Fréttablaðið - 08.08.2006, Qupperneq 49
ÞRIÐJUDAGUR 8. ágúst 2006 25
TÓNLIST
[UMFJÖLLUN]
Sóðakjafturinn Merrill Nisker,
betur þekkt sem Peaches, snýr nú
aftur eftir þriggja ára þögn með
fleiri soravísur fyrir sjóarana sem
veiða á næturklúbbum bæjarins.
Hún hefur víst aldrei áður eytt jafn
miklum seðlum í að gera plötu, enda
seldust hinar tvær alveg sæmilega.
Platan hljómar nú samt eins og hún
hafi verið gerð í svefnherberginu
heima hjá henni. Bæði vegna hljóm-
gæðanna og textainnihaldsins.
Peaches hefur gert feril úr því
að klæmast við hlustendur sína.
Textarnir eru oft það ögrandi að
það kæmi mér ekkert á óvart ef tón-
list hennar væri algeng á stripp-
stöðum um heim allan. Nú eru sex
ár liðin frá útgáfu fyrsta slagara
hennar, Fuck the Pain Away.
Peaches, sem er fyrrverandi grunn-
skólakennari, nálgast nú óðfluga
fertugt og maður getur ekki annað
en velt því fyrir sér hversu lengi
hún nennir að standa í því að leika
djammdrottningu með brókarsótt.
Ef hún heldur þessum leik áfram er
mögulegt að hún endi sem paródía
af sjálfri sér.
Reyndar spilar hún lítið út á
útlitið. Ólíkt flestum öðrum tónlist-
armönnum í dag gerir hún engar til-
raunir til þess líta út eins og klám-
myndastjarna í von um að vera
meira aðlaðandi fyrir fjöldann. Hún
gerir frekar í því að líta út eins og
konan á stolna heimamyndbandinu
sem rakar sig ekki undir höndun-
um. Eins og í tónlist hennar eru
engar málamiðlanir gerðar þegar
kemur að sjónrænu hliðinni. Hún
nýtur þess að vega salt á því sem
öðrum þykir siðsamlegt. Það eru
kannski einhverjir búnir að gleyma
því, en um það snerist rokkið í
gamla daga, fyrir daga Rock Star
Supernova. Peaches brýtur reglur
og gengur eins langt og hún mögu-
lega getur, og þess vegna er hún
stjarna. Rokkstjörnur hafa ekki þol-
inmæði í að „sækja um vinnu“ í
nokkurra vikna vinsældakeppni í
beinni útsendingu. Hversu lengi
haldið þið að Kurt Cobain eða Jim
Morrison hefðu enst í slíku rugli?
Það er ekkert á þessari þriðju
plötu sem lyftir Peaches á næsta
plan sem tónlistarmanni. Þetta er
nákvæmlega sama formúla og á
hinum tveimur plötunum. Stand-
pínutaktar undir einföldum hljóm-
borðs- og gítarlínum, með grófum
textum um hinn eilífa dans typpa og
píkna. Í öðru lagi reynir hún svo að
sannfæra okkur um að það sé til
fiskur í Atlantshafi sem heitir Slipp-
ery Dick.
Hér leynast svo nokkrir skot-
heldir poppslagarar, eins og
Downtown og Two Guys (For Every
Girl). Blygðunarlausar tilraunir til
þess að komast í meginstraumsút-
varp, með öllu saklausri textum
sem Peaches gerir þó þokkafulla
með frábærri tjáningu sinni. Öskr-
in í You Love It eru svo alveg geð-
veik! Þar er engu líkara en púkinn
sem læddist í Lindu Blair í The
Exorcist hafi rennt sér inn í Peaches
þann daginn í stúdóínu. Niðurstaða;
enn og aftur skilar Peaches af sér
frábærri partíplötu.
Birgir Örn Steinarsson
Drottningin er enn með brókarsótt
PEACHES
IMPEACH MY BUSH
Niðurstaða: Þriðja breiðskífa elektró-
sorakjaftsins Peaches er svipuð og hinar tvær.
Ögrandi, grípandi og stuðandi.
�������
������
������������������
�������
������
������������������
���
���������
���
���������
�����
��������
�������
���������
�����
���������
Stúlknasveitin Pussycat Dolls
hefur ákveðið að leita eftir nýjum
meðlim í þætti sem ber hið frum-
lega nafn The Search for the Next
Pussycat Doll. Sigurganga þessar-
ar sveitar hófst árið 1995 þegar
stúlkurnar voru einungis dansar-
ar í myndböndum en á síðasta ári
gáfu þær út lögin Don‘t Cha og
Stckwitu sem bæði náðu hæstu
hæðum í Bretlandi. Sigurvegarinn
verður sjálfkrafa hluti af sveitinni
en hún samanstendur af sex með-
limum sem hafa verið saman síðan
2003. Sveitin vakti fyrst athygli
þegar hún bauð stórstjörnum á
borð við Drew Barrymore, Charl-
ize Theron og Nicoletta Sheridan
að taka þátt í frekar erótískum
dansýningum.
Leitað að
næstu kisu
PUSSYCAT DOLLS Hafa vakið athygli í
Bretlandi fyrir fiman limaburð og ágætis
popplög.
Meryl Streep mun verða þulur í
nýrri heimildarmynd um fellibyl-
inn Katrínu eftir leikstjórann
Greg MacGillivray. Katrína olli
gríðarlegum skemmdum í New
Orleans og Louisiana-ríki og varð
fjölda fólks að bana. Myndin verð-
ur frumsýnd í New Orleans
29. ágúst en þá verður liðið ár frá
því að hörmungarnar dundu yfir.
Framleiðandinn Allen Toussaint,
blúsarinn Tab Benouit og hin fjór-
tán ára gamla Amanda Shaw verða
einnig í myndinni. Reiknað er með
að myndin verði síðan frumsýnd
opinberlega um jólin.
Streep talar
um Katrínu
MERYL STREEP Mun verða rödd kvikmynd-
arinnar Hurricane on the Bayou sem
frumsýnd verður í lok ágúst.