Fréttablaðið - 17.07.2006, Side 28
17. júlí 2006 MÁNUDAGUR12
Dubai er eitt af sjö Sameinuðu arabísku fursta-
dæmunum og hefur ekki bara getið sér gott
orð fyrir olíuviðskipti heldur hefur arkitektúr
og byggingariðnaður á svæðinu blómstrað á
síðustu árum.
Það er erfitt að rölta um furstadæmið Dubai án þess
að sjá að minnsta kosti eina vinnuvél eða krana enda
er unnið hart að nýbyggingum þar í landi. Sérfræð-
ingar áætla að 15 til 25 prósent allra krana í heiminum
séu einmitt í Dubai.
Ófyrirsjáanlegur fólksfjöldi fylgdi í kjölfar olíu-
fundar í Dubai og á áttunda áratugnum var aðaláhersla
lögð á að koma sem flestu fólki fyrir á litlu svæði.
Þannig byrjuðu háhýsi Dubai að rísa og vestrænn
byggingarstíll gerði vart við sig inni á milli hefðbund-
inna arabískra bygginga. Nánast allt skipulag Dubai
var ákvarðað á þessum áratugi en frægasta bygging-
in sem byggð var á þessum tíma var hin 39 hæða
Dubai World Trade Centre.
Á níunda áratugnum þróaðist arkitektúr meira
með hliðsjón af menningu á staðnum og var hallar-
görðum og laugum bætt við helstu byggingar fursta-
dæmisins.
Arkitektúr í Dubai á tíunda áratugnum hélt áfram
á sömu braut og var mikil áhersla lögð á menningar-
arfleið borgarinnar. Ný efni og tækni gerðu það að
verkum að í dag á Dubai margar af stórkostlegustu
byggingum heims eins og Bur Juman-verslunarmið-
stöðina, skrifstofubygginguna Emirates Towers og
hótelin Burj Al Arab og Jumeirah Beach.
Pálmaeyjarnar svokölluðu, Jumeirah, Jeleb Ali og
Deira í Dubai eru fyrir löngu orðnar heimsfrægar.
Um er að ræða stærstu manngerðu eyjurnar í heimin-
um en hver eyja er í laginu eins og pálmatré og í toppi
trésins verða íbúðahúsnæði og hótel. Eyjurnar voru
byggðar til að auka ferðamannastraum til Dubai en
takmark furstadæmisins er að verða stærsti ferða-
mannastaður í heimi.
Hafist var handa við gerð Jumeirah í júní 2001 og
nálgast verklok óðum. Í pálmalaufum eyjunnar verða
lúxusheimili sem voru öll seld árið 2004 en meðal
kaupenda voru Beckham-hjónin. Búist er við að Jebel
Ali klárist seint á næsta ári en bygging Deira-eyjunn-
ar hefur verið frestað um nokkur ár en hún verður
stærsta eyjan af þessum þremur.
Mörg verkefni eru í vinnslu í Dubai eins og Burj
Dubai, sem mun verða hæsta byggingin í heimi þegar
henni er lokið, og verið er að vinna í að stækka höfn-
ina sem og viðskiptamiðstöðina í borginni. Nýtt verk-
efni var kynnt í byrjun maí á þessu ári en það gengur
undir nafninu Bawadi og felur í sér 27 milljarða doll-
ara fjárfestingu sem á að fjölga hótelherbergjum í
Dubai um 29 þúsund. Stærsta samstæðan í því verk-
efni verður kölluð Asia, Asia og verður stærsta hótel í
heimi með rúmlega 6.500 herbergi. Það er því ljóst að
fjárfestar í Dubai ætla sér enn stærri hluti í bygging-
ariðnaði og arkitektúr og hætta ekki fyrr en toppnum
er náð. lilja@frettabladid.is
Ekki hætt fyrr en
toppnum er náð
Ski Dubai er einn af stærstu innanhúss skíðastöðum í heiminum
en hann er tengdur við Emirates verslunarmiðstöðina.
Emirates Towers turnarnir eru 12. og 24. hæstu byggingar í heimi
og eru staðsettir á Sheikh Zayed Road.
Jumeirah pálmaeyjan mun hýsa margar stærstu stjörnur heims
eins og Beckham-hjónin.
Golfklúbburinn Dubai Creek Golf & Yacht Club var kosinn einn af
hundrað bestu golfvöllum í heiminum í nóvember í fyrra af breska
tímaritinu Golf World.
Sheikh Zayed Road í Dubai hefur verið kallaður Ísskáparöðin
af innfæddum þar sem staðsetning háhýsanna líkist helst röð
heimilistækja.
Burj Al Arab hótelið er 321 metra hátt og er stærsta bygging í
heimi sem er aðeins notuð sem hótel. Bygging hótelsins hófst árið
1994 og voru dyrnar opnaðar fyrir gestum árið 1999.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
Eignamiðlun Suðurnesja
Sigurður V. Ragnarsson, löggiltur fasteignasali
Reynir Ólafsson, löggiltur fasteignasali
Víkurbraut 46
240 Grindavík
Sími 426 7711
Hafnargötu 20
230 Keflavík
Sími 421 1700
www.es.is
Heiðarhraun 1
Gott einbýlishús 122 ferm ásamt 41,6 ferm. bílskúr. Húsið skiptist í stofu, borðstofu,
eldhús, bað, þvottaherb og geymslu. Í eldhúsi er ný eldhúsinnrétting , mjög falleg, nýj-
ar flísar á gólfii, nýr ofn, helluborð og vifta. Á baklóð er sólpallur. Verð: 23.900.000,-
Túngata 5
Gott einbýlishús 155,9 ferm.hæð og ris, ásamt bílskúr 36,9 ferm. klætt með garð-
astáli. 5 svefnherb. Lóðin girt og ræktuð. Hluti lagna endurn. Rúmgóð eign með mikla
möguleika. Hluti af gluggum neðri hæðar er nýlegur. Verð: 19.200.000,-
Efstahraun 26, Grindavík
Fallegt einbýlishús á góðum stað177,6 ferm. ásamt 45,5 ferm. bílskúr. 5 svefnherb.
Búið að endurnýja vatnslagnir. Nýjir gluggar í stofu, holi og einu herb. Stór sólpallur
ásamt heitum potti. Laust. Verð: 29.000.000,-
Glæsivellir 8, Grindavík
Stórglæsilegt og vandað 215,1 ferm. einbýlishús á tveimur hæðum ásamt 35,5 ferm.
bílskúr. Mikill íburður í húsinu og allur frágangur fyrsta flokks. Innkeyrsla hellulögð með
snjóbræðslukerfi. Stór sólpallur með heitum potti. Tilboð.
Glæsivellir 20B, Grindavík
Mjög gott og vel staðsett parhús 109,6 ferm. ásamt bílskúr 25 ferm. 3 svefnherbergi.
Grunnur að sólstofu er kominn. Gott geymsluloft í bílskúr. Verð: 22.900.000,-
Túngata 1, Grindavík
Einbýlishús, kjallari, hæð og ris, klætt með garðastáli 126,1 ferm ásamt bílskúr 24,4
ferm. Nýlegt plastparket á stofum og gangi. Nýlegir ofnar að hluta. Eign með mikla
möguleika. Verð: 16.500.000,-
Staðarhraun 27, Grindavík
Fallegt 113,5 ferm. raðhús ásamt 25,9 ferm. bílskúr. 3 svefnherb. Nýr gluggi í stofu og
hurð út í garð. Nýtt þak og nýr þakkantur. Góður staður. Verð: 19.900.000,-
Leynisbraut 11, Grindavík
Vel viðhaldið einbýlishús ásamt bílskúr 154,20 ferm. 3 svefnherb. Búið að endurnýja
þak. Gryfja í bílskúr. Verð: 23.500.000,-
Fr
um