Fréttablaðið - 16.07.2006, Qupperneq 57
SUNNUDAGUR 16. júlí 2006 25
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
JÚLÍ
13 14 15 16 17 18 19
Sunnudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
16.00 Sigrún Eðvaldsdóttir
fiðluleikari heldur stofutónleika á
Gljúfrasteini. Á efnisskránni er
Partita nr. 1 í h-moll eftir Johann
Sebastian Bach.
20.00 Kóreski orgelleikarinn Ji-
Youn Han leikur á vegum Alþjóðlegs
orgelsumars í Hallgrímskirkju.
20.00 Norski harmonikuleikarinn
Ottar Johansen leikur í Norræna
húsinu ásamt danska gítarleikaran-
um Ivar Th. Dagenborg. Þeir félagar
leika sígildar dægurperlur og létta
klassíska tónlist.
20.30 Freyr Sigurjónsson, Hlíf
Sigurjónsdóttir, Anna Áslaug
Ragnarsdóttir og Iwona og Jerzy
Andrzejczak leika á sumartónleik-
um í Sigurjónssafni í Laugarnesi.
■ ■ UPPÁKOMUR
Starfsdagur í Gamla bænum í
Laufási við Eyjafjörð milli kl. 13.30-
17. Sr. Pétur Þórarinsson messar.
Á hlaðinu verður heyskapur í fullum
gangi og hljóðfæraleikararnir Einar
og Haukur spila ljúfa tónlist og
einnig verður boðið upp á lummur.
Danshópur svífur um hlaðið og sýnir
þjóðdansa kl. 15.30. Þátttakendur í
starfsdeginum í Laufási eru félagar
úr Laufáshópnum auk fjölda annarra
sjálfboðaliða.
■ ■ LEIKLIST
Döffleikritið This Side Up frá
Singapúr verður sýnt í Tjarnarbíói.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
ævisagna af þessu tagi. Hann
afhjúpar sig frammi fyrir lesand-
anum og reynir að gera það af ein-
lægni – og um leið frammi fyrir
Guði. Þetta er meginstyrkur Játn-
inganna; Ágústínus er ekkert að
sýnast, hvorki frammi fyrir Guði
eða mönnum.“
Leitin endar hjá Guði
Ágústínus hafði snúist til kristinn-
ar trúar fjórtán árum áður en hann
færði Játningarnar í letur eftir
mikla leit sem hann lýsir í verkinu.
Kjarninn í boðskap hans og helsta
niðurstaða er sú að hjarta manns-
ins er órótt, uns það hvílist í Guði.
Ágústínus leitaði víða fanga og
aðhylltist ýmsar heimspekistefnur
áður en hann fann ró í kristinni trú.
Rómverski ræðuskörungurinn Cic-
eró ýtti til dæmis við honum með
einu rita sinna þar sem hann hvatti
til þess að fólk leitaði vitsmuna-
legrar svölunar og andlegs þroska
frekar en að sækjast eftir nautnum
og frama sem aldrei gætu veitt
mannlegum anda fullnægju. Gunn-
ar Kristjánsson segir það afar
gagnlegt að fá þessa innsýn í leit
Ágústínusar og sjá hvaða kenning-
um hann kynntist áður en hann
fann lausnina í Guði þar sem allar
þessar eldri hugmyndir hafi áhrif
á guðfræði hans.
Glíma Ágústínusar við hinn
frjálsa vilja sem lætur oft illa að
stjórn og leiðir fólk inn á rangar
brautir er ansi áhrifarík og í fullu
gildi enn þann dag í dag þó Játning-
arnar séu 16 alda gamlar en eins og
Sigurbjörn bendir á í formála þýð-
ingar sinnar á Játningunum lifir
það eitt þannig „sem er sammann-
legt, en vísar jafnframt út fyrir
mannleg mörk“. En þar fann Ágúst-
ínus einmitt þá ró sem hann sóttist
eftir.
thorarinn@frettabladid.is
Vegfarendum við Tjörnina bauðst
fyrr í vikunni að læra sitthvað
gagnlegt um skyndihjálp þegar
félagar úr listhópnum Rannsókn-
arsvið íslenskrar þjóðmenningar
tóku sig til og sýndu hvernig bjarga
mætti Valgerði Sverrisdóttur,
núverandi utanríkisráðherra, frá
drukknun. „Hugmyndin að þessu
verki er sú að snúa á hvolf þessu
slagorði „Drekkjum Valgerði, ekki
landinu“ og bókstaflega verja Val-
gerði í staðinn,“ útskýrir Árni
Kristjánsson sem tók þátt í kennsl-
unni og er hugmyndasmiður henn-
ar.
„Eins og hún benti klárlega á
sjálf þá er hætta á ferðum ef ein-
hver ætlar sér að drekkja henni.
Því er meira en sjálfsagt að ganga í
það að fræða vegfarendur um
sundkennslu og hvernig fólki ber
að haga sér ef svo færi að menn
skyldu nú taka upp á því að drekkja
henni,“ segir Árni.
„Þetta gekk mjög vel. Reyndar
varð einn vegfarandi mjög reiður
og ætlaði að rífast við okkur því
hann taldi að Valgerður hefði ekki
staðið sig nógu vel í ríkisstjórninni
til þess að eiga björgun skilið. Per-
sónulega vil ég halda hálendinu en
það er lítið fengið með því að
drekkja stjórnmálamönnum.“
Hópurinn starfar í sumar á
vegum Hins hússins og Reykjavík-
urborgar en í ágústmánuði tekur
hann ásamt fleirum þátt í listahá-
tíðinni Art Fart sem haldin verður í
húsi Ó. Johnson og Kaaber. - khh
Listin til bjargar Valgerði
ÁRNI KRISTJÁNSSON OG KOLBRÚN BJÖRT
SIGFÚSDÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN