Fréttablaðið - 10.06.2006, Side 82
10. júní 2006 LAUGARDAGUR58
utlit@frettabladid.is
MÓÐUR VIKUNNAR
> ÁLFRÚN FER YFIR MÁLIN
Vi
nn
in
g a
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
1
49
k
r/
sk
ey
tið
.
Aðalvinningur er
PS2 tölva +
Hitman Blood Money
Aukavinningar eru:
• Hitman Blood Money • Pepsi kippur • DVD myndir
• PS2 Stýripinnar • Fullt af öðrum tölvuleikjum
og margt fleira
10.
HVE
R
VIN
NUR
!
Þú sendir SMS skeytið BTC HBF á númerið 1900.
Þú gætir unnið!
Spáir þú mikið í tískuna? Nei, ég
kaupi mér yfirleitt notað dót eða læt
vini mína búa til eitthvað eftir mínum
hugmyndum.
Hvernig myndirðu lýsa stílnum
þínum? Frístæl.
Uppáhaldshönnuðir eða fatamerki:
Ertu eitthvað spes?
Flottustu litirnir: Allir með tölu.
Hverju ertu veikastur fyrir? Einhverju
sem hylur nekt mína.
Hvaða flík keyptir þú þér síð-
ast? Buxur sem ég ætla að láta Jón
Sæmund í Dead setja eitthvað fallegt
prent á.
Hvað finnst þér flottast í tískunni
núna? Hvað er í tísku núna?
Hvað ætlarðu að kaupa þér fyrir
sumarið? Fullt af fötum!
Uppáhaldsverslun? Spúútnik, Elvis
og svo allar hinar folttu búðirnar.
Hvað eyðir þú miklum peningum í
föt á mánuði? Að meðaltali 4.680.-
Hvaða flíkur gætir þú ekki verið án?
Jbs-nærbuxnanna minna.
Uppáhaldsflík: Jbs-nærbuxur.
Hvert myndir þú fara í verslunar-
ferð? Berlínar eða London.
Ljótasta flík sem þú hefur
keypt þér: Þetta er mjög
afstætt. Var að finna skyrtu
heima hjá móður minni
sem hefði orðið fyrir val-
inu fyrir fimm árum en
núna er hún bara mjög
flott. Vá hvað hún er
flott!
SMEKKURINN MINN MAGNÚS GUÐMUNDSSON „MAGGI LEGÓ“ PLÖTUSNÚÐUR
Allir regnbogans litir og jbs nærbuxur
> Mælum með
...sólarpúðrinu frá Chanel sem
er ómissandi fylgihlutur inn í
sumar og sól.
Karlpeningurinn hefur ekki verið þekktir fyrir að fylgja helstu straumum og stefn-
um innan tískunnar. Ekki er óal-
gengt að sjá eiginkonurnar draga
mennina á eftir sér og pína þá inn
í búðir til að láta þá máta föt.
En nú eru breyttir tímar og eru
strákarnir farnir að vera vel með
á nótunum hvað fatnað varðar og
flestir herrramenn leggja mikið
upp úr því að vera smart til fara.
Þetta er einhvers konar aftur-
hvarf til gamalla tíma þegar klæð-
skerar voru upp á sitt besta og
gallabuxur bara notaður af námu-
verkamönnum. Herratískan er
nefnilega ekki lengur víðar galla-
buxur og bolur því tískan
hefur þróast í fínni átt.
Skyrta og vesti er orðið
hverdagsklæðnaður
karlmanna og svartar
gallabuxur renna út úr
verslunum eins og heitar lummur.
Sumarið á tískusýningapöllun-
um einkenndist af niðurmjóum
gallabuxum, támjóum skóm, vest-
um og jakkafatajökkum í alls kyns
litum. Stuttar buxur og litríkir
sokkar eru einnig áberandi og
axlaböndin koma sterk inn. Það er
sem sagt bæði rokkaraútlitið og
breska „skólastrákalúkkið“ með
prjónavestum og hnepptum v-
hálsmálspeysum. Þetta er allt
saman fáanlegt hér á landi og því
ekki erfitt fyrir íslenska karlmenn
að klæðast nýjustu tísku og gefa
stelpunum ekkert eftir í nýjustu
tískunni. alfrun@frettabladid.is
Herraleg tíska
sumarsins
GUCCI Svartar buxur eru málið þetta sumarið og
hvítir skór setja punktinn yfir i-ið.
Faðir minn hefur alltaf haft andstyggð á búðarápi. Síðan ég var
lítil man ég eftir honum breyta um karakter um leið og við stig-
um fæti inn í búð, alveg sama hvort það var matvöru- eða fata-
búð. Hann varð eldrauður í framan, fussandi og sveiandi yfir
öllu. Hann hefur viðurkennt fyrir mér að þetta sé eitt það leið-
inlegasta sem hann geri og hann mundi gera hvað sem er til að
sleppa við það. Kringlan og Smáralind… gleymdu því að hann
stígi fæti sínum þangað inn og ef það gerist þá er það í mikilli
neyð. Það er bara staðreynd að karlmenn hata búðir.
Skrítið að eitthvað sem ég og já, konur almennt, elska, hata
flestir karlmenn. Þetta er gott dæmi um hvað kynin eru ólík.
Hvað ætli það sé sem piltarnir þola ekki við verslanir? Ætli það
sé mannmergðin, flúorljósið, hávær tónlist og speglarnir… eða
grípur þá hræðsla um glötun karlmennskunnar ef þeir svo
mikið sem stíga fæti inn í mátunarklefa? Ætli þeir haldi að
búðaráp sé svona stelpuleikur eins og Barbie og dúkkulísur?
Spurningar sem ég mun örugglega aldrei fá almennileg svör
við en eru verðug umhugsunarefni. Sem betur fer breytast tím-
arnir og mennirnir með. Karlmenn minnar kynslóðar eru held-
ur óhræddari við að fara í búðir og máta föt, meira að segja sér
til ánægju og yndisauka. Tískuhugsun karlmanna er að mótast
og þekki ég marga vel klædda karlmenn. Þróun í rétta átt enda
skapa fötin manninn og kominn tími til að karlpeningurinn átti
sig á því.
Ég ætla að minnsta kosti að halda mínum búðaleik áfram og
njóta hans í botn með karlinn minn í eftirdragi.
Er búðaráp stelpuleikur?
RÖNDÓTTUR KRAGI
Sumarlegur hvítur
pólóbolur með
rauðum og svörtum
kraga í anda River
Phoenix. Þessi er
frá sænska merkinu
Tiger Jeans og fæst í
Kúltúr menn.
FRED PERRY Strigaskór í fínni kantinum
frá merkinu Fred Perry. Flottir og hægt er
að nota þá bæði fínt og hversdags. Fást í
Kúltúr menn.
FRÁ TÍSKUPALLINU Skemmtilegir litir og
fallegar peysur voru ríkjandi í sýningu
Burberry fyrir þetta sumarið.
ÖÐRUVÍSI KRAGI
Þessi skyrta gæti
verið tekin beint frá
djasstímabilinu og
passar vel við jakka-
fötin. Flott röndótt
með hvítum kraga.
HERRALEGUR KLÆÐN-
AÐUR INN Vesti eru
hentug og einnig mjög
rokkaraleg. Flott við
gallabuxur eða jakkaföt-
in. Fæst í Kúltúr menn.
RÖNDÓTTUR PÓLÓBOLUR
Þessi fæst í Gallerí Sautján
og er flottur svartur með
h hvítum röndum.
MEST INN Í
SUMAR Pólóbolir
verða allsráðandi
í sumar ef marka
má úrvalið í
herrafataversl-
unum.
MARGLITIR
SOKKAR
Sokkar skipta nú
miklu máli og
eru nokkuð sem
dömur taka alltaf
eftir. Þessir eru
frá Paul Smith
og fást í Kúltúr
menn.
TEINÓTTUR JAKKI Hvítur blazer-jakki frá
versluninni All Saints. Flottur í sumar.
FALLEGIR
SKÓR Hugtakið
spariskór er ekkii
lengur til því nú
eru skór sem
þessir notaðir við
bæði jakkaföt og
gallabuxur. Flottir
bæði í brúnu
og svörtu. Fást í
Kúltúr menn.