Fréttablaðið - 08.08.2006, Page 48

Fréttablaðið - 08.08.2006, Page 48
 8. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR KEMUR ÚT ALLA FIMMTUDAGA Ágúst og Þorbjörg Ganga í það heilaga í Dómkirkjunni Katrín Hermannsdóttir Fljúgandi þula með kennaramenntun Tinna Alavis Heillast af einlægni og heiðarleika NÝTT&FERSKARA HÉR&NÚ Ég er Íslendingur og sem slíkur hefur mér verið innrætt ákveðið landlægt gildis- mat. Í samræmi við það var mér í æsku kennt var að fara út að leika mér ef veðrið var gott. Ég gerði það samviskusam- lega. Þetta var í árdaga tölvubylt- ingarinnar og þrátt fyrir að ég væri einn af þeim fyrstu til að fá leikjatölvu lá hún ónotuð á blíð- viðrisdögum. Ég fór heldur út í eina krónu með öllum krökkunum í götunni, spilaði fótbolta þar til svo dimmt var að boltinn sást ekki, stillti upp stórorustum í sandkassanum með tindátum og lét svo sprengjunum (steinum) rigna þangað til mamma kallaði mig inn að sofa. Ég bý ennþá að þessari arfleifð. Í hvert einasta skipti sem lægir á kvöldin og veðrið verður blítt fæ ég óheyrilega þörf fyrir að fara út. Ég hef ekkert að gera úti. Ég er jafnvel búinn að hamast úti allan daginn og er orðinn örþreyttur og þarf að mæta snemma í vinnuna daginn eftir. Samt sem áður nagar samviskubitið mig ef ég fer ekki út. Góða veðrið skal nýta því það kemur svo sjaldan. Þetta er víst afskaplega íslenskt. Varla finnst sá maður hérlendis sem ekki fær samvisku- bit ef hann hangir inni að nauð- synjalausu ef sólin skín. Sólskin er munaðarvara og hiti upp á 15 stig er eins og sólmyrkvi í augum Íslendinga. Allir verða að komast út að fylgjast með fyrirbærinu. Margir vinnustaðir gefa sólarfrí, starfsfólk tekur sér lengri pásur og mötuneytin taka upp á því að grilla úti í hádeginu. Samfélags- gangverkið hægir á sér og hættir að hugsa um hagvöxt og snýr sér að brosframleiðslu. Hagfræðingar myndu segja að þetta væri spurning um framboð og eftirspurn. Eftirspurn okkar eftir sumaryl og framboð veður- guðanna á heiðríkju. Eitthvað verður að breytast, því sem stend- ur annar framboðið hvergi nærri eftirspurn. STUÐ MILLI STRÍÐA Framboð og eftirspurn TRYGGVI GUNNARSSON FÆR SAMVISKUBIT Í GÓÐU VEÐRI. ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman ■ Pondus Eftir Frode Øverli Þú ert fínn í tauinu í dag, Günther. Ja! Í dag fer Ich í spariskóna, gut, na ja? Ich skal rölta að Schpari- sjóðurinn í Zkólavörðu- stígur! Af hverju að flýta sér? Það er lítill banki niðrá horni! Hahaha! Náðirðu þessum?! Lítill banki! Ókei! High five! Úps... fyrirgefðu! Hættu þessu Jói! Við þurfum ekki fleiri geðilla lágvaxna þýskumælandi menn með yfirvaraskegg! En frú Öxi er staðráðin í því að gera líf mitt að hreinu helvíti! Palli, Frú Öxi kennir áreiðanlega í kring- um 200 nemend- um á hverjum degi. 200 mismunandi einstakl- ingum sem þurfa ráðgjöf, leiðsögn og gagnrýni. Heldurðu virkilega að hún sitji á nóttunni og finni upp á leiðum til að eyðileggja líf þitt? Tjah, þegar þú segir það þannig... Leiðir til að eyðileggja líf Páls Jóhannes- sonar. ÞRÁHYGGJU- MIÐSTÖÐIN Bankið sjö sinnum og gangið svo inn. Sísí sá sól Sísí sá stóra sól Sól, sísí, sá Siggi sá. Hmmm... Spennan eykst. Við teiknuðum bókamerki, saum- uðum það saman í saumavél, tókum til inni hjá mér, settum nýj- ar reimar í skóna mína, löguðum rennilásinn í buxunum mínum, tókum til í fataskápnum mínum og tókum saman púsluspilið mitt. Jahá. Svo borðuð- um við morgun- mat! Ég panta kínverskan mat. Hvað eru margar vikur eftir af sumar- fríinu?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.