Fréttablaðið - 10.06.2006, Side 36
Eftir átján mánuði í stóli
borgarstjóra sest Steinunn
Valdís Óskarsdóttir í minni-
hlutann. Hún er stoltust af
ákvörðun um launahækkan-
ir til lægst launuðu borg-
arstarfsmannanna en hefði
viljað vinna betur að öldr-
unarmálum. Hún gagnrýnir
að stjórnvöld hafi ekki veitt
borginni fé í málaflokkinn.
Steinunn Valdís er sann-
færð um að hún sé betri
jafnaðarmaður en áður
eftir borgarstjórastarfið.
Hún ræddi við Gunnhildi
Örnu Gunnarsdóttur um
stjórnmálin.
„Það er eins og annað sem maður
tekur sér fyrir hendur í lífinu. Það
tekur allt enda einhverntímann,“
segir Steinunn Valdís Óskarsdótt-
ir sem lætur af störfum sem borg-
arstjóri um miðjan mánuðinn. Hún
hefur gegnt starfinu í átján mán-
uði, frá því að Þórólfur Árnason
sagði af sér.
„Ég hefði kosið að vera hér áfram
með mínum samflokksmönnum,
en það varð ekki. Ég hef hins
vegar haft mikla ánægju af starf-
inu. Ég hef verið borgarfulltrúi í
tólf ár og hafði verið í tíu ár þegar
ég tók við starfi borgarstjóra. Þá
taldi ég mig þekkja kerfið út og
inn en margt kom mér á óvart í
framkvæmdastjórastarfinu
sjálfu.“ Steinunn segir helst hafa
snert sig hve nálægðin við fólkið
var mikil. Sóst sé eftir nærveru
borgarstjóra við hin ýmsu tæki-
færi.
„Mér finnst að á þessum átján
mánuðum hafi ég öðlast meiri
skilning en ég hafði áður á kjörum
fólks í borginni. Ég lagði áherslu á
það þegar ég tók við sem borgar-
stjóri að einfalt yrði að nálgast
mig. Ég var því með viðtöl í þjón-
ustumiðstöðvum borgarinnar. Það
mæltist mjög vel fyrir, því þangað
kemur fólk sem kemur ekki endi-
lega í Ráðhúsið.“ Viðtalstímarnir í
þjónustumiðstöðvunum voru við-
bót við vikulega tíma í Ráðhúsinu:
„Þar snérust málin gjarnan um
húsnæðismál, peningamál og alls
kyns félagsleg vandamál. Málin
urðu persónulegri heldur en þau
sem rædd voru í Ráðhúsinu.“
Ígrundað að hækka launin
Eftir að hafa kynnst kjörum lægst-
launaðra í borginni og áttað sig á
slæmri stöðu þeirra var stefnan
tekin á að hækka laun þeirra. Það
var gert í desember. Steinunn
sætti harðri gagnrýni og var sökuð
um að rugga þjóðarskútunni all-
verulega. Hún var jafnvel sögð
hafa skrifað kosningavíxilinn.
„Setja verður ákvörðunina í
samhengi,“ segir Steinunn og
bætir við: „Um þessa ákvörðun
hefur verið fjallað eins og hún hafi
dottið af himnum ofan. Það var
ekki þannig því hún er rökrétt
framhald af því sem við í meiri-
hlutanum vorum að gera.“ Stein-
unn útskýrir að borgarstjóri hafi
töluvert mikið vald í stjórnkerfi
borgarinnar og vinni náið með
samninganefnd Reykjavíkur. „Ég
settist niður með samninganefnd-
inni í upphafi viðræðnanna og
lagði þær línur að við skyldum
reyna að fara í þann leiðangur að
hækka þessi lægstu laun umfram
aðra, þó auðvitað ekki þannig að
það raskaði aðstæðum á vinnu-
markaði. Þessi áform kynnti ég í
viðtali í Morgunblaðinu á Kvenna-
frídaginn 24. október. Síðan er
skrifað undir samningana í desem-
ber og þá var eins og fólk væri að
heyra þetta í fyrsta skipti. Kannski
hefur það haldið að viðtalið væri
enn eitt viðtal við stjórnmálamann
án innistæðu, að verkin yrðu ekki
látin tala.“ Það er ekki stíll Stein-
unnar.
Umdeild ákvörðun sú besta
„Ég er mjög stolt af þessari
ákvörðun og ánægðust með hana
af öllum í borgarstjóratíð minni
og það af ýmsum ástæðum. Marg-
ir stóðu upp og gagnrýndu ákvörð-
unina mjög harkalega. Ég varði
hana með glöðu geði, því í tíð
minni sem stjórnmálamaður hef
ég ekki fengið eins mikil viðbrögð.
Fólki ofbauð gagnrýni aðila vinnu-
markaðarins og ýmissa þing-
manna á ákvörðuninni, eins og það
að hækka laun nokkurra þúsunda
láglaunakvenna um einhverja þús-
undkalla setti hér stöðugleikann á
hliðina. Viðbrögðin sem ég fékk
sannfærðu mig um það að ég væri
að gera rétt.“
Hjá henni sjálfri hraka kjörin
verulega við að láta af starfi borg-
arstjóra og setjast í minnihlutann.
Hún gefur lítið fyrir þær athuga-
semdir. „Það er eins og hjá öðrum.
Stundum kemur tíð þar sem menn
eru með hærri laun og svo lægri
laun inn á milli. Ég hlýt að lifa það
af. Ég lifði á þessum launum áður
en ég varð borgarstjóri og hlýt að
gera það eftir að ég hætti. Ég hef
engar áhyggjur af því.“
Í fyrsta sinn í minnihluta
Þrátt fyrir að Steinunn hafi í tólf
ár sinnt borgarmálunum hefur
hún aldrei setið í minnihluta áður.
„Þegar ég hóf þátttöku hér í borg-
arstjórninni árið 1994 steig ég
beint inn í meirihluta. Ég kom úr
fyrsta meirihluta Röskvu í stúd-
entaráði og hafði verið formaður
þar. Ég þekki ekki hvernig það er
að vera í minnihluta, en mér er
sagt að það sé öllum hollt,“ segir
Steinunn og hlær: „Ég nálgast
verkefnið með því að hugsa að
þetta verði ný reynsla.“
Hún segist ákveðin að fylgjast
vel með meirihlutanum og veita
þeim stöðugt aðhald. Hún sjái
fyrir sér að minnihlutasetan verði
fullt starf. „Störfin innan borgar-
stjórnarinnar hafa verið að þróast
þannig, þetta eru jú aðeins fimmt-
án borgarfulltrúar. En auðvitað er
miklu meiri vinna að vera í meiri-
hluta en minnihluta, því ábyrgðin
og formennskan í öllum nefndum
liggur hjá meirihlutanum. Þannig
að þetta hefur þróast þannig að
flestir borgarfulltrúar hafa verið í
fullu starfi.“ Spurð hvort lands-
málin heilli hana, þar sem þónokkr-
ir borgarfulltrúar í minnihluta
hafi átt sæti á þingi samhliða
minnihlutastörfum svarar Stein-
unn:
„Ég ætla bara að fara fyrst í
sumarfrí og sjá svo til. Maður úti-
lokar ekkert í pólitík. Síðustu
dagar í Framsóknarflokknum
sýna að maður á ekki að útiloka
neitt. Ég hef mikinn áhuga á
stjórnmálum og hef starfað í þeim
mjög lengi, þannig að ég finn mér
örugglega eitthvað að gera,“ segir
Steinunn og bætir við: „Stjórnmál-
in eru sá starfsvettvangur sem ég
hef kosið mér í bili. Ég veit ekkert
hvað gerist í sumar, það getur vel
verið að ég komi þannig undan
sumri að ég fari að gera eitthvað
sem komi fólki á óvart. Það verður
bara að koma í ljós.“
Aðeins einn borgarstjóri
Steinunn sóttist eftir fyrsta sæt-
inu hjá Samfylkingunni og segir
að hún hafi talið heppilegast fyrir
flokkinn ef sitjandi borgarstjóri
hefði leitt listann. „Flokkurinn og
þeir sem tóku þátt í prófkjörinu
ákváðu að Dagur yrði í fyrsta sæti
og ég í öðru. Auðvitað var ég ekki
sátt við þá niðurstöðu en ég varð
að vinna eftir henni. Ég held hins
vegar að það að hafa starfandi
borgarstjóra í fyrsta sæti hefði
verið betra fyrir flokkinn.“ Það
séu þó vangaveltur um hvað ef.
Hvort hún hafi rétt fyrir sér með
það skýrist ekki.
Steinunn segir erfitt að svara
hvort það hafi verið mistök af
Samfylkingarmönnum að útiloka
samstarf við sjálfstæðismenn:
„Ég held að hægt hafi verið að ná
saman málefnalega milli Samfylk-
ingar og Sjálfstæðisflokks. Það
reyndi hins vegar ekkert á það
vegna þess að sjálfstæðismenn
voru frekar á því að ræða við
Framsóknarflokkinn. Málefnalega
held ég að Samfylkingin eigi meira
sameiginlegt í borgarmálunum
með vinstri grænum og Framsókn
en ég held að samstarfið hefði
gengið. Það sem kannski helst
hefði staðið í veginum fyrir því er
að bæði Vilhjálmur og Dagur lýstu
því yfir í aðdraganda kosninganna
að það kæmi ekki til greina annað
en þeir yrðu borgarstjórar. Hvor
um sig gerði það, en það er aug-
ljóst að ekki er hægt að skipta
einum borgarstjórastól milli
tveggja.“
Gjaldfrjáls leikskóli úr leik
Steinunn telur að aldrei eigi að úti-
loka samstarf við einn eða neinn í
pólitík. En vísast hefðu skapast
vandræði þar sem nýir borgarfull-
trúar Sjálfstæðisflokksins og þeir
sem hafi setið eitt kjörtímabil séu
mjög langt til hægri. „Þeir eru
mjög hægrisinnaðir til dæmis í
skólamálum og mjög til hægri í
ýmsum velferðarmálum. Ég hugsa
að það hefði getað orðið erfitt
fyrir Samfylkinguna að ná saman
með þeim hópi um ýmsar áhersl-
ur. Ég til dæmis óttast núna að
áform um gjaldfrjálsan leikskóla
verði tekin til baka. Mér finnst
það afar slæmt, því við erum búin
að innleiða fyrstu skrefin.“ Gjald-
frjáls leikskóli snúist um kjör fjöl-
skyldna í borginni, því fjölskylda
með eitt barn á leikskóla spari tut-
tugu þúsund krónur í útgjöld:
„Fólk munar um þessa peninga, ég
tala nú ekki um ef börnin eru
fleiri.“
Borgin grátt leikin
Steinunn gagnrýnir ríkisstjórnina.
Hún hafi staðið í stöðugu ströggli
um að fá fjármagn til að sinna
öldruðum án árangurs.
„Það kæmi mér ekki á óvart
þótt núna yrði skrúfað frá kranan-
um ríkisins megin af því að það
væri kominn „réttur litur“ á þá
sem ráða í Ráðhúsinu. Það er
skelfilegt fyrir Reykvíkinga að
hugsa til þess. Ég hef staðið hér í
baráttu við ríkisvaldið í ótal
málum, sem snerta hagsmuni
borgarinnar, til dæmis vegna öldr-
unarheimila, og oft fengið það á
tilfinninguna að það sé flokkslit-
urinn sem ráði því hvort ríkisvald-
ið komi til móts við okkur og setji
fjármuni í ákveðna málaflokka.“
Spurð hvort það snerist við kæm-
ist Samfylkingin til valda á lands-
vísu svarar Steinunn: „Mér finnst
það fráleitt. Það er ekki hægt að
haga sér þannig gagnvart stærsta
sveitarfélagi landsins. Kosningar
eru lýðræðislegar. Núna liggur
fyrir að búið er að mynda meiri-
hluta Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknar. Ef Samfylkingin tekur við
stjórnartaumunum hér á næsta
ári get ég ekki séð fyrir mér að
menn fari að refsa Reykjavíkur-
borg fyrir það að vera með þessa
flokka hér við stjórnvölinn. Það
kemur langverst niður á borgar-
búum sjálfum.“
Leggst undir feld
Eftir tólf ár í meirihluta og síðustu
tvö sem borgarstjóri sest Stein-
unn Valdís í minnihlutann: „Ég
held að borgarstjórastaðan hafi
gert mig að betri manneskju. Eins
og ég sagði þegar ég tók við starf-
inu, þá er það miklu stærra en ég
sem persóna. Mér finnst, og segi í
einlægni, að starfið hefur þroskað
mig sem stjórnmálamann og aukið
skilning minn á kjörum og líðan
fólks í borginni. Ég held að staðan
hafi líka gert mig að betri jafnað-
armanni. Ég er sannfærð um það.“
Spurð hvar hún verði eftir fjögur
ár stendur ekki á svari sem hæfir
hverjum stjórnmálamanni vel:
„Fjórum árum eldri. Vonandi
reynslunni ríkari.“
10. júní 2006 LAUGARDAGUR36
Steinunn Valdís stendur
upp úr stóli borgarstjóra
FRÉTTAVIÐTAL
GUNNHILDUR A. GUNNARSD.
gag@frettabladid.is
BORGARSTJÓRINN STEINUNN VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR Nýtt upphaf í stjórnmálalífi Steinunnar er á næsta leiti. Hún er á leið í minnihluta í borgarmálunum í fyrsta sinn. Steinunn óttast að
áform um gjaldfrjálsan leikskóla verði tekin til baka í tíð Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar. Hér er hún með leikskólabörnunum á Laugaborg. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Stjórnmálin eru sá starfsvettvangur sem ég hef kosið mér í bili. Ég veit ekkert hvað
gerist í sumar, það getur vel verið að ég komi þannig undan sumri að ég fari að
gera eitthvað sem kemur fólki á óvart. Það verður bara að koma í ljós.“