Fréttablaðið - 10.06.2006, Síða 12
12 10. júní 2006 LAUGARDAGUR
GLÍMUKAPPI MEÐ BARN Japanskir súmó-
glímukappar eru nú í Ísrael í vikuheimsókn
til þess að styrkja tengslin milli landanna
tveggja. Gerði þessi kappi sér lítið fyrir og
stillti sér upp með ungbarn. Glímuköpp-
unum er aðeins leyft að yfirgefa Japan á
tveggja ára fresti. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Héraðsdómur Norður-
lands vestra hefur sýknað land-
eiganda af skaðabótakröfu öku-
manns vélhjóls sem slasaðist þar í
maí 2004.
Vélhjólamaðurinn var á ferð
neðan við bæinn Gauksmýri í
Húnaþingi vestra þegar hestur
kom hlaupandi út á veginn og í veg
fyrir manninn með þeim afleið-
ingum að maðurinn féll í götuna.
Héraðsdómur sýknaði manninn
þar sem talið var ljóst að eðlilega
hafi verið staðið að vörslu hests-
ins og girðingar hafi staðist allar
kröfur. - sh
Landeigandi sýknaður:
Varsla hests
talin í lagi
Dæmd í tíu ára fangelsi Stjúpfaðir
og móðir Bobbys, tíu ára drengsins sem
var myrtur með hrottalegum hætti í Sví-
þjóð í vor, voru dæmd í tíu ára fangelsi
í vikunni.
SVÍÞJÓÐ
DÓMSMÁL Fái Tómas Zoega læknir
ekki sitt fyrra starf sem yfirlækn-
ir á geðsviði Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss nú þegar dómur
Hæstaréttar liggur fyrir kallar
það á höfðun skaðabótamáls upp á
tugi milljóna króna. Þetta segir
Karl Axelsson hrl., lögmaður Tóm-
asar.
Forsaga málsins er sú að árið
2001 ákvað
framkvæmda-
stjórn LSH að
hefja undir-
búning að
breytingum á
starfstilhögun
yfirmanna
þess þannig
að þeir myndu
framvegis
vera í hundr-
að prósent
starfi og ekki
sinna störfum utan sjúkrahússins
öðrum en kennslu og annars konar
störfum við háskóla. Tómas rak
eigin læknastofu samhliða yfir-
læknisstarfi sínu. Hann vildi ekki
hlíta þessum breytingum og var
honum tilkynnt að ákveðið hefði
verið að leysa hann frá starfi yfir-
læknis og að framvegis myndi hann
gegna starfi sérfræðilæknis á geð-
sviði.
Tómas höfðaði mál. Héraðs-
dómur felldi ákvörðunina úr gildi,
en LSH áfrýjaði til Hæstaréttar. Í
dómi Hæstaréttar segir að óheim-
ilt hafi verið að breyta starfi Tóm-
asar og ákvörðunin ólögmæt.
„Munurinn í formi dóma Hér-
aðsdóms og Hæstaréttar er sá að
Tómas fær ekki starfið sjálfkrafa
aftur. Spítalinn þarf að gefa grænt
ljós,“ segir Karl Axelsson hrl., lög-
maður Tómasar, um niðurstöðu
dómsins og segir hann dóm Hæsta-
réttar ótvírætt þýða að Tómasi beri
að fá yfirlæknisstarfið aftur. „Ef
spítalinn gefur það ekki er hann í
rauninni að viðhalda því ástandi
sem búið er að dæma ólögmætt. Ef
forsvarsmenn spítalans ætla að
neita Tómasi um að taka upp þráð-
inn sem yfirlæknir geðsviðs þar
sem frá var horfið er spítalinn að
kalla yfir sig skaðabótaskyldu sem
er þá nýtt mál. Þar yrði þá um tugi
milljóna króna að ræða.“
Karl segir Tómas eiga rétt á
miskabótum vegna ólögmætrar
kröfu gegn honum. Þá þarf spítal-
inn að greiða Tómasi eina og hálfa
milljón króna í málskostnað.
Anton B. Markússon hrl., lög-
maður LSH, sagði að Tómasi bæri
„alls ekki“ að fá yfirlæknisstarfið
aftur samkvæmt dómi Hæstarétt-
ar.
„Grundvallarmunur er á ógild-
ingu og ólögmæti,“ sagði Anton.
„Samkvæmt ógildingardómi Hér-
aðsdóms hefði Tómas orðið yfir-
læknir aftur um leið og hann féll.
Staðan í dag er sú að hann er sér-
fræðilæknir áfram og það breytist
ekki neitt. Það er fordæmalaust í
íslenskri dómaframkvæmd að
menn séu dæmdir að nýju inn í
starf. Á þessu fékk spítalinn stað-
festingu í Hæstarétti.“
Magnús Pétursson, forstjóri
LSH, vildi ekki ræða viðbrögð
spítalans að svo stöddu.
jss@frettabladid.is
Tekist á um
túlkun dóms
Lögmenn Landspítala og Tómasar Zoega læknis eru
ekki á einu máli um hvort nýfallinn dómur Hæsta-
réttar sé Tómasi í hag eða spítalanum. Dómurinn
staðfestir ekki ógildingarúrskurð Héraðsdóms.
KARL AXELSSON
Landsmót á Vindheimamelum í Skagafirði 26. júní – 2. júlí
Fjölskylduhátíð hestamanna
– takið vikuna frá
26. JÚNÍ – 2. JÚLÍ 2006
VINDHEIMAMELUM
www.landsmot.is
� Frábær aðstaða
� Bestu hestar og knapar landsins
� Helstu dagskrárliðir á aðalvelli
� 1.600 manna áhorfendastúka
� Fjölbreytt skemmtiatriði
Landsmót eru einstakir viðburðir, hápunktur og uppskeruhátíð, stærsta mót í heimi
þar sem íslenskir hestar koma saman. Þar getur þú séð öll bestu hross landsins í
fjölbreyttri gæðingakeppni, tölti, kappreiðum og kynbótasýningum.
Farðu á www.landsmot.is og fáðu nánari upplýsingar
um Landsmót hestamanna, einstakan viðburð
og fjölskylduskemmtun.
Í S
L E
N
S K
A
A
U
G
L Ý
S I
N
G
A
S T
O
F A
N
/ S
I A
. I
S
L
A
N
3
2 8
9 1
0
6 /
2 0
0 6 Miðaverð á LM 2006:
Forsala: Selt í hliði:
Vikupassi 9.000 kr. 10.000 kr.
Helgarpassi (lau.-sun.) 7.500 kr. 8.000 kr.
Unglingar (13-16 ára) 2.500 kr. 3.000 kr.
(gildir alla vikuna)
Dagsmiðar (mán.-fös.) 4.000 kr.
Forsala á völdum Esso-stöðvum um land allt.
VATNSRÉTTINDI Sá mikli munur sem
er á upphæðum í kröfugerð Lands-
virkjunar og landeigenda fyrir
austan vegna vatnsréttinda þarf
ekki að vera neitt óeðlilegur held-
ur getur hann einfaldlega stafað
af því að mismunandi aðferðir
hafa verið notaðar við útreikning-
ana.
Lögfræðingar Landsvirkjunar
telja að greiða eigi 150-375 millj-
ónir króna fyrir vatnsréttindin á
jörðum sem liggja að Jökulsá á
Dal, Jökulsá á Fljótsdal og Keldá
en landeigendur krefjast þess að
fá 60-96 milljarða króna.
Guðrún Gauksdóttir, formaður
Rannsóknastofnunar í auðlinda-
rétti hjá Háskólanum í Reykjavík,
telur erfitt að tjá sig um upphæð-
irnar þar sem hún þekki ekki for-
sendurnar en hvað aðferðafræðina
varðar sé þetta mjög áhugavert.
„Það er ljóst að í takt við breytt-
ar kringumstæður í þessum geira
koma til skoðunar nýjar aðferðir
við að reikna út verðmæti þessara
vatnsréttinda. Það er til dæmis
búið að stíga skref í þessa átt í
Noregi og verður fróðlegt að fylgj-
ast með því þar. Þetta er mjög
áhugavert og full ástæða til að
ætla að það sé grundvöllur til þess
að endurskoða þær aðferðir sem
beitt hefur verið við útreikning-
ana hingað til.“ - ghs
Guðrún Gauksdóttir dósent um kröfugerð fyrir vatnsréttindi fyrir austan:
Nýjar aðferðir hækka verðið
EFNAHAGSMÁL Spáð er að hagvöxt-
ur í heiminum verði nær fimm
prósent í ár og á næsta ári. Hnatt-
væðingin hefur einkennst af þátt-
töku fjölmennra þróunarríkja í
Asíu, Suður-Ameríku og Afríku
þar sem hagvöxtur hefur verið
allt að tíu prósent á ári. Þetta
kemur fram í vefriti fjármála-
ráðuneytisins.
Í OECD-ríkjunum er spáð að
hagvöxtur verði um þrjú prósent í
ár og á næsta ári en mismiklum
hagvexti er spáð í einstökum lönd-
um. Mestur verður hann líklega í
Japan og Bandaríkjunum, um og
yfir þrjú prósent, minnstur á
evrusvæðinu, um tvö prósent, og
tæplega þrjú prósent á Norður-
löndunum og í Bretlandi.
Vöxtur þjóðarframleiðslu frá
ári til árs nefnist hagvöxtur og
er hann mældur í hundraðshlut-
um (prósentum). Ef þjóðarfram-
leiðsla dregst saman er stundum
talað um neikvæðan hagvöxt.
Stundum er miðað við landsfram-
leiðslu en ekki þjóðarfram-
leiðslu. - ghs
Hagvöxturinn í heiminum:
Um þrjú prósent á
Norðurlöndum
HAGVÖXTUR Í HEIMINUM
- í prósentum
2005 2006 2007
Evrusvæðið 1,4 2,1 2,2
Bandaríkin 3,5 3,5 3,0
Bretland 1,8 2,4 2,9
Norðurlönd 2,7 3,3 2,8
Japan 2,7 3,0 3,3
GUÐRÚN GAUKSDÓTTIR Segir nýjar aðferðir
við að reikna út verðmæti vatnsréttinda
koma til skoðunar.
HOLLAND, AP Sjúkleg ástundun
tölvuleikja gerist æ algengari og
nú hafa Hollendingar riðið á vaðið
með fyrsta meðferðarheimilið í
Evrópu fyrir tölvuleikjasjúklinga.
Forstöðumaðurinn Keith Bakk-
er segir tölvuleikir allt eins ávana-
bindandi og fjárhættuspil og
vímuefni. Hann hefur tekið til
meðferðar tuttugu sjúklinga á
aldrinum 13-20 ára og segir þá
sýna greinileg fráhvarfseinkenni,
svo sem skjálfta og svitaköst.
Meðferðin er kölluð „afeitrun“
og stendur í allt að átta vikur. Hún
samanstendur af lífsleikninámi
eins og náttúruskoðun og útiveru,
sálfræðiráðgjöf og fleiru. ■
Þjóðfélagsmein í Hollandi:
Tölvunördar
í „afeitrun“
TÓMAS ZOEGA LÆKNIR Karl Axelsson lögmaður segir Tómas eiga rétt á miskabótum vegna
ólögmætrar kröfu gegn honum. Þá þarf spítalinn að greiða Tómasi eina og hálfa milljón
króna í málskostnað.