Fréttablaðið - 08.08.2006, Blaðsíða 45

Fréttablaðið - 08.08.2006, Blaðsíða 45
ÞRIÐJUDAGUR 8. ágúst 2006 21 Mikil óánægja er nú með „samkomu- lag“ ríkisstjórnar og Landssam- bands eldri borgara um kjör eldri borgara. Málið hefuir verið mikið rætt í fjölmiðlum, blöðum og á útvarpsstöðvunum, einkum á Útvarpi Sögu en mikill fjöldi fólks hringir alltaf í þá útvarpsstöð og segir álit sitt á málefnum líðandi stundar. Hafa allir, sem tjáð hafa sig um „sam- komulagið“, undantekningarlaust verið mjög óánægðir með það. Eldri borgurum finnst eins og þeir hafi verið blekktir. Þeir benda á, að hækk- unin á lífeyri aldraðra sé nánast sú sama eða minni en ASÍ samdi um í júní og tilskilið var, að eldri borgar- ar fengju og því hafi ekkert komið út úr samkomulagi LEB og ríkisstjórn- ar til viðbótar varðandi hækkun á líf- eyri. Aðeins 400 manns fái fullar bætur og skattur sé greiddur af þeim bótum. Sumir eldri borgarar sem hringt hafa í Útvarp Sögu segja, að þeir fái aðeins nokkrar krónur út úr „samkomulaginu“. Hafði LEB ekkert umboð? Eldri borgarar gagnrýna einnig harðlega að Landsamband eldri borgara skuli hafa samið við ríkis- stjórnina. Telja þeir að LEB hafi ekki haft neitt umboð til slíkra samn- inga. Landasamband eldri borgara hafi ekkert samningsumboð fyrir eldri borgara.Í Landssambandinu sé aðeins hluti eldri borgara og eldri borgarar yfirleitt hafi ekki gefið LEB neitt umboð til samninga. Menn eru mjög hissa á því, að Ólafur Ólafsson formaður LEB skuli hafa skrifað undir samkomulag við ríkisstjórnina, þar eð samkomulagið færi öldruðum sáralítið og hann hafi ekki haft umboð til að skrifa undir. „Lofa“ mörg ár fram í tímann Þá gagnrýna margir eldri borgar- ar,að ríkisstjórnin skuli gera „sam- komulag“, sem gildi til margra ára þegar ríkisstjórnin eigi aðeins eftir 10 mánuði af valdatímabili sínu. Telja menn það alveg út í hött að ríkisstjórnin sé að „lofa“ einhverj- um aðgerðum í málefnum aldraðra langt fram í tímann. Nær hefði verið að ríkisstjórnin gerði meira á meðan hún er við völd. Einar Árnason hagfræðingur eldri borgara hefur komið fram í fjölmiðlum og sagt, að „samkomu- lagið“ við eldri borgara sé ekkert samkomulag! Fulltrúar LEB hafi skrifað undir nefndarálit með fyrir- vara og lýst yfir, að þetta væri aðeins fyrsta skref á langri göngu. En hvað sem ummælum Einars líður þá var „samkomulagið“ kynnt af forsætisráðherra í fjölmiðlum með miklum lúðrablæstri sem sam- komulag. Og almenningur skildi það þannig, að um samkomulag væri að ræða. En spurningin er aðeins sú hvort fulltrúar LEB höfðu heimild til þess að skrifa undir plaggið. Ég óskaði eftir því áður en gengið var frá samkomulaginu, að ekki yrði skrifað undir og sagði sporin frá nóvember 2002 hræða. Þá var skrifað undir smánarsamn- inga, sem fulltrúar eldri borgara sáu eftir að hafa skrifað undir. Ólafur Ólafsson formaður er ekki heldur nú ánægður með „samning- ana“. En í viðtali við Mbl. segir hann, að fulltrúum Landssambands eldri borgara hafi verið stillt upp við vegg.Gefið hafi verið til kynna, að ef ekki yrði skrifað undir fengist ekkert! AF NETINU UMRÆÐAN ELDRI BORGARAR BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR SENDIÐ OKKUR LÍNU Við hvetjum lesendur til að senda okk- ur línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Eingöngu er tekið á móti efni sem sent er frá Skoð- anasíðunni á visir.is. Þar eru nánari leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. E N N E M M / S ÍA / N M 2 2 7 9 0 Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 Vegna góðs stuðnings frá Nissan getum við nú í takmörkuðu magni boðið enn þá betra verð á Nissan X-Trail. Nissan X-Trail hefur hlotið ótal verðlaun og viðurkenningar og þú einfaldlega finnur ekki betri kaup í dag á jeppa í sama stærðarflokki. Önnur tilboð frá Nissan gilda ekki með þessu tilboði. 17" álfelgur, 4x4, litað gler, 6 diska geislaspilari, 3 drifstillingar, loftkæling, sjálfskipting, útvarpsfjarstýring í stýri, sóllúga. Borgaðu minna fyrir meiri lúxus! Ríkulegur staðalbúnaður Umboðsmenn um land allt Njarðvík 421 8808 Akranesi 431 1376 Höfn í Hornafirði 478 1990 Reyðarfirði 474 1453 Akureyri 464 7942 Verð áður 3.490.000 kr. Nissan X-Trail Sport Verð aðeins 2.990.000 kr. NISSAN X-TRAIL VERÐLÆKKUN! 500.000KR. BORGAÐU MINNA FYRIR MEIRI LÚXUS SUMARTILBOÐ NISSAN Voru eldri borgarar blekktir? Fréttamenn langt leiddir Sérkennilegt er, að lesa og heyra skoð- anir Ragnars Aðalsteinssonar hrl. á því, hvernig stjórnsýslu er háttað. Lögregla sinnir að hans mati öryggisgæslu við Kárahnjúka vegna „skipana að sunnan“ og þjóðskjalavörður er beittur „þrýst- ingi að ofan“ þegar hann svarar óskum Ragnars um aðgang að skjölum í Þjóð- skjalasafninu á annan veg en Ragnar vill. Að þessar stöðugu samsæriskenningar hæstaréttarlögmannsins eigi erindi í fjöl- miðla segir einnig nokkuð um, hve langt fréttamenn eru leiddir í gúrkutíðinni og það jafnvel sömu daga og endalaust er unnt að segja vega-, flug- og veðurfréttir vegna verslunarmannahelgarinnar. Björn Bjarnasson af bjorn.is Úrskurður laganefndar fallinn Úrskurður laganefndar Framsóknarflokks- ins í kæru Önnu Kristinsdóttur og Jónínu Bjartmarz vegna kjördæmisþingsins í vetur er loks kominn. Eins og einhverjir kunna að muna fóru þær stöllur mikinn í fjölmiðlum á sínum tíma og úthrópuðu mig og fleiri svindlara fyrir að láta það ekki yfir okkur ganga baráttulaust að láta henda öllum ungliðum úr stjórn kjördæmasambandsins. Úrskurðurinn féll á móti þeim í öllum atriðum sem er athyglisvert miðað við ítrekuð fjölmiðla- upphlaup vegna fundarins í vetur og vor þar sem þær komu fram sem sjálfskipað- ir riddarar lýðræðisins. Þær sjálfar virðast sem sagt eftir allt saman ekki hafa sætt sig við lýðræðislega niðurstöðu fundarins heldur þvert á móti farið gegn félögum sínum í flokknum á opinberum vettvangi með ósönnum dylgjum. Vænti þess að flokksmenn hafi þessa framkomu þeirra í huga þegar kemur að því að velja fólk í trúnaðarstöður í flokknum á komandi misserum. Haukur Logi Karlsson af mersol.blog- spot.com Íslensku krónuna á að skrá í gengi evrunnar Ég man eftir umræðu um að Ísland eigi að taka upp evruna og jafnvel ganga í Evrópusambandið. Ég er alls ekki endilega fylgjandi því en það eru aðrir möguleikar í stöðunni. Hvað með að skrá íslensku krónuna á gengi evrunn- ar? Íslenska krónan yrði til að forminu til en við myndum losna við sveiflurnar. Sú hugmynd hljómar alltaf betur og betur í mín eyru. Með þeirri breytingu myndi íslenska ríkisstjórnin, íslensk sveitarfélög, íslensk fyrirtæki og íslenskur almenning- ur búa við stöðugara efnahagsástand. Gengið stöðugt, vextir stöðugir og verð- bólgan stöðug. Með stöðugleikanum yrði jafnvel hægt að afnema vaxtabætur og verðtryggingu og minnka enn meira þann kostnað sem almenningur greiðir bönkunum. Minni álögur á íslensk heim- ili og fyrirtæki. Allir græða. Kristrún Lind Birgisdóttir af tikin.is 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.