Fréttablaðið - 16.07.2006, Blaðsíða 57

Fréttablaðið - 16.07.2006, Blaðsíða 57
SUNNUDAGUR 16. júlí 2006 25 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? JÚLÍ 13 14 15 16 17 18 19 Sunnudagur ■ ■ TÓNLEIKAR  16.00 Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari heldur stofutónleika á Gljúfrasteini. Á efnisskránni er Partita nr. 1 í h-moll eftir Johann Sebastian Bach.  20.00 Kóreski orgelleikarinn Ji- Youn Han leikur á vegum Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju.  20.00 Norski harmonikuleikarinn Ottar Johansen leikur í Norræna húsinu ásamt danska gítarleikaran- um Ivar Th. Dagenborg. Þeir félagar leika sígildar dægurperlur og létta klassíska tónlist.  20.30 Freyr Sigurjónsson, Hlíf Sigurjónsdóttir, Anna Áslaug Ragnarsdóttir og Iwona og Jerzy Andrzejczak leika á sumartónleik- um í Sigurjónssafni í Laugarnesi. ■ ■ UPPÁKOMUR  Starfsdagur í Gamla bænum í Laufási við Eyjafjörð milli kl. 13.30- 17. Sr. Pétur Þórarinsson messar. Á hlaðinu verður heyskapur í fullum gangi og hljóðfæraleikararnir Einar og Haukur spila ljúfa tónlist og einnig verður boðið upp á lummur. Danshópur svífur um hlaðið og sýnir þjóðdansa kl. 15.30. Þátttakendur í starfsdeginum í Laufási eru félagar úr Laufáshópnum auk fjölda annarra sjálfboðaliða. ■ ■ LEIKLIST  Döffleikritið This Side Up frá Singapúr verður sýnt í Tjarnarbíói. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. ævisagna af þessu tagi. Hann afhjúpar sig frammi fyrir lesand- anum og reynir að gera það af ein- lægni – og um leið frammi fyrir Guði. Þetta er meginstyrkur Játn- inganna; Ágústínus er ekkert að sýnast, hvorki frammi fyrir Guði eða mönnum.“ Leitin endar hjá Guði Ágústínus hafði snúist til kristinn- ar trúar fjórtán árum áður en hann færði Játningarnar í letur eftir mikla leit sem hann lýsir í verkinu. Kjarninn í boðskap hans og helsta niðurstaða er sú að hjarta manns- ins er órótt, uns það hvílist í Guði. Ágústínus leitaði víða fanga og aðhylltist ýmsar heimspekistefnur áður en hann fann ró í kristinni trú. Rómverski ræðuskörungurinn Cic- eró ýtti til dæmis við honum með einu rita sinna þar sem hann hvatti til þess að fólk leitaði vitsmuna- legrar svölunar og andlegs þroska frekar en að sækjast eftir nautnum og frama sem aldrei gætu veitt mannlegum anda fullnægju. Gunn- ar Kristjánsson segir það afar gagnlegt að fá þessa innsýn í leit Ágústínusar og sjá hvaða kenning- um hann kynntist áður en hann fann lausnina í Guði þar sem allar þessar eldri hugmyndir hafi áhrif á guðfræði hans. Glíma Ágústínusar við hinn frjálsa vilja sem lætur oft illa að stjórn og leiðir fólk inn á rangar brautir er ansi áhrifarík og í fullu gildi enn þann dag í dag þó Játning- arnar séu 16 alda gamlar en eins og Sigurbjörn bendir á í formála þýð- ingar sinnar á Játningunum lifir það eitt þannig „sem er sammann- legt, en vísar jafnframt út fyrir mannleg mörk“. En þar fann Ágúst- ínus einmitt þá ró sem hann sóttist eftir. thorarinn@frettabladid.is Vegfarendum við Tjörnina bauðst fyrr í vikunni að læra sitthvað gagnlegt um skyndihjálp þegar félagar úr listhópnum Rannsókn- arsvið íslenskrar þjóðmenningar tóku sig til og sýndu hvernig bjarga mætti Valgerði Sverrisdóttur, núverandi utanríkisráðherra, frá drukknun. „Hugmyndin að þessu verki er sú að snúa á hvolf þessu slagorði „Drekkjum Valgerði, ekki landinu“ og bókstaflega verja Val- gerði í staðinn,“ útskýrir Árni Kristjánsson sem tók þátt í kennsl- unni og er hugmyndasmiður henn- ar. „Eins og hún benti klárlega á sjálf þá er hætta á ferðum ef ein- hver ætlar sér að drekkja henni. Því er meira en sjálfsagt að ganga í það að fræða vegfarendur um sundkennslu og hvernig fólki ber að haga sér ef svo færi að menn skyldu nú taka upp á því að drekkja henni,“ segir Árni. „Þetta gekk mjög vel. Reyndar varð einn vegfarandi mjög reiður og ætlaði að rífast við okkur því hann taldi að Valgerður hefði ekki staðið sig nógu vel í ríkisstjórninni til þess að eiga björgun skilið. Per- sónulega vil ég halda hálendinu en það er lítið fengið með því að drekkja stjórnmálamönnum.“ Hópurinn starfar í sumar á vegum Hins hússins og Reykjavík- urborgar en í ágústmánuði tekur hann ásamt fleirum þátt í listahá- tíðinni Art Fart sem haldin verður í húsi Ó. Johnson og Kaaber. - khh Listin til bjargar Valgerði ÁRNI KRISTJÁNSSON OG KOLBRÚN BJÖRT SIGFÚSDÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.