Fréttablaðið - 08.08.2006, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 8. ágúst 2006 5
Umhverfisvænt
eldhús
HÉR KOMA NOKKRAR LEIÐIR SEM
MÁ NOTA TIL ÞESS AÐ GERA ELD-
HÚSIÐ UMHVERFISVÆNT.
Til að spara lýsingu má nota
flúorperur, með því getur orkunotk-
unin minnkað um allt að helming.
Einnig er best að nota bara dags-
ljósið þegar kostur gefst eða skapa
rómantískt andrúmsloft með því
að nota kerti.
Bambus er
náttúrulegt og
umhverfisvænt
efni sem endur-
nýjast hratt
í náttúrunni.
Bambus má
nota í diskamottur, á veggi, milli
skápa eða sem mottur á gólfið.
Einnig má fá körfur og annað
smálegt úr bambus.
Korkur er einnig afar góður efnivið-
ur í eldhús þar sem hann er bæði
hljóðeinangrandi og ofnæmisfrír
og tekur ekki í sig myglu eða önnur
lífræn óhreinindi. Kork má bæði
nota á gólf og veggi.
Bómull og önnur náttúruleg
vefnaðarvara fer einkar vel í
umhverfisvænu eldhúsi, jafnt í
gardínum, borðdúkum, stólsessum
og viskastykkjum.
Burstar ættu að vera úr náttúruleg-
um efnum sem bæði endast betur
en plastið og hreinsa líka betur
potta og pönnur.
Ný spennandi leið í flísalögn-
um.
Það nýjasta í flísalagninum er flísar
með innbyggðu ljósi. Hér er ekki
verið að tala um ljós sem eru greypt
inn í eða bak við flísar eftir á, held-
ur koma þær með tilbúinni LED-
lýsingu. Flísarnar sjálfar eru því
ljósgjafinn. Hægt er að fá flísarnar
í nokkrum stærðum og er mismun-
andi hversu stór hluti yfirborðs
þeirra lýsir upp. Til dæmis er hægt
að fá flísar sem eru 5,5x40 cm og
lýsa allar upp. Þær getur til dæmis
verið sniðugt að nota í rendur á
milli dökkra flísa, eða í þrep.
Hægt er að skoða flísarnar á
heimasíðunni www.steuler-fliesen.
de.
Flísar sem lýsa upp umhverfið
Nokkur dæmi um skemmtilega notkun LED-
flísanna.
Rétt tækni við
að saga
EKKI RYKKJA OG EKKI OF HRATT.
■ Því stöðugari sem spýtan sem þú
ætlar að saga er, því léttara er að
saga. Notið gott undirlag eða borð
og látið einhvern annan halda í
endann sem stendur út. Það getur
verið gott að leggja hnéð ofan á
það sem verið er að saga til aukins
stuðnings.
■ Ef virkilega á að vanda til verksins
getur oft verið betra að þvinga það
fast sem verið er að saga.
■ Átakið við sögunina á að vera
langt og mjúkt. Ef sagað er með
rykkjum er hætta á þvi að sögin
festist eða að sagarfarið skekkist.
■ Ef timbrið er rakt eða mjög þétt
getur verið léttara að saga, ef þú
strýkur olíu eða uppþvottalegi yfir
sagarblaðið. Því minna horn sem
er á milli sagarinnar og yfirborðs
spýtunnar, því fínna sagarfar.
■ Krepptu þumalinn og láttu hann
liggja sem stuðning að sagarblaðinu
þegar þú byrjar að saga. Eftir nokkur
handtök er sagarblaðið byrjað að
grípa og þú getur tekið þumalinn
frá. Til að komast hjá því að flísist
um of úr timbrinu þegar þú sagar,
má setja límband yfir sagarfarið.
Límbandið ætti að halda að og
varna því að flísar myndist.
Það væri leiðinlegra að spilla fallegri
smíði með óvönduðum vinnubrögðum.
smíðar }