Tíminn - 05.03.1978, Blaðsíða 13
12
Sunnudagur 5. marz 1978
/ HEIMSÓKN HJÁ
VALDSMANN/ EÞÍÓPÍU
Franski blaðamaðurinn Alain
Denvers var svo heppinn fyrir
stuttu að vera allra náðarsamleg-
ast gestur Mengistu Hailé
Mariam yfirmanns i Eþiopiu.
Mengistu hefur mikið verið i
fréttunum undanfarið þvi að hann
ætlar sér ótrauður með hjálp
Sovétmanna og Kúbu að ná aftur
yfirráðum ó Ogaden eyðimörk-
inni sem Sómalir hafa nú yfir að
ráða. Mengistu er i fjarlægð ógn-
vekjandi persóna. Hann myrti
fyrrv. keisara i E.iópiu, fjöl-
skyldu hans og æðstu yfirmenn.
Einnig féll fyrir vopnum hans á
miðjum ■ ráðherrafundi and-
stæðingur hans mikill Atnafu “*
Abate. Likunum var aldrei skilað
til ættingja og segir sagan að
Mengistu hafi haft það eins og
þeir i Chicago-menn i gamla daga
sem múrðu fórnardýr sin inni.
Bústaður Mengistu er keisara-
höllin og er hún likust sæta-
brauðshúsi, súlur hvitar og þak
skærbleikt.
Njótið lifsins
Alain vissi ekki, hvaðan á sig
stóð veðrið þegar hann fékk boð
um að koma til hallarinnar. Hann
hafði fengið vegabréfsáritun með
stuðningi tveggja manna i upp-
lýsingaþjónustunni i Addis
Abeba, en hann átti nú kannski
ekki von á að hitta sjálfan
Mengistu. Það er ekki að spyrja
að þvi, hjálparkokkar Alains voru
drepnir áður en hann gæti haft
verulegt gagn af þeim, — en þá
gerðist kraftaverkið.
Orlög öskubusku og Alains
fóru saman um tima. Alain segir
svo frá: ,,Ég veit ekki nákvæm-
lega, hvernig þetta gerðist. Menn
komu að máli við mig, buðu mér
bil og bilstjóra og óku mér að
Hilton hótelinu. Farartækið var
Pontiac af risastærð, — það hefði
farið ágætlega um þrjá flygla þar
inni, og bilstjórinn var engin
smásmiði heldur. Mér var
auðvitað dembt á sundlaugar-
Sunnudagur 5. marz 1978
13
bakka hótelsins og þar sat ég
góða stund með svalandi drykk og
rör. — Njótið lifsins, borðið, dans-
ið, sögðu fylgdarmenn minir við
mig. Siðan hvisluðu þeir: „Eftir
nokkra daga færðu að sjá mjög
merkilegan mann”. Paradisar-
sælan stóð i tvo daga. Siðdegis
þriðja daginn ávarpaði bilstjór-
inn mig virðulega eins og hans
var vani og sagðist hér með til-
tcynna „herranum” að billinn biði
hans og förinni væri nú heitið að
keisarahöllinni.
Alain segir svo frá, að hliðið að
hallargarðinum hafi smám
saman opnazt, eftir þvi sem ekið
var nær, og i móttökunni voru um
50 vopnaðir menn. Á grasinu biðu
skriðdrekar. Við hallardyrnar
stóðu tveir hermenn og ljón nokk-
ur i búrum við hlið þeirra. Virtust
þau gömul og tannlaus. I fylgd
Alains var sjónvarpstökumaður
frá franska sjónvarpinu,og var
þessara tveggja manna vandlega
fylgt eftir af hópi varða.
Mengistu eins og
skólastrákur
Gengið var inn i stóran sal, þar
sem stlll Loðviks XVI var greini-
lega hafður i heiðri. 1 litlum sófa
sat hógvær maður, lágvaxinn,
l,66m á hæð og mjósleginn. Hann
hreyfði sig með hægð rétti fram
höndina til þess að heilsa, en
sleppti henni um leið aftur. Rödd-
in var lág og bliðleg: Fyrirgefðu
að ég lét þig biða. Hvernig lizt þér
á Eþiópiu? Fallegt land og þar
verður eilíf hátið, þegar upp-
reisnarseggirnir, heimsvalda-
sinnarnir og afturhaldsmennirnir
i Eritreu (landsvæði nyrzt i
■fíþiopiu) hafa verið sigraðir
ásamt með sómölsku svikurun-
um...”
Sjónvarpsupptakan hófst, en
mér til undrunar stamaði þessi
„mikli og ógnvekjandi” maður.
Augu hans hvildu stöðugt á ein-
hverju blaði sem hann komst
varla fram úr. Hvað eftir annað
varð að stoppa og byrja sjón-
\arps-og hljóðupptökuupp á nýtt
Eg spurði: Foringi, ætlið þér að
virða sjálfstæði Djibouti? Hann
svaraði: „Já, við munum virða
þa-ð... Svo framarlega sem
Sómalir reyna ekki að troða sér
þar inn...
Mengistu sagði þessi orð svo
hikandi,að jafnvel mönnum hans
stóð ekki á sama. Þeir ætluðu sér
greinilega að gripa i taumana.
Mengistu tókst ekki að halda
setningu sinni áfram og liktist nú
mest skólastrák, sem trassað hef-
ur heimalærdóminn. Allt i einu
sagði djúp rödd: „Timi sá, sem
foringinn ætlaði sér fyrir þetta
viðtal, er löngu liðinn. Þvi miður
þýðir ekkert að bera fram fleiri
spurningar.” Mengistu kveður
með þeim orðum, að blaðamenn-
irnir séu velkomnir aftur, þegar
þeir vilji.
—Við vorum ekki fyrr komnir
upp á hótel, segir Alain, en túlkar
frá Mengistu birtast með segul-
bandstæki.Á spólunni reyndist við-
tal það, sem Mengistu hafði upp-
haflega ætlað að veita okkur. Þvi
miður talað- ræðumaður á
amfarisku, — einu af hinum fjöl-
mörgu tungumálum i Eþiopiu, og
túlkarnir voru nú ekki vissari en
það, að þeir tóku sér 6 klukkutima
i að þýða þessar 15 minútur for-
ingjans. Engu mátti skeika og
þeir grátbáðu okkur um, að birta
viðtalið orðrétt, — annars gætu
þau misst höfuðið...
Andstæðingarnir
styðjast við Kinverja
í Addis-Abeba reynir fólk að
lifa lifinu á sem eðlilegastan hátt,
en það er erfitt. Gangi maður inn i
opinbera stofnun, segjum t.d.
pósthúsið, er leitað á manni um-
svifalaust. Á götum úir og grúir
af varðmönnum með sprengjur
og skotvopn. Vegfarendur láta
sem þeir sjái þá ekki.
En mesta hræðslan liggur þó i
þvi að sjá allt i einu birtast hvitan
Peugeot 504, sem daglega skiptir
um einkennisstafi. Sú bifreið ekur
hægt i gegnum borgina, stað-
næmist við og við og útúr henni
stökkva byssuklæddir „bófar” og
skjóta vegfarendur. Enginn þyk-
ist neitt sjá. Þakka bara sinum
sæla fyrir að hafa sloppið i það
skiptið. Likin liggja þangað til
götusópararnir hirða þau. Þannig
drepa menn Mengistus upp undir
100 borgara á dag.
Fulltrúi stjórnarinnar útskýrir
þetta á þann hátt, að Mengistu
hálfleiðist Eþiopia nema ef vera
skyldi Addis Abeba... Og i Addis
leiðist honum flest nema ef vera
skyldi keisarahöllin..,,Allt annað
i Eþiópiu samanstendur af hálf-
leiðinlegum fjöllum.. En
uppreisnir verður að berja niður
á öllum þessum stöðum.”
öruggar heimildir herma, að
Mengistu sé alls ekki svo öruggur
i sessi, þegar tekið sé tillit til
þess að uppreisnarfylking aðal
andstæðings hans, Legessé Asfav
að nafni, telji nú 25 þúsund
manns. Sagt er ennfremur, að
Legessé njóti stuðnings kin-
verskra stjórnvalda sem óspör
séu á „sérlega sendimenn sina cg
ráðgjafa” Legessé til handa,
Sovétmönnum og öðrum
stuðningsmönnum Mengistus til
mikillar hrellingar.
FI þýddi.
Addis Abeba. Hviti Peugeotinn hefur farið hjá. Götusóp-
ararnir munu hirða líkin, þegar þeim býður svo við að
horfa.
J
[aBlaíalaEatalalalatalalalalalalíatátsIatatalsIalslalÉiIatalaS
polyvlies
ODYR
GÓLFDÚKUR
Verð pr. ferm.:
1507, 1650, 1872 og 2248
SAMBANDIÐ BYGGINGAVOR
SUDURLANDSBRAUT 32- EINNIGINNAKSTUR FRAARMULA29
EálaEalalalaíalalalalaíalatalalatatalaEátalaíaEatalalalaEalala
Auglýsið í TÍMANUM
VERÐ FRA KR.
930.000
HEYHLEÐSLUVAGNAR
EL 41 EL 70 EL 81
A VETRARVERÐUM
Notið þetta einstæða
tækifæri og geríð
pantanir timan/ega
SIMI 81500-ÁRMÚLAH