Fréttablaðið - 08.08.2006, Side 23
ÞRIÐJUDAGUR 8. ágúst 2006 3
Guðmundur Óli Scheving
SKRIFAR UM MEINDÝR OG MEINDÝRAVARNIR
Lesendum Fréttablaðsins er velkomið að senda fyrirspurn á netfangið gudmunduroli@simnet.is.
Þangflugan (Seaweed fly)
Þangflugan (Coelopa frigida) er
mjög sýnileg við t.d sjávarsíðuna.
Flugan er svört og ekki óáþekk hús-
flugunni en minni og kubbslegri.
Hún getur verið mjög hvimleið og
þar sem hún er er mikið af henni
og sumir veggir á húsum hreinlega
svartir af flugu. Þessi fluga er af
fiskifluguætt. Þangflugulirfur forð-
ast ljós og þurrk og lifa í dimmum
og rökum þarabingjum í fjörunni.
Þangflugan er tvívængja og er
aðeins ein tegund af henni hér á
landi. Frambolur er dökkur, grá-
svartur með dökkum langröndum.
Undanfarin ár hefur fólk kvartað
undan ágangi þangflugunnar í og
við híbýli manna við sjávarsíðuna
og hefur verið úðað fyrir henni
bæði innan dyra og utan. Í sjálfu
sér er allt í lagi að úða innanhúss
því það drepur þá flugur og önnur
skordýr sem fyrir eru en úðun utan-
húss í jarðveg gerir ekkert gagn og
menn ættu að láta það alveg ógert.
Þangflugan er ekki meindýr en pirr-
ar fólk.
Það borgar sig alltaf að fá mein-
dýraeyði til að úða fyrir sig. Það er
mjög auðvelt að koma í veg fyrir
að þangfluga og aðrar flugur kom-
ist inn með því að setja flugnanet
í opnanleg fög, hurðir og glugga.
Hægt er að fá þessi flugnanet hjá
meindýraeyðum og fyrirtækjum
sem selja gróðurvörur. Mjög nauð-
synlegt er fyrir fiskverkendur, frysti-
hús og útgerðarmenn að setja upp
viðurkenndan búnað til að verja
framleiðsluna fyrir flugum. Það er
ekki góð auglýsing fyrir fyrirtæki ef
fluga eða bjalla finnst í umbúðum
utan af t.d. fiski eða í hráefninu
sjálfu. Það er ódýrast og öruggast
að fá fagmenn til verksins.
Steinfluga (Plecoptera), (Capn-
ia vidua)
Steinfluga (Plecoptera), (Capnia
vidua) er meðalstórt skordýr. Hún
er með fjóra vængi og eru aftari
vængirnir stærri. Steinflugur eru
með ferkantað höfuð og flatvaxn-
ar og eru með langa og þráðlaga
fálmara. Flestar steinflugur eru með
tvö löng skott en þó eru til tegund-
ir sem eru með stutt liðskipt skott.
Kvendýrin eru með fullvaxna vængi
en karldýrin hafa dvergvaxna vængi.
Fullorðin dýr eru léleg flugdýr.
Það eru um 1700 tegundir til
í heiminum en aðeins ein tegund
hefur fundist hér á landi.
Steinflugan tilheyrir blævængju-
ætt sem er fjölskipaðasta ætt stein-
flugna í heiminum og telur um 300
tegundir. Ungviði steinflugunnar
nefnist gyðla (Capnia vidua) og lifir
í vatni en fullorðnu dýrin á landi.
Gyðlur finnast um allt land og eru
algengastar á grýttum botnum ár og
lækja. Þær sjást yfirleitt ekki fyrr en
seinni hluta sumars, þá hálfvaxnar.
Gyðlur steinflugunnar hafa tálkn til
öndunar. Tálknin hverfa í síðustu
hamskiptunum upp á landi þegar
fullorðna dýrið byrjar nýtt líf. Gyðl-
ur sumra tegunda eru rándýr en sú
tegund sem þrífst hér er plöntuæta.
Gyðlur steinflugunnar hafa fætur
og skríða um á ár- og vatnsbotnum
eða á gróðri. Þær skrapa ásætu-
þörunga og grott með sterklegum
kjálkunum en éta líka dýr og hræ
sem verða á vegi þeirra.
Ástæðulaust er að aðhafast neitt
þó vart verði við steinflugu innan-
húss. Í Póllandi hafa menn sett
mynd af steinflugunni á frímerki.
Steinfluga, hrossafluga og þang-
fluga eru ekki meindýr og eru upp-
lýsingar um þau hér sem hver annar
fróðleikur.
Óskaðu alltaf eftir að fá að sjá
starfsskírteini útgefið af Umhverfis-
stofnun og eiturefnaleyfi gefið út af
lögreglustjóra/sýslumanni og það
mikilvægasta er að viðkomandi hafi
starfsleyfi frá viðkomandi sveita-
félagi. Athugaðu hvort öll skírteini
séu í gildi. Félagar í Félagi mein-
dýraeyða eru með félagsskírteini á
sér.
Fáðu alltaf nótu vegna viðskipt-
anna.
Réttindi meindýraeyða og
garðúðara frá erlendum ríkjum
og félagasamtökum gilda ekki á
Íslandi.
Heimildir: Upplýsingar og fróð-
leikur um Meindýr og varnir 2004.
Hrossafluga, þangfluga, steinfluga, vorflugur - seinni hluti
Steinfluga
Grasflötin er oft höfuðverkur
garðeiganda.
Aðalvandi Íslendinga í ræktun
grasflata er bleyta. Yfirleitt er
sett allt of mikið moldarefni undir
þökur sem bindur mikið vatn.
Afleiðingin er oft sú að hitastig
jarðvegsins er lægra sem veldur
þá minni vexti.
Á knattspyrnuvöllum er þess
gætt að hafa undirlagið 70-90%
sendinn jarðveg. Það hins vegar
kallar á meiri umhirðu, bæði við
vökvun og áburðargjöf. Falleg
grasflöt kallar á mikið viðhald og
natni en skilar sér margfalt þegar
vel tekst til.
Oft veldur grasblettur garðeig-
endum áhyggjum vegna mosa. Á
Suðvesturlandi stafar mosavöxt-
urinn einkum af hinu raka sumar-
veðri og rökum loftlausum jarð-
vegi. Til að forðast mosann, þar
sem rækta á gras, þarf að ræsa vel
fram og yfirborðið á helst að vera
sendið. Gras þarf birtu og áburð
og það á að slá oft en ekki of nálægt
rót. Afslegna grasið á ekki að raka
af heldur leyfa því að liggja og
endurnýja efsta moldarlagið.
Til að stemma stigu við mosa
má til dæmis grisja hávaxin tré og
hleypið þannig birtu að grasflöt-
inni, nota mosaeyði og/eða mosa-
tætara til að fjarlægja mosann og
gata flötina og setjið 3-5 cm lag af
sandi yfir.
Loks er svo hægt að nota áburð-
arkalk (náttúrukalk) á grasflötina,
um það bil 15 kg/100 m2 og blá-
korn/graskorn um það bil 5 kg/100
m. Blákorn skal síðan bera á einu
sinni í mánuði yfir sumartímann
en skammturinn minnkaður um 1
kg í hvert skipti. Í sumum tilvik-
um getur verið nauðsynlegt að
leggja drenrör í lóðina til að
minnka rakann í jarðveginum.
Mosi dafnar best á rökum og
skuggsælum stað.
(heimild: www.husa.is)
Umhirða grasbletta
Fallegar grasflatir eru ekki sjálfgefnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
�����������
Faxafeni 5 • Reykjavík • Sími 588 8477 • betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
Opið virka daga frá kl. 10-18
Lokað á laugardögum í júní og júlí
ww
w.
de
sig
n.i
s ©
20
06
������
��
�
��
�
���������
��
�
�
�
��
�
�
���
����
�������
�������
������
�������������������������
���������������������
��������������������������
���������������������
������������������������
���������������������
������������������������
���������������������