Fréttablaðið - 08.08.2006, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 08.08.2006, Blaðsíða 8
8 8. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR Máttarstólpi Menningarnætur Menningarnótt 19. ágúst Opið: Mánudaga - föstudaga kl. 9:00–18:00.Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Akureyri 461-2960 Njarðvík 421-8808 Höfn í Hornafirði 478-1990 Reyðarfirði 474-1453 Umboðsmenn um land allt ������������������������� ������������� ����������������������������� �������������������������������� ��������������������������������������������� ������������������������� ������������� �������� �������������������������������������������������������� ��������������������������������������� �� ���������������������������������������������������������� ������������������������������� ������ ������������� ������������� ������������� ������������� ����������������� ������������������� ������������ ����� ������������� ���� ������������� ����������������� Farangurskassar leysa plássvandann í bílnum! www.seglagerdin.is Eyjarslóð 5, sími 511 2200 Þyngd: 19,5 kg Rúmmál: 320 L Breidd: 0,96 m 24.900 SUMARTILBO Ð AUGL†SINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA Sögurnar, tölurnar, fólki›. HÚSNÆÐISLÁN Kostnaður við lán- töku vegna íbúðakaupa getur verið allt að tvöfalt hærri hér á landi en á evrusvæðinu, sé miðað við hefðbundin húsnæðislán. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir kostnað við íbúðalán hér á landi óviðunandi fyrir almenn- ing í landinu. „Annars vegar er verðbólgan heimatilbúin og almenningur þarf að greiða hátt verð fyrir misheppnaða en sjálf- stæða hagstjórn, þar sem íslenska krónan er í aðal- hlutverki. Vandinn er sá í hnot- skurn að hagstjórnin hér innan- lands er ekki nægilega góð. Og síðan er það íslenskan krónan, sem skoppar eins og korktappi í alþjóðlegum fjárhagseigendum. Fyrirtæki og stóreignamenn hafa aðgang að evrópskum kjör- um en ekki almenningur í land- inu, og það er óviðunandi.“ Árni Mathiesen fjármálaráð- herra segir breytingar á Íbúða- lánasjóði í vændum og vonast til þess að vaxtakjör batni eins mikið og kostur er. „Það urðu breytingar á húsnæðis- markaðnum sem lækkuðu vaxta- kostnaðinn við lán mikið, en þær leiddu til þenslu á húsnæðis- markaði sem við erum enn að glíma við. Endurskoðun á Íbúða- lánasjóði stendur yfir. Það þarf að fara varlega í sakirnar þegar farið er út í breytingar á þessum markaði, en að sjálfsögðu eigum við að stefna að eins góðum vaxtakjörum og kostur er.“ - mh Kostnaður við húsnæðislán hér á landi er töluvert hærri en á evrusvæðinu: Vexti á lánum þarf að lækka INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR ÁRNI MATHIESEN HEILSA Þriðjungur landsmanna fær krabbamein einhverntíma á ævinni, samkvæmt krabbameinsskrá Krabbameinsfélags Íslands. Um það bil fjórðungur allra dánarmeina er af völdum krabbameins. Tíðni hinna ýmsu tegunda krabbameins er mismunandi eftir kynjum, hjá körlum er lungnakrabbamein algengast en brjóstakrabbamein algengast hjá konum. Um sextíu prósent þeirra sem greinast með krabbamein í dag eru á lífi fimm árum frá grein- ingu, en fyrir fimmtíu árum voru um þrjátíu prósent á lífi fimm árum eftir greiningu. Hvað mörg krabbamein varðar hafa horfur batnað verulega, til dæmis eru um níutíu prósenta líkur á að kona sem greinist með brjóstakrabba- mein í dag verði á lífi eftir fimm ár. Að sögn Helga Sigurðssonar, prófessors í krabbameinslækning- um, er krabbamein óumdeilanlega eitt helsta heilsuvandamál þjóðar- innar. „Krabbamein er sá sjúk- dómur sem almenningur óttast einna mest að fá, en margir tengja greiningu þess við dauðadóm,“ segir Helgi. „Horfur þeirra sem greinast eru þó að batna og þeir sem læknast ekki lifa lengur og betur en áður. Ástæðan er fram- farir í meðferð og greiningu sjúk- dómsins á forstigum og einkenna- meðferð.“ Helgi segir aldur mesta áhættu- þátt þess að fá krabbamein. Krabbamein séu fátíð undir 40 ára aldri og meira en helmingur allra sem fái krabbamein greinist eftir 65 ára aldur. Meðalaldur við grein- ingu krabbameina er 67 ár hjá körlum og 63 ár hjá konum. „Nýjar rannsóknir sýna að offita og þyngdaraukning eru mikilvægir áhættuþættir fyrir fjölda krabba- meina, þannig að hreyfing og við- hald kjörþyngdar eru mikilvægir fyrirbyggjandi þættir.“ Hann segir að búast megi við verulegri lækkun á nýgengi á sumum krabbameinum eins og lungnakrabbameini þar sem reyk- ingar landsmanna hafi minnkað. Önnur eigi eftir að aukast eins og sortumein vegna sólstrandarferða og sólbaða. salvar@frettabladid.is Þriðjungur fólks fær krabbamein á ævinni Einn af hverjum þremur fær krabbamein einhvern tíma á ævinni, að því er fram kemur í krabbameinsskrá. Fimm ára lífshorfur þeirra sem fá með krabbamein hafa tvöfaldast á fimmtíu árum. Helmingur allra sem greinast er eldri en 65 ára. LANDSPÍTALI - HÁSKÓLASJÚKRAHÚS Helgi Sigurðssson, prófessor í krabbameinslækn- ingum, segir krabbamein óumdeilanlega eitt helsta heilsuvandamál þjóðarinnar. Þó hafi horfur þeirra sem greinast aldrei verið betri en nú. Samkvæmt krabbameinsskrá er um fjórðungur allra dánarmeina af völdum krabbameins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.