Fréttablaðið - 16.07.2006, Blaðsíða 70
16. júlí 2006 SUNNUDAGUR38
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Suðurnesjum og Vestfjörðum.
2 Henrik Larsson og Carlos Rexach.
3 Skemmtistaðinn Oliver.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Það styttist í kvikmynd Clints East-wood, Flags of our Fathers, sem
var að mestu tekin
upp í Sandvíkinni
á Reykjanesskaga.
Stórleikarar á borð við
Paul Walker og Ryan
Philippe leika
aðalhlutverkin
en Walker hefur
á örskotsstundu
skotist upp á
stjörnuhimininn
og Philippe lék
eitt aðalhlutverk-
anna í kvikmynd-
inni Crash sem
öllum að óvörum
fékk Óskarinn fyrir bestu myndina á síð-
asta ári. Mikillar eftirvæntingar gætir hjá
bandarískum kvikmyndaáhugamönnum
enda fékk Eastwood Óskarinn fyrir sína
síðustu mynd, Million Dollar Baby. Flags
of our Fathers segir frá innrás banda-
ríska herliðsins á Iwo Jima og er hér um
sannkallaða stórmynd að ræða með
stór- fenglegum stríðssenum
þar sem íslensk náttúra
verður í aðalhlut-
verki. Þá var ein
frægasta ljósmynd
seinni heimstyrj-
aldarinnar tekin
eftir að orrustunni
lauk en hún sýnir
nokkra hermenn
reisa bandaríska
fánann á hæð.
Heimasíðum
sem tengjast
myndinni ber
reyndar ekki saman um hvenær myndin
verður frumsýnd en óháð aðdáendasíða
segir hana koma í ágúst en opinber
síða reiknar með að myndin verði ekki
frumsýnd fyrr en í október og er hún þá
hugsuð í Óskarsverðlaunakapphlaupið.
Þess má reyndar geta að sýnishorn úr
Flags of our Fathers verður frumsýnt í
Bandaríkjunum 21. júlí og má reikna
með að það verði komið á netið sama
dag. Mikillar eftirvæntingar gætir í
Reykjanesbæ og má meðal annars sjá
að á Víkurfréttum vonast menn til þess
að hún verði einn af viðburðunum á
Ljósanótt.
Hvað er að frétta? Heimildarmyndin sem ég
er að vinna að ásamt Steingrími Þórðarsyni
um Jón Pál er komin í klippingu og er væntan-
leg í bíó í september.
Augnlitur? Blár.
Starf? Framkvæmdastjóri Félags íslenskra
aflraunamanna og starfsmaður hjá kvikmynda-
fyrirtækinu Goðsögn.
Fjölskylduhagir? Giftur og á fjögur börn.
Hvaðan ertu? Í móðurætt er ég frá bænum
Felli í Biskupstungum en í föðurætt er ég frá
Látrum við Látrabjarg.
Ertu hjátrúarfull/ur? Já, ég er það enda fæ ég
stundum skilaboð úr umhverfinu.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur? Kraftasport á Sýn
Uppáhaldsmatur? Lambalæri.
Fallegasti staður? Fell í Biskupstungum.
ipod eða geislaspilari? Ég er svo gamall að ég
segi geislaspilari.
Hvað er skemmtilegast? Að vera með fjöl-
skyldunni.
Hvað er leiðinlegast? Óheiðarlegt fólk.
Helsti veikleiki? Ákefð.
Helsti kostur? Glaðlyndi.
Helsta afrek? Fjögur börn hljóta að slá allt
annað út sem maður hefur gert.
Mestu vonbrigði? Samsuðan eftir sveitar-
stjórakosningarnar í Mosfellsbæ.
Hver er draumurinn? Að búa erlendis með
fjölskyldunn í einhver ár og hvíla klakann
örlítið.
Hver er fyndnastur/fyndnust? Ragnar Reykás.
Hvað fer mest í taugarnar á þér? Hægagang-
ur.
Uppáhaldsbók? Það getur enginn keppt við
Njálu.
Hvað er mikilvægast? Gleði augnabliksins.
Veggur Hreins Sverrissonar í
Grindavík hefur vakið mikla
athygli á vefnum en hann er vegg-
fóðraður með myndum af Idol-
stjörnunum. Hreinn er þrettán ára
gamall nemandi í grunnskóla
Grindavíkur en starfar hjá föður
sínum í Veiðarfæraþjónustu
Grindavíkur í sumarfríinu. „Er að
setja upp á línu,“ svarar hann en
Hreinn var nýkominn heim úr
vinnunni þegar Fréttablaðið hafði
tali af honum.
Aðspurður hvernig þetta hefði
komið til sagði Hreinn að hann og
vinur hans hefði ekkert haft að
gera einn daginn og ákveðið að
nýta sér Idol-myndirnar sem þeir
hefðu fengið með því að drekka
kóka kóla. Myndirnar eru límdar
upp með kennaratyggjói og því
ljóst að þetta hefur tekið töluverð-
an tíma enda um gríðarlegan
fjölda mynda að ræða. Sjálfur seg-
ist Hreinn reyndar ekkert vera
neinn sérstakur aðdáandi Idolsins
uppátækið hafi verið sniðugt.
Blaðamanni brá reyndar í brún
þegar rödd Auðuns Blöndal heyrð-
ist á talhólfinu í farsíma Hreins en
hann sagðist reyndar bara hafa
náð í þetta á netinu.
Idol-veggfóður í Grindavík
Veitingastaðurinn Badabing hefur
verið opnaður í Hafnarfirði. Nafn
staðarins er mörgum kunnuglegt
enda ber strippbúllan sem mafíufé-
lagarnir úr Sopranos-þáttunum sækja
reglulega sama nafn.
„Nafnið er vissulega fengið úr
sjónvarpsþáttunum og lógó staðarins
er fengið úr myndunum um Guðföð-
urinn,“ segir Sturla Jensson, rekstr-
arstjóri Badabing, í samtali við
Fréttablaðið.
Staðurinn stendur við Flatahraun,
beint á móti Kaplakrika, heimavelli
FH. „Stuðningsmannalið FH í fótbolt-
anum kallar sig Mafíuna og þannig
varð tengingin við Sopranos og Guð-
föðurinn til,“ útskýrir Sturla sem á
þó ekki heiðurinn af nafninu, heldur
Árni Björn Árnason, eigandi Bada-
bing.
Þótt nafn staðarins hafi tengingu
við mafíuna er ekki að finna hefð-
bundnar ítalskar kjötböllur að hætti
mafíunnar heldur taílenskan mat.
„Við opnuðum sama dag og heims-
meistaramótið í fótbolta byrjaði,
þann 9. júní, og það hefur verið mikið
að gera síðan þá,“ segir Sturla en auk
taílensku réttanna býður Badabing
upp á pítsur, fisk, grill og ísrétti. Þá
geta gestirnir einnig fylgst með fót-
boltaleikjum á risatjaldi.
Sturla rekstarstjóri segir það ekki
á dagskrá að breyta hinum hafnfirska
Badabing í strippbúllu eins og fyrir-
myndin í Sopranos. „Nei, það kemur
ekki til greina.“ kristjan@frettabladid.is
BADABING: NÝR VEITINGASTAÐUR OPNAR VIÐ KAPLAKRIKA
Hafnfirskur mafíustaður
undir taílenskum áhrifum
BADABING Sturla rekstrarstjóri segir ekki standa til að breyta Badabing í strippbúllu eins og í Sopranos.
SOPRANOS OG GUÐFAÐIRINN Nafn staðar-
ins er fengið að láni úr Sopranos-þáttun-
um í tengslum við FH-mafíuna og merki
staðarins er fengið frá Guðföðurnum.
HRÓSIÐ
...Hlynur Hallsson fyrir að
skipuleggja fjölmennasta
fótboltaleikinn á HM 2006.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Taflfélagið Hrókurinn með Hrafn Jökulsson í broddi fylkingar heldur til
Austur-Grænlands í fjórða sinn í lok júlí
til að halda þar skákhátíð
en greint er frá þessu
á heimasíðu félagsins.
Hrókurinn mun ferðast
til fjögurra smáþorpa
á svæðinu og halda
skákmót í Kúlúsúk.
Fram kemur á
síðunni að hátíð-
in verði með
glæsilegasta móti
en í fyrra var efnt
til listasýningar, kappleiks í knattspyrnu
og margvíslegt fleira svo að reikna má
með að mikið líf verði á Austur-Græn-
landi þá daga sem Hrókurinn verði þar.
Hápunktur ferðarinnar verður síðan án
nokkurs vafa Alþjóðlega Grænlands-
mótið sem haldið verður 5. til 6. ágúst
í Tasiilaq.
Mikil stemning er fyrir Þjóðhátíð í Eyjum ef marka má fréttir á
heimasíðu ÍBV. Uppselt er að verða í
Herjólf og eru nú einungis örfáar miðar
eftir fyrir þá sem ætla að sigla til Vest-
mannaeyja. Samkvæmt heimasíðunni
er þetta algjört met í sögu hátíðarinnar
sem löngum hefur verið sú
vinsælasta um verslunar-
mannahelgina. Sjálfir Stuð-
menn ætla að trylla lýðinn
en þeir gerðu allt brjálað
í dalnum árið 1982
þegar kvikmyndin Með
allt á hreinu var tekin
upp. Egill Ólafsson
er í stuttu spjalli við
heimasíðuna en þar
kemur fram að það
árið hafi Stuðmenn þjófstartað hátíðinni
en tónleikar sveitarinnar í myndinni
voru teknir upp áður en Þjóðhátíð hafði
verið sett formlega. „Við tókum lagið
„Úti í Eyjum“ margoft upp í grenjandi
rigningu í Herjólfsdalnum og vorum í
fagurgrænum búningum sem Lúðrasveit
Vestmannaeyja góðfúslega lánaði okkur.
Þegar við vorum að æfa lagið dreif að
mikið af fólki og við áttuðum okkur
ekkert á því að Eyjamönnum fannst við
þarna vera að þjófstarta hátíðinni. Það
er náttúrulega aldrei góður siður að
byrja að borða áður en allir hafa fengið
á diskana,“ segir Egill í spjallinu en bætir
við að hátíðin hafi verið hin allra
besta. - fgg
HIN HLIÐIN HJALTI „ÚRSUS” ÁRNASON KRAFTAJÖTUNN
Glaðlyndur en ákafur
18.02.63
ALLT SEM fiIG VANTAR ER Á VISIR.IS/ALLT
n‡ vöru- & fljónustu-
skrá á visir.is
ALLT SEM fiIG VANTAR ER Á VISIR.IS/ALLT
n‡ vöru- & fljónustu-
skrá á vi ir.is
VEGGURINN GÓÐI Hreinn Sverrisson er hér fyrir framan vegginn sem skartar myndum af
Idol-stjörnum Íslands.