Fréttablaðið - 10.06.2006, Síða 66

Fréttablaðið - 10.06.2006, Síða 66
 10. júní 2006 LAUGARDAGUR42 Hápunktar Halldórs 1974 1984 1900 1993 1997 2002 Halldór sýndi framsýni Þegar kjörtímabilinu lýkur á næsta ári hafa Framsókn-arflokkur og Sjálfstæðis- flokkur setið saman í ríkisstjórn samfleytt í tólf ár. Það er lengsta samfellda meirihlutasamstarf af hálfu Framsóknar- flokksins frá upphafi. Flokkurinn hefur átt aðild að 21 rík- isstjórn og leitt 13 af þeim en alls hafa 35 ríkisstjórnir setið að völdum frá árinu 1917. Framsóknarflokkurinn hefur hald- ið til á miðju hins pólitíska áss og starfað með flokkum á báðum vængjum. Tólf ár saman í ríkisstjórn Árið 1993 var samningur um evrópskt efnahags-svæði samþykktur sem lög á Alþingi. Þetta var eitt stærsta mál Viðeyjarstjórn- arinnar sem samanstóð af Sjálf- stæð- isflokk og Alþýðuflokk. Viðræður hófust reyndar þegar ríkisstjórn Steingríms Hermannsonar var við völd en þegar fram í sótti snerust flokkarnir sem höfðu myndað þá ríkisstjórn gegn hugmynd- inni. Þegar kosið var um málið klofnaði þingflokkur Framsókn- arflokks í afstöðu sinni þegar helmingur kaus á móti frumvarp- inu og helmingur sat hjá. Með því gengu Halldór Ásgrímsson og fleiri sem sátu hjá gegn vilja formanns flokksins, Steingríms Hermannssonar, sem var fátítt á þessum tíma. Samþykkt á EES-samning Árið 1997 var Landsbanka Íslands breytt í hlutafélag og Búnaðarbanki Íslands fylgdi í kjölfarið ári seinna. Þannig hófst einkavæð- ingarferlið sem lauk formlega 2003. Sala ríkisbankanna er ein stærsta breytingin sem hefur átt sér stað á íslenskum fjármála- markaði á síðustu árum og hefur haft víðtæk áhrif. Salan var að sama skapi afar umdeild. Ríkisendurskoðun kannaði sérstaklega hæfi Halldórs í þessu máli vegna meintra eignatengsla. og úrskurðaði að hann hefði verið hæfur. Einkavæðing ríkisbankanna Með sífellt öflugri fiski-skipaflota og aukinni tækni gekk mikið á fiskistofnana við landið. Haustið 1983 gaf Hafrannsóknastofnun út skýrslu um að takmarka þyrfti veiðar verulega sem skapaði mikil viðbrigði frá þeim frjálsu veiðum sem höfðu tíðkast áður. Halldór Ásgrímsson var sjáv- arútvegsráðherra á þessum tíma og stundum nefndur guðfaðir kvótakerfisins sem tók gildi árið 1984. Kvótakerfinu komið á Árið 2002 fékk Landsvirkj-un heimild til byggingar virkjunar við Kárahnjúka og hófust framkvæmdir mánuði síðar. Bygging virkjunarinnar var forsenda fyrir því að reist yrði álver við Reyðarfjörð sem hafði verið samið um milli stjórnvalda, Landsvirkjunar og Alcoa fyrr á árinu. Stjórnir Landsvirkjunar og Alcoa samþykktu raforkusamning vegna álvers við Reyðarfjörð í byrjun árs 2003. Stuttu síðar samdi Landsvirkjun við Impregilo um tvo stærstu þætti fram- kvæmdarinnar, Kárahnjúkastíflu og aðrennslisgöng virkjunarinnar. Þessi framkvæmd hefur orðið tilefni fjölda mótmæla. Kárahnjúka- virkjun „Kárahnjúka- virkjun er dýrkeyptasti minnisvarði sem íslenskur stjórnmálamað- ur hefur reist sér til þessa. Við hönnun hans naut Halldór Ásgrímsson stuðnings Sjálfstæðisflokksins og meirihluta alþingismanna. Ekkert mannvirki hefur klofið þjóðina í andstæðar fylkingar eins og þetta og stóriðjustefnan sem það hvílir á er nú að rýja Framsóknarflokk- inn fylgi og trausti. Kárahnjúka- virkjun er á virku sprungubelti og með henni hefur Halldór framið þá kviðristu (harakiri) sem lengi verður í minnum höfð.“ Harakiri Halldórs HJÖRLEIFUR GUTTORMSSON „Ég hef þá trú að ákvörðunin um Kárahnjúka- virkjun og álver á Reyðarfirði sé Austfirðingum og þjóðinni allri mjög til farsæld- ar og heilla. Ég tók þátt í þessu verkefni og átti mikið og drjúgt samstarf við Hallldór og þau samskipti voru alla tíð mjög góð. Það er ljóst að hann var kjölfesta í þessu máli og afskaplega traustur í þeirri erfiðu baráttu sem háð var til að ná fram þessum erfiðu málum.“ Farsæl ákvörðun SMÁRI GEIRSSON „Það var nokk- uð almennt álit- ið að hugmynd Halldórs um að gera Ríkisendur- skoðun að sjálf- stæðri stofnun væri góð, það var til bóta fyrir Alþingi að koma stofnun- inni á. Halldór var sem þingmaður traustur og góður maður sem starfaði að heilindum að því sem hann tók sér fyrir hendur. Þó við höfum verið ósammála á stundum, þá störfuðum við ágætlega saman.“ Hugmyndin skynsamleg VILHJÁLMUR HJÁLMARSSON RAGNAR ARNALDS Var strax sam- mála Halldóri MATTHÍAS Á. MATHIESEN „Það var mismunandi afstaða til málsins innan þingflokksins en það voru full heilindi og samstaða í flokknum og menn voru sammála um að vera ósammála. Steingrímur hafði leitt þessa umræðu en var svo ekki sam- mála þeim áherslum sem ný ríkisstjórn hafði í málinu, þar skapaðist viss ágreiningur.“ Full heilindi í flokknum GUÐMUNDUR BJARNASON „Halldór var eins í þessu máli eins og mörg- um öðrum, trúr sínum skoðunum og stefnufastur. Reynsla hans og þekking skipti sköpum fyrir okkur sem minni reynslu höfðum þá, og við hlustuðum á hann. Ég tel afstöðu hans, og þar með okkar hinna, hafa verið rétta. Sagan hefur staðfest það.“ „Halldór lagði þetta fram á sínu fyrsta kjör- tímabili sem hófst 1974. Ég var fjármálaráð- herra á þeim tíma og var strax í upphafi mjög sammála honum um þetta. Mörgum fannst óeðlilegt að stofnun sem heyrði undir ráðuneytið færi yfir fjárlagafrum- varpið. Það tók hins vegar sinn tíma eins og oft að breyta stjórnkerfinu og frumvarpið náði ekki strax í gegn. En á endanum var frumvarpið svo samþykkt.“ INGIBJÖRG PÁLMADÓTTIR „Framsóknar- flokkurinn hefur tilhneigingu til að reyna að halda sér sem lengst í stjórn. Hann hefur því þurft að sveigja sig ansi oft að kröfum Sjálf- stæðisflokksins og gleypa ýmis- legt sem flokkurinn hefði nú ekki gert ef hann hefði sjálfur mátt ráða. Þetta hefur verið grund- völlurinn á samstarfinu sem Framsóknarflokkur er að koma illa út úr, svipað og Alýðuflokkur- inn eftir viðreisnarstjórnina. Hér er sagan að endurtaka sig.“ Eitt af fyrstu þingmálum sem Halldór Ásgrímsson lagði fram á þingi eftir að hann tók þar sæti árið 1974 var frumvarp um að færa ríkis- endurskoðun frá fjármála- ráðuneytinu undir þingið. Víða var sú til- högun að ríkisendurskoðun heyrði undir þing þjóðlanda eins og í Noregi, Danmörku og Bretlandi. Halldór vildi fara sömu leið hér á landi og lagði frumvarpið nokkrum sinnum fram áður en það náði fram að ganga árið 1987 með nýjum lögum um ríkisendur- skoðun. Tilfærsla ríkis- endurskoðunar „Þetta stjórnar- samstarf mun verða annað lengsta stjórn- arsamstarf frá lýðveldisstofn- un, jafn langt og viðreisnar- stjórnin. Ég tel að þessi tími hafi verið mjög merkilegt tímabil í sögu landsins. Þarna fengu menn tækifæri til að umskapa Ísland að mörgu leyti, sérstaklega gagnvart efnahags- og viðskiptatíðinni. Það tókst að búa til alveg nýtt land með allt aðra og óteljandi mikla mögu- leika sem menn þekktu ekki hér áður.“ Bjuggu til alveg nýtt land EINAR ODDUR KRISTJÁNSSON „Einkavæðing bankanna var tvímælalaust afar misráðin og flokkspólit- ískir hagsmunir réðu óþægilega miklu. Þetta er mál sem enn á eftir að leiða endanlega til lykta. Þótt núna ári vel í heimi fjármálanna þá skulu menn ekki gefa sér neitt í þeim efnum. En hitt er alveg augljóst að öll ákvarðanataka á sínum tíma var tekin með flokkspólitíska hags- muni að leiðarljósi og það kann ekki góðri lukku að stýra.“ Afar misráðin framkvæmd ÖGMUNDUR JÓNASSON „Það er svo augljóst að það var rétt að selja ríkisbank- ana. Það var upphafið að mikilli sókn efnahagslífsins og útrásar við- skiptalífsins og hafði mikið að segja um þá velgengni sem hefur verið á því sviði síðan. Þetta var vissulega umdeild ákvörðun en ég heyri ekki engan halda því fram í dag að hún hafi verið röng. Það er í raun ótrúlegt hvað það er stutt síðan að bönkun- um var stjórnað af stjórnmála- mönnumi.“ Upphafið að mikilli sókn VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR „Við stóð- um frammi fyrir miklum erfiðleikum þegar ljóst var að takmarka þyrfti veiðarnar haustið 1983. Brugðist var við með því að setja fiskveiði- stjórnunarkerf- ið á. Halldór sýndi því mikinn skilning að takmarka þyrfti veiðarnar og var náttúrulega sá sem bar hina pólitísku ábyrgð á því á meðan við hinir bárum ábyrgð á því gagnvart atvinnu- greininni. Samstarfið gekk vel. Hvort tveggja var mjög erfitt viðfangsefni en tókst farsællega og til mikils ágætis fyrir þjóðina alla.“ Samstarfið gekk vel KRISTJÁN RAGNARSSON „Það má velta fyrir sér hvers vegna þetta hefur ekki skilað meiri árangri fyrir okkur Íslend- inga. Í upphafi var talið að þetta yrði til þess að styrkja og byggja upp þessa helstu nytjastofna, sem hefur ekki gengið eftir. Þessi stóra ákvörðun hefur því miður ekki skilað því sem reiknað var með, við erum alltaf að fara til baka í staðinn fyrir að við áttum að geta horft bjartari augum fram á veg.“ Erum alltaf að fara til baka SVERRIR LEÓSSON Sagan að endurtaka sig
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.