Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.08.2006, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 08.08.2006, Qupperneq 22
[ ] Í garðskála Sigurðar Þórð- arsonar og Sigrúnar Andrés- dóttur er að finna forsögulegt tré sem lengi vel var talið út- dautt. Þetta er Ginkgo biloba, musteristréð. Musteristré er eina tegundin sem eftir lifir af áður stórri fylkingu plantna. Þessi ætt var vel þekkt úr steingervingasögunni en fram til 1690 var hún talin útdauð. Allt þar til þýskur landkönnuður, Engelbert Kaempfer, fann tré ólíkt öllum öðrum í klausturgarði í Nagasaki í Japan. Musteristré er nú að finna víða um heim og eru nokkrar plöntur hér á Íslandi. „Ég fékk tréð árið 1993 og þá var það 30 sentímetra hátt,“ segir Sigurður, sem auk þess að vera verkfræðingur og líffræð- ingur var í stjórn Garðyrkjufélags Íslands í 20 ár. „Ég geymi það úti í garðskála en það vex frekar hægt. Það tók nú samt kipp í sumar og er búið að vaxa einhverja 40 sentí- metra.“ Tréð er nú orðið um 170 sentímetra hátt en við réttar aðstæður geta musteristré orðið allt að 50 metra há, þó svo að þau verði sjaldan hærri en 35 metrar. Þetta ætti að útiloka musteristré sem stofuplöntu og eins og Sigurð- ur bendir á fellir það einnig laufin, sem þykir lítil prýði innandyra yfir langa vetrarmánuði. Musteristré verða mjög gömul og í Kína hafa fundist núlifandi tré sem talin eru yfir 1.500 ára gömul. Þetta þýðir að þeim var plantað í klausturgarðinn á svipuðum tíma og hinar myrku miðaldir hófust. Auk þess að vera langlíf eru trén afskaplega hörð af sér og vinsæl á þéttbýlum svæðum þar sem þau þrífast betur en flest önnur tré. Fyrir utan að vera eina núlifandi tegund sinnar fylkingar er musteris- tréð merkilegt fyrir margar sakir. Það er eins konar millistig milli ber- frævinga og dulfrævinga en til glöggvunar má geta þess að barrtré eru berfrævingar á meðan lauftré og blómplöntur eru dulfrævingar. Ginkgo Biloba extrakt er framleitt úr musteristrjám en efnið hefur blóðþynnandi áhrif, er afoxandi og margir trúa því að það geti bætt minni og hefur því meðal annars verið beitt í baráttunni gegn Alzheimar. Öfgafyllsta dæmið um lífskraft musteristrjáa er að finna í Hiroshima. Í innan við tveggja kíló- metra fjarlægð frá þeim stað sem kjarnorkusprengjan féll árið 1945 fundust fjögur lifandi musteristré, illa sviðin en heilbrigð að öðru leyti. Á meðan allt annað líf slökknaði stóðu trén kjarnorkusprengju af sér. Engan þarf því að undra heilagleika musteristrjáa í augum búddista og konfúseista. tryggvi@frettabladid.is Lifandi steingervingur Orðið ginkgo þýðir „silfurapríkósa“ á kantónsku. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Blöð musteristrésins hafa sérkennilega lögun. Reykskynjarar eru nauðsynlegir í öll hús, heimilið jafnt sem sumarbústaðinn. Formaco • Fossaleynir 8 • 112 Reykjavík • Sími: 577 2050 • Fax: 577 2055 • www.formaco.is ÞARFTU AÐ LOSA ÞIG VIÐ VIÐHALDIÐ? Veldu glugga vegna lítils viðhalds, góðrar hönnunar, gæða, útlits, endursölu og 10 ára ábyrgðar. Vertu viss um að gluggarnir séu - Spurðu fasteignasalann. RYKBURSTINN VINSÆLI Þyrlar ekki upp ryki heldur safnar því í sig. Góður hvar sem rykugt er t.d. á mælaborðið í bílnum, rimla- og strimlatjöld, húsgögn, rafmagnstæki, tölvur, skjái og annan húsbúnað. Verð 1500 kr. www.daggir.is s: 462-6640 ���������������� �������������������� ��������������������������� ��������������������� ������������������������������ ������������������������� ������������������������ ������������������������ ����������������������� ���������������������� ���������������������� ��������������� ��������� Handrið og stigasmíði Mikið úrval af handriðum inni sem úti. Stigar fáanlegir á lager - Gerum tilboð í sérsmiði. ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.