Fréttablaðið - 10.06.2006, Síða 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
60 02 .V .B
s
met sy S
AE
KI
re tn I
©
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 20:00 | www.IKEA.is
Sumarið er hér!
SOMMAR blómapottur
Ø18xH18 cm 290,-
LÓBELÍA sumarblóm
790,-
STJÚPUR sumarblóm
20 stk. ýmsir litir
PETÚNÍA sumarblóm
ýmsir litir
390,-
MYNTA blómapottur
Ø37xH30 cm 590,-
MYNTA undirskál
Ø28 cm 250,-
SOMMAR blómapottar 3 stk.
m/undirskál Ø8,5xH7 cm 190,-
SOMMAR blómakassi
56x24x18 cm 890,-
ARRAK blómapottur
Ø15xH13 cm 190,-
DALÍA sumarblóm
390,-
390,- HULTET blómapotturØ34xH32 cm 790,-BONDÖN blómapotturØ15xH14 cm 490,-
BLEKESKÄR blómakassi
36x36x48 cm 1.990,-
490,-
Kryddbakaður lax
með graslaukssósu, kartöflum
og grænmeti
FÄNÖ blómapottur
Ø38xH65 cm 2.990,-
������ �����
���� ������
����������
���������
���������������
Þegar Halldór Ásgrímsson til-kynnti afsögn sína í beinni
útsendingu á mánudaginn var ég
staddur í bíó að horfa á myndina
Poseidon, en hún fjallar um risa-
stórt skemmtiferðaskip sem fær á
sig flóðbylgju, fer á hvolf og nokkr-
ir farþegar hefja hetjulega og á
köflum vonlausa baráttu til þess að
komast lífs af. Eftir myndina,
þegar ég heyrði tíðindin af forsæt-
isráðherra, fannst mér margt svip-
að með Framsókn og Poseidon.
Skipið var komið á hvolf, með
skrúfurnar og kjölinn upp í loft.
ÞAÐ sem er ólíkt með Poseidon
og Framsókn er hins vegar það að
Poseidon varð fyrir þvílíkri flóð-
bylgju að skipið hreinlega gat ekki
annað en farið á hvolf. Hér var
semsagt utanaðkomandi vágestur
á ferð. Í tilviki Framsóknar vant-
aði hins vegar flóðbylgjuna en
skipið fór samt á hvolf.
ÉG vil semsagt meina að þetta
hafi verið heimatilbúinn vand-
ræðagangur. Nóg hefði verið fyrir
hvaða formann sem er í þessari
stöðu að segja einfaldlega að hann
gæfi ekki kost á sér sem formaður
á næsta flokksþingi og önnur
manneskja myndi þá taka við eftir
lýðræðislega kosningu. Þetta
hefðu allir skilið og ekkert flókið
við það. Svo þegar nýr formaður
hefði verið kominn hefði verið
tímabært að hætta sem ráðherra
og setjast í helgan stein.
ÞAÐ sem mér finnst athyglisverð-
ast við þennan flækjufót sem
myndaðist í vikunni í flokki stöðug-
leikans er sú spurning af hverju
þetta var ekki gert svona. Ég held
að ákveðin vantrú á lýðræðið í
bland við óeðlilega stjórnsemi hafi
ráðið för. Í nafni einhvers konar
samstöðu örfárra forystumanna
var reynt að sneiða hjá því að láta
almenna flokksmenn ráða ferðinni.
Gamalt stef í pólitík ómaði að nýju:
Leitið og þér munuð finna Finn.
Í LJÓSI þess að höfuðvandi flokks-
ins á málefnasviðinu er umræða
um öfgafulla álvæðingu ásamt
ásökunum um vafasamar aðferðir
við einkavæðingu bankanna er
auðvitað skiljanlegt að menn hafi
ætlað sér að tækla vandann með
því að setja Finn Ingólfsson í for-
mannsstólinn. En burtséð frá því.
Vonandi læra menn af þessu þá
lexíu að það eru takmörk fyrir því
hvað hægt er að hanna atburðarás
í pólitík, sérstaklega þegar ætlun-
arverkið er að hundsa lýðræðis-
legar stofnanir. Ef eitthvað líf er í
slíkum stofnunum er svoleiðis
makk alltaf til þess fallið að setja
skipið á hvolf.
SJALDAN hefur nokkur sagt af
sér með jafn flóknum hætti og nú.
En það breytir ekki því að hér hætti
mikilsháttar stjórnmálamaður.
Kannski var hann búinn að vera
svo lengi í stjórnmálum að hann
vissi ekki almennilega hvernig
hann átti að hætta. Það sem gildir
núna fyrir Framsókn er að rétta við
skútuna og ráða ferskan og áræð-
inn skipstjóra. Lykilatriðið er að
Poseidon breyti um stefnu, ef skip-
ið kemst aftur á réttan kjöl, og byrji
á því að ná aftur í farþegana sem
eru á björgunarbátum úti um allar
trissur. Eftir það verður kannski
hægt að halda harmonikkuball á
þilfarinu, ef fólk er ennþá í stuði.
Framfarasókn