Fréttablaðið - 10.06.2006, Qupperneq 90
10. júní 2006 LAUGARDAGUR66
www.bluelagoon.is
Styrkur
FÓTBOLTI Það er óhætt að segja að
Philip Lahm hafi byrjað HM með
stæl en eftir aðeins fimm mínútna
leik skoraði hann stórbrotið mark,
með þrumuskoti í samskeytin og
inn af vítateigshorninu og gerir
markið þegar tilkall sem tilþrif
mótsins sem varla er farið af stað.
Ótrúleg fagnaðarlæti brutust út á
Allianz Arena-leikvanginum en
þögn sló á skarann fimm mínútum
síðar.
Paulo Wanchope jafnaði þá
metin með góðu marki eftir fallegt
samspil en Arne Friedrich svaf
illa á verðinum í rangstöðugildru
heimamanna og Wanchope setti
boltann af öryggi framhjá Jens
Lehmann í markinu. Miroslav
Klose kom Þjóðverjum aftur yfir
þegar hann ýtti boltanum yfir lín-
una af stuttu færi eftir sendingu
Bastian Schweinsteiger og staðan
var 2-1 í hálfleik, Þjóðverjum í
vil.
Klose skoraði sitt annað mark
þegar hann fylgdi eftir sínum
eigin skalla og skoraði af stuttu
færi og héldu þá flestir að björn-
inn væri unninn enda lið Kosta
Ríka ekkki hátt skrifað á heims-
vísu. Wanchope var aftur á móti
ekki af baki dottinn og náði að
minnka muninn með keimlíku
marki og því fyrra þegar rang-
stöðutaktík Þjóðvera misfórst illi-
lega.
Þjóðverjir gerðu hvað þeir gátu
til að tryggja sigurinn og Torsten
Frings vildi ekki vera minni maður
en Lahm og skoraði annað mark
sem verður í samkeppni um það
fallegasta í keppninni. Hann fékk
stutta aukaspyrnu og þrumaði
boltanum utanfótar glæsilega í
netið af þrjátíu metra færi og þar
með var sigurinn tryggður.
Þjóðverar léku góðan fótbolta í
leiknum og áttu sigurinn skilinn.
Þeir fengu mörg góð færi og hefðu
hæglega getað bætt við mörkum
en það er varnarleikur liðsins sem
veldur hvað mestum áhyggjum.
Rangstöðugildra þess var í molum
og það þarf að laga fyrir næsta
leik Þjóðverja, gegn Pólverjum á
miðvikudaginn.
„Það er alltaf mikilvægt að
byrja mótið með sigri. Andrúms-
loftið á leikvangnum var ótrúlegt
og maður sá stemningu vel af
pöllunum. Stuðningsmennirnir
eiga hluta í sigrinum, þeir voru
tólfti maðurinn okkar á vellinum,“
sagði Lahm eftir leikinn en Jürgen
Klinsmann landsliðsþjálfari var
að sama skapi ánægður með
úrslitin.
„Við erum mjög ánægðir með
að tryggja okkur öll stigin í
upphafsleiknum. Vissulega var
ákveðin spenna í mannskapnum
en við vildum komast í gegnum
leikinn án þess að fá gult spjald og
gefa stuðningsmönnum okkar eitt-
hvað til að gleðjast yfir. Við lögð-
um hart að okkur og spiluðum
mjög hratt, en þá gerast alltaf ein-
hver mistök og hitt liðið fær tæki-
færi. Það býr mikil orka í liðinu og
á stórviðburði á borð við HM getur
maður ekki annað en iðað í skinn-
inu við hverja magnþrungnu
stundina á fætur annarri,“ sagði
kampakátur Jürgen Klinsmann,
landsliðsþjálfari Þjóðverja, í leiks-
lok eftir að óskabyrjun heima-
manna varð staðreynd.
hjalti@frettabladid.is
Veislan hefst með látum í Þýskalandi
Þjóðverar byrjuðu Heimsmeistaramótið frábærlega á heimavelli sínum með 4-2 sigri gegn Kosta Ríka. HM
fer frábærlega af stað og má búast við stórkostlegu móti ef fram heldur sem horfir frá upphafsleiknum.
Á SKOTSKÓNUM Miroslav Klose skoraði tvö
mörk og átti fínan leik í gær.
NORDICPHOTOS/AFP
ALLT VITLAUST Allt ætlaði gjörsamlega um koll að keyra þegar Lahm skoraði fyrsta mark
HM með glæsilegu skoti í samskeytin og inn. NORDICPHOTOS/AFP
A-riðill:
ÞÝSKALAND-KOSTA RÍKA 4-2
1-0 Philip Lahm (6.), 1-1 Paulo Wanchope (12.), 2-
1 Miroslav Klose (17.), 3-1 Miroslav Klose (61.), 3-2
Paulo Wanchope (73.), 4-2 Torsten Frings (87.).
PÓLLAND-EKVADOR 0-2
0-1 Carlos Tenorio (24.), 0-2 Augustin Delgado
(80.).
HM 2006
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
FÓTBOLTI Argentínumaðurinn stór-
efnilegi Lionel Messi verður ekki
með í kvöld þegar þjóð hans leikur
gegn Fílabeinsströndinni á HM.
Messi hefur enn ekki jafnað sig
fyllilega af meiðslum en hann
hefur átt gott tímabil með Barce-
lona og hefur honum verið líkt við
Diego Maradona.
Gabriel Heinze, varnarmaður
Manchester United, verður að
öllum líkindum í byrjunarliðinu
en hann leikur oftast sem mið-
vörður með landsliðinu og verður
við hlið Roberto Ayala. Hernan
Crespo mun byrja í sókninni ásamt
Javier Saviola. - egm
Argentínska landsliðið:
Messi fjarri
góðu gamni
MESSI Sýnir oft á tíðum frábær tilþrif.
NORDICPHOTOS/AFP
GOLF KB banka mótaröðin í golfi
heldur áfram um helgina þegar
leikið verður í Vestmannaeyjum.
Magnús Lárusson úr GKJ sigraði í
karlaflokki og Tinna Jóhannsdótt-
ir úr GK í kvennaflokki á fyrsta
stigamótinu sem fram fór á Akra-
nesi fyrir hálfum mánuði en leikn-
ar verða 54 holur í mótinu um
helgina, 36 í dag og 18 á morgun.
86 keppendur, 72 karlar og 14
konur taka þátt í mótinu, sem
nefnist Carlsberg-mótið - hþh
Íslandsmótið í golfi:
Spilað í Eyjum
um helgina
FÓTBOLTI Ekvadorar náðu að fylgja
í fótspor heimamanna og fengu
þrjú stig úr hinum leiknum í A-
riðlinum í gær með 2-0 sigri.
Carlos Tenorio kom Ekvador yfir
þegar fyrri hálfleikur var hálfnað-
ur með góðu skallamarki. Tenorio
er 27 ára sóknarmaður sem er á
mála hjá liði Al Sadd í Katar.
Varnarleikur Pólverja var mjög
ótraustur í fyrri hálfleiknum.
Pólland spilaði fantavel í
undankeppni HM og liðið skoraði
urmul marka. Það var þó ekki að
sjá á leik liðsins í gær þar sem
sóknarlínan var ansi bitlaus nær
allan leiktímann. Það var ekki fyrr
en á lokamínútunum sem pólska
liðið vaknaði til lífsins en þá átti
það tvö skot sem höfnuðu í tré-
verkinu.
Annað mark Ekvador kom á 80.
mínútu úr skyndisókn. Ivan Kavi-
edes átti góðan sprett og sendi á
Agustin Delgado, sem átti ekki í
vandræðum með að koma knettin-
um í markið. Delgado er helsta
stjarna Ekvadora þó hann hafi
ekki náð að sanna sig hjá enska
liðinu Southampton, en hann spil-
ar nú í heimalandinu.
Luis Fernando Suarez, þjálfari
Ekvador, setti kynlífsbann á allt
liðið meðan á keppni stendur og
ákvað hann að sýna gott fordæmi
með því að taka sjálfur þátt í því
banni. Sú hernaðaráætlun hans
skilaði sér svo sannarlega í gær og
liðið fékk þrjú stig en margir töl-
uðu um þann leik sem úrslitaleik-
inn um annað sætið í riðlinum.
- egm
Tvö mörk voru skoruð í Gelsenkirchen í gær þar sem Ekvador vann glæsilegan sigur á Póllandi:
Ekvador byrjar mótið með stæl
GAMAN Ekvadorar fagna fyrra marki sínu í gær. NORDICPHOTOS/AFP