Fréttablaðið - 08.08.2006, Blaðsíða 56
32 8. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Landsliðsfyrirliðinn Eiður
Smári Guðjohnsen skoraði eina
mark Barcelona í 1-1 jafnteflisleik
gegn mexíkóska liðinu Guadalajara
í æfingaferð Börsunga um Banda-
ríkin sem nú stendur yfir. Eiður
skoraði þar sitt annað mark í jafn
mörgum leikjum en bæði komu
eftir undirbúning Brasilíumannsins
Ronaldinho og virðast þeir félagar
vera að finna sig vel saman.
„Ronaldinho er leikmaður sem
lætur allt liðið spila betur. Maður
þarf bara að hreyfa sig vel og á
réttan hátt, þá má búast við því að
fá boltann frá honum. Það er alls
ekki erfitt að spila með Ronald-
inho. Það er mjög ánægjulegt að
ná að skora þar sem ég er fram-
herji og stuðningsmennirnir búast
við því að sjá mörk frá mér,“ sagði
Eiður Smári eftir leikinn.
Ronaldinho tók svo í sama
streng. „Eiður er mjög útsjónar-
samur leikmaður og staðsetur sig
mjög vel. Mér finnst frábært að
spila með honum. Ég þekki hann
ekki mjög vel enn sem komið er en
við þekkjum hreyfingar og hugs-
anir hvors annars á augnaráðinu
einu saman nú þegar. Þetta er full-
komin byrjun fyrir okkur,“ sagði
Ronaldinho um Eið Smára Guð-
johnsen en spænska deildin fer af
stað hinn 27. ágúst. - hþh
Eiður Smári Guðjohnsen skoraði sitt annað mark fyrir Barcelona í gær:
Myndar sérstakt samband með Ronaldinho
MARKINU FAGNAÐ Eiður Smári fagnar marki sínu með besta knattspyrnumanni heims,
Ronaldinho. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Garðar Jóhannsson hefur
hlotið uppreisn æru eftir nokkur
mögur ár hjá KR í Vestur-
bænum. Á sínum tæpum
fjórum árum þar skoraði
hann fjögur mörk í 36
deildarleikjum en í síð-
ustu viku gekk hann til
liðs við Val til að fylla skarð
nafna síns Gunnlaugssonar sem
var seldur til Norrköping í sumar.
Í sínum fyrsta deildarleik með
Val, gegn ÍBV á mánudagskvöldið,
skoraði hann þrennu í 5-0 stórsigri
sinna manna. Þar áður hafði hann
skorað í bikarleik með Val og því
mörkin orðin fjögur í tveimur
leikjum.
Garðar var haustið 2003 feng-
inn til KR en þá hafði hann skorað
28 mörk í 50 deildarleikjum með
Stjörnunni, þar þrjú mörk í þrett-
án leikjum á sínu eina tímabili í
efstu deild er Stjarnan lék þar árið
2000.
Á sínu fyrsta ári með KR gekk
honum nokkuð vel, hann lék
fimmtán leiki og skoraði í þeim
þrjú mörk en undir
stjórn Willums Þórs
Þórssonar varð KR
Íslandsmeistari.
„Ég spilaði mikið
hjá KR undir stjórn
Willums og hann hefur
ávallt haft mikla trú á mér. Ég
þakka honum kærlega fyrir það,“
sagði Garðar við Fréttablaðið en
Willum er núverandi þjálfari Vals
og sá sem vildi fá Garðar frá KR-
ingum nú. „Hann reyndi líka að fá
mig til Vals fyrir tveimur árum
áður en ég samdi aftur við KR.“
Garðar segir að Teitur Þórðar-
son, þjálfari KR, hafi leyft sér að
fara þar sem hann reiknaði ekki
með því að nota hann mikið það
sem eftir lifði tímabilsins. „Hann
var með mína hagsmuni í huga og
ákvað ég bara í kjölfarið að
stökkva á þetta tækifæri. Og ég sé
ekki eftir því enda hefur mér verið
tekið afar vel
hjá Val og
þetta hefur
verið algjört
ævintýri.“
Garðar
missti
alveg af
tímabil-
inu árið
2004
vegna
meiðsla og síðan þá hefur hann
aðeins skorað eitt mark fyrir KR
en hann kom við sögu í níu leikjum
með liðinu í sumar. Það hlýtur að
gleðja gamlan markaskorara að
finna taktinn á nýjan leik?
„Jú, vissulega. Maður er í þessu
til að skora og vinna leiki. Þetta er
auðvitað alveg frábært.“
Með sigrinum er Valur kominn
í annað sæti Landsbankdadeildar-
innar en munurinn er sem fyrr lít-
ill á milli annarra liða en FH, sem
trónir á toppi deildarinnar með
væna forystu. „Nú þurfum við
fyrst og fremst að koma okkur
aftur á jörðina og halda áfram að
spila eins og við gerðum gegn ÍBV.
Það eru enn sex leikir eftir en það
er reyndar ágætt að fá þetta frí
sem nú er framundan þar sem ég
fékk aðeins í nárann í leiknum og
því hvíldinni feginn.“ Garðar
tekur reyndar fram að það hafi
verið hluti af samningi Vals og KR
að hann spili ekki þann leik í
sumar.
Í fyrra var Garðar orðaður við
norska úrvalsdeildarliðið Lyn en
ekkert meira varð úr því. Hann
segir þó atvinnumennskuna ekki
vera sér neitt sérstaklega ofar-
lega í huga. „Fyrst og fremst vil
ég standa mig með Val. En það má
auðvitað alltaf skoða málin ef eitt-
hvað skemmtilegt kemur upp á
borðið.“
eirikur.asgeirsson@frettabladid.is
GARÐAR JÓHANNSSON Var í ham gegn ÍBV og skoraði þrennu. Var valinn leikmaður 12.
umferðar af íþróttadeild Fréttablaðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Er í fótbolta til að skora mörk
Framherjinn Garðar Jóhannsson hefur verið valinn leikmaður 12. umferðar Landsbankadeildar karla.
Hann skoraði þrennu í sínum fyrsta deildarleik með Val á dögunum en hann kom frá KR fyrir skömmu.
LEIKMAÐUR
UMFERÐARINN
AR
LIÐ UMFERÐARINNAR
Birkir Már Sævarsson
Matthías Guðmundsson Eyjólfur Héðinsson
Garðar Jóhannsson
Sigurvin Ólafsson
Hjörvar Hafliðason
Kári Ársælsson
Petr Podzemsky
Guðjón Árni Antoníusson
Björgólfur Takefusa
Baldur Sigurðsson
3-5-2
FORMÚLA 1 Jenson Button hjá
Honda varð fyrstur í kappakstrin-
um í Búdapest um helgina en þetta
var hans fyrsti sigur í Formúlu 1.
Fernando Alonso hjá Renault var
lengi vel fremstur en bíll hans bil-
aði og sömuleiðis féll Michael
Schumacher hjá Ferrari úr leik.
Button ræsti fjórtándi á ráslínu en
kom þrátt fyrir það fyrstur í mark
og keyrði vel í erfiðum aðstæð-
um.
Annar varð Pedro de la Rosa á
McLaren og þriðji Nick Heidfeld á
BMW. Eftir keppni var bíll nýlið-
ans Robert Kubica dæmdur ólög-
legur og Schumacher færðist upp
um eitt sæti. Hann fékk því eitt
stig og munar nú tíu stigum á milli
hans og Alonso sem er efstur í
heildarstigakeppni ökumanna. Í
keppni bílasmiða er Renault með
149 stig en Renault 143 stig. - egm
Ungverski kappaksturinn:
Fyrsti sigur
Jenson Button
FAGNAÐI VEL Button var hæstánægður
með sigur sinn. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Vinstri bakvörðurinn
Ashley Cole mun að öllum líkind-
um ganga í raðir Englands meistara
Chelsea í vikunni en hann var ekki
í leikmannahópi Arsenal sem fór
til Króatíu í gær. Ef Cole hefði
spilað með Arsenal gegn Dinamo
Zagreb í forkeppni Meistaradeild-
arinnar mætti hann ekki spila í
keppninni með öðru liði.
Líklegt er að Chelsea þurfti að
reiða fram 25 milljónir punda fyrir
Cole en David Dein, varastjórnar-
formaður Arsenal, hefur viður-
kennt að viðræður hafi átt sér stað
á milli liðanna. Í fyrra var Chelsea
sektað auk Jose Mourinho, stjóra
liðsins, og Cole fyrir að tala ólög-
lega sín á milli um hugsanleg kaup
á Englendingnum. - hþh
Ashley Cole:
Á leiðinni til
Chelsea
COLE Verður líklega orðinn samherji Arjen
Robben í vikunni. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Argentínumaðurinn Hern-
an Crespo er genginn í raðir Ítalíu-
meistara Inter á nýjan leik frá
Chelsea, sem gæti nú þurft að
kaupa sér einn sóknarmann til í
sumar. Crespo hefur aldrei leynt
ást sinni á Ítalíu en hann spilaði
þar á árunum 1999 til 2003. Hann
var síðan lánaður til AC Milan en
spilaði á síðasta tímabili með Chel-
sea. Þrátt fyrir að standa sig með
prýði naut hann sín ekki á Englandi
og fékk draum sinn uppfylltan með
því að fara til Inter á ný. - hþh
Hernan Crespo:
Snýr aftur til
Inter á Ítalíu
TEKUR GLEÐI SÍNA Á NÝ Crespo er nú
kominn aftur í búning Inter.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Indriði hjá Lyn
Indriði Sigurðsson er nú til reynslu
hjá norska liðinu Lyn en semji hann
við liðið fer hann til Noregs frá KR án
þess að spila leik fyrir Vesturbæjarfé-
lagið sem hann samdi við á dögunum.
Samningur hans við KR segir til um að
hann megi fara frítt ef erlent félag býður
honum samning.
> Tap gegn Dönum
Bronsverðlaunin á Norðurlandamótinu
í körfubolta runnu Íslandi úr greipum
en liðið tapaði um helgina fyrir Dönum
í lokaleik sínum á mótinu. Tapið var
sárt því Danir skoruðu aðeins einu
stigi meira en Íslendingar í leiknum en
það dugði þeim til 82-81 stigs sigurs.
Íslenska liðið hafði yfir lengst af í leikn-
um en Danir komust þrisvar sinnum
einu stigi yfir, í síðasta sinn rétt áður
en lokaflautan gall. Jakob Sigurðarson
var stigahæstur Íslendinga með 19 stig,
Hlynur Bæringsson skoraði 13 stig og
Logi Gunnarsson,
Helgi Magnússon,
Sigurður Þor-
valdsson og Páll
Axel Vilbersson
8 stig hver. Svíar
urðu Norður-
landameistarar
eftir sigur á
Finnum.
Blikastúlkur eru nú í Austurríki þar sem
þær taka þátt í Evrópukeppni félagsliða
kvenna. Með þeim í riðli eru SV Neu-
lengbach frá Austurríki, Newtownabbey
frá Norður-Írlandi og SU 1° Dezembro
frá Portúgal. Fyrsti leikur Breiðabliks er
í dag þegar stelpurnar mæta stöllum
sínum frá Portúgal. Sigurvegari riðilsins
kemst í aðra umferð en þar er einnig
um riðla að ræða. Sú umferð fer fram
um miðjan september.
Guðmundur Magnússon, þjálfari Breiða-
bliks, telur fyrirfram að gestgjafarnir í SV
Neulengbach séu sterkasti mótherjinn
í riðlinum. „Ef staða landsliða þessara
þjóða er skoðuð eigum við þó góða
möguleika á að komast áfram,“ sagði
Guðmundur og bætti við að stefnt væri
að því vinna riðilinn og myndi
Breiðablik þá meðal annars mæta
Evrópumeisturum Frankfurt í
öðrum riðli.
Þetta er í annað sinn sem Breiða-
blik tekur þátt í Evrópukeppni
félagsliða kvenna en keppnin
fór fyrst fram árin 2001/2002.
Þrátt fyrir það er þetta í þriðja
sinn sem Breiðablik öðlast
þátttökurétt en liðið tók
ekki þátt haustið 2001
þar sem margir af bestu
leikmönnum þess voru
farnir erlendis til náms.
„Við stefnum á að vinna
riðilinn,“ sagði Ólína G.
Viðarsdóttir, fyrirliði liðsins.
„Þetta verður stórskemmtilegt og
stemningin er allt öðruvísi í þessum
Evrópuleikjum heldur en þegar við
erum að spila í deildinni
heima,“ sagði Ólína.
Leikurinn í dag verður
klukkan 13:30 að
íslenskum tíma en
á fimmtudaginn
komið að leik gegn
heimastúlkum
frá Austurríki og
lokaleikur riðilsins er
gegn Newtownabbey
Strikers.
KVENNALIÐ BREIÐABLIKS: LEIKUR SINN FYRSTA LEIK Í EVRÓPUKEPPNI FÉLAGSLIÐA Í DAG
Stefnan er sett á að vinna riðilinn