Fréttablaðið - 02.06.2006, Page 96

Fréttablaðið - 02.06.2006, Page 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 ������ ����� ���� ������ Ég horfði á kvenréttindakonuna Germaine Greer í Kastljósinu fyrir nokkrum dögum. Þessi merkilega kona lýsti því meðal annars yfir í viðtalinu að hún væri í raun hissa á því að ungar konur kysu að eignast börn þar sem aðstæður til þess væru svo erfiðar nú. ÍSLENSKAR konur standa sig vel þegar kemur að barneignum og eignast fleiri börn en konur í sumum Evrópulöndum. Íslending- um fjölgar á sama tíma og ákveðn- ar þjóðir glíma við fólksfækkun. Hér er atvinnuþátttaka kvenna sömuleiðis mjög mikil. Í raun er atvinnuþátttaka kvenna forsenda núverandi lífskjara hér á landi. AÐ sumu leyti er staðan á Íslandi því nokkuð góð. En margt þarf að gera betur til þess að eðlilegt jafn- vægi náist í lífi fjölskyldufólks. Og væri þá ekki skynsamleg nálgun að líta á barneignir sem fjárfest- ingu í stað þess að líta á fæðingar- orlof, leikskóla og aðrar aðgerðir sem miða að því að létta undir með foreldrum, sem byrði fyrir samfé- lagið? Hér ríkir skilningur á því að fyrirtæki verði að búa við hag- stæð skilyrði og sveigjanlegan markað til þess að standa undir því að skila af sér arði. Skilningur- inn stafar sennilega ekki síst af því að allir telja sig græða á því ef atvinnulífið dafnar og af vitneskj- unni um, að ef aðstæður eru óhag- stæðar flytja fyrirtæki sig einfald- lega um set. VIÐMIÐIN um starfsumhverfi ungra foreldra, og kannski sér- staklega mæðra, eru önnur. Við lítum ekki svo á að allir græði á að fólki fjölgi á landinu. Fjölgun er samt forsenda þess að samfélagið standi undir sér. Ef konur hætta að eignast börn tapa allir. Enn erum við föst með hugmyndir um að barneignir séu einkamál sem koma vinnuveitanda ekki við, hvað þá samfélaginu í heild. En barneignir eru auðvitað ekki einkamál. Og það er í raun furðulegt hve lítið menn tengja fólksfækkun við stöðu í jafnréttismálum. EINHVERN tímann heyrði ég því haldið fram að Íslendingar þyrftu að vera um milljón talsins til þess að þjóðarbúið yrði hagkvæm rekstrareining. Við eigum auðvit- að langt í land með það. OG auðvitað getur það gerst hér, eins og annars staðar, að fólks- fækkun verði niðurstaðan ef það ríkir ekki skilningur á því að ungt fólk verður að búa við hagstæð skilyrði og sveigjanleika til þess að það sjái sér fært að eignast börn. Og fjölga þjóðinni. Milljón Íslendingar ���������� ��������������� ���������������� ������������ �������������� �������������� ������� ���������� ����

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.