Fréttablaðið - 17.07.2006, Side 53
MÁNUDAGUR 17. júlí 2006 21
menning@frettabladid.is
! Á Seyðisfirði17. – 23. júlí 2006
Listasmiðjur, opnunarhátíð,
alþjóðlegt pikknikk, stuttmynda-
veisla, hönnunarsýning,
uppskeruhátíð, RISAtónlistarveisla
og Todmobile ball.
Sjá www.lunga.is
14. júlí - uppselt
15. júlí - laus sæti
20. júlí - uppselt
21. júlí - laus sæti
27 júlí - laus sæti
LEIKHÚSTILBOÐ
Tvíréttaður matur, miði og frítt
í Göngin til baka í boði
Landnámsseturs
Frá kr. 4000 - 4800
MIDAPANTANIR Í SÍMA 437 1600
Föstudag 14. júlí kl. 20 uppselt
Laugardag 15. júlí kl. 20 uppselt
Sunnudag 16. júlí kl. 15 aukasýning
Sunnudag 16. júlí kl. 20 örfá sæti
Föstudag 21. júlí kl. 20 laus sæti
Laugardag 22. júlí kl. 20 laus sæti
Sunnudag 23. júlí kl. 20 laus sæti
Föstudag 28. júlí kl. 20 laus sæti
Laugardag 29. júlí kl. 20 laus sæti
Sunnudag 30. júlí kl. 20 laus sæti
Sýnt í Landnámssetri
í Borgarnesi
Kl. 10.00
Brúðubíllinn sýnir leikþáttinn
Týnda eggið í Fífuseli og aftur í
Skerjafirði við Reykjavíkurveg kl.
14. Frábær fjölskylduskemmtun með
fallegum boðskap.
Ekki missa af...
leikritinu Penetreitor eftir
Anthony Neilson sem leikfélagið
Vér morðingjar sýnir í Sjó-
minjasafninu að Grandagörðum
8. Leikstjóri er Kristín Eysteins-
dóttir.
myndlistarsýningu Snorra
Ásmundssonar í Jónasi Viðari
gallerí Kaupvangsstræti 12 á
Akureyri.
sumarsýningu Listasafns ASÍ
sem helguð er vatnslitamál-
verkum. Á sýningunni eru verk
eftir Hafstein Austmann, Eirík
Smith, Kristínu Þorkelsdóttur og
Daða Guðbjörnsson auk vatns-
litaverka eftir Svavar Guðnason.
Dansarinn og danshöfund-
urinn Helena Jónsdóttir er
á leið til Svíþjóðar að vinna
að dansverki fyrir sjónvarp
í samstarfi við vel þekkta
listamenn þar í landi.
Helena hefur unnið að fjölda dans-
verka en flest þeirra hefur hún
skrifað sjálf og leikstýrt, hvort
sem það fyrir sjónvarp, tónlistar-
myndbönd eða svið. Verkefnið í
Svíþjóð vinnur hún ásamt þremur
Svíum sem allir eru vel þekktir á
sínu sviði í heimalandinu. Leikar-
inn Lars Bethke leikur aðalhlut-
verkið í dansverkinu, rithöfundur-
inn Irena Kraus skrifar handritið
og Helena sér um leikstjórn og
danshönnun. Að sögn Helenu mun
hópurinn vinna ásamt tökuliði að
kynningarefni myndarinnar í
Stokkhólmi en tökur á myndinni
sjálfri, sem verður 16 mínútur að
lengd, hefjast í haust. „Það er gíf-
urlega spennandi að vinna með
þessu fólki enda er um mikla lista-
menn að ræða. Leikarinn sem um
ræðir hefur leikið í fjölda mynda í
heimalandi sínu og Irena Kraus
skrifað fjölda leikrita fyrir útvarp,
en hún er hvað þekktust fyrir að
vinna sem hægri hönd Mats Eek,
sem er einn þekktasti danshöfund-
ur Svía.“
Á síðasta ári vann Helena að
dansverkinu Another með eist-
neska sjónvarpinu en það var
tekið upp í fangelsinu Tartu.
„Fangelsið var opnað árið 2002 og
geymir 800 fanga en það sem veitti
mér innblástur að hluta er sú stað-
reynd að síðan fangelsið opnaði
hafa fjögur náin samband mynd-
ast milli fanga og fangavarða.
Þrátt fyrir rammgirta steinsteypta
veggi og einangrun, snýst verkið
um sambönd, raunverulegar til-
finningar og spurninguna um að
taka ábyrgð á okkar eigin frelsi.“
Fyrir utan eistneska sjónvarpið
hefur dansverkið Another einnig
verið sýnt víða annars staðar, svo
sem í norska, sænska, danska og
þýska ríkissjónvarpinu, auk þess
sem sjónvarpstöðin Arte kaus
verkið sem bestu dansmyndina
árið 2005. „Another hefur hlotið
góðar viðtökur en í Svíþjóð fékk
hún 200 þúsund manna áhorf þrátt
fyrir að hún var ekki auglýst sér-
staklega. Leikarinn í myndinni
sem er eistneskur, heitir Mait
Malmsten en hann er eins og Ingv-
ar Sigurðsson okkar Íslendinga,
sem ég ber mikla virðingu fyrir.“
- brb
Ný dansmynd
unnin í Svíþjóð
DANSMYNDIN ANOTHER SEM TEKIN VAR
UPP Í FANGELSINU TARTU Í EISTLANDI
„Verkið snýst um sambönd og spurninguna
um að taka ábyrgð á eigin frelsi.“
HELENA JÓNSDÓTTIR, DANSARI OG DANSHÖFUNDUR Vinnur að nýrri dansmynd í Svíþjóð
ásamt þekktum listamönnum frá heimalandinu. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI