Tíminn - 22.03.1978, Qupperneq 9

Tíminn - 22.03.1978, Qupperneq 9
Miðvikudagur 22. marz 1978. 9 Unniðaö uppsetningu sýningar á munum vangefinna aö Kjarvalsstöðum. Timamynd: Gunnar. Vlllinri í VPrlrí” -fyrstasýntngsinnar f f^ •^J * V Cl i&l tegundar hér á landi FI — „Viljinn i verki” er heiti sýningar á Kjarvalsstöðum, sem haldin er i tilefni af 20 ára afmæli Styrktarfélags vangefinna. Að sýningunni standa öll heimili vangefinna i landinu, svo og öskjuhliðarskóli, Þroskaþjálfa- skóli Islands og Landssamtökin Þroskahjálp. Tilgangur sýning- arinnar ersáaðsýna þróun i mál- efnum vangefinna i máli og myndum, vinnu vistfólks á heim- ilum vangefinna og kynna að öðru leyti málefnið, sem ekki virðist vanþörf á. Innan Styrktarfélags vangef- inna hefur starfað afmælisnefnd, sem m.a. hafði það verkefni að undirbúa sýningu þessa. Varð hún sammála um að nota skyldi afmælisárið til kynningar á mál- efninu meðal almennings. Þessmá geta,að þetta er fyrsta sýning sinnar tegundar hér á landi, og mun hún vafalaust vekja athygli sýningargesta, eins og sams konar sýningar hafa gert hjá nágrannaþjóðum okkar. Bókakynning mun og verða á staðnum og þá kynnt ýmis fagrit varðandi málefni vangefinna. Kvikmyndir verða sýndar og ýmsir listamenn munu koma fram meðan á sýningunni stend- ur. Að lokum skal þess getið, að fólki gefst kostur á að kaupa ýmsa handunna muni, er van- gefnir hafa unnið. Hönnuður sýningarinnar er Gunnar Bjarnason leiktjaldamál- ari. Formaður afmælisnefndar er Halldóra Sigurgeirsdóttir. „Viljinn i verki” stendur frá 18.-27. marz. 1 dag, laugardag, verður sýningin opin frá kl. 17-22. Alla aðra daga frá kl. 14-22 nema páskadag frá kl. 15-22, og lokað verður á föstudaginn langa. STÁLHÚSGAGNAGERÐ STEINARS HF. Hversvegna að burðast með allt í fanginu fötu skrúbb, þvottaefni og flr. Hvað með tveggja fötu skruggukerru. sem eyðir engu. kemst yfir 20 km/klst. og erótrúlega lipur í umferðinni? r Barum er bústólpi Nú er rétti tíminn til þess aö huga aö nýjum hjólböröum undir dráttarvélarnar FRAM 600 x 16/6 - 12.180 kr. 650 x 16/6 - 14.840 - 750 x 16/6 - 18.460 - AFTUR 11 x 28/6 - 55.830 kr 13 x 28/8 - 79.060- 14 x 28/8 •- 93.900-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.