Fréttablaðið - 02.06.2006, Side 86
54 2. júní 2006 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Ragnhildur til Danmörku
Skyttan Ragnhildur Rósa Guðmunds-
dóttir úr Haukum hefur samið við
danska liðið Skive sem leikur í
næstefstu deild. Ragnhildur skoraði að
meðaltali 3,6 mörk fyrir Hauka í DHL-
deild kvenna en samningurinn við Skive
er til tveggja ára.
ÍÞRÓTTASTYRKIR Nú þegar 27 mán-
uðir eru í Ólympíuleikana í Peking
er undirbúningur margra þegar
hafinn. Ólympíusamhjálpin, sem
er hluti af Alþjóða Ólympíunefnd-
inni, hefur ákveðið að styrkja
fimm unga íslenska íþróttamenn
um 1.000 dollara hvern á mánuði
fram að leikunum, sem nemur 72
þúsund krónum. Íþróttamennirnir
fimm eru Ásdís Hjálmsdóttir,
frjálsíþróttamaður, Björn Þor-
leifsson, taekwondomaður, sund-
kappinn Jakob Jóhann Sveinsson,
Ragna Ingólfsdóttir, badminton-
kona og Rúnar Alexandersson,
fimleikamaður.
Styrkurinn er til viðbótar þeim
styrkjum sem íþróttamennirnir
fimm njóta nú þegar frá Afreks-
jóði ÍSÍ. Ásdís og Rúnar er fyrir á
A-styrk, sem nemur 160.000 krón-
um á mánuði, Björn, Jakob Jóhann
og Ragna eru á B-styrk, en hann
nemur helmingi af A-styrk, 80
þúsund krónum.
„Þetta skapar krökkunum frá-
bært tækifæri til að undirbúa sig
með eðlilegum hætti fyrir Ólymp-
íuleikana og til að ná þeim mark-
miðum sem þeir setja sér. Að byrja
undirbúninginn svona snemma,
mun fyrr en áður fyrr er að ég
held að það sé í takti við þessa
auknu þróun, það er komið meira
um langtímamarkið.
Hreyfingin er að verða mun
faglegri en hún hefur verið áður,
og ekki síst sérsamböndin sem eru
að standa að baki þessum áhorf-
endum,“ sagði Ólafur Rafnsson,
forseti ÍSÍ, í gær.
Hann segir þó að þrátt fyrir
fjárveitinguna verði ekki sett nein
auka pressa á styrkhafana fimm.
„Ég sagði það í og með í gríni að
við kölluðum eftir medalíum á
leikunum. Ég held að það sé ekki
bara vilji heldur einnig krafa og
markmið íþróttamannanna. Við
munum ekki skamma þau ef þau
koma ekki heim með verðlauna-
peninga um hálsinn, ég er viss um
að þau muni gera sitt besta og það
er það eina sem við förum fram
á,“ sagði Ólafur, en greinilegt er
að mikið verður lagt úr leikunum.
„Ólympíuleikar og heimsmeist-
aramót eru hámark hvers íþrótta-
manns og þetta er það stærsta hjá
okkur á næstunni. Við erum að
setja mikið púður í þetta og við
munum beita öllum úrræðum sem
við höfum til að leggja allt í leik-
ana.
Þetta eru allt glæsilegir íþrótta-
menn og verðugir fulltrúar Íslands
á leikunum og miðað við hvernig
staðan er núna er ekki nokkur
ástæða til annars en að vera fullur
bjartsýni fyrir leikana,“ sagði
Ólafur Rafnsson.
hjalti@frettabladid.is
Fimm íþróttamenn styrktir
Í gær voru undirritaðir samningar við fimm íþróttamenn um styrk fyrir
Ólympíuleikana í Peking árið 2008. Ólafur Rafnsson, formaður ÍSÍ, segir að þetta
gefi íþróttamönnunum gott tækifæri til að undirbúa sig sem best fyrir leikana.
SKRIFAÐU HÉRNA VINUR Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, bendir Rúnari Alexand-
erssyni hvar hann á að skrifa undir í dag. Til vinstri er Ragna Ingólfsdóttir, badmintonkona
og til hægri er Ólafur Rafnsson, nýkjörinn forseti ÍSÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN
BADMINTON „Ef ég fengi ekki styrk-
inn væri þetta ekki hægt, það er
því varla hægt að lýsa því hversu
mikilvægt þetta er,“ sagði Ragna
Ingólfsdóttir, badmintonkona við
styrkveitingu ÍSÍ í gær.
„Ég er í Evrópskri æfingaáætl-
un þar sem ég var valin ásamt tut-
tugu öðrum badmintonspilurum
sem eiga góða möguleika á því að
komast á leikana árið 2008 og þann
hóp hitti ég nokkrum sinnum á ári.
Annars verð ég að æfa mikið á
Íslandi og fara út öðru hvoru til að
taka þátt í mótum,“ sagði Ragna,
sem hefur þegar sett sér markmið
fyrir leikana í Kína.
„Ég vonast til að bæta metið á
leikunum sem er einn sigur, það
væri ekki leiðinlegt að ná í það
minnsta tveimur, það er markmið-
ið núna,“ sagði Ragna glaðbeitt að
lokum. - hþh
Ragna Ingólfsdóttir:
Ekki hægt án
styrksins
ÍSLANDSMEISTARI Ragna með Íslands-
meistarabikarinn 2006 í höndunum en
hann vann hún fyrir ekki alls löngu.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
FIMLEIKAR Fimleikakappinn Rúnar
Alexandersson var í skýjunum
með styrkinn sem hann fékk frá
ÍSÍ í gær. „Með þessum styrk get
ég farið á fleiri mót erlendis og
það gefur mér kleift að æfa enn
meira. Ég er að æfa þrekið á fullu
þessa dagana og er aðallega að að
æfa í Riga í Lettlandi, þar sem
einn af Ólympíumeisturum í gól-
fæfingum er einnig við æfingar.
Ég er því að æfa við topp aðstæð-
ur með topp íþróttamönnum,“
sagði Rúnar.
„Það er heimsmeistaramót í
Danmörku í október og undan-
keppnin fyrir Ólympíuleikana er
svo í byrjun næsta árs. Vonandi
tekst mér að vinna mér inn sæti á
leikunum árið 2008 þar,“ sagði
Rúnar. - hþh
Rúnar Alexandersson:
Æfir með þeim
bestu í Riga
Á BOGAHESTINUM Rúnar er hér í æfingum
sínum á bogahesti á Ólympíuleikunum í
Aþenu 2004. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
> Ólafur á heimaslóðir
Markvörðurinn Ólafur Gíslason hefur
náð munnlegu samkomulagi við
handknattleiksdeild Vals eftir árs dvöl
hjá Pfadi Winterthur í Sviss. Ólafur er 25
ára en hann hóf ferilinn hjá Valsmönn-
um en lék svo með Aftureldingu og ÍR
áður en hann hélt út. Hann er fjórði
leikmaðurinn sem gengur til liðs við Val
á skömmum tíma og á að veita Pálma
Péturssyni samkeppni eftir að Hlynur
Jóhannesson lagði skóna á hilluna.
Ólafur og Markús Máni Michaelsson
skrifa formlega undir hjá Val í
næstu viku.
FÓTBOLTI Frank Lampard, miðju-
maður enska landsliðsins, segist
ætla að halda áfram sem víta-
skytta liðsins þrátt fyrir að hfa
misnotað víti í æfingaleiknum
gegn Ungverjalandi. Gabor Kiraly
varði spyrnuna frá Lampard í 3-1
sigurleik enska liðsins en samt
sem áður vill Lampard halda
áfram að taka vítin. „Maður getur
alltaf klúðrað einn daginn en samt
sem áður vil ég halda áfram,“
segir Lampard en hann segist ekki
hafa getað æft vítin af krafti að
undanförnu þar sem hann hafi
verið upptekinn við aðra hluti.
Annars er það að frétta úr her-
búðum enska landsliðsins að Gary
Neville missti af æfingu í gær
vegna smávægilegra meiðsla.
„Þetta er alls ekkert alvarlegt,
bara smámunir eftir leikinn á
þriðjudag. Hann verður orðinn
klár í slaginn fyrir fyrsta leik,“
sagði talsmaður enska knatt-
spyrnusambandsins.
- egm
Frank Lampard, Englandi:
Ég mun taka
vítin áfram
TEKUR VÍTIN Lampard heldur hlutverki sínu
sem vítaskytta. NORDICPHOTOS/AFP
HANDBOLTI Halldór Ingólfsson,
leikmaður og aðstoðarþjálfari
Hauka, mun að öllum líkindum
semja við norska handknattleiks-
félagið Stavanger Handball.
Halldór hélt út í vikunni til við-
ræðna við félagið, sem gerði
honum tilboð, en Halldór sendi
þeim gagntilboð til baka.
„Ég er ekki búinn að skrifa
undir en ég lagði fram mínar
óskir og þeir munu senda mér
annað tilboð um helgina. Þetta
ætti að skýrast endanlega þá en
það munaði ekki ýkja miklu á til-
boðunum. Ég geri ráð fyrir því
að þetta klárist og við stefnum
að því,“ sagði Halldór við Frétta-
blaðið í gær en hann var þá á
heimleið frá Noregi.
„Þetta er gamall og fornfræg-
ur klúbbur sem er að byggja upp
um þessar mundir. Það hafa
nokkrir leikmenn farið frá þeim
og því er unnið hörðum höndum
að því að styrkja liðið. Ég lagði
fram mínar hugmyndir og hlust-
aði á þeirra,“ sagði Halldór sem
útilokaði að taka með sér leik-
menn frá Haukum, en sagði að
íslenskir leikmenn kæmu alveg
eins til greina ef sú staða kæmi
upp.
Halldór stjórnaði æfingu hjá
liðinu og fékk forsmekkinn af
því sem koma skal hjá liðinu, ef
hann tæki við. „Það voru ágætis
strákar í liðinu en það vantaði
kannski leikmenn sem sköruðu
framúr,“ sagði Halldór, sem talar
ágæta norsku sem gerir honum
auðveldara fyrir en ella. - hþh
Halldór Ingólfsson, leikmaður Hauka í Hafnarfirði:
Semur líklega við
Stavanger Handball
HALLDÓR Er hugsaður fyrst og fremst
sem þjálfari Stavanger en kæmi til með
að spila eitthvað með liðinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/OLE NIELSEN
FÓTBOLTI Þýski landsliðsfyrirliðinn
Michael Ballack gagnrýnir leikað-
ferð Jürgens Klinsmann, en nú er
aðeins ein vika í heimsmeistara-
mótið í heimalandi þeirra kum-
pána. Ballack sagði að honum lit-
ist illa á að halda áfram að spila á
sama hátt og Þjóðverjar gerðu í 2-
2 jafnteflinu gegn Japönum í
æfingaleik í vikunni.
„Jürgen Klinsmann hefur verið
að búa til ungt og nýtt lið síðustu
tvö ár en við erum alltaf að gera
sömu mistökin og þurfum að
styrkja vörnina til muna. Við sækj-
um mjög mikið og það sýndi sig
gegn Japan að það þýðir að þegar
við töpum boltanum, erum við í
miklum vandræðum. Við verðum
að einbeita okkur að vörninni en
ekki sókninni,“ sagði Ballack, sem
hefur aldrei gagnrýnt Klinsmann
áður.
„Þjálfarinn veit hvað ég er að
hugsa og allir aðrir leikmenn gera
það líka. Við höfum þegar talað
um þetta, en það verður undir
Klinsmann komið að ákveða hvað
við gerum,“ sagði Ballack. - hþh
Michael Ballack:
Gagnrýnir
Klinsmann
KLINSMANN Fær það óþvegið frá lands-
liðsfyrirliða sínum. NORDICPHOTOS/AFP
Heiðmar Felixson er ekkert á því að
taka sér sumarfrí frá atvinnumennsk-
unni í handboltanum en hann leikur
með þýska liðinu Hannover-Burgdorf.
Heiðmar er kominn hingað til lands og
auk þess að starfa í lögreglunni á Dalvík
spilar hann knattspyrnu með Þór í 1.
deildinni í sumar.
„Maður hefur fótboltann í sér líka, ég
fer þetta á stærðinni og hraðanum. Ég
hef nánast aldrei hætt í fótbolta en það
eru komin þrjú ár síðan ég var síðast
í honum á fullu. Ég hlakka mikið til
sumarsins með Þór og líst vel á þetta,“
sagði Heiðmar, en hann spilaði sinn
fyrsta leik á miðvikudaginn þegar Þór
vann Tindastól í VISA bikarnum, 6-1.
Heiðmar skoraði eitt mark og lagði auk
þess upp tvö.
Framtíð hans í handboltanum er öllu
óskýrari en lið hans var á barmi gjald-
þrots og leit út fyrir að allir leikmenn
þyrftu að fara frá liðinu.
„Þetta lítur betur út núna, það eru
komnir góðir peningar inn í klúbbinn en
við missum reyndar Robertas Pauzuolis,
okkar besta mann. Ég veit að ég
get verið þarna áfram
eins lengi og ég vil en
hugurinn er farinn að
stefna heim. Ég geri
þó fastlega ráð fyrir því
að ég klári þetta tímabil
og komi síðan heim, enda á
ég eitt ár eftir af samningn-
um. Ætli ég komi þá ekki
heim og fari í fótboltann,“
sagði Heiðmar léttur í bragði
en hann staðfesti að hann hefði talað
við handknattleiksdeildir sinna gömlu
liða, KA og Þórs.
Heiðmar er orðinn víðfrægur fyrir
heimasíðu sína Heiðmar.de, sem hefur
vakið athygli fyrir léttleika og skemmti-
legheit og ber jafnan á góma samkeppni
á milli hans og hins dýnamíska Loga
Geirssonar, sem heldur uppi heimasíð-
unni logi-geirsson.de. „Ég er miklu betri
en Logi! Neinei, við erum
báðir góðir en síðurnar
eru ekkert svipaðar,“
sagði Heiðmar, sem er með
þrjá menn í því að uppfæra
heimasíðuna, en uppstilltar
myndir af honum hafa
vakið hvað mesta lukku á
síðunni.
HINN ÓTRÚLEGA FJÖLHÆFI HEIÐMAR FELIXSON: SPILAR KNATTSPYRNU MEÐ ÞÓR Í SUMAR
Maður hefur fótboltann í sér líka