Fréttablaðið - 10.06.2006, Side 45
44 28. janúar 2005 FÖSTUDAGURLAUGARDAGUR 10. júní 2006 9
Ertu á leið til
framandi landa?
Á heimasíðu Lonely Planet:
www.lonelyplanet.com, er
að finna góðar upplýsingar
fyrir ferðamenn. Á síðunni
eru upplýsingar um
flest öll lönd í heimin-
um, jafnvel þau allra
frumstæðustu sem fáir
ferðamenn heimsækja.
Það besta við vefinn
eru umræðuþræðirnir.
Þar skiptast ferða-
langar á upplýsingum
og reynslusögum og þar má finna
upplýsingar um allt milli himins og
jarðar sem oft eru raunhæfari en
það sem lesa má í glansbæklingum
ferðaskrifstofanna.
góð ráð }
Strandbærinn Peniscola er
sögulegur bær sem liggur
norðarlega í Valencia-héraði á
Spáni, um klukkustundar akst-
ur er í suðurátt til samnefndrar
borgar.
Bærinn skartar líkt og flestir
aðrir strandbæir á Spáni nútíma-
legri og langri strandgötu sem
teygir sig nokkra kílómetra með-
fram fallegri hvítri sandströnd.
Út frá ströndinni má vaða þrjátíu
metra áður en sjórinn nær meðal
stórum manni upp á mitti.
Yfir ströndinni gnæfir gamall
kastali sem stendur á sextíu
metra hárri hæð sem umlukinn er
háum virkismúrum. Páfar og kon-
ungar voru meðal ábúenda í kast-
ala þessum öldum saman. And-
stæðurnar á milli nýtískulegrar
strandgötunnar og kastalans eru
hrífandi. Kvikmyndin El Cid sem
fjallar um spænsku 11. aldar goð-
sögnina Rodrigo Díaz de Vivar
með stórleikaranum Charlton
Heston í aðalhlutverki var kvik-
mynduð í kastalanum og umhverfi
hans. Þegar upp á hæðina er
komið taka við þröngar húsagöt-
ur umhverfis kastalann og fer
hugurinn af stað um ævintýri
fyrri alda. Innan um þröngar
götur á hæðinni er aragrúi veit-
ingastaða sem flestir bera fram
sjávarrétti úr Miðjarðarhafinu,
margir veitingastaðirnir eru
þannig staðsettir að hægt er að
njóta tilkomumikils útsýnis yfir
Miðjarðarhafið á meðan fólk
gæðir sér á matnum.
Bærinn er þeim kosti gæddur
að túristavæðingin er ekki orðin
eins mikil og á mörgum öðrum
stöðum á Spáni. Breskir barir eru
sjaldséðir og gestir inni á þeim
jafnvel sjaldséðari. Stærstur
hluti gestanna er spænskt fjöl-
skyldufólk. Íslenskar ferðaskrif-
stofur eru ekki farnar að bjóða
upp á pakkaferðir til bæjarins en
miðað við það sem hann hefur
upp á að bjóða þá gæti það hæg-
lega gerst. Nýi hluti bæjarins er
skynsamlega byggður, engin tíu
hæða hótel sem skyggja á síðdeg-
issólina hafa risið við ströndina
nálægt gamla bænum. Göturnar
eru hreinar og ekki hafa skyndi-
bitakeðjur náð fótfestu heldur.
Sólardýrkendur í leit að rólegu
fríi í tiltölulega óspilltum bæ ættu
að fá eitthvað fyrir sinn snúð.
Sumir sem heimsækja spænska
sólarströnd ekki í þeim tilgangi
að vakna um miðja nótt þegar
breski hópurinn á hótelinu kemur
heim af barnum, með fullri virð-
ingu fyrir þeirri annars ágætu
þjóð. Peniscola hentar vel þeim
sem vilja fá góðan nætursvefn.
valgeir@frettabladid.is
Söguslóðir og
hvítar strendur
Strandbærinn Peniscola.
Það elta margir sólina á Spáni.
Ferðaþjónustufyrirtæki vekja
athygli á Vesturlandi sem væn-
legum kosti fyrir ferðamenn.
Þúsundir landsmanna flykktust á
Vesturland um Hvítasunnuhelgina.
Ástæðan var átak sextán ferðaþjón-
ustuaðila sem tekið hafa höndum
saman til að vekja athygli á Vestur-
landi sem vænlegum ferðavalkosti.
Ferðalangar hlýddu á sagna-
menn, söngvara og tónlistarmenn
vítt og breytt um Borgafjörð, gengu
á fjöll og nutu kræsinga á Snæfells-
nesi. Enn fremur brugðu menn sér
í siglingar um Breiðafjörð og
brýndu busana með víkingum í
Dölum.
Næsta samstarfsverkefni ferða-
þjónustufyrirtækjanna er að fylkja
liði á Vestnorden ferðakaupstefn-
una í Reykjavík í haust til að festa
Vesturland enn frekar í sessi hjá
þeim erlendu aðilum sem selja
ferðir til Íslands.
Vesturland fyrir
ferðamenn
Gísli Einarsson segir sögur á Sögulofti Landnámssetursins.
NÝ ÚTGÁFA AF KORTABÓK ÍSLANDS
ER KOMIN ÚT.
Á dögunum kom út hjá Máli og
menningu ný útgáfa af
Kortabók Íslands. Bókin
inniheldur ný kort í mæli-
kvarðanum 1:300 000 með
sama útliti og Íslandsatlas
Eddu. Landið er sýnt á 60
kortum sem unnin eru með
bestu nútíma tækni og sýna
landið eins og það er. Að
auki eru í bókinni 40 kort
af höfuðborgarsvæðinu og öðrum
þéttbýlissvæðum auk upplýsinga um
söfn, sundlaugar, golfvelli, tjaldsvæði
og annað slíkt.
Kortabókin er gormabundin
og í þægilegu broti svo auð-
velt er að fletta upp í henni á
ferðalögum. Um er að ræða
góða og aðgengilega bók
sem er ómissandi í bílinn.
Kortabók Íslands komin út
Nýja kortabókin er ómiss-
andi í ferðalagið.
FERÐAMÖNNUM Á LEIÐ TIL OG
FRÁ ÍSLANDI FJÖLGAÐI UM 20
PRÓSENT Á MILLI ÁRA.
Farþegar um Keflavíkurflugvöll í maí
voru 165 þúsund talsins og fjölgaði
þeim um tæp 15 prósent milli ára.
Um 15 prósent ferðalanganna áttu þó
aðeins viðkomu hér á leið til annarra
landa. Ef einungis er tekinn fjöldi
þeirra sem voru á leið til og frá Íslandi
fjölgaði farþegum um tæp 20 prósent.
Fjöldi þeirra sem fóru um Keflavík-
urvöll fyrstu fimm mánuði ársins var
ríflega hálf milljón, eða 12 prósentum
fleiri en árið 2005.
Upplýsingar eru fengnar af vef Ferða-
málastofu.
Farþegum fjölgar
Um 15 prósent ferðamanna sem koma
á Keflavíkurflugvöll eru á leið til annarra
landa en Íslands.
Innritun fyrir haustönn 2006
Innritun fyrir haustönn 2006 stendur nú yfir. Umsóknarfrestur er til 12. júní.
Rafræn innritun fer í gegnum www.menntagatt.is. Umsóknareyðublöð fást á
skrifstofu skólans sem er opin 8.00-15.00 eða á heimasíðu skólans,
www.fa.is.
Eftirtaldar námsbrautir eru í boði:
Bóknámsbrautir til stúdentsprófs:
félagsfræðibraut,
málabraut,
náttúrufræðibraut og
viðskipta- og hagfræðibraut.
Starfsnámsbraut;
upplýsinga- og fjölmiðlabraut
– veftæknanám, -viðbótarnám til
stúdentsprófs
Heilbrigðisskólinn:
Heilsunuddarabraut,
hjúkrunar- og móttökuritarabraut,
brúarnám á hjúkrunar- og
móttökuritarabraut,
lyfjatæknabraut,
læknaritarabraut,
sjúkraliðabraut,
brúarnám á sjúkraliðabraut og
tanntæknabraut.
-viðbótarnám til stúdentsprófs
Almenn námsbraut.
Nánari upplýsingar um allar þessar brautir eru á heimasíðu skólans,
www.fa.is. Þar er einnig kynning á skólastarfinu, myndir úr félagslífi o.fl.
Skólinn býður upp á fjarnám allt árið. Nánari upplýsingar á heimasíðu
skólans.
Skólameistari
Heimsferðir bjóða frábært tilboð til
Króatíu í júní. Króatía hefur svo
sannarlega slegið í gegn hjá
Íslendingum síðan við kynntum
þennan frábæra áfangastað.
Njóttu lífsins á þessum vinsæla
sumarleyfisstað. Gríptu tækifærið
og kynnstu einum eftirsóttasta
áfangastað ferðamanna í Evrópu.
Verð kr. 39.990
Netverð á mann, m.v. hjón með 2
börn, 2-11 ára, í íbúð í viku.
Flug, skattar, gisting og íslensk
fararstjórn.
Verð kr. 49.990
Netverð á mann, m.v. 2 í
herbergi/stúdíó/íbúð í viku.
Flug, skattar, gisting og íslensk
fararstjórn.
Stökktu til
Króatíu
21. júní frá kr. 39.990
Allra síðustu sætin
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI