Fréttablaðið - 16.07.2006, Blaðsíða 12
16. júlí 2006 SUNNUDAGUR12
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn hér til hliðar má senda á net-
fangið timamot@frettabladid.is
MERKISATBURÐIR
622 Spámaðurinn Múhammeð
leggur af stað frá Mekka til
Medina. Sú för markar upp-
haf íslamska dagatalsins.
1951 Bjargvætturinn í grasinu
eftir J.D. Salinger er gefin út.
1969 Geimskipið Apollo 11
leggur af stað frá Canaver-
al höfða í Flórída í fyrstu
mönnuðu ferðina sem lenti
á tunglinu.
1979 Forseti Íraks, Hasan al-Bakr,
segir af sér og Saddam
Hussein tekur við.
1990 Jarðskjálfti sem mælist 7,7 á
Richter veldur dauða 1.600
manna á Filippseyjum.
1994 Borgarastyrjöld í Rúanda
lýkur.
1999 John F. Kennedy yngri, kona
hans og mágkona farast í
flugslysi út frá austurströnd
Bandaríkjanna.
WILL FERRELL FÆDDIST ÞENNAN
DAG ÁRIÐ 1967.
„Ég hef aðeins verið
fyndinn um það bil 74
prósent af lífi mínu. Held
að það sé rétt. 74 prósent
af lífi mínu.“
Leikarinn og grínistinn Will Ferrell
er þekktur fyrir litríka persónu-
sköpun og fyndnar eftirhermur.
Þennan dag árið 1945 sprengdu Bandaríkjamenn
sína fyrstu kjarnorkusprengju á Trinity-svæð-
inu nálægt Alamogordo í Nýju-Mexíkó. 6. ágúst
sprengdu þeir svo borgina Hiroshima
í Japan með sprengjunni „Litli strákur“
og 9. ágúst borgina Nagasaki með
sprengjunni „Feiti maður“. Allt var þetta
liður í Manhattan-verkefninu svokallaða.
Verkefnið fór af stað í kjölfar ótta
vísindamanna um að nasistastjórn
Þýskalands tækist að þróa kjarnorku-
vopn á undan Bandaríkjamönnum.
Upphaflega rannsóknin, sem hófst árið
1939, var lítil, en smám saman vatt
verkefnið upp á sig. Á milli áranna 1942 og 1946
var það undir verkfræðingadeild Bandaríkjahers,
sem hershöfðinginn Leslie R. Groves stjórnaði, en
eðlisfræðingurinn J. Robert Oppenheimer stjórnaði
vísindarannsóknum. Þegar verkefnið stóð sem hæst
unnu 130.000 manns að því og það kostaði um
1.492 milljarða Bandaríkjadala miðað við gengi í
dag.
Fyrsta plútóníumsprengjan sem
hönnuð var af Manhattan-verkefninu
var sprengd í Nýju-Mexíkó þennan dag
fyrir 61 ári. Þar sem vandasamt var að
sprengja sprengjuna var ákveðið að
prófa eina tilraunasprengingu til að sjá
hvort hún gæti virkað í stríði. Þetta var
gert þrátt fyrir að það hefði í för með
sér sóun á verðmætum hráefnum, sem
notuð voru í sprengjuna. Prófunin tókst
og í kjölfarið var sprengjan notuð á borgirnar tvær
í Japan í lok seinni heimsstyrjaldarinnar með þeim
afleiðingum að yfir 200 þúsund manns fórust og
borgirnar tvær voru rústir einar.
ÞETTA GERÐIST 16. JÚLÍ 1945
Atómöldin hefst með sprengingu
Hugur og hönd, ársrit Heimilisiðnað-
arfélags Íslands, stofnað 1913, er
komið út, en fjörutíu ár eru nú liðin frá
því að blaðið kom í fyrsta skipti út árið
1966. Heiður Vigfúsdóttir hefur verið
formaður ritnefndar í fimm ár. „Blaðið
hefur haldið sig vel við markmið
félagsins, að kynna bæði nýrra og
eldra handverk. Við erum fimm í rit-
nefndinni, en það er allur gangur á því
hverjir skrifa í blaðið. Við höfum nú
lítinn fjárhag og reynum að gera þetta
mest sjálf,“ segir Heiður.
Heiður segist hafa fæðst inn í Heim-
ilisiðnaðarfélagið, en að hún hafi ekki
gerst formlega meðlimur fyrr en um
1960. Hún hefur gegnt ýmsum störfum
innan félagsins, en áður var hún sér-
kennari í fjöldamörg ár. Ritnefndar-
störfin eru sjálfboðavinna áhuga-
manna innan félagsins.
Aðstaða Heimilisiðnaðarfélagsins
er að Laufásvegi 2, en blaðið er meðal
annars selt þar. „Við erum þar með
Heimilisiðnaðarskólann sem heldur
námskeið í ýmsum handiðnaði og skrif-
stofur félagsins. Við erum með alls
konar handverk, til dæmis ýmiss konar
útsaum, fatasaum, þjóðbúningasaum,
prjón, hekl, vefnað og útskurð.
Aðspurð segir Heiður félagið alls
ekki vera kvennaklúbb. „Karlmenn
hafa komið á nám-
skeið í meðal annars
prjóni og saum.
Aðstaðan býður ekki
mikið upp á „karla-
greinar“, þó við lítum
ekki svo á að greinarn-
ar skiptist eftir kynj-
um. Í fyrra komu til
dæmis nokkrir karl-
menn til að læra að
sauma sér þjóðbún-
inga. Margir góðir
karlar, jafnt og konur,
hafa setið í félaginu
allt frá byrjun,“ segir
Heiður.
„Hugmyndafræðin
bak við félagið er að
efla íslenskt handverk
og þróa það þannig að
það sé lifandi á hverjum tíma. Það er
nefnilega hægt að gera svo ótalmargt
út frá þessum gömlu hefðum og það er
menningarlegt fyrirbrigði hjá okkur.
Það er hluti af okkar menningu að
kunna svona handverk og halda því
við. Það er líka þróun í þessu á marga
vegu, til dæmis hvað varðar efni og
vinnubrögð. Margir hafa sótt til okkar
sem þekkja vel til á einu sviði en þurfa
að kynna sér betur eitthvað annað,
meðal annars koma til
okkar margir nemendur
Listaháskólans til að kynn-
ast mynstri og öðru sem
verður þá aftur uppspretta
að einhverju nýju,“ segir
Heiður.
Líta má á Heimilisiðn-
aðarfélagið sem nokkurs
konar mótvægi við fjölda-
framleiðslu og einsleita
hönnun nútímans. „Það má
rekja vakninguna fyrir því
að halda fornu handverki
lifandi til 19. aldar, þegar
fjöldaframleiðslan byrjaði
að bera handframleiðslu
ofurliði. Þetta gaf mönn-
um byr undir báða vængi
til að halda í gömul gildi,“
segir Heiður.
Í ritinu sem kom út í ár má lesa sér
til um skógerð úr selskinni, húsgagna-
samkeppni árið 1928, jurtalitun, nútíma
listafólk, tálgaða skrautmuni, gamlan
skautbúning og útsaum. Einnig er
vísað á fróðleg rit og vefsíður. Áskrif-
endur og félagsmenn fá blaðið heim til
sín, en Hugur og hönd er einnig til sölu
á Laufásvegi 2, í Safnbúð Þjóðminja-
safnsins og bókabúðinni Iðu.
steindor@frettabladid.is
HUGUR OG HÖND: 40 ÁR FRÁ ÚTGÁFU FYRSTA ÁRSRITSINS
Haldið í gömlu gildin
HUGUR OG HÖND Blaðið á sér
fjörutíu ára sögu, en eitt ár á þeim
tíma féll útgáfan niður.
HEIÐUR VIGFÚSDÓTTIR Heiður er formaður ritnefndar Hugs og handar og hefur verið það síðastliðin fimm ár. Hún segist vera því sem næst fædd inn í
Heimilisiðnaðarfélag Íslands og hefur verið virk í því í á fimmta áratug. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar ástkærrar móður okkar, dóttur og
systur,
Margrétar Halldóru Bjarnadóttur
Maríubakka 18,
sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi,
mánudaginn 26. júní. Sérstakar þakkir til starfsfólksins
á Rauða kross hótelinu, Landspítalanum og líknardeild
Landspítalans í Kópavogi.
Daníel Kjeldal
Henríetta Kjeldal
Jannick Kjeldal
Guðrún Haraldsdóttir
Bragi Snævar Ólafsson Sigþrúður Bergsdóttir
Kristinn Guðmundur Bjarnason Sigurlaug Ásgeirsdóttir
LEGSTEINAR
OG FYLGIHLUTIR
Í MIKLU ÚRVALI
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi,
Brynjólfur Eyjólfsson
fyrrv. vélamiðlari hjá Vélamiðstöð
Reykjavíkurborgar, Grundargerði 6,
Reykjavík,
sem lést á heimili sínu laugardaginn 8. júlí, verður
jarðsunginn frá Bústaðakirkju miðvikudaginn
19. júlí kl. 13.00.
Svanhvít Stella Ólafsdóttir
Helena Á. Brynjólfsdóttir Valur Waage
Ólafur Brynjólfsson Hrefna Björnsdóttir
Eyjólfur Brynjólfsson Steinunn Þórisdóttir
Kristín Brynjólfsdóttir Kristján Jónasson
Sverrir Brynjólfsson Guðríður Ólafsdóttir
Dagný Brynjólfsdóttir Gunnar Óskarsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Zophonías Jósepsson
Ægisgötu 25, Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn
19. júlí kl. 13.30.
Jósep Zophoníasson Ingibjörg Salóme Egilsdóttir
Þóra Zophoníasdóttir
Húni Zophoníasson Anna Tryggvadóttir
barnabörn og langafabarn.