Fréttablaðið - 08.08.2006, Page 8
8 8. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR
Máttarstólpi Menningarnætur
Menningarnótt 19. ágúst
Opið: Mánudaga - föstudaga kl. 9:00–18:00.Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is
Akureyri
461-2960
Njarðvík
421-8808
Höfn í Hornafirði
478-1990
Reyðarfirði
474-1453
Umboðsmenn
um land allt
�������������������������
�������������
�����������������������������
�������������������������������� ���������������������������������������������
������������������������� �������������
�������� �������������������������������������������������������� ���������������������������������������
�� ���������������������������������������������������������� ������������������������������� ������
�������������
�������������
�������������
�������������
�����������������
�������������������
������������ �����
������������� ����
������������� �����������������
Farangurskassar
leysa plássvandann í bílnum!
www.seglagerdin.is Eyjarslóð 5, sími 511 2200
Þyngd: 19,5 kg
Rúmmál: 320 L
Breidd: 0,96 m
24.900
SUMARTILBO
Ð
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
Sögurnar, tölurnar, fólki›.
HÚSNÆÐISLÁN Kostnaður við lán-
töku vegna íbúðakaupa getur
verið allt að tvöfalt hærri hér á
landi en á evrusvæðinu, sé miðað
við hefðbundin húsnæðislán.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar,
segir kostnað við íbúðalán hér á
landi óviðunandi fyrir almenn-
ing í landinu. „Annars vegar er
verðbólgan heimatilbúin og
almenningur þarf að greiða hátt
verð fyrir misheppnaða en sjálf-
stæða hagstjórn, þar sem
íslenska krónan er í aðal-
hlutverki. Vandinn er sá í hnot-
skurn að hagstjórnin hér innan-
lands er ekki nægilega góð. Og
síðan er það íslenskan krónan,
sem skoppar eins og korktappi í
alþjóðlegum fjárhagseigendum.
Fyrirtæki og stóreignamenn
hafa aðgang að evrópskum kjör-
um en ekki almenningur í land-
inu, og það er óviðunandi.“
Árni Mathiesen fjármálaráð-
herra segir breytingar á Íbúða-
lánasjóði í vændum og vonast til
þess að vaxtakjör batni eins
mikið og kostur er. „Það urðu
breytingar á húsnæðis-
markaðnum sem lækkuðu vaxta-
kostnaðinn við lán mikið, en þær
leiddu til þenslu á húsnæðis-
markaði sem við erum enn að
glíma við. Endurskoðun á Íbúða-
lánasjóði stendur yfir. Það þarf
að fara varlega í sakirnar þegar
farið er út í breytingar á þessum
markaði, en að sjálfsögðu eigum
við að stefna að eins góðum
vaxtakjörum og kostur er.“ - mh
Kostnaður við húsnæðislán hér á landi er töluvert hærri en á evrusvæðinu:
Vexti á lánum þarf að lækka
INGIBJÖRG SÓLRÚN
GÍSLADÓTTIR
ÁRNI MATHIESEN
HEILSA Þriðjungur landsmanna fær
krabbamein einhverntíma á ævinni,
samkvæmt krabbameinsskrá
Krabbameinsfélags Íslands. Um
það bil fjórðungur allra dánarmeina
er af völdum krabbameins. Tíðni
hinna ýmsu tegunda krabbameins
er mismunandi eftir kynjum, hjá
körlum er lungnakrabbamein
algengast en brjóstakrabbamein
algengast hjá konum.
Um sextíu prósent þeirra sem
greinast með krabbamein í dag
eru á lífi fimm árum frá grein-
ingu, en fyrir fimmtíu árum voru
um þrjátíu prósent á lífi fimm
árum eftir greiningu. Hvað mörg
krabbamein varðar hafa horfur
batnað verulega, til dæmis eru um
níutíu prósenta líkur á að kona
sem greinist með brjóstakrabba-
mein í dag verði á lífi eftir fimm
ár.
Að sögn Helga Sigurðssonar,
prófessors í krabbameinslækning-
um, er krabbamein óumdeilanlega
eitt helsta heilsuvandamál þjóðar-
innar. „Krabbamein er sá sjúk-
dómur sem almenningur óttast
einna mest að fá, en margir tengja
greiningu þess við dauðadóm,“
segir Helgi. „Horfur þeirra sem
greinast eru þó að batna og þeir
sem læknast ekki lifa lengur og
betur en áður. Ástæðan er fram-
farir í meðferð og greiningu sjúk-
dómsins á forstigum og einkenna-
meðferð.“
Helgi segir aldur mesta áhættu-
þátt þess að fá krabbamein.
Krabbamein séu fátíð undir 40 ára
aldri og meira en helmingur allra
sem fái krabbamein greinist eftir
65 ára aldur. Meðalaldur við grein-
ingu krabbameina er 67 ár hjá
körlum og 63 ár hjá konum.
„Nýjar rannsóknir sýna að offita
og þyngdaraukning eru mikilvægir
áhættuþættir fyrir fjölda krabba-
meina, þannig að hreyfing og við-
hald kjörþyngdar eru mikilvægir
fyrirbyggjandi þættir.“
Hann segir að búast megi við
verulegri lækkun á nýgengi á
sumum krabbameinum eins og
lungnakrabbameini þar sem reyk-
ingar landsmanna hafi minnkað.
Önnur eigi eftir að aukast eins og
sortumein vegna sólstrandarferða
og sólbaða. salvar@frettabladid.is
Þriðjungur fólks fær
krabbamein á ævinni
Einn af hverjum þremur fær krabbamein einhvern tíma á ævinni, að því er fram
kemur í krabbameinsskrá. Fimm ára lífshorfur þeirra sem fá með krabbamein hafa
tvöfaldast á fimmtíu árum. Helmingur allra sem greinast er eldri en 65 ára.
LANDSPÍTALI - HÁSKÓLASJÚKRAHÚS Helgi Sigurðssson, prófessor í krabbameinslækn-
ingum, segir krabbamein óumdeilanlega eitt helsta heilsuvandamál þjóðarinnar. Þó hafi
horfur þeirra sem greinast aldrei verið betri en nú. Samkvæmt krabbameinsskrá er um
fjórðungur allra dánarmeina af völdum krabbameins.