Fréttablaðið - 02.06.2006, Qupperneq 85
Rás 2 mun senda beint út frá tónlistar-
hátíðinni Reykjavík Trópík næstkomandi
laugardagskvöld. Þá spila hljómsveitirn-
ar Supergrass, Leaves, Jeff Who?, Kim-
ono og Hairdoctor.
Þátturinn Poppland mun jafnframt
hita upp fyrir Reykjavík Trópík á föstu-
dag, en fyrstu hljómsveitirnar koma á
svið skömmu eftir að þættinum lýkur.
Tónleikahátíðin verður haldin í 2000-
manna sirkustjaldi fyrir framan aðal-
byggingu Háskóla Íslands frá föstudegi
til sunnudags.
Supergrass
í beinni
SUPERGRASS Breska hljómsveitin
Supergrass spilar í beinni útsendingu á
Rás 2 á laugardagskvöld.
Tónlistarhátíðin Reykjavík Trópík
hefst á lóð Háskóla Íslands í dag.
Hljómsveitin Jakobínarína mun
ríða á vaðið klukkan 16.30 en síðar
um kvöldið koma meðal annars
fram Girls in Hawaii, Hjálmar,
Ladytron og Apparat.
Á morgun troða upp sveitir á
borð við Supergrass, Leaves og
Jeff Who? og á sunnudag er síðan
röðin komin að Kid Carpet, Dr.
Spock, Ghostigital, ESG og
Trabant.
„Þetta verður flott hátíð og
mikið af góðum tónlistarmönnum
munu koma fram, „segir Ragnar
Kjartansson, söngvari Trabant.
„ESG er til dæmist mest
„samplaða“ sveit í heimi og það
verður mjög gaman að sjá hana
spila.“
Trabant tók nýverið upp mynd-
band við lagið The One. Sveitin fer
síðan í tónleikaferð þann 7. júní
sem stendur yfir í fimm daga.
Mun hún spila í Rússlandi og á
tónleikahátíð á Spáni og víðar.
Gunnhildur Oddsdóttir og
Fabrizio Frascaroli, skiptinemar
við Félagsvísindadeild Háskólans,
eru skipuleggjendur Reykjavík
Trópík. Ákváðu þau að snúa sér að
tónleikahaldi í framhaldi af vel
heppnuðu starfi þeirra í Stúdenta-
kjallaranum. Vonast þau til að
hátíðin verði árlegur viðburður í
framtíðinni.
Hægt er að kaupa passa sem
gildir á alla hátíðina sem kostar
6500 krónur. Einnig er hægt að
kaupa miða á hvern dag fyrir sig.
Miðasala fer fram á midi.is, í Skíf-
unni og BT á Akureyri og Sel-
fossi.
Reykjavík Trópik hefst í dag
FABRIZIO Skiptineminn Fabrizio kynnir hátíðina fyrir blaðamönnum inni í tjaldinu þar sem hljómsveitirnar koma fram. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Tónlistarhátíðinni Reykjavík rokk-
ar 2006 sem fara átti fram 29. júní
til 1. júlí hefur verið aflýst.
Ástæðan er slök byrjun
aðgöngumiðasölu á hátíðina en þar
áttu meðal annarra að koma fram
David Gray, The Darkness, Motör-
head, Hjálmar, Trabant, Ham,
Mínus, Ampop, Kate og Dr.
Spock.
Allir aðgöngumiðar sem keypt-
ir voru með kreditkorti á útsölu-
stöðum, í gegnum síma eða á net-
inu bakfærast sjálfkrafa. Allir
aðgöngumiðar sem keyptir voru
með debetkorti eða reiðufé á
útsölustöðum fást endurgreiddir
hjá midi.is, Klapparstíg 16, 3. hæð
frá og með miðvikudeginum 7.
júní til 14. júní.
Hátíð aflýst
DARKNESS Hljómsveitin The Darkness mun
ekki halda tónleika hér á landi um næstu
mánaðarmót.
TRABANT Er á leiðinni til Rússlands og
Spánar en spilar fyrst á Reykjavík Trópik.
[UMFJÖLLUN]
TÓNLIST
Þetta er nýja grúppan hans Jacks
White úr The White Stripes. Ég
átta mig ekki alveg á því hvers
vegna hann hefur fundið hjá sér
ástæðu til þess að stofna nýja
hljómsveit. Kannski var hann orð-
inn svona leiður á því að vera
stöðugt á tónleikaferðalagi með
stelpu?
Önnur ástæða gæti verið sú að
hann hafi langað til að vinna með
Brendan Benson sem semur með
honum öll lögin auk þess að syngja
nokkur lög, þá annaðhvort með
eða án Jack White.
Eins og flest annað sem White
snertir þá er þessi plata virði
þyngdar sinnar í gulli. Eðal blús-
rokk með sönglínum sem festast í
heilanum. Það er líka svolítið
gaman að heyra einkennandi fuzz-
gítarhljóm White í nýjum hljóð-
heimi. Það er líka nokkuð augljóst
að White hefur langað til að brjóta
þá þröngu ramma sem hann hefur
á vinnuferlinu við upptökur á plöt-
um The White Stripes. Þið munið
kannski eftir hvöt hans til þess að
tilkynna aðdáendum sínum í plötu-
umslögum að öll platan hafi verið
hljóðrituð á analog-segulbands-
tæki, eins og það skipti einhverju
höfuð máli. Hljómur The Racont-
eurs er mun stærri og tilbúnari,
hljóðfærum hlaðið ofan á og lík-
legast eitthvað lagað til eftir á. Og
það er bara allt í góðu lagi, því
platan hljómar eins og góðar rokk-
plötur eiga að gera.
Hér eru bæði hæg og hröð lög. Það
undarlegasta er að hröðu lögin
minna svolítið á White Stripes,
eins og hið frábæra titillag Brok-
en Boy Soldier, en hægu lögin
minna á eitthvað allt annað. Þannig
er lagið Together til dæmis slá-
andi líkt útgáfu Faith No More af
laginu Easy eftir The Commod-
ores. Held að það sé meira að segja
sami hljómagangur í þessum
lögum. Lokalag plötunnar, Blue
Veins, minnir mig svolítið á sóló-
plötur Roberts Plants á níunda
áratugnum.
Í heildina er þetta mjög vönduð og
sterk plata. Öll lögin tíu hafa upp á
eitthvað að bjóða og manni finnst
maður aldrei vera svikinn. Ég held
nú samt að ég fari varlega í það að
kalla þessa sveit „ofurgrúppu“
eins og svo margir kollegar mínir
úti í hinum stóra heimi eru að gera
þessa dagana. Þetta er bara fín
blúsrokkplata, með eftirminnileg-
um lögum og beittum önglum.
Birgir Örn Steinarsson
Jack White slær gull, aftur
THE RACONTEURS:
BROKEN BOY SOLDIERS
NIÐURSTAÐA:
Frumraun nýjustu sveitar Jack White er engin
vonbrigði. Fyrsta flokks blúsrokk með grípandi
lögum og textum.
DAGSKRÁ REYKJAVÍK TRÓPÍK
FÖSTUDAGUR
16.30-17.00 Jakobínarína
17.20-17.50 Cynic Guru
18.10-18.40 Daníel Ágúst
19.00-19.40 Benni Hemm Hemm
20.00-20.40 Girls in Hawai
21.00-22.00 Hjálmar
22.30-23.40 Ladytron
00.00-01.00 Apparat Organ Kvartett
LAUGARDAGUR
15.30-16.00 Skátar
16.20-16.50 The Foghorns
17.10-17.40 Jan Mayen
17.50-18.20 Stilluppsteypa
18.40-19.20 Úlpa
19.40-21.10 Johnny Sexual
20.30-21.10 Kimono
21.30-22.10 Jeff Who?
22.30-23.20 Leaves
23.50-01.00 Supergrass
SUNNUDAGUR
15.30-16.00 Nortón
16.10-16.40 Hermigervill
17.00-17.20 Forgotten Lores
17.30-18.00 Hairdoctor
18.20-19.00 Flís & Bogomil Font
19.20-20.20 Kid Carpet
20.40-21.30 Dr. Spock
21.40-22.20 Ghostigital
22.40-23.40 ESG
23.40-00.20 President Bongo
00.20-01.00 Trabant