Fréttablaðið - 02.06.2006, Side 94

Fréttablaðið - 02.06.2006, Side 94
 2. júní 2006 FÖSTUDAGUR62 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á bls. 8 1 Edda Heiðrún Backman 2 30 ár 3 Steve Nash Nýr humar, grillpinnar sólþurrkaður saltfiskur opið alla laugardaga 11-14 1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 2 Elín María Björnsdóttir, stjórn- andi Brúðkaupsþáttarins Já, fer í sumar í sitt eitt hundraðasta brúðkaup. Þátturinn er að fara í gang í sjöunda sinn á Skjá einum og ávallt hefur Elín María verið við stjórnvölinn. Hún segist ekki hafa átt von á því að fara í svona mörg brúðkaup þegar þátturinn hóf göngu sína. „Það hvarflaði aldrei að mér. Þetta var áhuga- mál sem virkaði bara svona vel,“ segir Elín María. „Það hafa verið ótrúlegar viðtökur við þessum þætti og ég átti ekki von á að ég yrði ennþá í þessu. Þetta er bara mannlífsflóran og við erum að sýna hlutina eins og þeir eru,“ segir hún. Nýja þáttaröðin verður í svip- uðu formi og áður að sögn Elín- ar. „Auðvitað breytast þættirnir lítillega og við höfum alltaf komið með nýjungar en kjarninn virkar vel og þá erum við ekkert að breyta til.“ Elínu til halds og traust í sumar verða þau Sigríður Kling- enberg, sr. Bjarni Karlsson og sr. Jóna Hrönn Bolladóttir með góð ráð fyrir þau pör sem ætla að ganga í það heilaga. -fb Hundraðasta brúðkaupið ELÍN MARÍA BJÖRNS- DÓTTIR Elín María fer í sitt eitt hundraðasta brúðkaup í sumar. LÁRÉTT 2 bera að garði 6 kringum 8 frosts- kemmd 9 kann 11 tveir eins 12 skordýr 14 nuddast 16 bardagi 17 sigti 18 niður 20 bor 21 nabbi. LÓÐRÉTT 1 hryggdýr 3 klafi 4 land 5 einkar 7 álitinn 10 traust 13 framkoma 15 hnappur 16 flana 19 tveir eins. LAUSN: LÁRÉTT: 2 Koma, 6 Um, 8 Kal, 9 Get, 11 Ll, 12 Lirfa, 14 Núast, 16 At, 17 Sía, 18 Suð, 20 Al, 21 Arða. LÓÐRÉTT: 1 Fugl, 3 Ok, 4 Malasía, 5 All, 7 Meintur, 10 Trú, 13 Fas, 15 Tala, 16 Asa, 19 Ðð Á dögunum varð ég 25 ára. Mörgum finnst það stór biti að kyngja að vera orð- inn hálfþrítugur og til að gera upplifunina bærilegri voru mínir nánustu svo sætir að halda veglega veislu mér til heiðurs. Nokkrar af mínu bestu vinkonum voru ennfremur svo óhemjusniðugar og sætar að gefa mér frábærustu afmælisgjöfina − vikuferð í sólina á Spáni. Ég og tvær vinkonur mínar ákváðum að fara saman út í afslöppun, kokteildrykkju og sólbað í eitt stykki viku til að undir- búa okkur fyrir gott sumar á Íslandi. Við pökkuðum að sjálfsögðu öllum efnislitlu fötunum okkar niður, glamúrglingri, góðum bókum og tónlist til að geta átt sem bestar stundir saman. Að sjálfsögðu var ætlunin líka að borða góðan mat, drekka marga kokteila og hlæja óhemju- mikið, en aðalatriðið var að við ætluðum að gera þetta þrjár saman. Það fyndna er að allir karlmennirnir í kringum okkur tóku þessari ferð sem hömlulausum djammdaðursleiðangri. Karlmenn sjá svona ferðir iðulega fyrir sér í hillingum þar sem stelpurnar eru í vikulöngum koddaslag og bera olíu hver á aðra. Við komum að sjálfsögðu af fjöllum þar sem raunin er svo allt önnur. Auk þess erum við eiginlega of gamlar fyrir diskótek og höfum afskaplega takmarkaðan áhuga á öllum þessum Juan Carlosum og Raulum sem virðast vera á hverju strái, svo ekki sé minnst á Hanzana og Fredrichana. Ég verð að viðurkenna að mér brá örlítið REYKJAVÍKURNÆTUR: HARPA PÉTURSDÓTTIR SLEIKIR SÓLINA Á SPÁNI „Strákarnir fara í sumarfrí í júlí og þegar þeir snúa aftur munu þeir einbeita sér að því að þróa ný verkefni sem þeir fara í hér á Stöð 2,“ segir Heimir Jónasson, dag- skrárstjóri Stöðvar 2. Ákveðið hefur verið að hinir sívinsælu Strákar, Sverrir Sverrisson, Auð- unn Blöndal og Pétur Jóhann Sig- fússon, fari í ný verkefni með haustinu. Það þýðir að Strákarnir hætta í þeirri mynd sem verið hefur en strákarnir sjálfir munu halda áfram að birtast landsmönn- um á skjánum. Heimir segir að gerður hafi verið nýr samningur við Strákana fyrir nokkrum mánuðum þar sem gert var ráð fyrir að þeim gætu verið falin ný verkefni. Ákveðið hafi verið að nú væri rétti tíminn til að prófa eitthvað nýtt. „Þetta er enn á of viðkvæmu stigi til að segja nákvæmlega hvað þeir munu taka sér fyrir hendur. Það eina sem ég get sagt er að ekki er víst að þeir þrír muni endilega vinna allir saman, þó að einhverjir þeirra kunni að gera það,“ segir Heimir. Heimir segir ennfremur að ástæðan fyrir þessu sé ekki sú að áhorf á Strákana hafi minnkað. Það hafi þvert á móti aukist tals- vert í síðustu fjölmiðlakönnun. „Þeir eldast eins og aðrir og vilja þroskast. Þeir eru líka búnir að taka allar áskoranir sem til eru. Við teljum einfaldlega að það sé betra að hætta á toppn- um og gera eitthvað nýtt og spennandi í stað þess að strákarn- ir fái jafnvel leið hver á öðrum og þátturinn drabbist niður,“ segir Heimir. Undir þetta tekur Sveppi, hann segir jákvætt að þeir séu enn mjög góðir vinir. „Við skiljum sáttir allir sem einn og þetta lítur allt mjög vel út,“ segir Sveppi. Rétt eins og þegar þeir félagar hættu með 70 mínútur á Popptíví og færðu sig yfir á Stöð 2 munu þeir taka sér góðan tíma til að móta nýju þættina. Heimir fæst ekki til að upplýsa nánar um hvers konar þætti verður að ræða, segir einfaldlega að það verði betra fyrir alla að stöðin bjóði upp á þrjár sprengjur í stað einnar. Tals- verðar breytingar eru annars fyr- irhugaðar á dagskrá Stöðvar 2 í haust að sögn Heimis. „Það verður fullt af nýjum eldflaugum sem við kynnum í sumar.“ hdm@frettabladid.is STRÁKARNIR Á STÖÐ 2: FARA Í NÝ VERKEFNI EFTIR SUMARFRÍ Snúa aftur með nýja þætti í haust STRÁKARNIR Stjórna nýjum þáttum á Stöð 2 í haust. Ekki er víst að þeir muni vinna allir saman. Sveppi segir þá sátta við breytingarnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HEIMIR JÓN- ASSON Felur Strákunum ný verkefni í haust. í brún þegar ég heyrði þetta. Af hverju ættum við að leita út fyrir landsteinana að karlmönnum þar sem hinn sanni fjársjóður er heima á Íslandi? Ég held að þetta sé frekar skýrt dæmi um muninn á hugsanagangi karla og kvenna. Það mætti halda að í hugum karlmanna sé tilgangurinn með svona ferð eingöngu sá að fleka blóðheitar spænskar stúlkur og hanga blekaðir á „untjs-untsj-klúbbum“. Hins vegar lítum við konur á ferðina sem endurnæringu, gæðastundir saman og erum hreint út sagt sjálfum okkur nógar! Við nýtum tímann vel til að haga okkur eins og kjánar fjarri athugulum augum föðurlandsins, þá sjaldan maður fær frí frá þeim! Því miður verðum við að skemma fyrir ykkur karlmönnum þessa erkiímynd stelpuferðanna sem er límd í hausnum á ykkur. Við fáum alveg nóg af daðri og djammi heima! Alvöru íslenskir karlmenn eru mun merkilegri en tunguliprir latino- gaurar sem afklæða okkur með aug- unum, flauta og kalla og eru allt of agress- ívir fyrir okkar smekk. Salud fyrir hinum íslenska karlmanni! Stelpusól HRÓSIÐ ... fær Herdís Þorgeirsdóttir prófessor fyrir að standa glæsi- lega að ráðstefnunni Tengslanet III – Völd til kvenna. Herdís Þorgeirsdóttir FRÉTTIR AF FÓLKI Landsmenn munu eflaust sitja límdir við sjónvarpsskjáina í kvöld þegar Kastljósið verður sýnt í Ríkissjónvarpinu. Meðal gesta þáttarins í kvöld eru þeir Bubbi Morthens söngvari og Eiríkur Jónsson blaðamaður sem síðustu misserin hafa átt í harðvítugum deilum um skrif þess síðarnefnda um þann fyrrnefnda í Hér og nú og DV. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem Bubbi og Eiríkur hittast síðan deilur þeirra hófust á síðasta ári. Þátturinn var tekinn upp í gær og urðu starfs- menn RÚV varir við tals- verða spennu þeirra á milli á meðan upptök- urnar voru undirbúnar. Vel fór þó á með Bubba og Eiríki í þættinum, en samt ekki betur en svo að þeir tókust ekki í hendur í lok þáttarins. Annars er sterkur orðrómur á kreiki um það að Eiríkur Jónsson muni koma til starfa á Séð og heyrt við hlið nýs ritstjóra, Mikaels Torfasonar. Góð vinátta er með þeim og má telja líklegt að Eiríki hugnist vel að starfa aftur við hlið Mikaels. Þeir Björn Ingi Hrafnsson og Vil-hjálmur Þ. Vilhjálmsson voru stoltir í bragði þegar þeir tilkynntu um nýtt meirihlutasamstarf í Reykjavík fyrir utan hús Vilhjálms í vikubyrj- un. Einkunnarorð nýs meirihluta eru að þeir stundi athafna- stjórnmál. Mörgum þeim sem fylgdust með fundi þeirra í sjónvarpinu þótti því skjóta nokkuð skökku við að sjá glitta í jólaskraut sem enn hékk utan á húsi Vilhjálms nú þegar sumarið er óneitanlega komið. - hdm

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.