Fréttablaðið - 03.08.2006, Blaðsíða 61
FIMMTUDAGUR 3. ágúst 2006 41
Nánari upplýsingar á siminn.is eða á næsta sölustað Símans.
* Eingöngu innan kerfis Símans
SUMARTILBOÐ
Á SAMSUNG SÍMUM
5 KR.
SMS & MMS
ALLAR HELGAR Í SUMAR
*
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
2
7
7
8
Nánari upplýsingar á siminn.is eða á næsta sölustað Símans.
Gullfallegur samlokusími,
sem býður upp á alla helstu
möguleikana. Meðal búnaðar
má nefna VGA myndavél og
hægt að taka upp hreyfimyndir,
FM-útvarp, 3MB minni, 6 klukku-
stunda taltíma á rafhlöðu og
margt fleira.
14.980 kr.
SAMSUNG X650
Glæsileg hönnun. Örþunnur,
með stórum TFT hágæða
litaskjá og 1,3 MP myndavél
sem hægt er að snúa 180
gráður. Hægt er að tengjast
tölvu, handfrjálsum búnaði
og blátannarsímum í
gegnum blátannarbúnað.
37.980 kr.
SAMSUNG D820
* Eingöngu innan kerfis Símans
Metsöluhöfundurinn og skapari
galdraveldisins sem kennt er við
Harry Potter, J.K. Rowling, seg-
ist skemmta sér sem aldrei fyrr
við að skrifa síðustu söguna um
galdrapiltinn heimsfræga enda
sé mesti þrýsingurinn af öxlum
hennar nú þegar sér fyrir end-
ann á ævintýrinu.
Höfundurinn er nú staddur í
Bandaríkjunum þar sem hún tók
þátt í góðgerðasamkomu ásamt
rithöfundunum John Irving og
Stephen King en haft er eftir
þeim að þeir félagar hafi hitað
upp fyrir Rowling enda hafi
áhorfendaskarinn verið í yngri
kantinum.
Dagblaðið The Guardian
greinir ennfremur frá því að
fyrrgreindir ritjöfrar hafi beðið
galdradrengnum Harry Potter
vægðar, minnugir þess að Row-
ling lýsti því yfir í vor að ástkær
persóna myndi láta lífið í lok sög-
unnar.
Rowling kveðst vel á veg
komin með síðustu bókina og
lýsti því yfir að henni þætti ekki
alltaf gaman að gera út af við
persónurnar sínar. Hún áréttaði
þó að þegar kæmi að hinum eig-
inlegu skrifum væri hún búin að
taka út sorgina því dauðsföllin
væru ákveðin með löngum fyrir-
vara. - khh
Ritjöfrar biðja Potter vægðar
J.K. ROWLING
Komin vel áleiðis með síðustu
Potter bókina.
MYND/REUTERS
Ástralski tónlistarmaðurinn Peter
Uhlenbruch er staddur hér á landi
og leikur á tónleikum í kvöld.
Peter er 24 ára og kallar sólóverk-
efni sitt Owls of the Swamp. Hann
segist vera undir áhrifum frá tón-
listarmönnum á borð við Elliott
Smith, Nick Drake og Elbow og
ætlar að sýna það í verki á tónleik-
um á Café Rosenberg í kvöld. Þar
kemur hann fram ásamt Mike
Pollock. Tónleikarnir hefjast
klukkan 22 í kvöld. Áhugasamir
geta kynnt sér tónlist Uhlenbruch
á heimasíðunni Myspace.com/
owlsoftheswamp.
Ástrali á
Rosenberg
OWLS OF THE SWAMP Ástralski tónlistar-
maðurinn Peter Uhlenbruch spilar á Café
Rosenberg í kvöld.
Myndlistarmaðurinn Sigurður
Örlygsson opnaði sýningu í List-
húsi Ófeigs á Skólavörðustíg 5 um
síðustu helgi en hún er haldin í til-
efni af sextugsafmæli hans. Á sýn-
ingunni eru 120 vatnslitamyndir
sem mynda tvær seríur en mynd-
irnar eru allar unnar á þessu ári.
Sigurður hefur haldið um 50
einkasýningar en hann stundaði
nám við Myndlista- og handíða-
skólann og síðar framhaldsnám í
Kaupmannahöfn og New York.
Sýningin verður opin á þjón-
ustutíma listhússins en henni
lýkur 23. ágúst. - khh
Afmælislist
VERK SIGURÐAR ÖRLYGSSONAR Litríkar
vatnslitamyndir.
Tafla sem sýnir æskilegan loftþrýsting í dekkjum, pund (lbs) samanborið við kílóPascal (kPa).
lbs
28 195
22032
kPaÆskilegur loftþrýstingur
Of mikill loftþrýstingur
Of lítill loftþrýstingur Algengt er að upplýsingar um réttan
loftþrýsting sé að finna í hurðafalsi
eða á bensínloki bifreiða. Í venjulegum
fólksbíl er algengast að æskilegur
loftþrýstingur sé í kringum 200 kPa.
1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 9