Fréttablaðið - 10.06.2006, Síða 28
10. júní 2006 LAUGARDAGUR28
Kæra
Dagbók
Þráinn Bertelsson skrifar
■ FÖSTUDAGUR, 2. JÚNÍ
Of(sa)trú
Nú ganga þær fréttir staflaust um
landið að Halldór Ásgrímsson sé að
hætta sem forsætisráðherra og for-
maður Framsóknarflokksins og Finn-
ur Ingólfsson sé að hita upp á hliðar-
línunni og eigi að taka við af honum.
Ég gæti best trúað að Halldór
hafi uppgötvað að hann væri orðinn
hundleiður á pólitík daginn eftir að
hann varð forsætisráðherra. Þetta
með Finn hlýtur að vera vitleysa.
Hann er vissulega eldklár maður en
hann hætti og flestir vita að það er
of seint að hætta við að hætta þegar
maður er hættur.
Ég veit bara um einn mann á
landinu sem gæti látið sér detta í
hug að Finnur ætti afturkvæmt í
pólitík.
Sá maður er mjög heit-trúaður.
■ LAUGARDAGUR, 3. JÚNÍ
„Fátækt fólk“ og „Halastjarnan“ í
Öxnadal
Nú er ég kominn norður í Hörgár-
dal. Við Krummi lögðum af stað úr
bænum síðdegis og vorum orðnir
svangir þegar við komum niður
Öxnadalinn. Síðan ég las „Fátækt
fólk“, hina stórkostlegu ævisögu
Tryggva Emilssonar, verð ég alltaf
svangur þegar minnst er á Öxna-
dalinn. Ég verð reyndar alltaf
banhungraður þegar ég les um
fátækt. Samt held ég að ég sé
ekki tiltakanlega vondur
maður.
Nú hefur nútíminn notað sína
aðferð til að útrýma fátæktinni í
Öxnadal. Öll kotin, Fagranes,
Gloppa, Geirþrúðargarðar og hvað
þau nú hétu öll sömul eru komin í
eyði fyrir löngu, síðast Bakkasel.
Engimýri er enn þá í byggð og á
Hálsi hinum megin við þjóðveginn,
beint niðurundan Hraundranga og
Þverbrekkuvatni er rekið veitinga-
hús sem mikið orð fer af og heitir
Halastjarnan.
Þar snæddum við Krummi fjór-
réttaðan kvöldverð, sannkallaðan
herramannsmat og þær daladísir
Guðveig Anna og Sonja Lind Eygló-
ardætur og Karí Ósk Eger tóku
okkur með kostum og kynjum.
Við gistum hjá Jónínu og Hauki
á Bægisá. Á morgun á að ferma
heimasætuna, Sigurbjörgu Ástu.
Skruppum í hesthúsið fyrir hátt-
inn. Það vantar ekki gæðingana á
Bægisá.
■ HVÍTASUNNUDAGUR, 4. JÚNÍ
Gullmoli í Hörgárdal
Fermingin fór fram í Möðruvalla-
kirkju. Falleg athöfn, séra Sólveig
Lára fermdi krakkana og svo kom
séra Gylfi, maðurinn hennar, og
tók þátt í að útdeila altarissakra-
mentinu. Ég verð stundum dálítið
angurvær þegar ég kem að Möðru-
völlum, héðan er Sólveig mín, og í
kirkjunni rifjast upp margar
minningar, skírnir, fermingar,
giftingar, jarðarfarir - og skírnir.
Það var líf og fjör í fermingar-
veislunni og helst hefði hún þurft
að standa í þrjá daga svo að maður
hefði nógan tíma til að tala við alla
fjölskylduna og vinahópinn. En
við lögðum í hann um sex-leytið.
Ég stóðst samt ekki mátið og
kom við í Skriðu til að ég gæti
fengið að sjá graðfolann sem Þór
hefur alið upp. Sá er þriggja vetra,
brúnn og heitir Moli og er
sannkallaður gullmoli. Þetta
er einstök skepna. Aðrar
eins hreyfingar hef ég ekki
séð hjá nokkru hrossi,
nema ef vera kynni Hrímni
frá Hrafnagili.
Eftir rjómann og sykrið í
veislunni var ég svo
hlaðinn orku að
þegar við komum
til Reykjavíkur
var mér skapi
næst að halda
áfram og keyra
hringinn í kringum
landið í einum
rykk.
■ MÁNUDAGUR, 5. JÚNÍ
Þumalfingurreglan
Rólegur dagur. Gat meira að segja
unnið talsvert. Þar til í kvöld. Þá
varð allt vitlaust.
Var það ekki annars á hvítasunn-
unni sem Heilagur andi kom yfir
lærisveinanna og þeir fóru að tala
tungum?
Halldór Ásgrímsson var með
blaðamannafund á Þingvöllum og
sagðist vera ákveðinn í að hætta -
en ekki alveg strax.
Halldór er búinn að vera í sjón-
varpinu - inni í hverri einustu stofu
á landinu - að minnsta kosti fjögur,
fimm kvöld í viku í þrjátíu ár. Það
er gífurlega langur tími, ekki síst af
því að í okkar hröðu veröld er þum-
alfingurreglan sú að endingartími
ráðherra er svipaður og endingar-
tími ráðherrabíla.
Afskriftareglan er miskunnar-
laus. Það sem ekki er nokkurn veg-
inn flunkunýtt er úrelt.
Halldór varð fyrst ráðherra
1983. Margrét Thatcher sem þrauk-
aði í ráðherraembætti í næstum 20
ár var kölluð „Járnfrúin“, og Tony
Blair er nýgræðingur miðað við
Halldór, hefur bara verið ráðherra
síðan 1997 og er alveg að guggna.
Það verður sjónarsviptir að Hall-
dóri. Ég reiddist að vísu
illa við hann þegar
hann lenti í solli
og var allt í
einu
búinn að ákveða í fullkomnu leyfis-
leysi með Davíð Oddssyni að Íslend-
ingar ættu að magna stríð gegn
Írökum. Það var ekki gott.
En það er ekki ég sem verð dóm-
ari í því máli.
■ ÞRIÐJUDAGUR, 6. JÚNÍ
Pólitískt fjöldasjálfsmorð
Það verður engin gúrkutíð í ár.
Framsóknar-leiðarljósið heldur
áfram. Flokkurinn stendur í björtu
báli og allir fjölmiðlar landsins
keppast við að skvetta olíu á eldinn.
Það er þetta með afsögn Hall-
dórs. Sjaldan hefur nokkur kapall
verið jafn fjarri því að ganga upp.
Ef pælingin var sú að öll forysta
Framsóknarflokksins segði af sér
með Halldóri kom það víst fáum á
óvart að hugmyndir um fjölda-
sjálfsmorð fengju dræmar undir-
tektir.
Það er ekki skrýtið að fylgi
Framsóknarflokksins skuli vera
farið að mæðast. Þessi varkári
miðjuflokkur hefur verið rekinn
sem stormsveit útfrá stækum
íhaldsflokki í allmörg ár og leiðin
heim á miðjuna aftur er vandrötuð.
Mörgum finnst einkavæðing
ríkisfyrirtækja ekki vera beinlínis í
verkahring miðjuflokks og þaðan af
síður gallhörð stóriðju-
stefna. Mikil uppsöfn-
uð gremja beinist
því að Fram-
sóknar-
flokknum og óvarlegt fyrir flokks-
menn að vera einir á ferli eftir að
skyggja tekur.
Hvort þessi gremja er skynsam-
leg veit ég ekki, en hún er skiljanleg
út frá mannlegri náttúru. Andstæð-
ingur manns er bara venjulegur
mótherji en sá sem slæst í lið með
honum er svikari. Þess vegna eru
gífuryrðin ekki spöruð um fram-
sóknarmenn og þeir eru úthrópaðir
fyrir að vera gerspillt og siðlaus
úrhrök og glæpamafía.
En því grófari sem svívirðing-
arnar verða sýnist vera meiri þörf
fyrir hófsam- an miðju-
flokk í hinum örg-
eðja stjórn- mál-
um á
Íslandi.
Trúlega
hefði
Framsókn-
arflokkurinn
gott af því að
leggjast fyrir í
grænni lautu og reyna
að rifja upp sögu sína og
köllun, hvert var ferðinni
heitið, hvert var erindið
og hverra erindi var
flokknum trúað fyrir að reka?
Flokkinn vantar ekki fjármála-
snilling heldur forystusauð. Ef
þetta rifjast upp mun Framsóknar-
flokkurinn koma tvíelleftur til leiks
á ný og þjóðin fagna honum eins og
brúðguma.
Bubbi Morthens er fimmtugur í
dag. Hann er búinn að vera lengi að.
Ekki getur hann samt sagt af sér.
Hann er ástmögur þjóðarinnar.
Sennilega hefði verið klókara að
leyfa Finni að vera í friði og bjóða
Bubba formannsembættið.
■ MIÐVIKUDAGUR, 7. JÚNÍ
Jarðnesk paradís
Þótt allt sé upp í loft í pólitíkinni held
ég stillingu minni, axla mína ábyrgð
og tek yfirvegaðar ákvarðanir.
Og það sem meira er: Ég fram-
kvæmi þær á stundinni í staðinn
fyrir að leka þeim út fyrst.
Mánuðum saman hef ég verið að
undirbúa mig undir það andlega að
byrja aftur í líkamsrækt.
Í dag þegar ég var nýsestur við
lyklaborðið að hamra inn minn dag-
lega kvóta fann ég að stundin var
komin. Dreif mig í hina jarðnesku
paradís í Laugardalnum og erfiðaði í
járnum í meira en klukkutíma.
Mens sana in corpore sano. Sem
þýðir: Maður hefur gott af að hreyfa
sig.
Þumalfingurregla!
Í Dagbók Þráins Bertelssonar er sagt frá ofsatrú, halastjörnu í Öxnadal og gullmola í Hörgárdal; og
rætt um fyrirhugað fjöldasjálfsmorð, úreldingartíma ráðherrabíla og ástmög þjóðarinnar.
Saab
3.150.000 kr.
Klassi, öryggi, stíll!
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
17
4
7
Saab 9-3 Sport Combi Linear, 2.0 lítra, 150 hestafla.
Klassík á viðráðanlegu verði*
Það er klassi yfir Saab 9-3 Sport Combi bílunum, enda á Saab sér
áratugalanga sögu sem einn stílhreinasti og öruggasti bíll sem völ er á.
Saab 9-3 er margverðlaunuð nýjung í klassíska Saab stílnum þar sem
öryggi og mýkt í akstri er í fyrirrúmi. Stórkostleg hönnun, öflug vél og
ríkulegur staðalbúnaður gera Saab 9-3 að byltingu í klassíska geiranum.
*Og verðið er algert einsdæmi fyrir lúxusbíl í þessum gæðaflokki!