Fréttablaðið - 08.08.2006, Blaðsíða 52
8. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR28
Tónlistarhátíðin Innipúkinn var
haldin á Nasa við Austurvöll um
helgina. Stíf dagskrá var frá föstu-
degi til sunnudags og fjöldi lista-
manna kom fram. Fjölmargir gest-
ir skemmtu sér hið besta á
hátíðinni, sem nú var haldin í
fimmta sinn. Tónleikar Mugisons
á sunnudagskvöldinu þóttu einna
best heppnaðir en aðrar sveitir
sem þóttu skara framúr voru
Hjálmar og Jeff Who?
Hljómsveitin Sigur Rós lauk
tónleikaferðalagi sínu um land-
ið með frábærum tónleikum í
Ásbyrgi á föstudagskvöld. Um
fjögur þúsund áheyrendur voru
samankomnir á þessum fallega
stað og er óhætt að fullyrða að
þeir urðu ekki fyrir vonbrigð-
um. Veðrið var eins og best
verður á kosið, um 20 stiga hiti
var þegar tónleikarnir hófust.
Sigur Rós lék í um tvo og hálf-
an tíma og að sögn viðstaddra
jöfnuðust tónleikarnir fyllilega
á við frábæra tónleika sveitar-
innar á Miklatúni. Þetta voru
síðustu tónleikar Sigur Rósar í
bili en liðsmenn sveitarinnar
hyggjast nú taka sér gott frí.
Tónleikarnir í Ásbyrgi bundu
endahnútinn á tónleikaferðalag
sem staðið hefur í heilt ár.
Hljómsveitin lék alls á átta tón-
leikum hérlendis sem allir voru
teknir upp fyrir væntanlega
útgáfu á DVD-tónleikadiski.
búnaður í bílinn
Car kit CK-7W
* Bluetooth búnaður í bílinn
* Svarhnappur, hátalari og hljóðnemi
* Lækkar sjálfkrafa í hljómtækjum
* Sjálfvirk tenging við síma
handfrjáls
Þú færð handfrjálsan búnað í bílinn í Hátækni og hjá söluaðilum NOKIA.
Hafðu HENDURNAR
þar sem löggan vill sjá þær
GESTIR Á ÖLLUM ALDRI Börn voru áberandi á meðal tónleikagesta í Ásbyrgi og heilmikil
fjölskyldustemning myndaðist þar.
EINSTAKUR STAÐUR Ásbyrgi passaði vel
sem endapunktur á tónleikaferðalagi Sigur
Rósar.
Stórbrotinn endir á ferðalagi Sigur Rósar
NOTALEG STEMNING Tónleikagestir létu fara vel um sig í Ásbyrgi.
VEL MÆTT Um fjögur þúsund áhorfendur
voru samankomnir í Ásbyrgi til að hlýða á
Sigur Rós.
MÖGNUÐ UPPLIFUN Tónleikar Sigur Rósar í Ásbyrgi á föstudagskvöld þóttu hreint út sagt stórbrotnir. Eins og sjá má var veður með besta
móti og tónlist sveitarinnar naut sín vel á þessum fallega stað. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
VEL MEÐ Á NÓTUNUM Gestir á Nasa
skemmtu sér almennt vel og klöppuðu fyrir
listamönnunum.
HRESSIR HJÁLMAR
Ein af skemmtilegustu
sveitum Innipúkans
í ár var reggísveitin
Hjálmar.
Innipúkar nutu sín á Nasa
HÁPUNKTUR HÁTÍÐARINNAR Tónleikar
Mugisons á sunnudagskvöldinu voru hreint
út sagt frábærir og virtust gestir sammála
um að hann hefði stolið senunni af
erlendu listamönnunum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Hús Brad Pitt og Angelinu Jolie í
Namibíu er nú til sölu. Frægt varð
þegar parið dvaldi í húsinu á
meðan Angelina gekk með dóttur
þeirra, Shiloh Nouvel. Húsið var
þó ekki í eigu skötuhjúanna, held-
ur greiddu þau um 150 milljónir
króna í leigu fyrir að dveljast þar
í 80 daga. Húsið verður selt hæst-
bjóðanda.
Villa til sölu
STJÖRNUPARIÐ Húsið sem Angelina og
Brad leigðu í Namibíu er nú til sölu.
Kvikmyndin World Trade Center
eftir Oliver Stone var frumsýnd í
New York fyrir skömmu. Myndin
segir frá tveimur lögregluþjónum
sem taldir eru hafa verið þeir síð-
ustu sem björguðust úr rjúkandi
rústum Tvíburaturnanna. Með
aðalhlutverkið fer Nicholas Cage
en bæði John McLoughlin og Willi-
am Jimeno sem myndin fjallar um
voru mættir á frumsýninguna. Þeir
hafa verið töluvert gagnrýndir af
ekkjum annarra lögregluþjóna sem
létu lífið í árásinni fyrir að vilja
græða peninga á ógæfu annarra.
Gagnrýnandi Hollywood
Reporter sagði myndina vera bæði
hreina og beina sem þjónaði sög-
unni ákaflega vel og Variety hrós-
aði leikstjóranum fyrir að nálgast
viðfangsefnið með mikilli virðingu.
Hins vegar bætti gagnrýnandinn
við að þrátt fyrir hjartnæm andar-
tök væri World Trade Center frek-
ar hæg og leiðinleg kvikmynd.
Misjafnir
dómar
OLIVER STONE Gagnrýnendur eru á báðum
áttum um hvort nýjasta myndin hans,
World Trade Center, sé góð eða léleg.