Fréttablaðið - 08.08.2006, Síða 44
8. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR24
– Mest lesið
Þetta gæti tekið tíma
Er fasteignin þín ekki í mest lesna fasteignablaðinu?
Þegar hægist um á fasteignamarkaði er mikilvægara en nokkru sinni að auglýsa
á besta staðnum. Samkvæmt nýjustu könnun Gallup* lesa 40% fleiri Íslendingar á
aldrinum 25–49 ára Allt-fasteignir en Fasteignablað Morgunblaðsins. Vertu viss
um að eignin þín nái athygli sem flestra!
*Samkvæmt könnun Gallup, maí 2006
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Þjóðmenningarhúsið, eða
Safnahúsið eins og það
er oft kallað, var reist á
árunum 1906 til 1908 en ekki formlega opnað fyrr en árið 1909. Helsti
hvatamaður að byggingu húsins var Hannes Hafsteinn ráðherra, en í bygg-
ingarnefnd sátu auk hans meðal annars Guðmundur Björnsson landlæknir
og Tryggvi Gunnarsson bankastjóri, sem einnig hafði séð um byggingu
Ölfusárbrúar. Daninn Johannes Magdahl Nielsen var arkitekt hússins en þó
er skemmtileg staðreynd að hann kom aldrei til landsins til þess að fylgj-
ast með eða stjórna byggingu þess, en það var Trésmíðafélagið Völundur
sem sá um að reisa bygginguna. Utan á veggi húsins eru letruð nöfn átta
merkra manna úr íslenskri bókmenntasögu. Húsið var á sínum tíma reist
fyrir Landsbókasafn Íslands og Þjóðskjalasafn Íslands en helsta markmið
þess nú er að vera vettvangur til að kynna íslenska sögu og menningararf.
(Heimild: www.thjodmenning.is)
ÞJÓÐMENN-
INGARHÚSIÐ
Draumahús Heimis í Á móti sól er umkringt trjám og vötnum í Lúxemborg.
Það er Heimir Eyvindarson, tónmenntakennari og hljómborðsleikari í Á móti sól, sem lýsir
fyrir okkur draumahúsinu sínu að þessu sinni.
„Ég er sennilega búinn að sjá það, þó ég hafi ekki sigtað það sérstaklega út. Það er í kringum
Lúxemborg. Við spiluðum þar í vetur og keyrðum aðeins um sveitina þar í kring. Þetta er til
dæmis alveg brilljant staður til að vera með fjölskyldu og rosalega fallegt og stutt í allar
áttir. Svæðið heillaði okkur, sem og samfélag Íslendinga. Það er góð stemning á þessu
svæði.
Þarna er fullt af trjám og litlum vötnum og ég mundi vilja hús sem stæði við svona lítið
vatn. Samt það grunnt að enginn gæti farið sér að voða í því. Svo væri löng heimreið
að húsinu og allt væri þakið í trjám, maður mundi keyra í gegnum trjágöng.
Húsið sjálft væri hvítt í kastalastíl og mjög stórt. Nógu stórt til að ég geti haft
stúdíó og heitan pott á efstu hæðinni. Svo er skilyrði að hafa vinnukonu, helst
færeyska. Ég held að þær séu mjög duglegar og taki ekki mikil laun.“
Heimir á þrjú börn með konu sinni og segir því nauðsynlegt að hafa alls konar
leiktæki á lóðinni. „Og góðan bílskúr fyrir tvo bíla. Svo er klárlega billjardborð
einhvers staðar, ég er bara ekki búinn að staðsetja það. Og borðtennisborð líka.“
Heimir segir lítið að gera hjá sér þessa dagana, hann liggi bara heima og bíði
eftir Magna. „Við erum að undirbúa plötu sem á að koma út fyrir jól. Við erum
að verða búnir með allt sem við getum gert án hans,“ segir Heimir að lokum.
DRAUMAHÚSIÐ MITT: HEIMIR EYVINDARSON HLJOMBORÐSLEIKARI
Hvítur kastali með stúdíói
Sala fasteigna á höfuðborgar-
svæðinu hefur dregist mikið
saman á undanförnum vikum
en færst í aukana á Akureyri.
Alls seldust 465 fasteignir í síð-
asta mánuði á höfuðborgarsvæð-
inu. Þær voru hins vegar 600 í
júní síðastliðnum og fækkunin
milli mánaða nemur 22,5 pró-
sentum. Annað er uppi á teningn-
um þegar horft er til Akureyrar.
Þar seldist 41 fasteign í júlí en 25
í júní, þannig að þar jókst salan
um hvorki meira né minna en 64
prósent.
Þegar tölur milli ára eru born-
ar saman kemur í ljós að dregið
hefur úr fasteignasölu bæði
norðan heiða og sunnan. Í fyrra
seldust 725 eignir í júlí á höfuð-
borgarsvæðinu og mismunurinn
milli ára er fækkun um tæplega
36 prósent. Á Akureyri voru
sölurnar 88 í júlí í fyrra svo
fækkunin nemur 53 prósentum.
Fasteignaverðið hefur samt
hækkað frá því í júlí í fyrra. Á
höfuðborgarsvæðinu var meðal-
verð á hvern samning nú 25,6
milljónir á móti 23,5 milljónum í
fyrra og á Akureyri var meðal-
verð nú 17,75 en í fyrra 14 millj-
ónir.
Sala eykst á
Akureyri
Fasteignasala hefur aukist á Akureyri
síðustu vikur.
SELDAR EIGNIR Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU*
*þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisins.
300
250
200
150
100
50
0
FJÖLDI
16/6-
22/6
202
23/6-
29/6
117
30/6-
6/7
121
7/7-
13/7
116
14/7-
20/7
126
21/7-
27/7
104