Fréttablaðið - 16.07.2006, Blaðsíða 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
*A›ra lei› me› sköttum. Gildir fyrir börn 12 ára og yngri í fylgd me› fullor›num
Verð frá:
Barnaverð:
www.icelandexpress.is, Grímsbæ, Efstalandi 26, Sími 5 500 600
www.icelandexpress.is
Þýskaland tekur á móti Iceland Express ferðalöngum í haust og vetur á þremur áfangastöðum, Berlín, Frankfurt Hahn og
Friedrichshafen. Þaðan getur þú ferðast áfram um alla Evrópu. Í borgarferðum Express Ferða kunna þaulvanir fararstjórar
skil á öllu því merkasta; sögu, söngvum, sorgum, gleði og menningu á hverjum stað. Skoðaðu hvað er í boði á
www.expressferdir.is Bókaðu núna og nældu þér í besta verðið á flugi til Þýskalands.
Reglulegt flug til þriggja borga í Þýskalandi
Skemmtu þér í Þýskalandi í haust og vetur og rifjaðu upp
Eitt besta skíðasvæði Evrópu.
Sérstakt kynningartilboð á þessum
eftirsótta stað.
Nánar á www.expressferdir.is
Skíðaferð til Davos í Sviss
13.–20. janúar
Helgarferð til Luxemburg
13.–16. október
Í þessari heillandi borg er margt að
sjá, góðar verslanir og frábærir
veitingastaðir.
Nánar á www.expressferdir.is
Jólaandrúmsloft, jólaljós og jóladót
hvert sem litið er.
Fararstjóri Lilja Hilmarsdóttir.
Nánar á www.expressferdir.is
Aðventuferð til Heidelberg
1.–4. desember
ICH BIN, DU BIST
UND SO WEITER
Berlín og Þriðja ríkið
Óttar Guðmundsson læknir fer um
slóðir Þriðja ríkisins.
Nánar á www.expressferdir.is
7.–12. september
Fyrir dyrum standa kosningar í stjórn húsfélagsins í blokkinni
sem ég bý í. Ég viðurkenni að fólk
af öllum hæðum hefur komið að
máli við mig, lýst yfir stuðningi og
hvatt mig til að gefa kost á mér í
formannsembættið. Ég er að íhuga
það.
HELGI á þriðju hæð, fráfarandi
formaður, er hinn mætasti maður
og hefur sinnt starfi sínu með
sóma. Undir hans stjórn hafa þrif
á sameign verið til fyrirmyndar
og garðurinn ávallt vel snyrtur.
Ég held að öllum í blokkinni hafi
þótt miður að Helgi skyldi ekki
gefa kost á sér aftur í embættið en
sú ákvörðun var skiljanleg í ljósi
þess að hann er að flytja í Kópa-
vog. Það þarf þor til að þekkja
sinn vitjunartíma og Helgi er
maður að meiri fyrir vikið.
UM leið og við sjáum eftir traust-
um leiðtoga verðum við að hafa í
huga að í stjórnarskiptum felast
ný sóknarfæri. Vissulega skal
meta það mikils sem vel var gert
en fyrir liggja þó ákveðin
úrlausnaverkefni sem leysa þarf í
góðri sátt við alla íbúa. Ég tel ekki
rétt að útlista á opinberum vett-
vangi það sem mér fannst að hefði
mátt betur fara í stjórnartíð
Helga, sem ég ítreka að er hinn
mætasti maður. Ég kemst þó ekki
hjá því að nefna að mér fannst
umburðarlyndi hans gagnvart
dýrahaldi jaðra við linkind. Þá tel
ég allar forsendur til þess að
lækka húsgjöld, sem ég hef aldrei
farið dult með að mér þykja óhóf-
lega há.
Í blokkinni búa margir mikilhæfir
menn og glæsilegar konur sem öll
eru til þess bær að stýra húsfélag-
inu af myndarskap. Ekki skal líta á
það sem vantraust af minni hálfu
kjósi ég að bjóða mig fram gegn
einhverju þeirra, sem ég ítreka að
ég hef ekki ákveðið að svo stöddu.
Ég minni á að frá því ég flutti inn í
október í fyrra hef ég ekki falið
metnað minn í þessa átt.
HART er að mér lagt að gera upp
hug minn sem fyrst. Ég skil vissu-
lega þörf fólks til að fá skýrar
línur en um leið bið ég alla hlutað-
eigandi að virða það svigrúm sem
ég þarf á meðan ég met stöðu
mína. Ég mun kunngjöra ákvörð-
un mína eigi síðar en föstudaginn
21. júlí á korktöflunni niðri í dyra-
gangi.
Ég er að
íhuga það
�����������������������
����������