síns, William Lloyd
Webber, sem lést árið 1982.
TOPP 5: SÁLUMESSUR
Esja eða Esjan eins og hún er oft
kölluð í daglegu tali er fjall sem
stendur við Kjalarnes í Reykjavík og er
eitt af einkennum höfuðborgarsvæð-
isins. Útsýni yfir fjallið hefur í gegnum
tíðina haft áhrif á fasteignaverð á
svæðinu, og til er fólk sem segist geta
spáð fyrir um veðrið út frá litunum í
fjallinu. Hæsti tindur Esjunnar er 914
metrar. Nokkrar gönguleiðir eru upp
á fjallið og þar eru vinsæl útivistar-
svæði. Esja er syðsta blágrýtisfjall á
Íslandi.
FJALLIÐ: ESJA
Vinsælt útivistarsvæði
ESJAN ER EITT AF EINKENNUM
HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS