Fréttablaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 2
2 10. júní 2006 LAUGARDAGUR LÖGREGLUMÁL Héraðsdómur Reykjavíkur framlengdi í gær gæsluvarðhald yfir tveimur Litháum sem hafa sætt lögreglu- rannsókn vegna tilrauna til smygls á fljótandi amfetamíni hingað til lands. Samkvæmt úrskurðinum eiga þeir að vera í gæsluvarðhaldi til 21. júlí. Þriðji Litháinn á að sitja í gæslu til 30. júní. Tveir mannanna reyndu í tveim- ur ferðum að smygla inn allmörg- um flöskum af fljótandi amfetamíni en voru gripnir við komuna hingað til lands. Þriðji Litháinn hefur verið búsettur hér á landi um skeið og var handtekinn vegna gruns um aðild að málinu. - jss Amfetamínsmyglið: Þrír Litháar áfram í gæslu ÞÝSKALAND, AP Lögreglan í Berlín gerði í gær upptæka þrjú þúsund bæklinga sem hægrisinnaður stjórnmálaflokkur hafði látið prenta fyrir heimsmeistarakeppn- ina í fótbolta. Lögreglan lagði hald á bækling- ana í höfuðstöðvum hægriöfga- flokksins NDP, því kynþáttahat- urs gætti í bæklingunum, að sögn talsmanns ríkissaksóknara í Berl- ín. Bæklingarnir vara við innflytj- endum, en þar sagði að brátt yrði þýska landsliðið nær eingöngu skipað svörtum leikmönnum. Húsleitin var gerð eftir að kvörtun barst frá þýska knatt- spyrnubandalaginu. Enginn var handtekinn, en málið er enn í rann- sókn. - smk Húsleit í Berlín: 3.000 bæklingar gerðir upptækir BORGARMÁL Síðasti starfsdagur Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur borgarstjóra var í gær. Af því til- efni var haldið fjölmennt kveðju- hóf henni til heiðurs en um 300 borgarstarfsmenn kvöddu yfir- mann sinn. Steinunn Valdís hefur gegnt starfi borgarstjóra í tæpa átján mánuði en hún mun sitja í borgar- stjórn áfram. Við athöfnina í gær þakkaði Helga Jónsdóttir, sviðs- stjóri stjórnsýslu- og starfsmanna- sviðs, Steinunni fyrir samstarfið fyrir hönd starfsmannana. Steinunn sagði tímann hafa verið skemmtilegan og þakkaði samstarfsmönnum fyrir vel unnin störf. - gþg Ráðhús Reykjavíkur: Borgarstjóri kveður HEIMSMEISTARAKEPPNIN Fótboltaáhuga- menn fagna marki í Berlín í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP STJÓRNMÁL Miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins var haldinn í gær. Halldór Ásgrímsson for- maður Framsóknarflokksins, boð- aði til fundarins vegna ákvörðun- ar hans um að hætta í stjórnmálum. Samþykkt var á fundinum að halda flokksþing þriðju helgina í ágúst. Í upphafi setningarræðu sinnar sagði Halldór að hann hefði verið lengi í forystu flokksins og tíma- bært væri að aðrir tækju við. Hann dvaldi ekki við það í byrjun ræðunnar en gerði að umtalsefni að formenn Framsóknarflokksins hefðu löngum orðið fyrir árásum pólitískra andstæðinga og sagði ástæðu þess vera að ekki var hægt að setja út á stefnumál flokksins, og því hefði löngum verið nær- tækast að ráðast að einstakling- um. Halldór sagði að hann hefði ekki farið varhluta af slíkum árás- um. „Þetta er eitthvað sem við verðum að búa við og það þýðir aðeins eitt og það er að andstæð- ingar okkar hræðast okkur og þetta er þeirra eina leið til að koma höggi á flokkinn. Þeim mun ekkert takast það.“ Halldór sagði að árásir utan frá væru þó ekki eins alvarlegar og misklíð innan flokksins. Hann sagði flokkinn ekki alltaf hafa verið samstíga, hafa misst félaga úr sínum röðum og jafnvel klofn- að. „Við höfum hins vegar alltaf komið sterkari úr slíkum átökum en nokkur þorði að reikna með. Sú ókyrrð sem hefur einkennt umræðuna í flokknum undanfarið er að sjálfsögðu ekki góð því hún skapar vandamál í okkar röðum. Ég ber auðvitað einhverja ábyrgð á slíku sem formaður flokksins. Ég hef vanist því að axla ábyrgð og því er gaman að segja frá því að í gær náðist góð sátt á milli mín og varaformanns Framsóknar- flokksins.“ Í niðurlagi ræðu sinnar horfði Halldór til framtíðar. „Ný sigur- ganga Framsóknarflokksins hefst í dag,“ sagði hann með áherslu og gerði formannskjör flokksins að umræðuefni. „Við það verk verð- um við að vanda okkur og tryggja það að við flokknum taki einstakl- ingur sem stendur vörð um þau gildi sem við höfum varið saman og eflt á síðustu áratugum en ekki síður einstaklingur og einstakling- ar sem horfa til framtíðar með bjartsýni og eldmóð í hjarta.“ Halldór sagði að það dýrmætasta sem hann tæki með sér úr flokks- starfinu væri vinátta og velvilji samstarfsmanna sinna. Að lokinni ræðu Halldórs stóðu flokksmenn úr sætum og hylltu formann sinn með dynjandi lófa- taki. svavar@frettabladid.is / bjorn@frettabladid.is Halldór hvatti alla flokksmenn til sátta Halldór Ásgrímsson gerði árásir pólitískra andstæðinga og misklíð innan flokksins að umtalsefni í opnunarræðu miðstjórnarfundar Framsóknarflokks- ins í gær. Hann sagði jafnframt að ný sigurganga flokksins væri að hefjast. STJÓRNMÁL „Ég sit áfram í ríkis- stjórninni, það er enginn ágreining- ur um það,“ sagði Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknar- flokksins og landbúnaðarráðherra, á fundi miðstjórnar flokksins á Hótel Sögu í gær. Guðni vildi þó ekkert segja til um hvort hann yrði áfram í landbúnaðarráðuneytinu, sagði það eitt að Halldór Ásgríms- son formaður hefði umboð til mynd- unar nýrrar ríkisstjórnar fyrir hönd flokksins. Hann kvaðst þó viss um að gengið yrði frá skipan nýrrar ríkisstjórnar nú um helg- ina. Halldór og Guðni gengu sáttir til miðstjórnarfundarins í gær eftir skærur síðustu daga. Á fimmtudagskvöld urðu þeir ásátt- ir um að leggja til við fundinn að flokksþing yrði haldið þriðju helg- ina í ágúst. Vilji Halldórs stóð til að halda þingið í haust en Guðni vildi halda það sem fyrst. Guðni segist hafa metið stöðuna svo að best væri að kæla málið niður, í raun væri þetta stuttur tími fyrir þá sem hygðust bjóða sig fram til forystustarfa. Sjálfur hefur hann ekki afráðið hvort hann sækist eftir formannsembættinu. Um sættir þeirra Halldórs sagði Guðni: „Við metum flokkinn okkar mikils og þessi atburðarás fór með málið í háaloft. Við komumst að þeirri niðurstöðu að það væri mik- ilvægt fyrir Framsóknarflokkinn að horfa til framtíðar, deilurnar mættu ekki snúast um okkur. Svo búum við kannski báðir við það að flokksmönnum þykir heldur vænt um okkur báða. Þess vegna hefði nú verið ljótur svipur á þessu ef við hefðum haldið þessu áfram.“ -bþs Guðni Ágústsson á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins í gær: Ég sit áfram í ríkisstjórninni GUÐNI ÁGÚSTSSON Segist verða áfram í ríkisstjórn en hefur ekki gert upp hug sinn um framboð til formanns. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI STJÓRNMÁL Haukur Logi Karlsson, fyrrverandi formaður Sambands ungra framsóknarmanna, ætlar að bjóða sig fram til embættis ritara Framsóknarflokksins. Hann lýsti framboði sínu yfir á miðstjórnar- fundinum í gær. Ritaraembættið er þriðja æðsta embættið innan flokksins, næst á eftir embættum formanns og varaformanns, og hefur ritari innri mál flokksins með höndum. Siv Friðleifsdóttir er núverandi ritari. „Það er spennandi tækifæri fram undan við að byggja flokkinn upp og ég býð mig fram til að taka þátt í því starfi,“ sagði Haukur Logi á miðstjórnarfundinum í gær. - bþs Haukur Logi Karlsson: Sækist eftir embætti ritara GAZA-SVÆÐIÐ, AP Palestínubúar eru harmi slegnir efir árás Ísraels- hers á strönd á Gaza-svæðinu í gær, sem varð sjö óbreyttum borg- urum í strandarferð að bana og særði tugi manna. Meðal hinna látnu voru þrjú börn, en jafnframt er sagt að þrír palestínskir upp- reisnarmenn hafi farist. Mahmoud Abbas Palestínufor- seti fordæmdi árásina og kallaði eftir aðstoð Bandaríkjanna, Evr- ópu og öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Ísraelsher sagði flugskeyti hafa farið af leið. Hamas-liðar hótuðu í gær að hætta vopnahléi sem þeir hafa haldið síðan í febrúar 2005 vegna árásarinnar, en engar yfirlýsingar þess efnis bárust frá þeim með- limum hreyfingarinnar sem leiða palestínsku heimastjórnina. - smk Ísraelsher myrðir börn: Hamas hótar að enda vopnahle ANDLÁT Haukur Freyr Ágústsson, sem saknað hefur verið frá fimmtu- deginum 1. júní, fannst látinn í Reykjavík í gær- morgun. Haukur Freyr var 24 ára, fæddur 5. febrúar árið 1982, ókvænt- ur og barnlaus og til heimilis að Reyrengi 7 í Reykja- vík. Lögregla hafði leitað hans frá því á miðvikudag og að sögn henn- ar er málið ekki rannsakað sem sakamál. - sh Haukur Freyr Ágústsson: Fannst látinn HAUKUR FREYR ÁGÚSTSSON STJÓRNMÁL Halldóri Ásgrímssyni voru þökkuð áratugalöng og far- sæl störf í þágu Framsóknar- flokksins í ályktun sem miðstjórn flokksins samþykkti í gær. Í álykt- uninni segir að miðstjórn skilji og virði þá ákvörðun hans að láta af formennsku og marki brotthvarf hans þáttaskil í sögu Framsóknar- flokksins og íslenskum stjórnmál- um. Miðstjórnin leggur áherslu á að viðræðum um skipan ríkisstjórn- ar verði lokið hið fyrsta og hvetur til einingar og samstöðu meðal framsóknarmanna. - bþs Miðstjórnarmenn álykta: Þakka Halldóri farsæl störf FJÖLMENNUR MIÐSTJÓRNARFUNDUR Hjálmar Árnason þingflokksformaður, Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, og Ísólfur Gylfi Pálmason, fyrr- verandi þingmaður, hlustuðu á ræðu Halldórs Ásgrímssonar á miðstjórnarfundinum í gær. DÓMSMÁL Jónas Garðarsson, for- maður Sjómannafélags Reykja- víkur og stjórnarmaður í Sjó- mannasambandi Íslands, sendi frá sér tilkynningu í gær þess efnis að hann drægi sig út úr öllum trúnað- arstörfum á vegum félaganna tveggja. Jónas tók þessa ákvörðun til að koma í veg fyrir að hans per- sónulegu mál trufluðu hagsmuna- baráttu sjómanna, eins og það er orðað í tilkynningunni. Jónas var dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni fyrir mann- dráp af gáleysi. Þótti sannað að hann hefði verið ölvaður undir stýri skemmtibátsins Hörpu þegar hann steytti á Skarfaskeri á Við- eyjarsundi með þeim afleiðingum að tvennt lést. Fjölskyldur Matthildar Vict- oriu Harðardóttur og Friðriks Á. Hermannssonar, sem létust í slys- inu, sendu frá sér áskorun á mið- vikudag þar sem félögin voru hvött til að losa Jónas undan ábyrgðarstörfum sínum á vegum þeirra. Erla Ruth Harðardóttir, systir Matthildar heitinnar, var einn bréfritara. „Þegar ég heyrði þetta sagði ég fyrst af öllu að við hefðum í raun gert honum greiða, því þetta er siðferðilega rétt. Hann hafði ekki séð það fram að þessu. Við gerðum honum kannski ljóst hvað hann varð að gera. Honum er kannski við bjargandi eftir allt saman.“ - shá Jónas Garðarsson dregur sig út úr stjórnum innan sjómannaforystunnar: „Þetta er siðferðilega rétt“ JÓNAS GARÐARSSON Jónas hefur ákveðið að draga sig út úr öllum trúnaðarstörfum sem hann gegndi á vegum sjómanna- forystunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Miðstjórn Fram- sóknarflokksins skilur ákvörðun hans. SPURNING DAGSINS? Eyjólfur, er mikið álag á ykkur? „Nei, en við erum undir góðum álögum.“ Eyjólfur Þorkelsson er einn talsmanna læknanema sem börðust fyrir því að fá greitt tólf prósenta vaktaálag sem fellt hafði verið út. Deilan leystist í fyrradag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.