Fréttablaðið - 16.07.2006, Blaðsíða 58
16. júlí 2006 SUNNUDAGUR26
Krakkarnir í Vinnuskólanum í
Reykjavík slepptu hrífunum á
fimmtudaginn og fjölmenntu á
miðsumarsmót. Um 2.000 krakkar
tóku þátt í hátíðarhöldunum sem
voru með óhefðbundnara sniði en
undanfarin ár því gengið var frá
Örfirisey út í Nauthólsvík með
viðkomu í Ráðhúsinu þar sem
krakkarnir heilsuðu upp á borgar-
stjórann. Í Nauthólsvík var farið í
reipitog og hljómsveitin Jakobína-
rína steig á svið sem og leikarar í
Footloose. Krakkarnir virtust þó
vera spenntastir fyrir veitingun-
um sem boðið var upp á á ylströnd-
inni og voru afar ánægðir með
vinnudaginn sem fór í hátíðarhöld
í stað arfatínslu. Yngstu krakkar
vinnuskólans hafa nú lokið vinnu
sinni en eldri krakkarnir fá að
munda hrífurnar lengur og halda
eigin uppskeruhátíð í ágúst þegar
vinnu þeirra lýkur.
Vinnuskólinn skemmtir sér
FLOTTIR STRÁKAR Allir vinnuhóparnir klæddu sig upp í tilefni dagsins og þessir drengir
voru sérlega flottir með rauð ennisbönd, augnmálingu og litað hár.
PÍTSUKYNSLÓÐIN Krökkunum var boðið upp á pítsur í
Nauthólsvíkinni sem þeir kunnu svo sannarlega vel að
meta enda hefur þessi aldurshópur stundum verið kallaður
pítsukynslóðin.
GLEÐIROKK Hljómsveitin Jakobínarína skemmti krökkunum með gleðirokki en sveitin hefur
helst unnið sér það til frægðar að vinna Músiktilraunir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FRÍDAGUR Það er gaman að vera ungur og ástfanginn. Þessi tvö kunnu svo
sannarlega að slaka á og njóta þess að þurfa ekki að vera að reyta arfa.
HRAUSTLEGUR Yngstu krakkar vinnuskól-
ans fá ekki meiri vinnu í ár en hinir eldri
halda eitthvað áfram. Ekki er vitað hvorum
hópnum þessi piltur tilheyrir en hann var
skælbrosandi á miðsumarmótinu með ótal
freknur enda verður maður útitekinn af því
að vinna í Vinnuskólanum.
Enn og aftur tapar Jennifer
Aniston fyrir leikkonunni Angel-
inu Jolie. Ekki nóg með að Jolie
hafi stolið af henni eiginmannin-
um heldur er hún líka búin að taka
frá henni hlutverk sem Aniston
vonaðist eftir að mundi skila sér
Óskarsverðlaunum. Um er að
ræða mynd sem útgáfufyrirtæki
Pitts og Aniston, Plan B, keypti
réttinn að og fjallar um blaða-
mannin David Pearl sem var
rændur og myrtur í Pakistan.
Myndin nefnist A Mighty Heart
og er byggð á bók eftir eiginkonu
Pearl, Marianne Pearl. Brad Pitt
fékk fyrirtækið í sinn hlut þegar
hjónin skildu og hefur því Aniston
ekkert um málið að segja lengur.
Aniston mun vera mjög fúl yfir
að hafa misst af hlutverki eigin-
konu blaðamannsins en þetta verð-
ur fyrsta hlutverk Jolie eftir að
hún eignaðist sitt fyrsta barn með
Brad Pitt.
Lætur aftur í minni
pokann fyrir Jolie
JAMES BLUNT
Er víst genginn út og sú heppna er fyrirsæt-
an Petra Nemacova.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
Söngvarinn og hjartaknúsarinn
James Blunt hefur nú fundið ást-
ina, kvenþjóð heimsins til mikils
ama. Hann mun vera byrjaður
með ofurfyrirsætunni Petru Nem-
acova sem komst í heimspressuna
árið 2004 þegar hún missti unn-
usta sinn í flóðbylgjunni í Taílandi.
Nemacova er frá Tékklandi og gaf
út yfirlýsingu við tékkneska sjón-
varpið þess efnis að hún væri áts-
fangin upp fyrir haus og að Blunt
væri gull af manni.
Söngvarinn er mjög heitur
þessa stundina og var Paris Hilton
að gera hosur sínar grænar fyrir
honum í London á dögunum. Sam-
kvæmt breska blaðinu The Sun
fóru þau saman út að borða eitt
kvöldið.
James Blunt ástfanginn
JENNIFER ANISTON Er ekki sátt þessa dag-
ana eftir að Angelina Jolie fékk hlutverkið
sem hún girntist.
Í verslun Pennans-Eymundsson-
ar í Austurstræti mun nýtt kaffi-
hús opna bráðlega. Stór glerskáli
rís nú ofan á húsinu sem mun
tengjast stórri verönd og garði
fyrir utan. Framkvæmdir hafa
tafist nokkuð síðustu mánuði því
upphaflega stóð til að opna kaffi-
húsið í kringum 17. júní. „Gler-
skálinn mun koma hérna ofan á
íslenskudeildina hjá okkur. Ég er
vona að þetta verði tilbúið í byrj-
un ágúst, allavega ekki seinna en
um miðjan ágúst,“ segir Þórunn
Sigurðardóttir verslunarstjóri.
„Framkvæmdir töfðust vegna
þess að járngrindin og fleira sem
var pantað að utan kom ekki til
landsins á réttum tíma. Núna er
grindin komin og þeir geta því
byrja að glerja fljótlega. Það á
reyndar eftir að saga út úr hús-
inu báðum megin en það verður
gert fljótlega. Við erum líka að
láta smíða innréttinguna núna,
svo þetta verður alveg glæsi-
legt.“ - vör
Vonast til að opna í ágúst
South Park-þáttur þar sem gert er
grín að Tom Cruise og vísinda-
kirkjunni verður sýndur ytra
seinna í mánuðinum, en hætt var
við endursýningu þáttarins
skyndilega í mars. Comedy Cent-
ral-sjónvarpsstöðin sem sýnir
þættina neitaði að hafa hætt við að
sýna þáttinn vegna kvartana Toms
Cruise. Comedy Central er í eigu
sömu aðila og eiga Paramount-
kvikmyndafyrirtækið sem gerði
Mission Impossible III og orðróm-
ur var um að Tom hefði hótað að
taka ekki þátt í kynningum á
myndinni ef þátturinn yrði sýnd-
ur. Leikarinn hefur afneitað sögu-
sögnunum. Annar vísindakirkju-
maður sem hefur komið við sögu í
þáttunum, Isaac Hayes sem talaði
fyrir Chef, hætti að vinna við
South Park í mars vegna þess að
hann taldi að efni í þættinum,
Trapped in the Closet, væri móðg-
un við vísindakirkjuna.
Finnst að sér vegið
TOM CRUISE Mission Impossible III var
frumsýnd í Tókýó í lok júní og var Cruise
viðstaddur frumsýninguna. KAFFIHÚS Framkvæmdir eru á fullu við
kaffihús Pennans-Eymundssonar.