Tíminn - 22.03.1978, Síða 23
Miövikudagur 22. marz 1978.
23
flokksstarfið
Norðurlands-
kjördæmi
vestra
Aukakjördæmisþing Framsóknarmanna í Noröurlandskjör-
dæmi vestra verður haldið i Miögarði I Skagafirði fimmtudaginn
23. marz næstkomandi, skirdag, og~héfstkl. 2.00 e.h.
Tekin verður ákvörðun um framboð Framsóknarflokksins við
næstu alþingiskosningar.
Þingmenn flokksins i kjördæminu, Ólafur Jóhannesson ráðherra
og Páll Pétursson, koma á kjördæmisþingið.
Stjórnin.
Kópavogur
Skrifstofa Framsóknarfélaganna að Neðstutröð 4 verður fyrst
um sinn opin mánudaga til föstudaga frá kl. 17.15 tilkl. 19.15.
Stjórnir félaganna.
Húsvíkingar
Ingi Tryggvason alþingismaður verður til
viðtals á skrifstofu Framsóknarflokksins á
Húsavik kl. 17—19 miðvikudaginn 22. marz
næstkomandi.
Framsóknarfélag Húsavikur.
Grindavík
Framsóknarfélag Grindavíkur efnir til prófkjörs vegna bæjar-
stjórnarkosninganna i vor, og fer það fram i Festi dagana 22. og
23. marz. Kjörstaður verður opinn kl. 14.00-22.00 báða dagana.
Allir stuðningsmenn listans eru hvattir til að taka þátt i próf-
kjörinu.
Framsóknarfélag Grindavikur.
Sigga Vigga
og tilveran
Ný bók eftir Gísla J. Ástþórsson
Bókaútgáfan Bros hefur sent
frá sér bókina Sigga Vigga og til-
veran eftir Gisla J. Astþórsson.
Þetta er i fyrsta skipti sem hér á
landi kemur út myndasagnabók
með islenzkum persónum og eftir
islenzkan höfund. Gisli J. Ast-
þórsson („GJA”) er vel þekktur
fyrir ritstörf sin og teikningar,
sem hann vinnur jafnframt
Fiskgengd Q
— Héöan róa þrir bátar með
linu, fimmtiu til áttatiu lesta, einn
heimabátur og tveir frá
Hvammstanga. Þeir hafa fram
að þessu orðiö að sækja djúpt, allt
út fyrir Skagagrunn, til þess að fá
sæmilegan afla, en hafa samt
eitthvað gengið grynnra, sagði
Jón Jónsson, fréttaritari Timans
á Skagaströnd. En þess er þá lika
að gæta, að aöalgöngurnar i fló-
ann hér áður fyrr komu ekki fyrr
en um miðjan aprilmánuð eða þar
um bil, og hélzt siðan afli fram á
haust. Það getur bent til þess, að
aftur sé að koma svipað timabil
og i fyrrahaust, þegar netafiskur
fékkst hér langt inni á flóa.
blaðamennskunni. Af teiknisyrp-
um hans er Sigga Vigga eflaust
kunnust og svo hið vikulega
„Þankastrik,” en hvort tveggja
birtist i Morgunblaðinu.
Auk þeirra upplýsinga um
Siggu Viggu og félaga hennar
sem finna má aftan á bókarkápu
má benda á að baksvið mynda-
sögunnar er sótt i höfuöatvinnu-
veg okkar Islendinga og er aug-
ljóst að höfundur er ekki með öllu
ókunnugur hnútunum þar, þótt
hér sé nokkuð ýkt, eins og vera
Der. Þá fer hitt ekki á milli mála,
að þótt skopið sé efst á baugi i
þessari myndasögu, þá þarf ekki
djúpt að kafa á stundum til þess
að finna þar lúmskan „brodd”
eða jafnvel ádeilu.
— Ég held, að sjómenn hér
þakki auknar fiskigöngur mest
þvi, að þessi skógur útlendra tog-
ara, sem var úti fyrir, er nú horf-
inn úr sögunni, sagði Guttormur
Óskarsson, fréttaritari Timans á
Sauðárkróki. Að visu eru menn
ekki farnir að fiska verulega hér
innfjarðar, en þó hafa bátar frá
Hofsósi eitthvað fengiö. Skaga-
fjörður var aldauða um talsvert
árabil, en i fyrra brá svo við, að
mun meiri fiskur fékkst en áður,
og ég heyri, að þeir, sem bera
skyn á þessi efni, gera sér vonir
um, að enn verði glæðing á þessu
ári.
tftfir
Framhlið bókarkápu.
hljóðvarp
Miðvikudagur
22. mars
7.00 Morgunútvarp
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Viö vinnuna:
Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Reynt
að gleyma” eftir Alene Cor-
liss Axel Thorsteinson les
þýðingu sina (10).
15.00 Miðdegistónleikar
Janet Baker og Dietrich
Fischer-Dieskau syngja tvi-
söngva eftir Franz Schu-
bert: Gerald Moore leikur á
pianó. b. Pro Arte kvartett-
inn leikur Pianókvartett i
c-moll, op. 60 eftir Johannes
Brahms.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðrufregnir).
16.20 Popphorn Halldór
Gunnarsson kynnir.
17.30 Útvarpssaga barnanna:
„Dóra” eftir Ragnheiði
Jónsdóttur Sigrún Guðjóns-
dóttir les (19).
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki,
m.a. sagt frá Skiðamóti
Islands.
19.35 Gestur i útvarpssal:
Þýski pianóleikarinn Detlev
Krausleikur Fjórar ballöð-
ur op. 10 eftir Johannes
Brahms.
20.00 Af ungu fólki Anders
Hansen sér um þátt fyrir
unglinga.
20.40 „Hörpukliður blárra
fjalla” Jónina H. Jónsdóttir
leikkona les úr ljóðabók
eftir Stefán Agúst
Kristjánsson.
20.50 Stjörnusöngvarar fyrr
og nú Guðmundur Gilsson
rekur feril frægra þýskra
söngvara Niundi þáttur:
Richard Tauber.
21.20 Réttur til starfa Þor-
björn Guðmundsson og
Snorri S. Konráðsson
stjórna viðtalsþætti um iðn-
löggjöf.
21.55 Kvöldsagan: „Dagur er
upp kominn” eftir Jón
Helgason Sveinn Skorri
Höskuldsson les (2).
22.20 Lestur Passiusálma Jón
Valur Jensson guðfræði-
nemi les 49. sálm.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Svört tónlist. Umsjón:
Gerard Chinotti. Kynnir
Jórunn Tómasdóttir.
23.35,-Fréttir. Dagskrárlok.
sjonvarp
Miðvikudagur
22. mars
18.00 Ævintýri sótarans (L)
Tékknesk leikbrúöumynd.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
18.10 Bréf frá Karli (L) Karl
er fjórtán ára blökkudreng-
ur, sem á heima i fátækra-
hverfi i New York. Margir
unglingar i hverfinu eiga
heldur ömurlegt lif fyrir
höndum, en Karl og félagar
hans eru trúræknir og fullir
bjartsýni. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir.
18.35 Framtið Fleska (L)
Finnsk mynd um feitlaginn
strák sem verður aö þola
striðnifélaga sinna i skólan-
um. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir. (Nordvision
— Finnska sjónvarpið)
18.55 Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Skiðaæfingar(L) Þýskur
myndaflokkur 6. þáttur.
Þýðandi Eirikur Haralds-
son.
21.00 Nýjasta tækni og visindi
(L) U ms j ón ar m aðu r
Sigurður H. Richter.
21.30 Erfiðir timar (L) Bresk-
ur myndaflokkur i fjórum
þáttum, byggður á skáld-
sögu eftir Charles Dickens.
3. þáttur. Efni annars þátt-
ar: Dag nokkurn segir
Gradgrind dóttur sinni að
Bounderby vilji kvænast
henni. Hún fellst á ráðhag-
inn. Bounderby býöur ung-
um stjórnmáiamanni, Hart-
house höfuðsmanni til
kvöldverðar. Greinilegt er
að hann er meira en li'tið
hrifinn af Lovisu. Félagar
Stephens Blackpools, leggja
hart að honum að ganga i
verkalýðsfélagið, en hann
neitar af trúarástæðum,
þótt hann viti að hann
verður útskúfaður fyrir
bragöið. Bounderby rekur
hann úr vinnu eftir aö hafa
reynt árangurslaust að fá
upplýsingar um félagið.
Þýðandi Jón O. Edwald.
22.20 Dagskrárlok
Kirkjukvöld
í Dómkirkj unni
Vopnahlé 9
sem berjast i Suöur-Libanon eru
úr þeim samtökum. Varnarmála-
ráðherrann sagði, að aðeins yrði
samið við yfirvöld i Libanon, og
talið er að það sé ástæðan fyrir
þvi', að fulltrúi Sameinuðu
Þjóðanna i Miðausturlöndum,
Ensio Siilasvuo fór til Beirut i
gær. Talið er að hann hafi látið
Weizman fá orðsendinguskömmu
áður en yfirlýsingin um vopnahlé
kom frá israelsku stjórninni.
Sveitir Sameinuðu þjóðanna
eru væntanlegar á vetvang i dag,
en að öllum likindum mun nokkur
timi liða áður en tsraelsmenn
verða á fullu á brott frá
Suður-Libanon. Það er öryggis-
ráðið sem skipar sveitunum á
vettvang, en ráðið hvatti ísraels-
menn á sunnudag til að verða á
brott frá hinum nýherteknu
svæðum.
Israelsk yfirvöld virðast langt
frá þvi að vera ánægð með
ákvarðanir öryggisráðs Samein-
uðu Þjóðanna og hafa forðazt að
lýsa opinberlega yfir samþykki
sinu. Israelsmenn eru staðráðnir
i að tryggja að liðstyrkur Samein-
uðu Þjóðanna i Suður-Libanon
verði nægur til að tryggja að
skæruliðar hafi þar ekki bæki-
stöðvar eða geti ráðizt þaðan á
tsraelsriki.
Þorskvertíð O
land 30 þúsund tonn, um 1/12 af
veiðinni áður fyrr.
Ofveiðin er hins vegar eina or-
sökin fyrir þvi að þorskveiöi hefur
farið minnkandi hér við land. Að
sögn Sigfúss eru nú tveir þokka-
legir árgangar að vaxa upp, frá
Arunum 1973 og '76. Til mótvægi
við þá eru lélegir árgangar frá
’74, ’75 Og '77.
— Þaö kemur fram i gráu
skýrslunni svonefndu, að við telj-
um að þorskveiði eigi að tak-
marka við 270 þús. tonn næstu tvö
ár til að ná hrygningarstofninum i
400 þús. tonn áriö 1980. Með þvi að
draga úr sókn fengi árangurinn
frá 1973 að vaxa og yrði af
svipaðri stærð um 1980 eins og
hrygningastofninn 1973. Eftir 1980
má búast viö þvi að hrygninga-
stofninn fari aftur minnkandi þar
til góði árgangurinn frá ’76 er
kynþroska, sagði Sigfús að lok-
um.
Hið árlega kirkjukvöld Bræðra-
félags Dómkirkjunnar verður á
skirdagskvöld kl. 20.30 i Dóm-
kirkjunni.
Efni kvöldsins aö þessu sinni
verður „Kærleikur og mannleg
Ingvar Pórdar-
son sýnir í
fimmta sinn
á Húsavík
ÞH — Húsavik. Ingvar Þórðarson
opnar málverkasýningu i Safn-
aðarheimilinu á Húsavik fimmtu-
daginn 23. marz og veröur sýn-
ingin opin kl. 16—21 dag hvern til
26. marz.
A sýningunni verða 37 oliu-
myndir. Sýningin verður fimmta
einkasýning Ingvars á Húsavik,
en hann hefur áður haft einkasýn-
ingar á Akureyri og i Reykjavik.
Samþykkur 0
falt mál og varla gerlegt nema
með samkomulagi margra
aðila. I þvi efni skipti miklu álit
og hagsmunir viðskipta-
bankanna sjálfra og viðskipta-
manna þeirra. Þá benti Ólafur á
að árið 1974 hafi einmitt verið
flutt stjórnarfrum varp um
viðskiptabankana og samein-
ingu Búnaöar- og Útvegs-
bankans, oghefði þá sýnt sig, að
ekki væri nægur hljómgrunnur
fyrir sameiningu bankanna.
Rekstrarörðugleikar fisk-
vinnslu og útgerðar hafa að
undanförnu komið nokkuð þungt
niður á útvegsbankanum, og
eru þau mál bankans nú til
athugunar. Sagði Ólafur þegar
hann var spui'ður um þessi efni,
aðenn hefði ekkert áþreifanlegt
gerzt i þessum málum, og gæfi
það eitt út af fyrir sig visbend-
ingu um að ekki væri eins
auðvelt að hreyfa þessum mál-
um og sumir ætluðu.
samskipti”. Hilmar Helgason
formaður S.Á.A. er aðalræðu-
maður kvöldsins.
Kristinn Bergþórsson syngur
sálmalög eftir Sigfús Halldórsson
tónskáld með undirleik organista
og Jónasar Dagbjartssonar fiðlu-
leikara.
Lokaorð og bæn flytur séra
Hjalti Guðmundsson, dómkirkju-
prestur.
Tónleikar
skólakóra í
Hát eigskir kj u
Idag, miðvikudaginn 22. marz,
efna fjórir skólakórar til tónleika
i Háteigskirkju og hefjast þeir kl.
20.30. Kórarnir eru Kór Gagn-
fræðackólans á Selfossi,
stjórnandi Jón Ingi Sigurmunds-
son, Barnakór Akraness, stjórn-
andi Jón Karl Einarsson, Kór
Hvassaleitisskóla, stjórnandi
Herdis Oddsdóttir og kór öldu-
túnsskóla, stjórnandi Egill
Friðleifsson. Efnisskráin er mjög
fjölbreytt, en þar er að finna
innlend og erlend lög allt frá 16.
öld til okkar daga. Kórarnir munu
koma fram hver i sinu lagi og
einnig sameiginlega, og eru
kórfélagar samtals um 140.
Samkomafyrir
aldraöa Barð-
strendinga
Kvennadeild Barðstrendinga-
félagsins i Reykjavik heldur sam-
komu fyrir Barðstrendinga 60 ára
og eldri i félagsheimili Langholts-
safnaðar á morgun (skirdag). A
samkomunni verða flutt ávörp,
upplestur, einsöngur og fleira. A
eftir verður veitt kaffi. Samkom-
an byrjar kl. 14. Barðstrendinga-
félagið hefur i mörg ár staðið að
samkomum fyrir eldra fólk á
skirdag og hafa þær veriö
fjölsóttar og vinsælar. Aðgangur
er ókeypis.