Fréttablaðið - 02.06.2006, Síða 80

Fréttablaðið - 02.06.2006, Síða 80
 2. júní 2006 FÖSTUDAGUR48 Útvarpsstöð varnarliðsins hætti í gær útsendingum sínum á mið- bylgju eftir nær 55 ára starfsemi. Varnarliðið hóf tilraunaútsending- ar á Keflavíkurflugvelli undir nafninu RADIO TFK á miðbylgju í nóvembermánuði 1951. Fordæmi voru fyrir útvarpssendingum breska og bandaríska herliðsins hér á landi í síðari heimsstyrjöld- inni, en Bretar og Bandaríkjamenn leigðu sérstaka dagskrártíma fyrir hermenn sína í Ríkisútvarpinu. Þá var lítil útvarpsstöð starfrækt á Keflavíkurflugvelli í stríðslok. Var varnarliðinu veitt formlegt leyfi til reksturs útvarpsstöðvar allan sólarhringinn í maímánuði 1952 og varð þannig lögformlegur aðili að rekstri ljósvakamiðla á Íslandi. Auk eigin þáttagerðar flutti útvarpsstöðin gjarna flest það sem vinsælast var í bandarísku útvarpi líkt og tónlistarþætti Casey Kasem, American Top Forty, Charlie Tuna, Wolfman Jack, Gene Price, Dick Clark og fréttaþætti Pauls Harvey og Roberts. W. Morgan auk All Things Considered, að ógleymdum þáttum á borð við CBS Radio Mis- tery Theater og Golden Days of Radio. Starfsmenn útvarps- og sjónvarpsstöðvar varnarliðsins voru að jafnaði um 25 talsins, þar af þrír íslenskir tæknimenn. Sex hugmyndir að góðri helgi FERÐAVEÐRIÐ UM HELGINA Veðurstofan spáir vestlægri átt, 5-10 metrum á sekúndu, við norðausturströndina á laug- ardag, en hægari annars staðar. Smáskúrir verða einkum vestan til á landinu en léttir víða til síðdegis. Hitinn verður á bilinu 7 til 17 stig, hlýjast á Suðausturlandi. Á sunnudag verður fremur hæg suðlæg átt og víða léttskýjað en það má búast við rigningu sunnan- og vestan- lands með morgninum. Hiti verður á bilinu 10 til 18 stig, hlýjast á Norður- og Austurlandi. Á mánudag verður sunnanátt og rigning á Suðvesturlandi og vestanlands, en annars þurrt. Hiti svipaður og síðustu daga. Ein mesta ferðahelgi sumarsins er framundan og vafalítið ætla fjölmargir að leggja land undir fót. Snæfríður Ingadóttir skoðaði hvað er í gangi víðs vegar um landið. 1. BLÚS, GIFTINGAR OG GREIFARNIR Á AKUREYRI Enginn ætti að verða svikinn af því að bruna til Akureyrar um helgina því þar verður ýmislegt um að vera um hvítasunnuna. Tónlistarhátíðin Akureyri International Music Festival verður í fullum gangi alla helgina en þar verður blúsinn í hávegum hafður. Minjasafnið á Akureyri opnar einnig sumarsýningu sína um helgina en hún ber heitið Ef þú giftist og fjallar um brúðkaupssiði fyrr og nú. Mörg söfn hafa lánað gripi og skjöl á sýninguna en þar er einnig að finna fjölda ljósmynda úr eigu Minjasafnisins og starfandi ljósmyndara á Akureyri sem sýna vel þróun klæðnaðar og ljósmyndahefðar frá seinni hluta 19. aldar og fram til dagsins í dag. Hinir einu og sönnu norðlensku Greifar slá svo upp balli í Sjallanum á laugardagskvöldið en hljómsveitin vinnur þessa dagana að nýrri plötu. 2. SÖNGUR OG BALL Á ESKIFIRÐI Þeir sem leggja leið sína austur á firði geta skellt sér á ball með hljómsveitinni Í svörtum fötum sem spilar á Eskifirði á laugardagskvöldið. Áður en farið er á ballið er hægt að hlýða á tónlist ungs hæfileikafólks í Eskifjarðarkirkju en þar koma fram Þorsteinn Helgi Árbjörnsson og Janette A. Zilioli. Þorsteinn er heimamaður sem hefur verið við söngnám í Bandaríkjunum að undanförnu. 3. FUGLALÍF Í SKAGAFIRÐI Ferðafélagið Útivist ætlar að sigla á milli eyja í Skagafirði um helgina. Meðal annars verður farið í Drang- ey, Málmey, Þórðarhöfða og Gler- hallavík. Ekið er á eigin bílum norð- ur og gist í húsi á Hólum í Hjaltadal. Nú er fuglalífið í algleymingi og því rétti tíminn til þess að heimsækja eyjarnar núna. Fararstjóri í þessarri ferð er Reynir Þór Sigurðsson. 4. KAJAKMÓT Á STOKKSEYRI Allir þeir sem einhvern áhuga hafa á kajaksportinu verða á Stokkseyri um helgina en þar fer fram hið árlega kajakmót Eiríks rauða. Sérstakir gestir móts- ins í ár eru þau Jeff Allen frá Bretlandi og Hadas Feldman frá Ísrael en þau hafa í sameiningu róið umhverfis Japan og eyjuna Suður-Georgíu. Dagskrá mótsins er annars fjölbreytt og þar verða ýmis námsskeið í boði. Eitt af atrið- um mótsins verður sýnikennsla í því hvernig maður lætur bjarga sér úr kajak og í þyrlu, en Landhelgisgæslan mun mæta með þyrlu á svæðið og atriðið verður sýnt við höfnina í Stykkishólmi. Nánari upplýsingar um dagskrá mótsins má fá á www.seakayakiceland.com 5. TÓNLEIKAR Í HELLI Í BORGARFIRÐI Is Nord tónlistarhátíðin verður haldin í annað sinn í Borgarnesi um helgina en þar er megináhersla lögð á tónlist sem tengist söguarfi Íslands. Á föstudags- kvöldið verða tónleikar í Reykholtskirkju þar sem koma fram félagar úr Sinfón- íuhljómsveit Norðurlands og Kammerkór Vesturlands og fleiri. Á laugardags- kvöldið verða tónleikar í Surtshelli en þar munu Diddi fiðla, Bára Grímsdóttir og Steindór Andersen kveða rímur og spila á gömul hljóðfæri við kertaljós. Á mánudag verða svo lokatónleikar hátíðarinnar haldnir í Borgarneskirkju. Það er annars nóg annað um að vera á Vesturlandi um hvítasunnuhelgina, og má þar telja víkingaleiki, tilboð á sjóferðum með Baldri og kynningu á frístunda- byggðum en nánar má lesa um þá dagskrá á www.west.is 6. ROKK OG DJASS Í HÖFUÐ- BORGINNI Þeir sem vilja fara í styttri ferða- lög innan borgarmarkanna geta til dæmis farið á Jómfrúna á laugar- dag en eins og síðustu ár er boðið upp á ókeypis djass á staðnum alla laugardaga milli kl. 16-18. Á fyrstu tónleikum sumarsins leikur kvart- ett víbrafónleikarans Árna Scheving og gítarleikarans Jóns Páls Bjarna- sonar. Tónlistarhátíðin Reykjavík Trópík er líka í fullum gangi en hún fer fram í sirkustjaldi fyrir fram- an aðalbyggingu Háskóla Íslands en þar spila hljómsveitir á borð við Jeff who?, Leaves, Kimono og Supergrass. Búið er að opna Árbæj- arsafn og þar er að venju margt að sjá. Tilvalið er að kíkja þangað á sunnudag en þá koma Fáksmenn í heimsókn og guðþjónusta verður í gömlu torfkirkjunni kl. 11. Annars er líka langur laugardagur á Lauga- veginum og mikið um að vera. Kaninn kveður eftir hálfa öld ÚTSENDINGUNNI HÆTT Friðrik Haraldsson, tæknistjóri útvarps- og sjónvarpsstöðvar varnarliðsins, slekkur á sendinum og þar með var 54 ára sögu útvarpsstöðvarinnar lokið. Fönkveitin Jagúar heldur sína fyrstu tónleika í langan tíma á Nasa í kvöld. Meðlimir sveitarinn- ar hafa verið uppteknir í hinum ýmsu verkefnum að undanförnu, bæði hér á landi sem erlendis. Eru þeir nú á leiðinni í æfingabúðir vegna nýrrar plötu sem er reiknað með að komi út með haust- inu. Fönkhljómsveitin Nortón mun hita upp fyrir Jagúar og plötu- snúðurinn DJ Ingvar. Húsið opnar á miðnætti og er miðaverð 1000 krónur. Aldurstakmark er 20 ár. Jagúar snýr aftur JAGÚAR Fönksveitin Jagúar spilar á Nasa í kvöld í fyrsta sinn í langan tíma. 1 2 3 4 5 6
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.