Fréttablaðið - 16.07.2006, Blaðsíða 16
16. júlí 2006 SUNNUDAGUR16
Fjárfestingabankinn Straum-ur hefur verið í miðju margra hræringa íslensks viðskipta-
lífs undanfarin ár. Straumur sam-
einaðist Burðarási um verslunar-
mannahelgina í fyrra. Samstarf
þáverandi Straumsmanna og
Burðaráss undir forystu Björgólfs
Thors Björgólfssonar sprakk í loft
upp og í stað Magnúsar Kristins-
sonar og Kristins Björnssonar kom
FL Group í hluthafahópinn. Þar
koma saman inn í stjórn Straums
þeir Hannes Smárason og Jón
Ásgeir Jóhannesson. Í stjórninni
sitja því þrír stórlaxar íslensks við-
skiptalífs.
Oft veltir lítil skúffa þungu hlassi
Seðlabankinn var einu sinni skúffa
í Landsbankanum og Straumur á
það sameiginlegt með höfuð-
musterinu að hafa verið skúffa í
Íslandsbanka. Straumur varð til úr
sjóðum bankans og Skagamennirn-
ir Bjarni Ármannsson og Þórður
Már Jóhannesson lögðu línurnar
fyrir Straum sem þá var fjárfest-
ingasjóður. Straumur lét fljótt til
sín taka á markaði, en fyrst í stað
var athyglin ekki mikil á því sem
þar var að gerast.
Straumur naut skortsins á
athyglinni og safnaði í rólegheitun-
um bréfum í Eimskipafélaginu. Sú
eign reyndist síðar lykilstaða fyrir
Björgólfsfeðga þegar þeir réðust
til atlögu við fyrirtæki Kol-
krabbans. Straumur var í miðju
atburðarrásarinnar og Bjarni og
Þórður sáu til þess að varnir Sjó-
vár og Flugleiða voru tryggðar.
Sjóvá rann í Íslandsbanka og ráð-
andi staða í Flugleið-
um var í höndum
Straums. Jón
Ásgeir hafði
mikinn áhuga á
Flugleiðum á
þeim tíma og
hafði reyndar
áður haft mik-
inn áhuga á að
ná undirtök-
um í
Íslands-
banka. Á
þeim tíma var mikil andstaða við
að hann næði undirtökum í þessum
fyrirtækjum. Sú er hins vegar
raunin í dag.
Straumur réði Flugleiðum
Hannes Smárason keypti hlutinn í
Flugleiðum ásamt þáverandi
tengdaföður sínum, Jóni Helga
Guðmundssyni í BYKÓ. Hannes og
Jón höfðu verið umsvifamiklir í
ýmis konar fjárfestingum og orðið
vel ágengt. Meðal margra var gleði
yfir þessari sölu og því að Jón
Ásgeir væri hvergi nærri. Morg-
unblaðið til að mynda gat ekki
leynt gleði sinni yfir kaupum Jóns
Helga og Hannesar á Flugleiðum.
Hannes náði síðan undirtökum í
félaginu og eftir átök í stjórn sem
snerust að mestu um hraðflug
Hannesar og skort á samráði við
aðra stjórnarmenn kom Baugur
inn í hluthafahóp Flugleiða sem nú
heita FL Group.
Hinum megin frá rann líka
mikið vatn til sjávar. Björgólfs-
feðgar sátu ekki auðum höndum.
Þar var sjávarútvegsstoð Eimskips
seld og félaginu breytt í fjárfest-
ingarfélagið Burðarás. Skipafélag-
ið var síðan dótturfélag Burðaráss
þar til það var selt. Björgólfur
Thor boðaði útrás og að Burðarás
myndi takast á hendur svonefnd
Private Equity verkefni, þar sem
félög eru keypt og stýrt í umbreyt-
ingu. Sú leið lét á sér standa, en
Burðarás náði markverðum
árangri í kaupum á hlutum í skráð-
um félögum og hagnaðurinn óx og
gengi félagsins hækkaði.
Legg í lófa Karls
Á tímabili lá líka í loftinu að áhugi
þeirra feðga væri á sameiningu
Landsbankans við Íslandsbanka.
Straumur keypti hlut sem áður
hafði verið í framvirkum samning-
um á nafni Helga Magnússonar og
Orra Vigfússonar. Víglundur Þor-
steinsson var á þeim tíma á bandi
feðganna. Hann sat í bankaráði
Íslandsbanka með fulltingi lífeyr-
issjóðanna og hélt upp mikilli and-
stöðu við forstjóra bankans, Bjarna
Ármannsson. Bjarni sat ekki
aðgerðalaus og þrátt fyrir að staða
hans væri erfið hafði hann stuðn-
ing Karls Wernerssonar sem hafði
unnið með feðgunum í Actavis og
Einars Sveinssonar sem átti honum
greiða að gjalda frá því að Sjóvá
var bjargað inn í bankann.
Ástandið í Íslandsbanka var
orðið óþolandi og Karl hafði frum-
kvæði að því að hlutur Lífeyris-
sjóðs verslunarmanna var keyptur
og þar með tryggður meirihluti
stuðningsmanna Bjarna í bankan-
um. Baugur keypti hlut í bankan-
um til stuðnings Karli og Bjarna,
enda Jón Ásgeir ekki í aðdáenda-
hópi Víglundar. Það var svo ekki
fyrr en um síðustu áramót sem FL
Group og fleiri fjárfestar keyptu
hlut Straums og tókst að koma á
vinnufriði í bankanum.
Sundrung í stað sameiningar
Sameining Straums og Burðaráss
virtist í fyrstu vera í góðri sátt.
Fljótlega fór þó að bera á pirringi
Björgólfs Thors í garð Magnúsar
Kristinssonar. Björgólfur felldi
Magnús sem varaformann sem
brást ókvæða við. Kristinn reyndi
að miðla málum, en fljótlega var
ljóst að útilokað var að frekara
samstarf yrði milli Straumsmanna
og Björgólfs. Björgólfi þótti Þórð-
ur Már of hallur undir Kristin og
Magnús og rak hann á endanum.
Þar með var mælirinn fullur hjá
Magnúsi og Kristni. Þórður er lag-
inn við að finna leiðir til að lenda
stórum eignum og sá þegar tæki-
færi fyrir Jón Ásgeir í stöðunni
sem myndi um leið losa Magnús og
Kristinn úr óþægilegri minnihluta-
stöðu í Straumi. Fáir efast um að
Þórður sé með fleira upp í erminni.
Lokatakmarkið er ekki alveg ljóst
ennþá, en hann og Jón Ásgeir hafa
án efa hugsað honum nýtt hlutverk
síðar í ferlinu.
Hönd á slíðruðum sverðum
Staðan núna er sú að Björgólfur
hefur á sínum snærum meirihluta
stjórnarinnar. Hins vegar er FL
Group við borðið og það að Jón
Ásgeir og Hannes setjist sjálfir í
stjórnina sýnir að mati flestra að
þeim er full alvara með þessa eign.
Jón Ásgeir og Björgólfur Thor
hafa ekki unnið náið saman. Þeir
voru saman í félagi eftir að Kald-
bakur sameinaðist Burðarási. Svo
farið sé frjálslega með tímaeining-
ar, þá varði það samstarf í fimm
mínútur. Það eru því ekki margir
sem hafa trú á að samstarfið nú
vari í lengri tíma. Fyrr eða síðar
muni koma til einhvers konar upp-
skipta á Straumi. Báðir virðast í
bili tilbúnir að takast á við verk-
efnið, en um leið viðbúnir því að
það muni ekki ganga. Menn takast
í hendur með slíðruð sverð, en aðra
höndina á þeim.
Það sem liggur fyrir er að báðir
þessir stóru fjárfestar hafa metn-
að til að vinna áfram með erlendar
eignir Straums og auka verðmæti
þeirra. Hitt er að báðir eru óhress-
ir með framgöngu Lífeyrissjóðs
verslunarmanna sem bauð stóran
hlut til sölu í kjölfar eignabreyt-
inganna. Sú ráðstöfun er talin runn-
in undan rifjum Víglundar Þor-
steinssonar sem er fleinn í holdi
Jóns Ásgeirs sem gengið hefur erf-
iðlega að losa sig við. Pirringur
Jóns Ásgeirs í garð lífeyrissjóðsins
liggur meðal annars í því að hann
telur Víglund markvisst tryggja að
sneitt sé í fjárfestingum sem hann
komi nálægt.
Tækifærin í fjármálakerfinu
Fleira hangir þó á spýtunni. Björ-
gólfsfeðgar eru fyrir nokkru orðn-
ir afhuga sameiningarhugmyndum
Landsbankans og Glitnis. Björgólf-
ur Thor skilgreinir sig sem fjár-
festi sem fjárfesti til meðallangs
tíma og leiti síðan útleiðar. Hann
vill byggja
Lands-
bank-
ann
áfram
upp og reyna svo að selja hlut sinn
og kemur vart til greina annað en
erlendur fjárfestir. Stærstu verk-
efni hans eru í fjarskiptum í eystri
hluta Evrópu, auk þess sem hann
hefur áhuga á að taka þátt í breyt-
ingu fjármálakerfis landa eins og
Búlgaríu. Hugur hans er því að
færast fjær Íslandi.
Öðru máli gegnir um Jón Ásgeir
og Hannes. Því hefur verið lýst
yfir að meðal þess sem FL Group
horfi til sérstaklega séu fjárfest-
ingar í fjármálafyrirtækjum. Ekki
er ólíklegt að þar sé mikill áhugi
fyrir því að vera við samninga-
borðið ef fjármálageirinn fer á ný
á hreyfingu. Baugur og vinveittir
fjárfestar hafa verið að styrkja
stöðu sína í hluta sparisjóðakerfis-
ins. Hinum megin hafa Bakka-
bræður og Kaupþing stillt sér upp í
sparisjóðum. Hvatinn til þess að
sameina enn frekar í sparisjóða-
kerfinu mun aukast eftir því sem
gengishagnaður minnkar. Nái
sparisjóðir sæmilegri stærð verð-
ur auðveldara að sameina Lands-
bankann og Glitni í framtíðinni og
selja útibú til sparisjóðanna. Hug-
myndin er þá banki með svipað afl
og Kaupþing verði til með tilheyr-
andi erlendum sóknarfærum. Þetta
er framtíðarmúsík, en ljóst að ef
þessi þróun fer af stað, þá verður
samningaborðið og stjórnarborð
Straums eitt og sama fyrirbærið.
Staðan sem nú er upp þar sem stór-
laxar synda í Straumi er spenn-
andi. Lognmolla og aðgerðaleysi er
líklega það síðasta sem von má
eiga á í Straumi, eins og svo oft
áður.
Stórlaxarnir synda í Straumi
Þrír af umsvifamestu auðmönnum landsins setjast saman í stjórn Straums-Burðaráss á miðvikudag. Fáir hafa trú á að samstarfið
sé til langframa. Straumur hefur oftar en ekki verið í miðju hræringa viðskiptalífsins. Svo verður án efa áfram og mikið vatn á
enn eftir að renna til sjávar. Hafliði Helgason rifjar upp helstu bautasteina Straums og spáir í núverandi stöðu.
BJÖRGÓLFUR THOR
Áhugi hans á sameiningu Landsbanka og Glitnis er
horfinn og hann sér takmarkaða möguleika á innlend-
um markaði.
STJÓRN FL GROUP Vill leiða fjárfestingar á innlendum fjármálamarkaði. Ekki er fráleitt að ætla að eignarhlutur í Straumi sé í huga þeirra lykilstaða í framtíðarhræringum á íslenskum fjármálamarkaði.FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
JÓN ÁSGEIR OG HANNES SMÁRASON
Eru taldir áhugasamir um að sameina Lands-
banka og Glitni. Lítil trú er á að samstarf
þeirra við Björgólf verði í lygnum farvegi.