Fréttablaðið - 08.08.2006, Side 4
4 8. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR
����������������������������������
�������������
�������
����
�������� ��
���������
������
�����
���������
���������������
������
��������
��������
�������
����
������� ��
�����������������
�������������
�������������
�������������
�������������
���������������
�����������
�����������
�����������
�����������
��������������
��������������
���������������
���������������
��������������
�� ����������
��� ����� � ��
�� �����
���������������������
� ��� �������������������
���������������� �����
� ��� ������������������
����������������
�� ������� ��� ����� ���
��� �������� �������������
����������������������� ����
����������������������
�������� ���� ����� �������
������� �����������
������������� ����� ����
������� ���������������
����������� �������� ��� ��
���������� �����������
�������������
�����������
�����������������
����������������������� ��
����� ���������������������
����������
����� ����������� ���
������������������
�� ������ � ���������
��������� �� ���
��
��
��
�� ��
��
��
��
��
��
�
�
�
�
� �
�
�
�
�
�
�
��
�� ��
��
��
��
�� ��
��
��
����������������������������������������� ������������
�������������
������������
�������������� �
������������������������������������������������������������������
����
�����
�����
�
��� ��� ��
�������������� ���
��������������
�����
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 4.8.2006
Bandaríkjadalur 70,53 70,87
Sterlingspund 133,38 134,02
Evra 90,16 90,66
Dönsk króna 12,083 12,153
Norsk króna 11,439 11,507
Sænsk króna 9,773 9,831
Japanskt jen 0,6111 0,6147
SDR 104,79 105,41
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
124,7985
Gengisvísitala krónunnar
KÚBA Fidel Castro er nú á batavegi
eftir að hafa gengist undir aðgerð
vegna innvortis blæðinga í síðustu
viku. Varaforseti Kúbu, Carlos Lage,
sagði á sunnudag að líðan Castros
væri góð og hann myndi snúa aftur
til starfa innan fárra vikna.
Fréttir bárust af því að forset-
inn þjáist af magakrabbameini en
Carlos Lage neitar þeim fregnum.
Að sögn yfirvalda hefur upplýs-
ingum um líðan Castros verið
haldið leyndum svo óvinaþjóðir
Kúbu nýti sér ekki ástand forset-
ans. Fidel Castro verður áttræður
næsta sunnudag. - jóa
Castro snýr aftur til starfa:
Halda ástandi
Castros leyndu
BEÐIÐ FYRIR FORSETANUM Íbúar á Kúbu
báðu fyrir bata Fidels Castro við sérstaka
messu sem haldin var í Havana á sunnu-
dag forsetanum til heiðurs. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ORKA Orkuverð í Noregi mun að
öllum líkinum rjúka upp í haust
þegar þarlendar vatnsaflsvirkj-
anir hafa ekki nægilega mikið
vatn til að knýja rafala sökum
mikilla þurrka undanfarið í Evr-
ópu, að því er fram kemur í dag-
blaðinu Aftenposten.
Grunnvatnsstaða á Íslandi er
langt yfir meðallagi, að sögn Óla
Grétars Sveinssonar, deildar-
stjóra hjá Landsvirkjun. Hún er
þó minni nú en oft áður þar sem
hægur vindur í sumar nær ekki
að bera rigningu inn á hálendið.
Hægur vindur orsakar einnig
stöðugt þokuloft yfir jöklum sem
hægir á bráðnun. - sdg
Hærra orkuverð í Evrópu:
Áhyggjur
vegna þurrka
LÖGREGLUMÁL Sautján ára piltur
mældist á 141 kílómetra hraða á
Reykjanesbrautinni við Stekkjar-
bakka um ellefuleytið á sunnu-
dagskvöld. Leyfilegur hámarks-
hraði á þessum stað er sjötíu
kílómetrar á klukkustund. Öku-
maður framvísaði ökuskírteini
sínu, sem var ellefu daga gamalt.
Pilturinn ók Mercedes-Benz
bifreið foreldra sinna og voru þau
ekki par hrifin af aksturslagi pilts
þegar lögregla hafði samband við
þau. „Það var til fyrirmyndar
hvernig þau tóku á þessu,“ segir
lögreglumaður sem var á vakt.
Ökumaðurinn má eiga von á
tveggja mánaða ökuleyfissvipt-
ingu og sextíu þúsund króna fjár-
sekt í kjölfarið. - æþe
Sautján ára á ofsahraða:
Bílprófið ellefu
daga gamalt
SRÍ LANKA Sigurður Gíslason,
íslenskur eftirlitsmaður með
vopnahléi á Srí Lanka, lenti á
sunnudag í skotárás í norðaustur-
hluta landsins, nálægt bænum
Tricomalae. Sigurður var í för með
norrænum eftirlitsmönnum og
málamiðlum, þar á meðal danska
eftirlitsmanninum Ove Jensen.
„Við vorum fimm sem fórum inn á
svæðið í þeim tilgangi að skrúfa
frá vatnsveitu sem stjórnarherinn
hafði lokað fyrir. Við vorum
klukkutíma á undan áætlun og því
má segja að við höfum verið á
röngum stað á röngum tíma,“ segir
Sigurður. „Stjórnarherinn hóf stór-
skotaárás á svæðinu og við vorum
óþægilega nálægt sprengjuregn-
inu. Sprengjur féllu með um fimm
til tíu sekúndna millibili og við
gátum ekkert annað gert en að
hörfa. Við fundum frumskógar-
slóða til að fara út sem fyrst, okkur
tókst það og vorum komnir úr
hættu eftir um tíu mínútur.“ Nor-
rænu eftirlitsmennirnir sluppu
allir ómeiddir.
Fréttir bárust af því í gær að
fimmtán starfsmenn franskra
hjálparsamtaka hefðu fundist
látnir í bænum Muttur í norðaust-
urhluta Srí Lanka. Líkin fundust á
skrifstofu hjálparsamtakanna. Að
sögn Þorfinns Ómarssonar, blaða-
fulltrúa eftirlitssveita með vopna-
hléi, höfðu friðargæsluliðar ekki
enn fengið aðgang að svæðinu.
„Við höfum ekki náð að rannsaka
hvort fréttir af þessu máli eru
réttar,“ sagði Þorfinnur þegar
Fréttablaðið náði tali af honum
seint í gærkvöldi. „Það er skylda
okkar að rannsaka svona mál en
við höfum enn ekki komist á svæð-
ið. Vegna öryggisástæðna förum
við ekki með okkar fólk þangað
strax.“ Búðir norrænu sveitanna
eru í nokkurri vegalengd frá
átakasvæðinu.
Þorfinnur segir bardaga í norð-
austurhluta Srí Lanka hafa harðn-
að til muna síðustu tvær vikur.
„Við höfum þó ekki þurft að grípa
til neinna sérstakra varúðarráð-
stafana í ljósi atburða,“ segir Þor-
finnur. „Tekin var formleg ákvörð-
un fyrir rúmri viku að sveitir frá
Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi
myndu fara um næstu mánaðamót
en ekkert hefur verið rætt um
brottför Íslendinga eða Norð-
manna. Jon Hanssen-Bauer, sendi-
fulltrúi og samningamaður Norð-
manna er staddur á svæðinu og
stendur í viðræðum við stríðandi
fylkingar. Áður en framhaldið er
ákveðið verður látið reyna á hvað
kemur út úr þeim viðræðum.“
johannas@frettabladid.is
Sprengjuregnið var
óþægilega nálægt
Harðir bardagar hafa staðið milli stjórnarhers Srí Lanka og Tamíltígra í norð-
austurhluta Srí Lanka eftir að Tamíltígrar skrúfuðu fyrir vatnsrennsli til bæjar-
ins. Íslenskur friðargæsluliði lenti í skotárás um helgina.
HART BARIST Á SRÍ LANKA Ekkert lát er á deilum stríðandi fylkinga í Srí Lanka. Norrænar
eftirlitssveitir flúðu undan stórskotahríð stjórnarhersins á sunnudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LEIT Óskað var eftir aðstoð björg-
unarsveita í gær við leit að 45 ára
gömlum karlmanni í Skaftafelli.
Síðast sást til mannsins á tjald-
svæðinu við Skaftafell um eitt-
leytið í fyrrinótt. Hann skilaði sér
ekki í tjald sitt og var því farið að
grennslast fyrir um manninn.
Á milli tuttugu og þrjátíu björg-
unarsveitarmenn tóku þátt í leit-
inni frá því um eittleytið í gær-
dag. Leitinni var fyrst beint að
svæðunum í kringum tjaldsvæðið
en svo var svæðið stækkað út á
sandana. Auk björgunarmann-
anna tók þyrla Landhelgisgæsl-
unnar, TF-LIF, þátt í leitaraðgerð-
um. Þá voru leitarhundar
björgunarmönnum til aðstoðar.
Maðurinn hafði ekki fundist þegar
blaðið fór í prentun en um 150
björgunarmenn tóku þátt í leitinni
í nótt.
Að sögn lögreglunnar á Höfn
var maðurinn einn á ferð og til-
kynnti hann engum um för sína né
ástæður fyrir henni.
Maðurinn heitir Jóhann Konráð
Sveinsson og er klæddur í hvíta og
bláa strigaskó, bláar gallabuxur
og bláan vindjakka með hettu.
Hann var með svarta derhúfu
þegar síðast sást til hans. Jóhann
er 194 sentimetrar á hæð, þéttvax-
inn með dökkt stuttklippt hár.
- æþe
Manns var ákaft leitað af björgunarsveit og úr þyrlu í og við Skaftafell í gær:
Fór af tjaldsvæði um nóttina
ÍSRAEL, AP Ehud Olmert, forsætis-
ráðherra Ísraels,
og Amir Peretz
varnarmálaráð-
herra funduðu í
gær með hers-
höfðingjum í
norðurhéruðum
landsins og töl-
uðu um frekari
landhernað í Líb-
anon. „Ég færi
ykkur allan styrk og allan stuðn-
ing,“ sagði Olmert á fundinum.
„Við munum ekki stoppa.“
Ísraelar skutu niður sprengju-
flaug Hizbollah og sagði Peretz í
kjölfarið að öllum ráðum yrði beitt
til að stöðva árásirnar, ef viðræð-
ur dygðu ekki til. Tíu þúsund ísra-
elskir hermenn eru nú þegar í Líb-
anon, en áhrifamenn innan
ríkisstjórnar Olmerts hvetja til
aukins hernaðar til að losna við
sprengjuvörpur Hizbollah af hern-
aðarsvæðunum. - sgj
Forsætisráðherra Ísraels:
Boðar meiri
landhernað
EHUD OLMERT
VITAR Upplýsingaskilti um vita á
Norðausturlandi hefur verið komið
fyrir við Húsavíkurhöfn. Sturla
Böðvarsson samgönguráðherra tók
skiltið formlega í notkun á föstudag.
Á skiltinu er að finna myndir og
upplýsingar um vita á svæðinu frá
Gjögurtáarvita í vestri og austur
fyrir Langanes. Tilgangurinn er að
vekja athygli á vitunum og
umhverfi þeirra.
Hörður Sigurbjarnarson, fram-
kvæmdastjóri Norðursiglingar,
hafði forgöngu um málið með stuðn-
ingi Atvinnuþróunarfélags Þingey-
inga og Siglingastofnun. - sdg
Upplýsingaskilti á Húsavík:
Vitar á Norð-
austurlandi
BÍLL OG ÞYRLA Um þrjátíu björgunar-
sveitarmenn leituðu mannsins í gær með
aðstoð þyrlu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK