Fréttablaðið - 10.06.2006, Síða 94

Fréttablaðið - 10.06.2006, Síða 94
 10. júní 2006 LAUGARDAGUR70 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Nýr humar, grillpinnar sólþurrkaður saltfiskur opið alla laugardaga 11-14 1 dálkur 9.9.2005 15:21 Page 8 LÁRÉTT: 2 fjötra 6 þys 8 sæ 9 flan 11 málmur 12 durtur 14 hindrun 16 tveir eins 17 loka 18 illæri 20 í röð 21 faðmlag. LÓÐRÉTT: 1 áður 3 mannþyrping 4 peningamál 5 tæki 7 tala 10 hæða 13 á kind 15 stefna 16 stækkaði 19 óreiða. LAUSN: NÚNA BÚIÐ Fótbolti. Núna er tíminn til að horfa á fótbolta, hvað sem antisportistarnir segja. Þeir sem ekki eru miklir áhuga- menn um fótbolta ættu að geta haft gaman af því að fylgjast með hinum forföllnu og smitast af stemningunni. Ís. Loksins er hægt að fá ís úr vél með jarðar- berja- og súkkulaðibragði. Jarðarberjaísinn frá Kjörís er dásamlegur, góð tilbreyting frá gamla góða vanilluísnum. Vesti. Það eru allir í vestum þessa dagana, bæði karlar og konur. Þessi klassíska flík er búin að vera inni í dágóðan tíma og mun eflaust vera það í einhvern tíma. Tónleikar með útbrunnum hljómsveitum. Íslenskir tónlistar- áhugamenn láta ekki lengur plata sig á tónleika með hljóm- sveitum sem voru frægar og svalar í gamla daga. Væmin barnanöfn. Ungviðið í dag skal fá gömul og góð íslensk nöfn eins og Rannveig, Embla, Salka, Vignir og Halldór. Netasokkabuxur. Voru algerlega málið einu sinni. Nú á fólk ekki einu sinni að láta sér detta það í hug að klæðast slíkum. FRÉTTIR AF FÓLKI Vel gæti farið svo að finnsku skrímslin í Lordi sæktu Íslendinga heim á komandi mánuðum. Sigurlag þeirra í Eurovision hefur notið talsverðra vinsælda hérlendis og telja má víst að landsmenn myndu fagna því ef Lordi héldi hér tónleika. Sögur herma að Einar Bárðarson og hans fólk hjá Concert hafi skoðað þann möguleika að fá Lordi til Íslands en ekkert hefur fengist staðfest um það. Heimsókn norsku Eur- ov- ision-sveitarinnar Wig Wam í fyrra var svo vel heppnuð að Norðmennirnir komu aftur hingað til lands og má telja að Lordi yrði ekki síður vin- sæl ef hún lætur sjá sig. Sjónvarps-parið Völundur Snær Völundarson og Þóra Sigurðardóttir hefur tekið yfir dagskrána í íslensku sjónvarpi á fimmtudagskvöldum. Fyrsti þátturinn af Sögunum okkar, nýjum þætti Þóru og Jóhanns G. Jóhannssonar, fór í loftið nú á fimmtudag i Ríkissjónvarpinu. Í þáttunum ferðast þau um Íslands og fjalla um merka staði sem tengjast þjóð- sögunum og fleiru í þeim dúr. Síðar á fimmtu- dagskvöldum er svo grillþáttur Völla Snæs á dagskrá Skjás eins en þar töfrar Völli fram gómsæta rétti víða að úr veröld- inni. Kóngurinn Bubbi Morthens er veislu-glaður í meira lagi þessa dagana. Hann hélt magnaða tónleika í Höllinni í vikunni til að fagna fimmtugsafmæli sínu en lætur sér það ekki duga. Bubbi heldur vinum og velunnurum sínum veislu á Borginni í dag og má búast við því að þar verði bæði fjölmennt og góðmennt. Ekki stendur til að Bubbi taki sjálfur lagið í veislunni en þeim mun líklegra er talið að vinir hans úr tónlistarbransanum stígi á stokk honum til heiðurs. Þó er ekki loku fyrir það skotið að kóng- urinn taki lagið með einhverjum vina sinna, ef sá gállinn er á honum. - hdm LÁRÉTT: 2 höft, 6 ys, 8 sjó, 9 ras, 11 ál, 12 rumur, 14 tálmi, 16 jj, 17 lás, 18 óár, 20 lm, 21 knús. LÓÐRÉTT: 1 fyrr, 3 ös, 4 fjármál, 5 tól, 7 sautján, 10 smá, 13 ull, 15 ismi, 16 jók, 19 rú. Fyrir tveimur árum síðan var vík- ingaþorp byggt í Kerlingardal við Vík í Mýrdal fyrir kvikmyndina Bjólfskviðu. Síðan tökum á kvik- myndinni lauk hefur leikmyndin staðið í dalnum og hafa gestir getað skoðað mannvirkin sér til gamans. Íslenskt veðurfar hefur hins vegar farið óblíðum höndum um leikmynd- ina og er hún nú orðin afar tuskuleg á að líta og farin að minna meira á rusl en mannvirki. Sveinn Pálsson, sveitarstjóri Mýrdalshrepps, segir að sveitarstjórnin hafi beðið Heil- brigðiseftirlitið að reka á eftir því að leifarnar verði fjarlægðar því fjöldi ferðamanna leggi leið sína um dalinn og leiðinlegt sé að fólk þurfi að horfa upp á ruslahrúguna. Að sögn Friðriks Þórs Friðriks- sonar, eins af framleiðendum kvik- myndarinnar, var samið við landeig- andann, Jóhannes Kristjánsson á Höfðabrekku, um að hann myndi sjá um að fjarlægja leikmyndina og því sé málið nú í hans höndum. Undanfarna daga hefur Jóhann- es unnið hörðum höndum að því að laga til á svæðinu og nú er svo komið að einungis nokkrir litlir kofar standa á staðnum en restin af leikmyndinni hefur verið tekin niður og keyrð heim að Höfða- brekku þar sem fyrirhugað er að koma henni upp. „Þetta verk hefur dregist vegna veikinda og svo hef ég líka verið að undirbúa hlöðuna til að taka á móti þessu,“ segir Jóhannes, sem vill opna víkingasafn í hlöðunni. „Leik- myndin hefur vakið athygli í dalnum og útlendingar eru spenntir að skoða þetta,“segir Jóhannes, sem fyrir rekur ferðaþjónustu á Höfðabrekku. „Við höfum verið að urða drasl að undanförnu og núna er svæðið nán- ast að verða hreint.“ snaefridur@frettabladid.is JÓHANNES KRISTJÁNSSON: UNDIRBÝR VÍKINGASAFN Vandræðagangur með leikmynd Bjólfskviðu RUSL EÐA GERSEMI? Spýtnabrak, gærur og annað drasl hefur einkennt tökustað Bjólfskviðu að undanförnu en nú hefur verið lagað til á svæðinu, mörgum til mikillar gleði, enda skiptar skoðanir á því hvort leikmyndin sé landinu til lýtis eða ekki. TÖKUSTAÐUR BJÓLFSKVIÐU Verið er að laga til á tökustað Bjólfskviðu við Vík í Mýrdal og flytja leikmyndina að Höfðabrekku þar sem fyrirhugað er að opna víkingasafn í framtíðinni. Nokkrir kofar verða þó látnir standa og geta ferðamenn sem leið eiga um Kerlingardal í sumar skoðað þá þar. FRÉTTABLAÐIÐ/SNÆFRÍÐUR 1 Abu Musab al-Zarqawi 2 Þýskaland - Kosta Ríka 3 Reykjavík-Mag VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á bls. 8 HRÓSIÐ ... fær Helga Steffensen fyrir að starfrækja Brúðubílinn í 26 ár. AÐ GEFNU TILEFNI Vegna fréttar um starfsmannamál í Latabæ á þessari síðu í gær skal tekið fram að ráðning nýs aðstoðarleik- stjóra tengdist á engan hátt kynferði leikstjórans. Ráðhús Reykjavíkur mun í dag fá á sig yfirbragð taílenskrar hátíð- ar þegar Taílendingar fagna sex- tíu ára valdaafmæli Taílandskon- ungs. Aðalræðisskrifstofa Taílands á Íslandi, Búddistafélag Íslands og Taílensk-íslenska félag- ið standa að hátíðinni, sem stend- ur frá kl. 12 til 18. „Þetta er ein- stakur viðburður því konungurinn er búinn að vera við völd í sextíu ár. Af núlifandi þjóðhöfðingjum hefur hann verið lengst við völd,“ segir Kjartan Borg, ræðismaður Taílands á Íslandi. „Ég veit til þess að fólk komi utan af landi til að taka þátt í hátíðarhöldunum, því þetta verður ekki endurtekið,“ segir Kjartan. Hans hátign Bhumibol Aduly- adej er þekktur fyrir alþýðlegan persónuleika og er því vinsæll meðal Taílendinga. „Hann nálgast fólkið á svo sérstakan hátt. Hann fer út í sveitir og talar við fólkið og síðan er lagt á ráðin. Maður sér hann helst fyrir sér úti í sveitun- um, alþýðlega klæddan með landa- bréf í hendi og myndavél um háls- inn,“ segir Kjartan. Pra Maha Prasit, munkur Búddistafélags Íslands, verður með kynningu á kónginum í máli og myndum. Bragðlaukarnir ættu einnig að kætast því hægt verður að bragða á taílenskum mat sem veitingastaðir borgarinnar hafa lagt til. „Hátíðin snýst um það að heiðra konunginn og heilla, en þetta er líka kynning á taílenskri menningu og allir eru velkomnir, Íslendingar og aðrir,“ segir Kjart- an. Konungur heiðraður í Ráðhúsinu PRA MAHA PRASIT OG KJARTAN BORG Taí- lendingar koma hvaðanæva að af landinu til Reykjavíkur til að undirbúa hátíðina. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.