Fréttablaðið - 10.06.2006, Qupperneq 88
64 10. júní 2006 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
�������
����������������
�����������������������������
�� ���������������������������
������ ���������
SVÍÞJÓÐ - ÍSLAND
HENRY BIRGIR GUNNARSSON
skrifar frá Stokkhólmi.
henry@frettabladid.is
HRINGSNÚRUR
Hringsnúrurnar vinsælu
eru komnar aftur.
Mikið úrval
FÓTBOLTI „Trúverðugleiki dómara-
nefndar í þessum málum er bara
horfinn,“ sagði Kristján Guð-
mundsson, þjálfari Keflavíkur, en
hann er allt annað en sáttur við
dómgæsluna í leik liðsins gegn
Skagamönnum á fimmtudag.
Dómaramál hafa verið mikið til
umræðu í upphafi Íslandsmót og
þjálfarar létu í sér heyra varð-
andi þessi mál í tveimur af þeim
þremur leikjum sem voru í Lands-
bankadeildinni á fimmtudaginn.
„Ég er mjög ósáttur við að það
er einfaldlega ekki farið eftir
þeim áhersluatriðum í dómara-
málum sem kynnt voru fyrir mót.
Dómarar eru hættir að dæma í
anda þeirra laga og reglna sem
gilda. Það var sagt skýrt frá því
að það ætti að taka harðar á fram-
komu þeirra sem sitja á vara-
mannabekknum. Þjálfarar mega
til dæmis ekki vera að kalla á
leikmenn andstæðinga og alls
ekki að hrópa að dómaranum. Það
á að taka samstundis á þannig
málum en það var bara ekki gert,“
sagði Kristján, sem var rekinn
upp í stúku þegar hann mótmælti
vinnubrögðum dómaratríósins í
leiknum.
„Frá byrjun leiks var öskrað
frá varamannabekk ÍA á hverja
einustu ákvörðun dómarans og
ýmislegt látið flakka. Þetta hefur
gerst í mörgum leikjum og ég er
alls ekki bara að tala um Ólaf
Þórðarson. Það var ekki tekið á
þessu fyrr en eftir 62 mínútur og
þá á mjög klúðurslegan hátt.
Aðstoðardómarinn gaf Óla við-
vörun og svo tveimur mínútum
síðar gaf hann honum aðra við-
vörun. Ég lét í mér heyra og
spurði hann hvers vegna hann
fengi bara aðra viðvörun en að
sjálfsögðu fékk ég ekkert svar
við því,“ sagði Kristján.
„Ef þú býrð í raðhúsi og
nágranni þinn er stöðugt að moka
skít í garðinum sínum þá finn-
urðu alveg lyktina. Sennilega er
hann að bera skít á túnið og á
blómin svo þau vaxi og dafni. En
ef þú sérð að skíturinn er farinn
að kæfa blómin þá geturðu ekki
beðið lengur.“
Kollegi Kristjáns, Leifur Garð-
arsson hjá Fylki, gagnrýndi léleg-
an undirbúning dómara fyrir leiki
og Kristján tekur undir það. „Það
er alveg staðreynd. Svo þarf allt-
af að ríkja þögn um þessi mál.
Sama hvað við tjáum okkur um
þetta þá heyrist aldrei neitt frá
dómaranefndinni. Það er ekkert
gert. Dómarar eru ekkert kallaðir
saman og farið yfir það sem
afvega hefur farið í þessum
málum.“
Kristján segir að við eigum
vissulega góða dómara sem dæmi
í efstu deild. „Hins vegar vantar
samræmi og að dæmt sé eftir því
sem lagt er upp. Það þarf að
vernda leikmenn þeirra liða sem
eru að reyna að spila fótbolta og
hindra að þeir séu bara sparkaðir
niður. Það vantar aðhald á dómar-
ana og þeim sé refsað eða umbun-
að eftir því hvernig frammistaða
þeirra er,“ sagði Kristján Guð-
mundsson. - egm
Kristjáni Guðmundssyni, þjálfara Keflavíkur, finnst að bregðast þurfi við í dómaramálum í deildinni:
Áhersluatriðunum ekki fylgt eftir
HANDBOLTI Strákarnir okkar hituðu
upp fyrir leikinn mikilvæga í vik-
unni með tveim æfingaleikjum
gegn bronsliðinu frá EM í Sviss,
Dönum. Fyrri leikurinn vannst
með einu marki en sá síðari endaði
með jafntefli. Úrslitin endur-
spegla styrk íslenska liðsins og
því engin ástæða til annars en að
vera bjartsýnn fyrir rimmuna og
leikinn á sunnudag þar sem liðið
verður að ná hagstæðum úrslit-
um.
Allir leikmenn liðsins komu
óskaddaðir úr Danaleikjunum
fyrir utan smá eymsli sem alltaf
fylgja. Það var helst þreyta sem
háði einhverjum leikmönnum á
leið til Svíþjóðar í gær og sváfu
margir fast í vélinni á leið utan.
Strákarnir fóru beint upp á hótel í
mat en rétt fyrir kvöldmat var
tekin létt æfing til að hrista ferða-
lagið úr mannskapnum.
Liðið mun væntanlega æfa
tvisvar í dag og strákarnir eiga
einnig bókaðan æfingatíma á
sunnudag. Alfreð Gíslason lands-
liðsþjálfari sagðist þó við komuna
til Svíþjóðar ekki gera ráð fyrir að
nýta þann tíma en spilað er seinni
partinn að sænskum tíma á sunnu-
dag.
Svo skemmtilega vill til að liðið
gistir á sama hóteli og þegar það
náði frábærum árangri á EM árið
2002 en þá var Guðmundur Guð-
mundsson þjálfari liðsins. Hann
er einnig með í för núna og aðstoð-
ar Alfreð landsliðsþjálfara í þessu
verkefni. Guðmundur játti því við
Fréttablaðið í gær að það væri
nokkuð sérstök tilfinning að vera
kominn aftur til Svíþjóðar til að
spila í Globen. Í sama streng tóku
þeir leikmenn sem spiluðu með
árið 2002. Skoðanir manna á hótel-
inu voru þó skiptar en það er við
hlið keppnishallarinnar.
Það var ekki hægt að greina
annað en tilhlökkun í hópnum við
komuna til Stokkhólms í gær og
ljóst að leikmenn bíða spenntir
eftir því að fá að taka á Svíunum,
sem verða væntanlega ekki eins
dyggilega studdir og reikna mátti
með í fyrstu. Miðasala á leikinn
hefur ekki gengið sérstaklega vel
en hin glæsilega Globen-höll
tekur sextán þúsund manns í
sæti.
Strákarnir komnir til Svíþjóðar
Handboltalandsliðið lenti í Stokkhólmi í hádeginu í gær en á morgun spilar
liðið fyrri leikinn gegn Svíum í umspili um sæti á HM í Þýskalandi á næsta ári.
MIKILL FARANGUR Það er ekki lítill farangur sem fylgir heilu handboltalandsliði og fríðu
föruneyti þess. Héru eru Ásgeir Örn Hallgrímsson og Snorri Steinn Guðjónsson að sækja
töskurnar sínar á flugvellinum í Stokkhólmi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
KOMIÐ TIL SVÍÞJÓÐAR Strákarnir voru allir með hressasta móti við komuna til Svíþjóðar í
gær, en frábært veður var í Stokkhólmi. Hér má sjá Einar Hólmgeirsson, Ragnar Óskarsson,
Birki Ívar Guðmundsson og aðstoðarþjálfarann Guðmund Guðmundsson eftir nokkuð
strembið ferðalag þar sem mikil bið tafði för þeirra nokkuð. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÓTBOLTI Það er góð stemning hjá
okkur að vanda,“ sagði Teitur
Þórðarson, þjálfari KR, um leik-
inn gegn ÍBV í Vestmannaeyjum í
dag. KR er í sjötti sæti deildarinn-
ar eftir þrjá sigra og tvö töp en
ÍBV er í því níunda, með fjögur
stig. Sjöttu umferð Landsbanka-
deildarinnar lýkur svo á morgun
með leik FH og Breiðabliks í Kópa-
voginum annað kvöld.
KR vann Breiðablik, 3-2, í
skemmtilegum leik í síðustu
umferð. „Við hleyptum þeim inn í
leikinn og það var virkilega slappt
af okkur að hleypa þeim inn í leik-
inn með marki beint úr auka-
spyrnu og svo úr vítaspyrnu. En
svona er þetta og sem betur fer
náðum við að klára leikinn,“ sagði
Teitur við Fréttablaðið í gær, en
hann er nokkuð sáttur við spila-
mennsku liðsins í sumar.
„Liðið er alltaf að spila betur og
betur og það er hægur stígandi í
liðinu. Ég átti von á því að það
gerðist í sumar, við höfum verið
að spila vel í allan vetur þrátt fyrir
að hafa ekki alltaf uppskorið eftir
því. Við komum inn í leikinn gegn
ÍBV eins og alla aðra, við ætlum
að spila okkar leik og vonandi
dugar það okkur til að hirða öll
stigin,“ sagði Teitur Þórðarson,
þjálfari KR, að lokum. - hþh
Landsbankadeild karla:
ÍBV tekur á
móti KR í dag
MARKI FAGNAÐ Strákarnir í Vesturbænum
fagna marki Sigmundar Kristjánssonar gegn
Breiðabliki í síðustu umferð.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
GOLF Kylfingurinn Heiðar Davíð
Bragason varð að hætta keppni á
Telia Masters mótinu í golfi í gær
vegna veikinda. Heiðar Davíð var
með mikla magaverki en sagði að
það hefði bjargað miklu að klósett
var við nánast hvern teig.
„Það er alveg þrælfúlt að þurfa
að hætta því þetta er mjög flott
mót á góðum velli. Ég ligg bara
uppi í rúmi á hótelherbergi og get
ekki mikið gert annað en hlaupið
af og til á salernið,“ sagði Heiðar
Davíð við heimasíðuna Kylfingur.
is í gær.
Heiðar lék hringinn á 77 högg-
um og bætti við að það hefði geng-
ið mjög illa að einbeita sér. Heiðar
Davíð keppir á áskorendamóti í
Noregi í næstu viku ásamt Birgi
Leifi Hafþórssyni. - hþh
Heiðar Davíð Bragason:
Hætti vegna
veikinda í gær
HEIÐAR DAVÍÐ Prísaði sig sælan yfir góðri
klósettaðstöðu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Guðmundur í 209. sæti
Íslandsmeistarinn í borðtennis, Guð-
mundur Stephensen, er í 209. sæti á
nýjasta heimslista Alþjóða borðtennis-
sambandsins. Guðmundur stendur í
stað frá síðasta lista en hann hefur nú
fallið um tólf sæti frá áramótum. Kín-
verjinn Wang Liqin er efstur á listanum
og þjóðverjinn Tim Boll annar.
„Fyrsta orðið sem hann sagði var
mamma, sem verður að teljast eðlilegt,
en annað orðið var rallý,“ sagði Þórður
Bragason um son sinn Magnús, en
saman munu þeir feðgar keppa í
íslandsmótinu í rallakstri um helg-
ina.
Magnús er aðeins nýorðinn 15
ára gamall og verður aðstoðaröku-
maður hjá föður sínum þangað til
hann sjálfur má taka bílpróf og
taka við stýrinu. Þórður keppti
sjálfur í rallinu, síðast árið
2000. Saman hafa þeir feðgar
gert upp bíl af gerðinni Toy-
ota Corolla, 1986 árgerð, og
hafa unnið í honum hörð-
um höndum. „Ég á bílinn
sjálfur og við pabbi höfum
hjálpast að við að taka hann allan í gegn.
Við tókum vélina upp eftir að hafa keypt
ónýta vél,“ sagði Magnús.
„Það má segja að ég hafi óbil-
andi bílaáhuga. Þetta er greinilega
smitandi, enda fylgdist ég vel
með pabba mínum þegar ég var
yngri,“ sagði Magnús og kvaðst
vel geta hugsað sér að vinna
við bíla í framtíðinni, þrátt
fyrir að hann væri lítið
byrjaður að aka sjálfur,
enda aðeins fimmtán
ára gamall. Þeir feðg-
ar keppa í Max-1
flokknum.
„Ég hef ekk-
ert af viti verið
að keyra, bara
aðeins að leika mér uppi í sumarbústað
en ég er ekki byrjaður í neinum rallýtökt-
um, ég stefni þó að sjálfsögðu á það. Það
væri toppurinn að ná Íslandsmeistaratitli
í sínum flokki þar,“ sagði Magnús. En
hvert er eiginlega hlutverk aðstoðaröku-
mannsins?
„Hann sér um að halda utan um
sérstaka tímabók en út frá því er staðan
í rallinu uppfærð. Þá sér hann líka um
að lesa leiðarlýsingu fyrir ökumanninn,
hvernig beygjur liggja og hvað er fyrir
aftan blindhæðir og slíkt,“ sagði Magn-
ús og bætti við að hann væri búinn að
æfa sig vel fyrir átökin sem fram undan
eru í sumar. „Við byrjum á því að klára
hvert rall en það væri ekki leiðinlegt að
ná eins og einum bikar,“ sagði efnilegasti
aðstoðarökumaður landsins í dag.
HINN 15 ÁRA GAMLI MAGNÚS ÞÓRÐARSON: YNGSTI RALLAÐSTOÐARÖKUMAÐUR LANDSINS
Þessi óbilandi bílaáhugi er smitandi
> Viðræður á milli Chelsea
og Barcelona enn í gangi
Viðræður á milli Englandsmeistara
Chelsea og Evrópu- og Spánarmeistara
Barcelona um kaupverðið á Eiði Smára
Guðjohnsen eru enn í fullum gangi.
Eggert Skúlason, talsmaður Eiðs Smára,
staðfesti þetta við Fréttablaðið í gær
en netmiðlar á Englandi greindu frá
því að upp hefði komið ágreiningur á
milli félaganna og
Barcelona væri
hætt við kaupin.
Svo er þó ekki
en
Eggert
sagði
að
ómögulegt
væri að
segja til um
hvenær botn
fengist í málið,
það gæti skýrst
hvenær sem er.