Fréttablaðið - 10.06.2006, Page 87
[UMFJÖLLUN]
TÓNLIST
Af þeim plötum sem hafa komið út
á þessu ári er þetta ein af þeim fáu
sem ég hef beðið eftir með ein-
hverri eftirvæntingu. Frumraun
Hot Chip var ánægjuleg sönnun
þess að það eru til ungir Bretar sem
trúa því að það sé hægt að búa til
góða tónlist án þess að byggja á
gömlum rótgrónum gítar-Bítla-
grunni. Ég leyfi mér meira að segja
að efast um að þessir piltar kunni
að spila á gítar yfir höfuð.
Galdur Hot Chip er fólginn í frá-
bærum melódíum, naumhyggjuleg-
um teknópoppútsetningum og frá-
bærum söng. Nær kynlausri röddu
Alexis Taylor er ekki hægt að líkja
við neitt annað en Chet Baker og
frábært að heyra slíka englarödd
ofan á jafn dáleiðandi hrynjandi.
Kannski væri betri lýsing að segja
að rödd hans væri tvíkynja, því
hann vegar algjörlega salt á milli
venjulegra kvenradda og karl-
mannsradda. Það eru eflaust ein-
hverjir sem eiga eftir að halda að
þarna sé stelpa á ferð. Það er ekki
til tilgerð í tjáningu hans og ekki
ein sekúnda af raddfimleikum, þó
svo að hann hafi vel burði til þess.
Einn af mínum uppáhalds karl-
söngvurum, án efa.
Félagi hans Joe Goddard hefur
svo afar einsleita sandpappírsrödd
sem slípar vel upp þær sprungur
sem Alexis rennur ekki ofan í svo
auðveldlega. Minnir kannski örlítið
á Damon Albarn þegar hann syng-
ur með Gorillaz. Á þessari plötu er
þó greinilegt að Alexis er búinn að
taka við hlutverki aðalsöngvara
sveitarinnar.
Þeir sem fylgjast með helstu
plötusnúðum Reykjavíkur ættu
þegar að þekkja lög eins og Over
and Over af þessari plötu, en það
gefur virkilega góða mynd af þeirri
stefnu sem sveitin hefur valið sér.
Bláu tónarnir, sem einkenndu eldri
lög á borð við Playboy og Shining
Escalade, eru nær alveg horfnir. Í
stað þess er komin inn ný og hlýrri
tilfinning, sem ætti ekki að geta
skapað neitt annað en vellíðan. Búið
að bæta inn smá „krútti“ með
glockenspiel og furðuhljóðum, án
þess að það sendi sveitina of langt á
hliðarkantinn. Það er alveg á hreinu
frá upphafi til enda, að hér er dans-
væn „feel-good“ poppplata á ferð,
og ég get ekki ímyndað mér að neinn
geti gert svoleiðis betur í dag en Hot
Chip. Þetta er án efa heilsteyptara
verk en Coming on Strong, og það
fyrsta sem mann langar til að gera
þegar búið er að renna henni í gegn
er að renna henni í gegn aftur. Með
svona tónlist í tækjunum er nokkuð
víst að þetta á eftir að verða æðis-
legt sumar. Birgir Örn Steinarsson
410 4000 | landsbanki.isTryggðu þér miða á betra verði á
landsbankadeildin.is eða ksi.is
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
30
53
06
/2
00
6
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
30
53
06
/2
00
6
fim. 8. júní kl. 19:15
fim. 8. júní kl. 19:15
fim. 8. júní kl. 19:15
lau. 10. júní kl. 16:00
sun. 11. júní kl. 19:15
lau. 10. júní kl. 16:00
mán. 12. júní kl. 19:15
mið. 14. júní kl. 19:15
mið. 14. júní kl. 19:15
Valur - Fylkir
Víkingur - Grindavík
Keflavík - ÍA
ÍBV - KR
Breiðablik - FH
KR - Valur
Breiðablik - Þór/KA
Keflavík - FH
Fylkir - Stjarnan
5. UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KVENNA
6. UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KARLA
Leikarinn góðkunni Sir Sean Conn-
ey fékk hin árlegu heiðursverð-
laun bandarísku kvikmyndastofn-
unarinnar fyrir framlag sitt til
leiklistarinnar. Athöfnin fór fram
í Kodak-leikhúsinu í Hollywood.
Á meðal þeirra sem mættu til
að heiðra félaga sinn voru Star
Wars-leikstjórinn George Lucas
og leikararnir Mike Myers og
Harrison Ford.
Connery, sem sló í gegn sem
James Bond, hefur einnig leikið í
myndum á borð við Indiana Jones
and the Last Crusade, The Hunt for
Red October og The Untouchables.
„Fimm ára lærði ég að lesa og ég
stæði ekki hérna án bókanna, leik-
ritanna og handritanna.“
Connery er sá 34. í röðinni sem
hlýtur þessi miklu heiðursverð-
laun.
Connery heiðraður
GAMLIR FÉLAGAR Sean Connery ásamt
vini sínum Harrison Ford skömmu fyrir
athöfnina. Þeir léku saman í kvikmyndinni
Indiana Jones and the Last Crusade árið
1989. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Heitari flaga
HOT CHIP
THE WARNING
Niðurstaða: Íslandsvinirnir í Hot Chip toppa
sjálfa sig með fylgifisk hinnar geysilega
vinsælu Coming on Strong. The Warning inni-
heldur frábært teknópopp með englaröddum
og laglínum til að drepa fyrir.
FRÉTTIR AF FÓLKI
J.K. Rowling, höfundur Harry Potter-bókanna, hefur verið valin besti
núlifandi breski rithöfund-
urinn í kosningu tímarits-
ins The Book Magazine.
Rowling skákaði þar með
rithöfundum á borð við
Salman Rushdie, Kazuo
Ishiguro, Nick Hornby og
Zadie Smith, og fék þrisvar sinnum fleiri
atkvæði en Terry Pratchett sem lenti í
öðru sæti. Rowling vinnur nú að sjö-
undu og jafnframt síðustu bók-
inn í Harry Potter-seríunni og
greinilegt er að ekki eru
bara börn og unglingar
hrifnir af Harry Potter.
Alanis Moriss-ette og unn-
usti hennar Ryan
Reynolds eru hætt saman eftir fjögurra
ára samband, en þau trúlofuðu sig fyrir
tveimur árum. Morrissette og Reynolds
hittust í afmæli Drew Barrymore árið
2002. Í júní 2005 fór Morrissette
fallegum orðum um kærastann
og virðist allt hafa leikið í lyndi
þá, þó að engin giftingarplön
væru á planinu. „Hann gefur
mér svo mikinn stuðning. Ég
finn hvað hann elskar mig
mikið,“ sagði hún.