Fréttablaðið - 10.06.2006, Síða 22
10. júní 2006 LAUGARDAGUR
Fimmtugsafmæli Bubba
Morthens í vikunni fór ekki fram-
hjá neinum enda fagnaði söngva-
skáldið með mögnuðum tónleik-
um í Laugardagshöll þar sem það
leit yfir farinn veg.
Bubbi er maður fjölbreytileik-
ans segja þeir sem til þekkja, sem
birtist ekki síst í því að hann er
dellukall dellukallanna. Þegar
hann bítur eitthvað í sig kemst
ekkert annað
að næstu miss-
erin. Hann
hefur verið
með reiðhjóla-
dellu, boxdellu,
bíladellu, fata-
dellu og síðast
en ekki síst
veiðidellu.
Hann ver
tugum daga við
laxveiði á
hverju sumri.
Þá var heimili
hans undirlagt
af græjum til
fluguhnýtinga
á sínum tíma.
Hann tekur
ekki aðeins ást-
fóstri við tóm-
stundaiðju
heldur einnig
hugsjónir og
málaflokka og
gerist stundum
ötull talsmaður
þeirra. Eitt
sinn gerðist
hann stækur
andstæðingur
fiskeldis og um
þessar mundir
er verndun
hálendisins
honum mikið
hjartans mál,
eins og mátti
berlega heyra
á afmælistón-
leikunum. En
þótt hann tali
af sannfæringu
og einlægni um
tiltekin mál er
hann óhrædd-
ur við að skipta
um skoðun.
Hann tekur
áhugamálin
mjög inn á sig
og þeir sem
umgangast
hann fara ekki
varhluta af þeim, frekar en öðru
sem er á seyði í lífi hans hverju
sinni.
Bubbi er umdeildur, svo ekki
sé fastar að orði kveðið. Sumir
brigsla honum um að haga segl-
um eftir vindi og finnst hann hafa
selt sig, til dæmis með því að
koma fram í auglýsingum og selja
tryggingafélagi útgáfuréttinn á
tónlist sinni. Þeir sem þekkja
hann segja það ómaklega gagn-
rýni því Bubbi geri hlutina fyrst
og síðast á eigin forsendum. Hann
gangist aldrei neinum öflum full-
komlega á hönd; hann hreinlega
geti það ekki.
Orkubolti er orð sem ber mikið
á góma meðal vina Bubba þegar
hann berst í tal, „bullandi ofvirk-
ur“ segja sumir. Til að fá útrás
stundar hann líkamsrækt tvisvar
á dag og fáir jafnaldrar hans geta
státað af að vera í jafn góðu
líkamlegu formi. Stundum á hann
það til að vera dálítill sveimhugi
og jafnvel utan við sig en þegar
hann bítur eitthvað í sig verður
hann einbeitnin uppmáluð. Hann
hefur lent í ófáum öldudalnum í
gegnum tíðina, bæði veraldlega
og tilfinningalega, en um leið og
hann nær áttum kemst hann í
gang og réttir úr kútnum.
Það hlýtur að hafa áhrif á
menn að hafa verið jafn mikið í
sviðsljósinu í jafn langan tíma og
Bubbi og því er ekki að neita að
hann hefur átt í stormasömu sam-
bandi við fjölmiðla. Hann hefur
baðað sig í frægðinni og gengist
upp í því hlutverki að vera opin-
ber persóna. En þótt ástin í lífi
hans hafi oftar en ekki verið
þungamiðjan í textasmíðum hans
hefur Bubbi ávallt gætt þess að
fjölskylda sín fái að eiga sitt
einkalíf í friði og spyrnir fast við
fótum þegar honum finnst frið-
helgi þess rofin.
Sumir halda
að eftir öll þessi
ár í sviðsljósinu
sé framkoma
Bubba út á við
ýkt og jafnvel
uppgerð. Vinum
hans og vanda-
mönnum ber þó
saman um að
hann komi til
dyranna eins og
hann er klædd-
ur, með tilheyr-
andi kostum og
göllum. Bubbi er
skrifblindur en
það er algengur
misskilningur að
hann sé líka les-
blindur. Skrif-
blindan háir
honum ekki við
lestur og hann er
sagður mikill
lestrarhestur og
með puttann á
púlsinum. Sé
hann staddur
erlendis leggur
hann sig í líma
við að finna
hvaða bækur eru
í umræðunni þar
í landi og sökkvir
sér í hverja bók-
ina á eftir ann-
arri. Ekki var
um það að villast
á afmælistón-
leikunum að
Draumalandið
eftir Andra Snæ
Magnason á upp
á pallborðið hjá
honum um þess-
ar mundir.
Mönnum ber
saman um að það
fari Bubba vel að
eldast. Hann sé
þroskaðri, hafi
lært að búa til
meira pláss fyrir
aðra í kringum
sig og gefi meira af sér. Það hefur
þó ekki breyst að mest gefur hann
af sér í tónlistinni og tjáir sig
aldrei betur en í gegnum hana,
eins og höfundarverk hans síðast-
liðin þrjátíu ár ber vitni um.
Því er spáð að Bubbi verði
„hrikalega flott gamalmenni“
enda er hann ekki hræddur við að
eldast. Það eru samferðarmenn
og jafnaldrar hans heldur ekki
„því þegar Bubbi verður gamall
munu gamlingjarnir eiga
senuna“.
MAÐUR VIKUNNAR
Verður hrikalega
flott gamalmenni
BUBBI MORTHENS
TÓNLISTARMAÐUR
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI