Fréttablaðið - 28.07.2006, Blaðsíða 57
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { ferðahelgin } ■■■■ 25
Fetasneiðar í Parmaskinku
eða Prosciutto
Pakkið sneið af Feta úr kryddolíu í eina
sneið af hráskinku. Setjið á bökunar-
plötu og bakið í ofni við 175 °C í u.þ.b.
10 mínútur eða steikið á þurri pönnu
þar til osturinn er farinn að bráðna.
Berið fram sem forrétt, eitt og sér, eða
raðið sneiðunum yfir fallegt salat,
dreypið olíu yfir og berið fram.
Það er gott að setja Dala-Fetasneið
ofan á hamborgara á grillinu eða
pönnunni þegar búið er að snúa
honum við.
Hamborgarinn verður einnig
sérlega gómsætur ef Dala-
Fetasneið er sett sem fylling í kjötið.
Hann er síðan steiktur eins og
vanalega.
Fetaborgari
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/
SÍ
A
- 6
91
1
Fetasneiðar
– gómsæt nýjung
Girnilegar
uppskriftir
í lokinu
Nýju Dala-Fetasneiðarnar eru ómissandi í matargerð.
Prófaðu allar þrjár kryddblöndurnar sem hver og ein
leikur við bragðlaukana og fullkomnar matargerðina.
Ómissandi
í matargerð
„Óli Boggi vinur minn sem á hárgreiðslustofuna Solid var búinn suða í mér í
mörg ár að koma með honum á þjóðhátíð en hann er frá Vestmannaeyjum,“
segir Bryndís.
Að lokum gafst Bryndís upp og fór með vini sínum til Eyja. „Fjölskyldan hans
var frábær og mamma hans sá um að elda súpu ofan í okkur allan tímann.“
Eftirminnilegast fannst Bryndísi hvað allir í Eyjum voru indælir. „Allir tóku
á móti öllum og voru svo almennilegir og góðir. Fólk var þarna til þess að hafa
gaman og alls staðar var opið hús svo að ef maður varð strandaglópur einhvers
staðar þá labbaði maður bara inn í næsta hús og fékk lundasúpu eða eitthvað. Ég
sagði einmitt við Óla Bogga eftir helgina að þetta væri besta verslunarmanna-
helgi sem ég hefði upplifað.“
Allir svo yndislegir
BRYNDÍS ÁSMUNDSDÓTTIR LEIKKONA SEGIR AÐ EFTIRMINNILEGASTA
VERSLUNARMANNAHELGIN HENNAR HAFI VERIÐ ÞEGAR HÚN FÓR Á
ÞJÓÐHÁTÍÐ Í EYJUM MEÐ VINI SÍNUM FRÁ VESTMANNAEYJUM.
Eftirminnileg ferðahelgi
Bryndís Ásmundsdóttir var ánægð með verslunarmannahelgina í Vestmannaeyjum.
FRÉTTABLAÐAIÐ/E.ÓL.
„Það er best að setja grænmetið síð-
ast til að hafa það stökkt. Það má
hvorki grilla fiskinn né grænmetið
of lengi til að halda ferskleikanum í
þessu og öllum safanum.
Síðan tekur maður bara upp
kartöflusalatið sem er tilbúið ofan í
tösku og þú ert kominn með veislu-
máltíð á korteri,“ segir Rúnar að
lokum.
erlabjorg@frettabladid.is
Ómar, hjá Gallerý kjöti, með
girnilega grillmatinn.