Fréttablaðið - 17.07.2006, Síða 58
17. júlí 2006 MÁNUDAGUR26
FORMÚLA-1 Ferrari-ökumaðurinn
Michael Schumacher varð í gær
fyrstur til að vinna átta Formúlu-1
keppnir í sama landinu þegar hann
fór með sigur af hólmi í Frakk-
landi á Magny Cours-brautinni.
Schumacher bætti sitt eigið met,
sem voru sjö sigrar, frá Frakk-
landi, Kanada og San Marínó.
Með sigrinum heldur Schuma-
cher áfram að saxa á forskot
heimsmeistarans Fernando Alonso
sem náði öðru sætinu í gær. Félagi
Schumachers hjá Ferrari, Felipe
Massa, varð svo þriðji en með
sigrinum er Schumahcer nú aðeins
sautján stigum á eftir Alonso í
heimsmeistarakeppni ökuþóra.
„Eftir að hafa séð þessa keppni
þá er greinilegt að við höfum tekið
miklum framförum, mótið er langt
frá því að vera búið. Augljóslega
er þetta alltaf spurning um þróun-
ina en það er frábært að sjá yfir-
burðina sem við höfðum um helg-
ina, miðað við hversu erfitt við
höfum átt uppdráttar,“ sagði
Schumacher sem var að vinna
annað mótið í röð en þetta var 88.
sigur hans á ferlinum.
„Bíllinn, dekkin og allur pakk-
inn virkuðu frábærlega og þetta
er góður sigur fyrir okkur, sér-
staklega í ljósi þess að við náðum
nánast ekkert að æfa á laugardag-
inn vegna vandræða sem við
vorum í,“ sagði Schumacher sem
kom í mark 10,131 sekúndu á
undan Alonso.
- hþh
Frakkland var litað rautt um helgina þegar Ferrari stal senunni á Magny Cours:
Schumacher saxar á forskot Alonso
GLEÐI HJÁ FERRARI Schumacher og Massa
faðmast vel og innilega á verðlaunapallin-
um í Frakklandi.NORDICPHOTOS/AFP
Kaplakrikavöllur, áhorf.: 2638 Jóhannes Valgeirsson (7)
FH Valur
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 9–7 (5–6)
Varin skot Daði 4 – Kjartan 4
Horn 3–3
Aukaspyrnur fengnar 14–16
Rangstöður 3–4
VALUR 4–3–3
Kjartan Sturluson 7
Steinþór Gíslason 7
Atli Sveinn 8
Barry Smith 7
Birkir Már 6
Matthías 7
(80. Örn Kató -)
Pálmi Rafn 6
(90. Kristinn Haf. -)
Baldur Ingimar 7
*Ari Freyr Skúlason 8
Garðar 7
Guðmundur Ben. 7
*Maður leiksins
FH 4–3–3
Daði Lárusson 6
Hermann 7
Tommy Nielsen 6
(53. Baldur Bett 5)
Ásgeir Gunnar 5
(73. Allan Dyring -)
Guðmundur Sæv. 7
Ólafur Páll 4
Sigurvin Ólafs. 6
Ármann Smári 6
Matthías Vil. 7
Davíð Þór 6
Atli Guðnason 5
STAÐAN Í LANDSBANKADEILDINNI:
1. FH 11 8 2 1 20-7 26
2. VALUR 11 4 4 3 15-13 16
3. FYLKIR 10 5 1 4 13-12 16
4. KEFLAVÍK 10 4 2 4 19-11 14
5. VÍKINGUR 10 4 2 4 13-9 14
6. GRINDAVÍK 10 3 4 3 15-12 13
7. KR 10 4 1 5 8-19 13
8. ÍBV 10 3 2 5 11-19 11
9. BREIÐABLIK 10 3 2 5 17-23 10
10. ÍA 10 3 0 7 12-18 9
Leikirnir í 11. umferð:
Í kvöld: KR - ÍA
Á morgun: ÍBV - Breiðablik
Á morgun: Víkingur - Keflavík
Á morgun: Grindavík - Fylkir
0-1 Garðar Gunnlaugsson (68.)
0-2 Ari Freyr Skúlason (79.)
1-2 Guðmundur Sævarsson (83.)
1-2
FRÁ ÍTALÍU TIL ENGLANDS?
Chelsea: Alessandro Nesta (AC Milan),
Fabio Cannavaro, Pavel Nedved, Gianluca
Zambrotta (allir í Juventus)
Manchester United: Patrick Vieira, Pavel
Nedved (báðir í Juventus), Gennaro Gattuso
(AC Milan), Luca Toni (Fiorentina)
Liverpool: Mauro Camoranesi, David Trez-
eguet (báðir í Juventus)
Arsenal: Gianluca Buffon, Lilian Thuram,
Patrick Vieira, David Trezeguet (allir í
Juventus), Filippo Inzaghi (AC Milan)
Tottenham: Lilian Thuram, Pavel Nedved
(Báðir í Juventus), Filippo Inzaghi (AC
Milan)
FÓTBOLTI Talið er að stórliðin á Eng-
landi renni hýru auga til leikmanna
liða sem voru viðriðin Ítalíu-
hneykslið en leikmenn Juventus,
Lazio, Fiorentina og AC Milan eru
líklegir til að yfirgefa lið sín. Þó
gæti verið að AC Milan haldi sínum
mönnum enda hélt félagið sæti sínu
í deildinni þrátt fyrir að fimmtán
stig hefðu verið tekin af því og
félagið hefði misst sæti sitt í Meist-
aradeildinni.
Hér fyrir neðan má sjá töflu
sem BBC útbjó en samkvæmt
heimildum hins breska miðils eru
þetta óskalistar stórliðanna á Eng-
landi. - hþh
Útsala á Ítalíu:
Flykkjast þeir
til Englands?
26 17. júlí 2006 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Sigurður Jónsson, þjálfari Grindavíkur,
verður fertugur í næsta mánuði en þrátt
fyrir það er þessi fyrrverandi lands-
liðsmaður enn í fullu fjöri. Sigurður
spilaði síðari hálfleikinn með U23
ára liði Grindavíkur um daginn gegn
FH og samkvæmt heimildarmanni
Fréttablaðsins sem var á leiknum var
Sigurður yfirburðamaður á vellinum
á meðan hann spilaði. Annar
heimildarmaður blaðsins
sagði að Sigurður gæti vel
spilað í úrvalsdeildinni ef
hann æfði eftir því.
„Við vorum í miklum
vandræðum vegna þess
að 2. flokkurinn var að
spila. Við vorum fáir og
þess vegna spilaði ég
síðari hálfleikinn. Þetta var svolítið erfitt
af því að ég tók ekki upphitun en þetta
var allt í góðu undir lokin. Ég spilaði
að sjálfsögðu í framlínunni og
ætlaði að skora eitt mark en var
aðallega í því að leggja upp. Það
var gaman að þessu. Það var kalt
og ég nennti ekki að horfa á þetta
af hiðarlínunni og skellti mér því
inn á,“ sagði Sigurður í gær.
„Mounir Ahandour tekur 4-5
vikur í að jafna sig af tognun,
Óli Stefán Flóventsson er
kinnbeinsbrotinn, Paul
McShane fékk ljótan
skurð á ökklann
eftir tæklingu
en hann fór í
myndatöku á
föstudaginn og það er óvíst hversu lengi
hann verður frá. David Hannah hefur
verið í vandræðum en er á réttri leið eftir
að hafa tognað. Eyþór Atli Einarsson er
einnig frá og er líklega með slitinn vöðva
auk þess sem nokkrir strákar sem hafa
verið viðriðnir aðalliðið eru meiddir,“
sagði Sigurður.
„Ég leik mér stundum með á æfingum,
ég nenni ekki að vera með þegar það
er leiðindaveður en þegar það er hiti og
gott veður þá er ég oftast með. Ég er
þokkalegur í bakinu í hitanum og þá er
ég bestur,“ sagði Sigurður sem er enn
aðeins 82 kíló og í frábæru formi. „Það
er gott veður hérna í Grindavík núna og
ég er á leiðinni á æfingu, ætli maður
verði ekki með þar,“ sagði Sigurður Jóns-
son að lokum við Fréttablaðið í gær.
SIGURÐUR JÓNSSON ÞJÁLFARI GRINDAVÍKUR: ER ENN AÐ SPILA OG GEFUR EKKERT EFTIR
Ég er bestur þegar hitinn er mikill
> Örn setti Íslandsmet
Sundkappinn Örn Arnarson úr Sund-
félagi Hafnarfjarðar setti í gær nýtt
Íslandsmet. Hann var að keppa í 100
metra flugsundi á opna meistaramótinu
í Slóveníu og bar þar sigur úr býtum.
Hann synti á 53,93 sekúndum og náði
að bæta eigið Íslandsmet um 18/100
úr sekúndu en gamla
metið var frá því í
mars. Á laugardag-
inn sigraði Örn í
50 metra flugsundi
á þessu móti í
Slóveníu og setti
þá einnig nýtt
Íslandsmet.
Nánar má lesa
um árangur
Arnar á mótinu
á vefsíðunni
www.sh.is.
HANDBOLTI Valsmenn verða með
mjög sterkan hóp í DHL-deild
karla á næsta tímabili en Óskar
Bjarni Óskarsson, þjálfari liðsins,
sagði Við Fréttablaðið í gær að
hópurinn sé nánast full mannaður.
Sigurður Eggertsson hafði hug á
að reyna fyrir sér í atvinnu-
mennskunni en af því verður ekki
en hann er enn að jafna sig í hnénu
eftir uppskurð.
Auk þess að fá Markús Mána
Michaelsson og Erni Hrafn Arnar-
son halda Valsmenn öllum sínum
bestu mönnum en Baldvin Þor-
steinsson verður einnig áfram þrátt
fyrir að hann sé enn að jafna sig
eftir að hafa fengið einkernings-
sótt. Óskar Bjarni á von á Baldvin á
fulla ferð aftur undir lok septemb-
ermánaðar.
„Við höfum auk þess aldrei
farið leynt með áhuga okkar á
Arnóri Gunnarssyni, vonandi
gengur það í gegn og ef svo fer
erum við komnir með einn breið-
asta og besta hóp deildarinnar,“
sagði Óskar en Arnór mun líklega
yfirgefa Þór á Akureyri. Hann
hefur sjálfur líst yfir áhuga á að
fara í Val en hann er á leið í skóla í
Reykjavík í haust. - hþh
Handboltalið Vals:
Komið með
fullskipað lið
ERNIR OG ÓSKAR Takast hér í hendur á
blaðamannafundi þegar sá fyrrnefndi gekk
í raðir Vals.FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Skagamenn geta lyft sér
upp úr botnsæti Landsbankadeild-
ar karla í kvöld þegar þeir heim-
sækja KR en leikurinn hefst
klukkan 20.00. Þetta er tuttugasti
deildarleikur félaganna á KR-velli
en fyrsti leikur félaganna í Vest-
urbænum fór fram 21. maí 1985
og lauk með 1-1 jafntefli.
KR hefur sigrað í 11 leikjum
gegn ÍA á KR-velli, ÍA hefur sigr-
að þrisvar en fimm leikjum hefur
lokið með jafntefli. Markatalan er
29-18 KR í hag. Þegar liðin mætt-
ust á KR-vellinum í fyrra unnu
Skagamenn 2-0 sigur með mörk-
um frá Hafþóri Ægi Vilhjálms-
syni og Igor Pesic en sá síðar-
nefndi skoraði frá miðju. - egm
Landsbankadeild karla:
KR - ÍA í kvöld
GÖMLU STÓRVELDIN Úr fyrri leik liðanna í
sumar sem KR vann 2-1. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ísland vann Noreg
Íslenska U21 árs landsliðs kvenna vann
stöllur sínar frá Noregi í fyrsta leik sínum
á Norðurlandamótinu í gær. Margrét
Lára Viðarsdóttir skoraði tvö mörk fyrir
Ísland og Greta Mjöll Samúelsdóttir eitt.
Ísland mætir Bandaríkjunum á morgun
og Dönum á fimmtudaginn.
FÓTBOLTI Íslandsmeistarar FH töp-
uðu sínum fyrsta deildarleik í
sumar þegar Valsmenn gerðu
góða ferð í Kaplakrikann í gær og
unnu 2-1 sigur. Fram að fyrsta
markinu var leikurinn lítil
skemmtun og líklega stór hluti af
þeim 2.600 áhorfendum sem á
leiknum voru þökkuðu fyrir að
ókeypis aðgangur hafði verið á
leikinn. Þótt FH hafi tapað leikn-
um í gær er liðið samt sem áður í
mjög góðum málum í deildinni.
Fyrri hálfleikurinn var mjög
rólegur, Valsmenn byrjuðu þó ögn
betur en eftir því sem á hálfleik-
inn leið komust heimamenn betur
inn í leikinn. Ari Freyr Skúlason
átti ágætis rispu fyrir Valsmenn
áður en fyrsta færi FH-inga leit
dagsins ljós. Þá átti Hermann
Albertsson góða fyrirgjöf en
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson, sem
var einn á auðum sjó, náði ekki til
knattarins. Hinn ungi Matthías
Vilhjálmsson kom sér tvívegis í
mjög gott færi í fyrri hálfleiknum
en í bæði skiptin náði Kjartan
Sturluson að verja með naumind-
um.
Matthías Guðmundsson sýndi
ágæt tilþrif þegar um stundar-
fjórðungur var liðinn af seinni
hálfleik en Daði Lárusson varði
skot hans í horn. Hermann
Albertsson átti fínan leik í vinstri
bakverðinum hjá FH-liðinu og átti
hann hörkuskot af löngu færi
skömmu síðar en hitti ekki ramm-
ann. Þegar seinni hálfleikur var
hálfnaður kom svo loks mark en
þá átti Pálmi Rafn Pálmason send-
ingu á Garðar Gunnlaugsson.
Vörn FH-inga var ekki með á nót-
unum og Garðar endurtók leikinn
frá því í Evrópuleiknum um dag-
inn og skoraði með skalla.
Það vantaði bit í sóknarleik
heimamanna í gær og var eina
ógnunin í Matthíasi sem skallaði
rétt fram hjá eftir góðan undir-
búning varamannsins Allans Dyr-
ing. En það var síðan Ari Freyr
Skúlason sem skoraði annað mark
Valsmanna með stórglæsilegu
skoti eftir að Guðmundur Bene-
diktsson renndi boltanum á hann
úr aukaspyrnu og kórónaði þar
með góðan leik sinn. Bakvörður-
inn Guðmundur Sævarsson
minnkaði muninn í 2-1 eftir klafs
en það var Dyring sem sendi á
hann. Það mark kom of seint og
Valsmenn hrósuðu góðum sigri.
Valur spilaði skynsamlega í
gær og liðið gaf fá færi á sér. Vals-
menn voru kannski ekki mjög
ógnandi stærstan hluta leiksins
en eftir fyrsta markið kom tals-
vert líf í þá og sigurinn var verð-
skuldaður. FH var án Tryggva
Guðmundssonar sem var í leik-
banni í gær og var hans sárt sakn-
að þótt lið eins og FH eigi að ráða
við þannig missi. Það verður þó að
horfa til þess að nánast ekkert lið
hefur verið jafnóheppið með
meiðsli eins og Íslandsmeistar-
arnir og fór Tommy Nielsen til að
mynda meiddur af velli í gær.
„Það var mjög sætt að sjá bolt-
ann liggja í netinu. Við fengum
mikið sjálfstraust eftir að hafa
spilað vel í síðari hálfleiknum
gegn Bröndby og eftir þennan
sigur er það komið í botn. Þetta
var frábær sigur og það gerist
ekki betra en þetta,“ sagði kampa-
kátur Ari Freyr Skúlason við Sýn
eftir leikinn.
Ólafur Jóhannesson, þjálfari
FH, hafði þetta að segja eftir leik-
inn: „Þetta var jafn leikur og þetta
datt þeim megin að þessu sinni,
svona er þetta stundum og það er
ekkert við því að segja. Við gerð-
um okkur grein fyrir því að við
myndum ekki fara í gegnum mótið
án þess að tapa stigum, nú er
fyrsta tapið komið og eigum við
ekki að segja að við töpum ekki
fleirum,“ sagði Ólafur glaðbeitt-
ur, en líklega ósáttur með tap
sinna manna. elvar@frettabladid.is
Valsmenn stöðvuðu FH
Valur stöðvaði í gær sigurgöngu FH í Landsbankadeild karla í sumar þegar félag-
ið vann 2-1 sigur í leik liðanna í gær. FH hafði unnið alla tíu leiki sína í deildinni í
sumar þar til sprækir Hlíðarendapiltar komu í heimsókn í Kaplakrikann.
SKOTIÐ AÐ MARKI Davíð Þór Viðarsson reynir hér metnaðarfulla skottilraun að marki
Valsmanna í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA