Fréttablaðið - 02.06.2006, Blaðsíða 90

Fréttablaðið - 02.06.2006, Blaðsíða 90
 2. júní 2006 FÖSTUDAGUR58 Mikið úrval af adidas vörum adidas.com/footballIMPOSSIBLE IS NOTHING FÓTBOLTI Bókaútgáfan Hólar hefur gefið út bókina „What the Red Devils said“ en hún er tileinkuð minningu knattspyrnugoðsagnar- innar George Best. Bókin inniheldur tilvitnanir framkvæmdastjóra og leikmanna Man. Utd hver um annan í gegnum tíðina. Nægir þar að nefna menn eins og Sir Alex Ferguson, David Beckham og Eric Cantona. Bókin er á ensku og það var Guðjón Ingi Eiríksson sem safnaði saman tilvitnunum. Hvað sögðu Rauðu djöflarnir? Tilvitnanabók um Man. Utd ÍSLENSK BÓK Á ENSKU Bókaútgáfan Hólar er búin að gefa út tilvitnanabók á ensku á Íslandi. FÓTBOLTI Franski sóknarmaðurinn Thierry Henry segir að landsliðið geti enn bætt sig töluvert eftir 2-0 sigur gegn Dönum í æfingaleik. Henry skoraði fyrra markið en Silvain Wiltord það síðara úr víta- spyrnu en Frakkar vonast til að binda enda á HM martröðina frá 2002 þegar liðið fór í gegnum riðlakeppnina án þess að vinna leik og án þess að skora. „Við vörðumst vel og sýndum skemmtilega takta í sókninni. Það er gaman að hafa spilað gegn sterku liði á borð við Danmörku, sem gekk frá okkur á HM 2002. Við héldum ró okkar og skoruðum á mikilvægum tímum sem gaf okkur færi á að slaka aðeins á, en við getum klárlega gert mun betur,“ sagði Henry, sem skoraði þarna sitt 32. mark, og færðist enn nær 41 marks meti Michel Plat- ini. „Það er mikilvægt fyrir alla að skora mörk fyrir HM. Mér er alveg sama um einhver met, ég fylgist ekkert með þeim,“ sagði þessi magnaði Frakki. - hþh Franski framherjinn frá Arsenal, Thierry Henry: Við getum enn bætt okkur HENRY Fagnar hér marki sínu gegn Dönum í fyrradag. NORDICPHOTOS/AFP FÓTBOLTI Cesc Fabregas, miðju- maður Spánverja, segir að liðið geti vel unnið HM í sumar. Fabregas gæti fengið sæti í byrj- unarliðinu þegar Spánn mætir Úkraínu 14. júní. „Markmiðið okkar er á endan- um, alltaf að vinna mótið og við getum það vel. Eins og ég hef sagt áður þá verður það reyndar mjög erfitt, við erum með mjög ungt lið. Fyrir marga okkar er þetta okkar fyrsta stórmót en það þýðir ekki að við séum alveg reynslulausir, við höfum margir hverjir mikla reynslu frá klúbbunum okkar og við spilum fyrir stór lið,“ sagði Fabregas. - hþh Cesc Fabregas: Við getum unnið HM GOLF Íslenskir kylfingar eru komnir á fullt og keppa víða þessa dagana. Birgir Leifur Haf- þórsson datt úr keppni á áskor- endamóti í Englandi þótt hann hafi bætt sig um tíu högg á milli hringja. Fyrri dagurinn hjá Birgi Leifi var mjög slakur og það felldi hann. Nokkrir Íslendingar taka síðan þátt á opna austur- ríska áhugamannamótinu og þar hefur Sigmundur Einar Másson leikið best en hann kom í hús á pari. Íslenskir kylfingar í eldlínunni erlendis: Misjafnt gengi hjá íslensku kylfingunum erlendis FÓTBOLTI Íslenska U21 landsliðið þurfti að taka á honum stóra sínum til að ryðja Andorra úr vegi á leið sinni í undankeppni Evrópumóts- ins, Fyrri leikurinn ytra endaði með markalausu jafntefli en Ísland náði að setja tvö mörk á Andorra á Akranesi í gær. Guðjón Baldvinsson, leikmaður Stjörnunnar, fékk tvö bestu færin í fyrri hálfleiknum. Eftir aðeins þrjár mínútur náði varnarmaður Andorra með naumindum að bjarga á marklínu frá Guðjóni og þegar rúmar fimm mínútur voru eftir af hálfleiknum fékk hann sannkallað dauðafæri. Emil Hall- freðsson gerði vel á vinstri vængn- um og renndi boltanum á Guðjón sem skaut hins vegar lausu skoti beint á markvörð gestana, fór illa með ansi gott tækifæri. Andorra lagði áherslu á varnar- leikinn en besta færið sem liðið fékk í fyrri hálfleik kom eftir mis- tök frá Hrafni Davíðssyni, mark- verði Íslands, sem náði síðan að bjarga andlitinu. Oft á tíðum var mikill atgangur í vítateig Andorra en það gekk ekki að koma boltan- um í netið og staðan markalaus í leikhléi. Seinni hálfleikurinn fór ansi rólega af stað og illa gekk hjá íslenska liðinu að skapa sér færi allt fram á 65. mínútu. Þá kom stórskotahríð að markinu en á ein- hvern óskiljanlegan hátt tókst gestunum að koma í veg fyrir mark. Þeir náðu síðan að snúa vörn í sókn skömmu síðar og fengu óvænt mjög gott færi en skotið framhjá. Lið Andorra spilaði með öflug- an varnarmúr og notaði hvert ein- asta tækifæri til að tefja leikinn og fór það mikið í taugarnar á leik- mönnum íslenska liðsins. Það var loksins á 80. mínútu sem tókst að brjóta ísinn en þá fékk Ísland víta- spyrnu eftir að brotið var á Bjarna Þór Viðarssyni og Emil Hallfreðs- son skoraði af öryggi. Eftir þetta var aldrei spurning hvoru megin sigurinn yrði og Rúrik Gíslason, leikmaður Charlton, bætti við öðru marki í uppbótartíma eftir að Theódór Elmar Bjarnason gaf á hann. „Þessi leikur var bara fram- lenging á því sem gerðist í And- orra. Flæðið í okkar spili var ekki nægilega gott í fyrri hálfleik en það er ljóst að við áttum að skora miklu fyrr. Guðjón sagði við mig að hann hefði átt að skora sex mörk og það segir sitt,“ sagði Lúkas Kostic, þjálfari U21 lands- liðsins, eftir leikinn. „Það er erfitt að spila á móti liði sem liggur svona rosalega í vörn, þeir gera allt til að drepa tempóið í leiknum og komust upp með að liggja lengi þó að ekkert væri að þeim.“ Ísland mætir nú Austurríki úti þann 16. ágúst og svo Ítalíu heima þann 1. september í undankeppni EM. elvar@frettabladid.is Ísland í vandræðum með Andorra Íslenska U21 landsliðið er komið í undankeppni Evrópumótsins eftir að hafa náð að leggja Andorra að velli, 2-0, í tveimur leikjum í forkeppni. Strákarnir sýndu þó engan stjörnuleik enda erfitt gegn liði sem er eins varnarsinnað og Andorra. Sigurinn skipti þó vissulega öllu þegar upp er staðið. ÁHYGGJUFULLIR ÞJÁLFARAR Lúkas Kostic og aðstoðarmaður hans, Magnús Gylfason, voru oft þungir á brún í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA ELTINGARLEIKUR Íslensku strákarnir máttu hafa vel fyrir hlutunum í gær og fór oft góður tími í að elta boltann uppi en hér er það Húsvík- ingurinn Pálmi Rafn Pálmason sem skeiðar á eftir knettinum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.