Fréttablaðið - 10.06.2006, Page 61

Fréttablaðið - 10.06.2006, Page 61
LAUGARDAGUR 10. júní 2006 37 Bruni eldsneytis veldur loftmeng- un þar sem heilsuspillandi ryk- agnir og gastegundir myndast ásamt gróðurhúsalofttegundum. Magn efnanna fer aðallega eftir magni eldsneytisins en einnig eftir eldsneytisgerð, í hvernig vél það er brennt, hvernig vélin er keyrð og við hvaða aðstæður. Fraktskip mengar meira en flugvél Fraktskip sem siglir til Evrópu eyðir mun meira eldsneyti en flugvél eða þota sem flýgur sömu leið. Þar af leiðandi er bein meng- un vegna eldsneytisbrennslu fraktskipsins mun meiri. Frakt- skip eyðir meiru vegna massa síns sem getur verið kringum hundraðfaldur massi flugvélar- innar. Þar að auki þarf skipið að ryðjast í gegnum vatn sem eykur núning og krefst aukinnar orku. Á móti því kemur þó að vatnið umlykur ekki allt skipið og að núningur loftsins við flugvélina er hlutfallslega margfalt meiri vegna þess hve hraði hennar er mikill. Flutningsgetan skiptir miklu máli Samanburðurinn hér á undan er ekki ýkja góður mælikvarði á hvort mengi meira, flugvél eða fraktskip; tilgangur ferðarinnar er að flytja farm og þá skiptir meira máli hversu mikil mengun verður til við að flytja sama magn af farmi. Það breytir miklu því þó að flugvél eyði aðeins broti af því eldsneyti sem fraktskip gerir í hverri ferð þyrfti hún fljúga nokkur hundruð ferðir til að flytja jafnmikið og skipið getur gert í einni ferð. Þar af leiðandi má ætla að flugvélin valdi í raun meiri loftmengun og gróðurhúsaáhrif- um miðað við sama magn af farmi. Forsendur fyrir samanburði Hægt er að sýna fram á þetta með dæmi. Þó verður að hafa þann fyrirvara að til eru margar mis- munandi gerðir flugvéla og frakt- skipa og er eyðsla og loftmengun frá þeim mismunandi. Í dæminu notum við uppgefn- ar tölur frá tveimur flutningafyr- irtækjum innanlands, annars vegar er dæmi um fraktskip sem ferðast frá Reykjavík til norður- hluta Evrópu, og hins vegar er flugvél sem flýgur svipaða leið með frakt. Dæmið miðast við hefðbundna þyngd farms og heildareyðslu fyrir fraktskip og flugvél. Eingöngu er gefin upp þyngd á raunverulegum farmi skipsins, en ekki þyngd flutnings- gámanna sjálfra. Dæmi um eldsneytiseyðslu Gera má ráð fyrir að eldsneytis- eyðsla fraktskipsins sé 175 tonn og farmurinn 7500 tonn sem þýðir að eldsneytiseyðsla á eitt tonn af farmi er um 23 kg. Til saman- burðar er eldsneytiseyðsla flug- vélarinnar 12 tonn og farmurinn 36 tonn, sem gerir 333 kg af elds- neyti á hvert tonn af farmi. Hér sést greinilega að þótt fraktskip noti samtals mun meira af elds- neyti þá eyðir flugvélin um það bil 15 sinnum meira eldsneyti en skipið til að flytja sama magn af farmi sömu leið. Magn loftmengandi efna Almennt eru gróðurhúsaáhrif helstu gróðurhúsalofttegunda (koldíoxíðs, metans og hláturgass N2O) svipuð fyrir flugvél og fraktskip miðað við sama magn eldsneytis. Þetta þýðir að fyrir hvert flutt tonn af farmi eru gróð- urhúsaáhrif flugvélarinnar um það bil 15 sinnum meiri en skips- ins. Ef magn helstu loftmengandi efna er áætlað kemur í ljós að með hverju tonni af fluttum farmi myndar flugvélin um það bil þri- svar sinnum meira af köfnunar- efnisoxíðum, níu sinnum meira af kolmónoxíðum og 15 sinnum meira af vetniskolefnum (að frá- töldu metani) en þau hvetja meðal annars til myndunar ósons við yfirborð jarðar. Erfiðara er að áætla magn svifryks og er því sleppt hér. Eldsneytisgerðin hefur áhrif Áhugavert er að myndun brenni- steinsdíoxíðs er svipuð fyrir hvert tonn af fluttum farmi í báðum tilfellum, eða eingöngu um tvisvar sinnum meiri fyrir flugvél en skip. Ástæðan er sú að svartolía skipa er minna hreinsuð en þotueldsneyti og því er brenni- steinsinnihald svartolíunnar mun meira sem veldur aukinni mynd- un brennisteinsdíoxíða. Á næstu árum verða alþjóðareglur um brennisteinsinnihald svartolíu hertar og má þá búast við að mun- urinn aukist. Samkvæmt þessu má almennt segja að fyrir hvert tonn af flutt- um farmi valdi flutningar með flugvélum meiri loftmengun og gróðurhúsaáhrifum heldur en flutningar með fraktskipum. Óbein mengun Þegar óbein mengun sem hlotist getur af flutningi farms er talin með þá verður málið flóknara. Sem dæmi má nefna að ef um er að ræða matvöru sem halda þarf kaldri, þá sleppur eitthvað af kælimiðlum frá kæligámum skipsins þann tíma sem siglingin tekur. Í kælimiðlum eru oft mjög virkar gróðurhúsalofttegundir og í sumum eldri kæligámum eru enn notuð klórflúorkolefni sem eru einnig mjög virk ósoneyðandi efni. Sumir myndu vilja taka tillit til hljóðmengunar, sérstaklega nálægt flugvöllum. Flugvélar hafa einnig áhrif á skýjafar og hafa því sennilega áhrif á hitastig og veðurfar en ekki er þekkt nákvæmlega hve mikil þau áhrif eru. Albert S. Sigurðsson og Sigurð- ur B. Finnsson, sérfræðingar hjá Umhverfisstofnun. Hvort mengar umhverfið meira: Að sigla fraktskipi eða fjúga flugvél yfir Atlantshafið? ������������� ��������������� Vísindavefur Háskóla Íslands fjallar um öll vísindi, hverju nafni sem þau nefnast. Að jafnaði birtast þar 15-20 ný svör í hverri viku. Meðal spurninga sem glímt hefur verið við að undanförnu eru: Hvað liggur á bak við deilur Íraks og Írans, hvaðan kemur orðið timburmenn, af hverju slást kettir þegar þeir hittast, hvað getið þið sagt mér um arfgeng heilablóðföll, hvað er barokktónlist og fá útlendingar sjálfkrafa dvalarleyfi og atvinnuleyfi við það eitt að giftast íslenskum ríkisborgara? Hægt er að lesa svör við þessum spurningum og fjölmörgum öðrum á slóðinni www.visindavefur.hi.is. FRAKTSKIP Skip sem þetta notar mun meira eldsneyti en flugvél en eyðslan er miklu minni á hvert tonn af farmi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.