Fréttablaðið - 08.08.2006, Síða 10
10 8. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR
�������������������������������������������������������������������������������������������������������
����������� �� ��� �������� � ����� �������� ���� ����� ���� ��� ������� ������ ��� ����������� ������� ��� �������������
� ��������������������������������������������������������������������������������
������������������������������������������������������������������
������������������������������������������������������������
����������������������� ������������������
���� ����� ������ ��� ������� ������� ����������������� ���� ���
� ����������� �������� ������ ������ �������� ��� ����� �������
� ��������������� ���������������������� �������
����������������
����������������������
���������������������������
��������������� ������
������������������������� ����������������������� �������������������������� ��������������������� ������������������������
VERSLUNARMANNAHELGIN Að sögn
Braga Bergmann, talsmanns Vina
Akureyrar sem stóðu að hátíðar-
höldum þar í bæ, voru gestir til
fyrirmyndar um helgina.
„Níutíu og níu prósent af gest-
um skemmtu sér með sóma. Auð-
vitað leynast svartir sauðir alls
staðar en að mínu mati var þetta
vel heppnað í alla staði.“
Í kringum 18.000 manns lögðu
leið sína norður um helgina. Loka-
hátíðin á sunnudagskvöldinu var
vel heppnuð en þar sungu Hreim-
ur í Landi og sonum og Vignir í
Írafári og stjórnuðu heimamenn
miklum brekkusöng á íþróttavell-
inum við góðar undirtektir. Flug-
eldasýning var svo haldin undir
lokin sem hnýtti slaufu á helgina.
Í Vestmannaeyjum setti veðrið
strik í reikninginn á Þjóðhátíðar-
höldum en Páll Scheving, móts-
haldari í Eyjum, var ánægður
með hátíðina í ár. „Auðvitað er
erfitt þegar mikil bleyta er í daln-
um en ég er ánægður með hversu
lítið fólk lét það á sig fá. Hér
skemmtu sér allir með bros á vör
í rigningunni,“ segir Páll og bætir
því við að íþróttahúsið hafi verið
opið alla helgina og gat því fólk
sem missti tjöldin sín í rokinu
gist þar. Aldursforsetar hátíðar-
innar Bubbi Morthens og Árni
Johnsen voru hápunkturinn á
hátíðinni og segir Páll að hann
hafi sjaldan séð fleiri í Herjólfs-
dal og á sunnudagskvöldinu þegar
þeir tróðu upp fyrir 9.000 manns.
Fyrir austan var hátíðin Neista-
flug haldin í Neskaupstað. Þar var
veðrið gott og segir Þorvaldur
Einarson, umsjónarmaður hátíðar-
innar, að um 5.000 manns hafi sótt
hátíðina í ár og allt gengið snurðu-
laust fyrir sig. Mótshaldarar ein-
beittu sér að því að hafa hátíðina
fjölskylduvæna og var dagskráin
eftir því. „Páll Óskar var með ball
fyrir unglingana og var stemning-
in þar alveg frábær. Svo voru alls
konar skemmtiatriði fyrir yngstu
fjölskyldumeðlimina svo sem
Bárður og Birta úr Stundinni
okkar og leikritið Ávaxtakarfan
var sýnt við góðar undirtektir,“
segir Þorvaldur.
Einar Bárðarson hélt að þessu
sinni vímulausahátíð eins og venja
er í Galtalæk um helgina. „Hátíð-
in gekk meiriháttar vel og mikið
var um barnafólk á svæðinu enda
reyndum við að stíla inn á þann
hóp.“ Um 5.000 manns sóttu hátíð-
ina og voru öllum viðburðunum
vel tekið af gestum. Stúlknasveit-
in Nylon, sem er að gera það gott í
Bretlandi, hélt tónleika og Stuð-
menn sungu við mikla gleði gesta.
„Hápunkturinn var þegar Sumar-
gleðin með Ragga Bjarna, Hemma
Gunn, Ómar Ragnarsson og Þor-
geir Ástvaldson innanborðs stigu
á stokk og þeir sýndu að þeir hafa
engu gleymt,“ segir Einar, ánægð-
ur með hátíðarhöld helgarinnar.
alfrun@frettabladid.is
Aðstandend-
ur eru sáttir
Þótt veðurguðirnir hafi ekki verið í sínu besta skapi
um helgina var gleðin mikil víðsvegar um landið.
FJÖR Í LAUGARDALNUM Ekki lögðu allir land undir fót en um 5.000 manns komu saman í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal þar sem Stuðmenn héldu uppi fjörinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANIEL
VIÐBRÖGÐ SKIPULEGGJENDA
Vestmanneyjar:
„Veðrið getur klikkað en Þjóð-
hátíð klikkar aldrei,“ segir Páll
Scheving, mótshaldari Þjóð-
hátíðarinnar í Eyjum.
Akureyri:
„Ég vill þakka gestum fyrir að
vera til fyrirmyndar um helg-
ina,“ segir Bragi Bergmann, tals-
maður Vina Akureyrar sem
standa að hátíðarhöldum fyrir
norðan.
Neskaupstaður:
„Ég hef aldrei heyrt jafnmörg vá
og á meðan flugeldasýningin var
á sunnudagskvöldinu,“ segir
Þorvaldur Einarsson, umsjónar-
maður Neistaflugs í Neskaup-
stað.
Galtalækur:
„Það eina sem vantaði var rokið.
Hér var bliðskaparveður alla
helgina,“ segir Einar Bárðarson,
sem stóð að hátíðinni í Galtalæk.
NÁTTÚRA Náttúruverndarsamtök
Íslands gagnrýna harðlega aðgerðir
lögreglu gagnvart mótmælendum
og öðru ferðafólki á Kárahnjúkum.
Samtökin segja að í lýðræðis-
þjóðfélagi hafi fólk rétt á því að
mótmæla með friðsamlegum hætti
og eigi yfirvöld að sýna mótmæl-
endum fulla virðingu. Lögreglan
hefur ítrekað stöðvað ferðir fólks á
svæðinu og leitað í bílum þess.
„Lögreglan hefur gengið mjög
harkalega að mótmælendum og
skiptir sér af saklausu ferðafólki á
svæðinu í kringum Kárahnjúka.
Þetta er algjörlega óviðunandi
framkoma,“ segir Árni Finnsson,
formaður Náttúruverndarsamtak-
anna, og bætir því við að aðgerðir
mótmælenda á svæðinu séu með
friðsamlegum hætti. Árni segist
skynja ákveðna taugaveiklun hjá
lögreglunni og að mannleg sam-
skipti séu ekki með besta móti.
Þeir sem hafa lagt leið sína til
Kárahnjúka undanfarnar vikur
hafa orðið varir við aukin afskipti
lögreglu. Hefur verið nokkuð fjall-
að um það í fjölmiðlum og finnst
mörgum nóg um. Lögreglan heldur
því hins vegar fram að hún sé að
gæta laga og reglna. - áp
Náttúruverndarsamtök Íslands gagnrýna aðgerðir lögreglu harðlega:
Óþarfa afskipti af ferðafólki
MÓTMÆLENDUR VIÐ KÁRAHNJÚKA
Samkvæmt formanni Náttúruverndarsam-
taka Íslands fara mótmælin á Kárahnjúkum
fram með friðsamlegum hætti.
BÍLVELTA Bíll valt á Tjörnesi í
Suður-Þingeyjarsýslu um tvöleyt-
ið í fyrradag þegar hjólhýsi sem
hann dró tókst á loft í miklu hvass-
viðri og splundraðist.
Hjólhýsið feykti bílnum af veg-
inum í vindhviðu, en lögregla segir
að vindhraði hafi mælst um 25
metrar á sekúndu á tímabili.
Þrennt var í bílnum og hlaut fólkið
minniháttar meiðsli. Ökumaður-
inn var fluttur á sjúkrahúsið á
Húsavík og var hann útskrifaður
þaðan í gær.
Leifar hjólhýssins dreifðust á
stórt svæði og er bíllinn þar að
auki talin ónýtur.
- æþe
Hjólhýsi splundraðist:
Fauk út af og
velti bílnum
HITINN ÞOLANLEGUR Þessi níu ára gutti
brá á það ráð að fá félaga sína til að grafa
sig í sandinn á ströndinni á Coney Island
í New York í vikunni og afbar þannig um
stund hitabylgjuna sem ríður yfir austur-
strönd Bandaríkjanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP